Alþýðublaðið - 20.07.1994, Qupperneq 5
Miðvikudagur 20. júlí 1994
FJOLMIÐLAR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
(1) -fiiH enðaUutA tututotápuópeM „ $töÖ l - ■ffákAtlálút".
(Z) ktukkuítuuda itómtfud fóköuuu: „fhiuu Tmi fliuu Houxai".
(1) fiötkutpeuuauöi kemitö&mpuö: „faóþuiuUtafuiÖ".
STOÐ 2 hefur nú svarað hinni miklu sókn RIKIS-
SJÓNVARPSINS í innlendri dagskrárgerð: Eig-
endurnir bjuggu til eina létta sumarsápuóperu,
STÖÐ 2 - HAKARLABÚR. Sápuóperan jjallar að
sjálfsögðu um valdabaráttu eigendanna og inni-
heldur ofbeldisatriði sem ekki eru við hœfi barna
og ástaratriði sem vart teljast heldur hepppileg Jyr-
ir ungviðið. Sjónvarpsáhorfendur jylgjast spenntir
með baráttu ELÍNAR HIRST, EGGERTS SKÚLA,
SIGURJÓNS SIGHVATS, JÓN ÓLAFS, PALLA
MAGG, JAFETS ÍSLANDSBANKAMANNS og
allra hinna krakkanna.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
etta ætlar að verða gott sum-
ar.
Ekki aðeins veður-
fræðilega, heldur einnig undir
merkjum stjómmála og ljöl-
miðla. Þetta er sannkallað sum-
ar sápuóperanna.
Sápuópera
Stöðvar 2
Stöð 2 hefur nú svarað hinni
miklu sókn Ríkissjónvarpsins í
innlendri dagskrárgerð.
Auðvitað var ekki auðvelt að
mæta hinni ríkisreknu dag-
skrárgerð þegar kassamir era
tómir og lánadrottnar öskra í
hveiju homi.
Hvemig bregst maður við
því?
Jú, eigendumir búa til eina
létta sumarsápuóperu, Stöð 2 -
Hákarlabúr, sem sjónvarpað er
lon og don, ekki aðeins á Stöð
2 heldur mest í öðrum fjölmiðl-
um.
Sápuóperan fjallar að sjálf-
sögðu um valdabaráttu eigend-
anna og inniheldur ofbeldisat-
riði sem ekki eru við hæfi
bama og ástaratriði sem vart
teljast heldur hepppileg fyrir
ungviðið.
Lilli klifurmús
og
Mikki refur
Mörg aUiði úr þessari vel-
heppnuðu sápuópera era þegar
orðin kiassísk og eiga þannig
eftir að halda nafni Stöðvar 2 á
lofti um aldur og ævi.
Þanrúg verður hákarlasenan
með Eggerti Skúlasyni í heiðri
höfð sem ein hrikalegasta og
dramatískasta kvikmyndasena
síðan Dr. No, erkifjandi James
Bond, var og hét.
Eggert var hins vegar ekki ét-
inn af hákörlunum eins og
fómarlömb Dr. No heldur af
samstarfsmönnum sínum sem
auðvitað eykur á dramatík
óperannar.
Þá verður ekki síst munað
eftir hinni ljúfu ástarsenu milli
Sigurjóns Sighvats og Jón OI-
afssonar þar sem þeir slíðraðu
sverðin og gerðust bandamenn
í heillandi ástararíu.
Bandalag fomijendanna
minnir einna helst á lokaaa
triðið í Dýrunum i
Hálsaskógi þar sem Lilli klif-
urmús og Mikki refur fallast í
faðma og syngja lokasönginn
um að enginn megi éta neinn í
skóginum.
*
Ur hreiðursfréttum í
hákarlabúrið
Fleiri senur er sígildar úr
sápu sumarsins.
Þannig geta menn ekki
gleymt Elínu Hirst í gervi
hinnar blóðþyrstu fféttastýra
sem umsvifalaust lét náðar-
höggið falla er aðalfréttahaukur
hennar hugðist klifra ofan í há-
karlabúrið.
Fréttahetjan var komin úr
brókunum og búinn að stinga
tánni ofan í gmggugt vatnið
þegar fréttastýran rak hann í
gegn aftan frá (á meðan hún
tárvot bað hann um að fara ekki
ofan í hákarlatankinn).
En þar sem fífldirfskan heill-
aði rannsóknafréttamanninn
meira en hreiðursfréttir úr
Öskjuhlíðinni, var ekki aftur
snúið og dramatíkin náði há-
marki er fréttahetjan féll í
dauðateygjunum aftur fyrir sig
með rýting fréttastýrannar í
hryggnum og annan öklann
kræktan um hákarlabúrið.
Þetta atriði þykir minna um
margt á hápunkt Laxdœlu, sér-
staklega þegar Elín Hirst sagði
með þunga í næsta þætti sápu-
óperannar að henni hefði alltaf
þótt mest til Eggerts koma af
fréttamönnum sínum.
Sáu margir glöggir menn
samlíkinguna úr Laxdælu er
Guðrún minntist sinnar mestu
ástar:
„Þeim var ek verst er ek unni
mest“.
Jeppaeltingaleikur og
hvarf nýja
bingóstjórans
Önnur atriði era einnig minn-
isstæð eins og lögeggjan Sig-
mundar Ernis að leggja niður
starfsmannafélagið; íjölda-
morðin í Sýnar-verinu (sett á
svið eins og fréttaskot frá
Sarajevo), bílaeltingaleikurinn
á jeppa Páls sjónvarpsstjóra
sem endaði með útafakstri og
gamli meirihlutinn sem orðinn
var nýi meirihlutinn náði tang-
arhaldi á bílnum en henti sjón-
varpsstjóranum í skottið.
