Alþýðublaðið - 05.08.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UMRÆÐA
Föstudagur 5. ágúst 1994
MÞYÐUBUÐH)
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Sími: 625566 - Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 140
Hvað velti
haustkosninga-
boltanum af stað?
Umræður um haustkosningar hafa ekki farið fram hjá
nokkrum manni síðastliðnar vikur. Erfítt er hinsvegar að átta
sig á því, hvað það er sem velt hefur boltanum af stað með
þeim þunga að allflestir telja víst að forsætisráðherra muni
tilkynna þingrof eftir helgi og boða til kosninga í byijun
október.
Er það er ef til vill Eggert Haukdal, sem lengi hefur talið
nauðsyn bera til að slíta samstarfi við Alþýðuflokkinn?
Earf Sjálfstæðisflokkurinn kannski að losna við ýmsa
„óþekktargemlinga“ úr þingliðinu, sem með einum eða öðr-
um hætti hafa oftsinnis lagst á sveif með stjómarandstöðunni
á undanfömum þingum?
Er það Björn Bjarnason, einn nánasti samstarfsmaður
Davíðs Oddssonar, sem leynt og ljóst hefur stefnt að því að
verða utanríkisráðherra?
Ef svo er þá hlýtur Sjálfstœðisflokkurinn að vera búinn að
gera samkomulag við allaballa um stjómarsamstarf að kosn-
ingum loknum, því allaballar fá aldrei embætti utanríkisráð-
herra. í samstarfi við framsókn fengi Sjálfstæðisflokkurinn
varla bæði embætti forsætis- og utanríkisráðherra. I slíku
samstarfi gæti Bjöm ef til vill orðið landbúnaðar- og félags-
málaráðherra.
Er það afstaðan til Evrópusambandsins? Varla getur það
verið, þar sem forysta Sjálfstæðisflokksins hefur lýst því yfir
að málið sé ekki á dagskrá fyrr en við lok aldarinnar.
Er það langtímaveðurspá, sem gefur til kynna mikil óveður
í mars og apríl?
Er það gerð fjárlaga? Treystir Sjálfstæðisflokkurinn sér ekki
til þess að takast á við þau vandamál sem uppi em; vanda-
mál sem í sjálfu sér em ekkert meiri en endranær og hverfa
ekki með kosningum úlAlþingis?
Er ástæðan sú að kjarasamningar em lausir um áramót?
Telja menn eitthvað auðveldara að ganga til kjarasamninga
að loknum kosningum? Efalaust munu ýmis loforð hafa ver-
ið gefin í kosningabaráttunni; loforð sem erfitt kann að reyn-
ast, að standa við án þess að missa tök á ríkisfjármálunum.
Islenskir launþegar þurfa á öllu öðm að halda en að verð-
bólga fari úr böndunum með þeim skelfilegu afleiðingum
sem íslensk þjóð þekkir og hefur fengið meira en nóg af.
A sínum tíma gagnrýndi þáverandi borgarstjóri, Davíð
Oddsson, formann Sjálfstæðisflokksins, sem þá var Þor-
steinn Pálsson, fyrir að hafa ekki tekist að halda saman
þriggja flokka stjóminni - sem mynduð var árið 1987 - út
kjörtímabilið. Meðal annars vegna þeirrar gagnrýni komst
Davíð til formennsku í Sjálfstæðisflokknum og síðar í stól
forsætisráðherra.
Það verður vart mikil upphefð sem Sjálfstæðisflokkurinn
hlýtur, með því að gefast upp við þau verk sem menn hafa
verið kjömir til að vinna. Það er skrýtið ef kjósendur velja
flokk til að takast á við þau verk sem hann heyktist á tveimur
mánuðum fyrr.
Isíðustu viku var því haldið
fram að vel gæti farið svo
að þeir veiðimenn sem ættu
leyfi sín í ágúst og september á
Norðurlandinu gætu orðið fyr-
ir miklum vonbrigðum með
veiðina. Eins árs laxinn hefur
lítið látið sjá sig þar, enn sem
komið er og bíða menn nú milli
vonar og ótta eftir stórstreym-
inu næstu daga.
Gamla kempan, Laxá í Aðal-
dal mmskaði við þessi áfrýjun-
arorð af væmm blundi og að
morgni 1. ágúst var veiðigyðjan
svo sannarlega stödd við hlið
eins veiðimannsins þar.
ítalskur veiddi 26
pundara í Presthyl í
Neslandi
Að morgni 1. ágúst veiddi
ítalskur veiðimaður 26 punda
hæng í Presthyl í Neslandi í
Laxá í Aðaldal. Er þar kominn
stærsti lax sumarsins, því fram
að þeim tíma höfðu veiðst tveir
25 pundarar, annar í Þverá í
Borgarfirði og hinn í Laxá, að-
eins fjórum dögum áður en 26
punda fiskurinn var dreginn á
landi.
Svæðið fyrir landi Ness í Að-
aldal er án vafa eitt mesta stór-
fiskasvæði landsins. Sá Islend-
ingur sem trúlega hefur dregið
flesta laxa sem vegið hafa 30
pund eða þar yfir er Heimir
Sigurðsson frá Garði íAðal-
dal, jafnframt kenndur við bæ-
inn Tjörn. Heimir, sem lést árið
1976 taldi sig hafa veitt 20 laxa
á stærðarbilinu 28 til 35 pund.
