Alþýðublaðið - 29.07.1994, Síða 9
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9
Föstudagur 29. júlí 1994
UMHVERFI
Lniliverflsráðhcrra, ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON, heimsækir nokkrar
náttúruperlur á NORÐAUSTURHORNI landsins. Ráðherrann er ánægður
með starf síns fólks á viðkvæmum ferðamannastöðum. Starfefólkið hefur
efint til ýmissa nýjunga í þjónustu sinni við ferðafólk:
Lítilsháttar gjaldtöku á
ferðamannaslóð má fliuga
- segir Össur Skarphéðinsson uniliverfisráðherra
Að mínu áliti kemur það
alveg til greina að
íhuga minniháttar
gjaldtöku í framtíðinni á ýms-
um stöðum sem ferðafólk leitar
til, að fólk greiði fyrir ýmsa þá
þjónustu sem því er veitt. Ég •
var á dögunum í heimsókn á
Höfða í Mývatnssveit, þar sem
Héðinn heitinn Valdimarsson
átti sér bústað. Þar kostar það
100 krónur að fara inn á svæðið
og skoða þá stórbrotnu náttúru
sem við blasir. Þarna voru 200
til 300 ferðamenn, langflestir
útlendingar, og var ekki annað
að heyra en að þeim þætti eðli-
legt að greiða lítilsháttar að-
gangseyri“, sagði Össur
Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra í viðtali við Alþýðu-
blaðið í gær. Hann segir að í
þessu efni geri margt smátt eitt
stórt, sem geti nýst við áfram-
haldandi uppbyggingu þjón-
ustu, ferðafólki til góða í allri
framtíð.
Náttúruperlur
HÖFUÐSTÖÐVARNAR - hér er aðseturþjóðgarðsvarðar og landvarða í Jökuls-
árgljúfrum. A myndinni, taliðfrá vinstri: Arný Sveinbjörnsdóttir,jarðfrœðingurog
eiginkona Össurar; umhverfisráðlierrann; Sigþrúður Stella; og Aðalheiður Jó-
hannsdóttir, framkvœmdastjóri Náttúruverndarráðs.
Alþýðublaðsmynd/GuðriðurÞorvarðardóttir
Stefnir í
metaðsókn á
gljúfrasvæðinu
„I fyrrasumar var ferða-
mannastraumur í þjóðgarðinum
í Jökulsárgljúfrum með minna
móti, enda veður válynd lengst
af. En í sumar bregður til hins
betra og ljóst að þetta verður
vísiteraðar
Össur hefur undanfarna daga
vísiterað þjóðgarða landsins,
sem heyra undir umhverfis-
ráðuneytið. Núna í vikunni var
ráðherrann í Jökulsárgljúfrum, í
Herðubreiðarlindum, við Öskju
og við Mývatn. Hann segir að
þarna séu einstakar perlur ís-
lenskrar náttúru, sem heilli
ferðamenn, innlenda sem er-
lenda.
, Jökulsárgljúfur eru í mínum
huga einhver fallegasti staður á
jarðríki með þrem fallegum
fossum og ótnílega fögm um-
VELKOMINN RAÐHERRA! - Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, líffrœðingur og
þjóðgarðsvörður, tekur á móti Össuri Skarphéðinssyni við komu ráðherrans íþjóð-
garðinn í Jökulsárgljúfrum í vikunni.
Alþýðublaðsmynd / Guðriður Þorvarðardóttir
hverfi. Það er alveg ljóst að við
framkvæmdir af ýmsu tagi í
framtíðinni verður alltaf að
hafa í huga hina stórbrotnu feg-
urð landsins, sem er alveg ein-
stök. Ferðafólk, bæði innlent
sem erlent, er að sækjast eftir
að komast í snertingu við þessa
ósnortnu náttúru. Því er haldið
fram að útlendur ferðamaður
sem hingað kemur í þessu
skyni, sé ígildi þúsund kílóa af
þorski. Það er því eftir nokkru
að slægjast að vemda náttúmna
fyrir öllum hugsanlegum
skakkaföllum af hendi okkar
mannanna“, sagði Össur.