Ógleymanlegar senur.
Ekki má heldur gleyma öll-
um atriðunum með lögmönn-
um sem minntu einna helst á
það besta úr Lagakrókum.
Sum atriðin sem tekin vora á
Holiday Inn minntu einna helst
á íjöldasenur úr Hœstarétti
enda allir í málaferlum við alla.
Að lokum skulum við taka
ofan hattinn fyrir hinum
óvæntu leikhæfileikum starfs-
manna og eigenda Stöðvar 2.
Hvem hefði til að mynda
granað að Eggert Skúlason
gæti bragðið sér í gervi hins
háskalega hluthafa; að Elín
Hirst gæti túlkað hina bijóst-
góðu fréttastýra; eða þá að nýi
meirihlutinn gæti túlkað þol-
endur á jafn sannfærandi hátt
og þeir gerðu í lokaatriðunum?
Förðunin var einnig mjög
góð, sérstaklega andvökupok-
amir undir augum og áhyggju-
hrakkumar á andlitum nýja
meirihlutans.
Sviðsumgerð var einnig
ágæt, sérstaklega leikmyndin úr
fréttastofunni - enda mun hún
hafa kostað skildinginn.
Bæ ðö vei: Hvar er nýi bin-
góstjórinn?
Að lokum skal hinn nýi leik-
ari, Jafet íslandsbankamað-
ur, hylltur fyrir bestan leik í
aukahlutverki, en hann stal al-
veg senunni í lokin þegar hann
stökk þrefalt heljarstökk úr fjár-
málastjórastól bankans yfir í
hákarlabúr sjónvarpsstöðvar-
innar.
Og án öryggislínu.
Stórmynd um
þjáningar Jóhönnu
Reyndar hafa fleiri sápuóper-
ur verið settar á svið í sumar.
Þannig era hafnar tökur á
nýrri stórmynd í tveimur hlut-
um sem Jóhanna Sigurðar-
dóttir leikstýrir og leikur aðal-
hlutverkið í.
Ólína Þorvarðardóttir
skrifar handritið.
Myndin tekur eina sjö tíma í
sýningu og ber vinnuheitið
Gangan langa, en endanlegt
heiti verður sennilega Minn
tími mun koma!.
Fyrri hluti myndarinnar segir
frá þrautargöngu Jóhönnu um
eyðimerkur Alþýðuflokksins
þar sem Messías verður stöð-
ugt á vegi hennar í eyðimörk-
inni og eykur á þjáningar henn-
ar.
Síðari hlutinn (þrír og hálfur
klukkutími) segir frá göngu Jó-
hönnu um byggðir Islands þar
sem hún gerir tilraun til að
kynnast fólkinu eftir áralanga
dvöl í fílabeinstumi Félags-
málaráðuneytisins en þar inni
var hún læst auralaus af ill-
menninu Johnny Bald gegn
vilja sínum.
Skal ekki meira sagt frá
söguþræðinum en upphaflega
mun hugmyndin að mynd Jó-
hönnu vera komin frá mynd-
inni Back To The Future.
Kunnugir segja að söng- og
dansatriðið í lokin sé stórkost-
legt en þá ku Jóhanna syngja
rokklagið Johnny B. Good með
miklum tilþrifum og stígur
villtan polka við taktinn.
Þjófminjasafnið:
Hörkuspennandi
heimildarmynd
Af öðram sápuóperam sem
nú era í bígerð er söguleg fram-
haldsmynd sem ber heitið Þjóf-
minjasafnið.
Þar segir frá ævintýramanni
sem áður var heitur maóisti en
hefur nú komist til valda og
áhrifa í hægrisinnuðum stjóm-
málaflokki.
Ævintýramaðurinn, sem
nefnist Gummi Magg, hefur
fengið Minjasafn ríkisins til
umráða gegnum pólitísk sam-
bönd.
Fljótlega kemur í ljós að ekki
er allt með felldu í Minjasafn-
inu.
Hlutir týnast, era falsaðir eða
jafnvel fluttir með launung á
brott að næturþeli.
Er þá farið að kalla safnið
Þjófminjasafnið.
Gummi Magg upplýsir hvem
stórþjófnaðinn á fætur öðrum
en sterkasta senan mun vera
þegar breskum sérfræðingi sem
Gummi hefur komið hingað til
lands tekst að upplýsa að stolt
safnsins, fomt helgitákn frá
heiðnum tíma, sé alls ekki sá
mikli safngripur sem menn
héldu - heldur nýlegt sjón-
varpsloftnet úr áli.
Dregur nú rnjög t
il tíðinda.
Embættismenn fomminja
lýsa yfir sakleysi sínu hver um
annan þveran í fjölmiðlum
landsins og benda einkum á
sjónvarpsvirkja norður í landi
en loftnetið kom einmitt fram í
dagsljósið við uppgröft í rasla-
haugi hans.
Helsti rithöfundur landsins
og sonur fyrrum Minjavarðar
hefur villtar ádeilur á embættis-
færslur fræðimannanna sem
svara hver fyrir sig.
Á meðan þessu fer fram hef-
ur ævintýramaðurinn hægri-
sinnaði látið af embætti Þjóf-
minjavarðar og tekið við
fréttastjóm æsingablaðsins
Dagleg vitfirring.
Taka nú undarlegustu fréttir
af Þjófminjasafninu að berast á
síðum blaðsins og leynist víða
fiskur undir steini.
Verður ekki sagt meira frá
söguþræðinum enda gæti hann
enn tekið óvænta stefnu.
Þáttaröðin verður tilbúin
næsta vor og verður stranglega
bönnuð bömum.
Fleiri sápur eru í bígerð og
munu RÖKSTÓLAR geta
þeirra á nœstunni.