Talsverðan hluta þeirra dró
hann einmitt fyrir landi Ness og
sagði svo sjálftir frá að mestu
stórlaxastaðir Laxár í Aðaldal
væm Símastrengur og Tjarn-
arhólmi sem báðir er í Nes-
landi.
Öðrum 25 pundara úr
Þverá landað af syni
aflaklóar
Fyrir nokkmm ámm lögðust
fræðimenn í að hrekja þá alda-
gömlu kenningu að menn væru
misjafnlega „fisknir“, það er að
einhveijir meðfæddir eiginleik-
ar gerðu sumum auðveldara að
veiða en öðmm.
Þessum rannsóknum var
beint að íslenskum skipstjómm
og niðurstaðan var sú að „réttu
græjurnar" ásamt þokkalegri
skynsemi væm lykilorðin í ár-
angri við fiskveiðar.
I sjálfur sér skal ekki gert lít-
ið úr þeirri niðurstöðu, nema
hvað það hlýtur óneitanlega að
vera gleðiefni fyrir andmælend-
ur þessarar skriffinnskukenn-
ingar það sem gerðist að
morgni 28. júlí síðastliðinn við
Höfðahyl í Laxá í Aðaldal. Þar
gerði Vilhelm Þorsteinsson,
23 ára skíðamaður og sonur
aflaklóarinnar Þorsteins Vil-
helmssonar frá Akureyri, sér
lítið fyrir og jafnaði þáverandi
„sumarmet“ úr Þverá í Borgar-
firði með því að landa 25 punda
kollegnum hæng, sem þýðir að
nokkur pund vom mnnin frá
því fiskurinn kom í ána. Vil-
helm veiddi fiskinn á 20
gramma svartan Toby í Höfða-
hyl.
Og nú geta fræðimennimir
farið að velta þessu fyrir sér:
Allt frá opnun veiðiánna hafa
þúsundir stangaveiðimanna
kastað hundmðum þúsunda
kasta á þúsundum veiðistaða -
þegar lítt reyndur veiðimaður,
sem svo sannarlega rekur ættir
sínar til veiðiklóa, slæðir upp
bolta sem er jafn þeim stærsta
sem dregist hafi á landi fram að
þeim tíma.
Að auki er allur fjöldinn af
stangaveiðimönnum sem ganga
í gegn um langa og giftudijúga
veiðimannsævi - án þess nokk-
urn tíma að veiða svo stóran
fisk!
Höfðahylur og
„Knútsstaðabeljurnar“
alræmdu
En það var vel við hæfi að
Vilhelm veiddi fiskinn I Höfða-
hyl, því staðurinn sá hefur áður
komið við sögu stórlaxaveiða
með eftirminnilegum hætti.
Þann lO.júlí 1942veiddi
Jakob V. Hafstein 36,5 punda
hæng á flugu og er það stæsti
lax sem veiðst hefur á stöng úr
Laxá í Aðaldal og jafnframt
stærsti lax sem veiðst hefur á
flugu hérlendis.
Höfðahylur liggur fyrir landi
Knútsstaða í Aðaldal og úr
þeim hyl eru margir af stærstu
stangaveiddu löxum landsins
skráðir. í „den“ var reyndar
fleira sem stal senunni við
Höfðahylinn en stóru laxamir í
honum.
Þar voru einnig hinar svo-
kölluðu „Knútsstaðabeljur“ á
sveimi og er þá ekki átt við hin-
ar myndarlegu hrygnur hylsins,
heldur gengi af hálfgerðum
„hryðjuverkabeljum“ af spen-
dýraætt.
Gengi þetta lá yfir því að
hrella veiðimennina þegar þeir
voru búnir að koma sér fyrir á
báti við stjóra fyrir ofan hylinn,
eða stóðu á djúpu vatni fastir
við stórlax á hinum enda spott-
ans.
Áttu þær þá það til að nota
nestistöskur veiðimanna fyrir
flór og háma í sig gómsætar
veiðigræjur ásamt löxum sem
lágu á bakkanum.
Mun taugakerfi allmargra
veiðimanna hafa beðið nokkuð
tjón af viðureignum við flokk
þennan, sem hefur reyndar ekki
heyrst af nú í nokkur ár.
Þeir stóru farnir að
gefa sig grimmt í
Aðaldalnum
Þar sem við höfum eingöngu
dvalið í Aðaldalnum er engin
ástæða til að víkja þaðan.
Nú í kringum mánaðamótin
veiddust auk þessara tveggja
stórlaxa sem hér hefur verið frá
greint, að minnsta kosti fimm
20 punda fiskar, flestir á flugu.
Hafa þær systur og dætur
Þórðar Péturssonar á Húsa-
vík, Dimmblá og Iuixá blá,
verið gjöfular - sem svo oft áð-
ur.
Áin hefur nú gefið um 700
laxa. Óvanalega hátt hlutfall af
veiðinni þetta árið er ofan Æð-
arfossasvæðisins, en það vill
frekar henda þegar tveggja ára