*
Anægður með sitt fólk
Össur segir að hann hafi hrif-
ist mjög af störfum sinna
manna, landvarða og þjóðgarð-
svarða. Þeir vinni sín verk af
sannri fagmennsku og af mikl-
um áhuga og natni.
Sagði Össur að landverðir og
þjóðgarðsverðir ynnu að nýj-
ungum og stórbættri þjónustu.
Meðal annars fyrirlestrum á
ýmsum þjóðtungum um svæðin
sem þeir annast um, skipulögð-
um gönguferðum og nú síðast
með svokölluðum gestastofum
þar sem rætt er um náttúm og
sögu staðarins. Blómplöntur
væm merktar og veittu fróð-
leiksfúsu fólki svör við spurn-
ingum sem á því brenna.
Ráðhemann ræddi framtíðar-
áform um þjóðgarðinn við hinn
nýja þjóðgarðsvörð, og land-
verði sem þar starfa í sumar, og
sagði Össur að þær viðræður
allar hefðu verið hinar upp-
byggilegustu, enda ljóst að
þama er áhugasamt og fram-
sækið fólk að störfum.
metsumar. Menn búast við að
16 þúsund ferðamenn heim-
sæki þjóðgarðinn. Ég er ekki í
nokkmm vafa um að það var
hárrétt ákvörðun að ráða þar
þjóðgarðsvörð. Sigþrúður
Stella Jóhannsdóttir er vel
menntuð kona, líffræðingur að
mennt, og þar að auki hagvön á
þessum slóðum, ættuð ffá Vík-
ingavatni í Kelduhverfi“, sagði
Össur.
I þjóðgarðinum í Jökulsár-
gljúfrum, sem er rúmlega 15
þúsund hektara svæði skoðaði
Össur nokkra staði sérstaklega,
meðal annars botn Ásbyrgis,
Dettifoss, Hafragilsfoss,
Hólmatungur, Hljóðakletta og
Vesturdal. Þjóðgarðurinn er
annar tveggja þjóðgarða sem
Náttúmverndarráð ber ábyrgð
á. Þjóðgarðurinn var formlega
stofnaður 1973 og hefur verið
stækkaður tvisvar sinnum.
10 þúsund gestir
- lítil ánauð
Auk þess að dvelja drjúgan
tíma á gljúfrasvæðinu fagra, fór
Össur og fylgdarlið í Herðu-
breiðarlindir og í náttúmvættið
í Öskju. Össur segir að það hafi
vakið athygli sína hversu lítil
ánauðin er á þessari litlu gróð-
urvin í Herðubreiðarlindum,
sem talið er að 10 þúsund gestir
heimsæki í sumar, þar af em 8
þúsund erlendir ferðamenn.
Gróðurinn hefði komið vel
undan vetri og veður hlý, gróð-
urþekjan væri því með sterkara
móti að þessu sinni, og umferð
fólks vel skipulögð.
Össur hélt eilítið lengra inn í
landið, inn á Krepputanga, sem
er svæði milli Jökulsár á Fjöll-
um og árinnar Kreppu. Svæði
þetta þykir sérstætt og áhuga-
vert og margar raddir eru uppi
um friðlýsingu þess, en svæðið
er á svokallaðri náttúmminja-
skrá. Sagði Össur að friðlýsing
svæðisins yrði skoðuð sérstak-
lega.
Lífríki Mývatns í
einstökum blóma
Á ferð sinni kom
umhverfisráðherra að sjálf-
sögðu við í Mývatns-
sveit hinni fögm og ræddi þar
við landverði og
ferðamálafólk. Fór hann þá
meðal annars á báti út í Slútnes
ásamt þeim bræðmm, Ár-
manni og Snæbirni Péturs-
sonum í Reynihlíð.
„Þama er ótrúlegur gróður af
ýmsu tagi og sérstaklega var
það gleðilegt að heyra af vör-
um þeirra góðu bræðra að líf-
nkið hefur aldrei staðið í slík-
um blóma sem nú. Ennfremur
að veiði í vatninu er betri en
oftast áður“, sagði Össur
Skarphéðinsson, umhverfisráð-
herra, að lokum.
/ BOTNl ÁSBYRGIS - Össur og Sigþrúður Stella
þjóðgarðsvörður.
Alþýðublaðsmynd / Guðriður Þorvarðardóttir