Alþýðublaðið - 05.08.1994, Síða 3
Föstudagur 5. ágúst 1994
TIÐINDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Breytingar í vændum á löggjöf um innflutning og sölu
áfengis. Gert er ráð fyrir að í haust verði lögð fram á
ALÞINGI frumvörp þar sem einkaréttur ATVR til
innflutnings á áfengi verði afnuminn:
ÁTVR missir einkarétt
á innflutningi áfengis
- Ekki er fyrirhugað að taka upp vmsölu í matvörubúðum
Þráttfyrir að ATVR komi til með að missa einkrétt á innflutningi áfengis mun rík-
ið áfram annast smásölu til neytenda og vínveitingastaða.
Alþýðublaðsmynd
Ríkisstjómin hefur sam-
þykkt tillögur Friðriks
Sophussonar fjármála-
ráðherra um breytingar á lög-
gjöf sem snerta innflutning og
sölu á áfengi. Gert er ráð fyrir
að í haust verði lögð fram áAl-
þingi frumvörp þar sem einka-
rétturÁTVR til innfiutnings á
áfengi verði afnuminn. Innflytj-
endum og framleiðendum verði
heimilað að dreifa vöru sinni til
þeirra sem hafa heimild til að
endurselja áfengi, það er
ÁTVR og veitingastaða sem
hafa vínveitingaleyfi.
Tillögur fj árm ál aráðh erra em
liður í margvíslegum breyting-
um á áfengis- og tóbakssölu
hér á landi, sem unnið hefur
verið að á undanfömum ámm.
Hafa þær miðað að því setja
skýrar reglur um vömval og
innkaup, bæta þjónustu við
neytendur og draga úr tilkostn-
aði, meðal annars með útboði á
rekstri útibúa.
í samræmi við tillögur ijár-
málaráðherra til ríkisstjómar-
innar er nú hafin undirbúningur
að ýmsum lagabreytingum.
Auk afnáms einkaréttar ÁTVR
til innflutnings á áfengi er
stefnt að því að leggja vöm-
gjald á áfengi. í stað þess að
ríkið fái nú tekjur sínar af
áfengissölu sem hagnað af
áfengissölu komi gjald sem
innheimt yrði í tolli af innflutn-
ingi og við framleiðslu innan-
lands.
Fjármálaráðuneytið hefur
ennfremur ákveðið að staðfesta
með formlegum hætti reglur
ÁTVR um val á vömm til sölu
í verslunum sínum í þeim til-
gangi að tryggja framkvæmd
þeirra og að um hana gildi
ákvæði stjómsýslulaga.
Þær breytingar sem hér hafa
verið nefndar snerta ekki smá-
söluverslun með áfengi og hafa
því ekki áhrif á þá stefnu í
áfengismálum, sem framfylgt
hefur verið hér á landi.
Einkasalan og EES
Fjármálaráðuneytið og eftir-
litsstofnun EFTA (ESA) hafa á
undanfömum mánuðum haft til
athugunar ýmis málefni sem
varða framkvæmd á EES-
samningnum, þar á meðal fyrir-
komulag áfengiseinkasölu á Is-
landi. Fjármálaráðuneytið fer
með forsvar gagnvart ESA í
því máli. Hefur það gert stofn-
uninni grein fyrir skipulagi og
starfsemi ÁTVR og því að
áfengiseinkasala hér á landi
byggist á heilbrigðissjónarmið-
um og félagslegum viðhorfum.
Við gerð EES-samningsins
gáfu EFTA-ríkin á Norðurlönd-
um yfirlýsingu þess efnis. Var
stofnuninni meðal annars gerð
grein fyrir þeim ráðstöfunum
sem þegar hafa verið gerðar í
þeim tilgangi að starfsemi
ÁTVR uppfylli þau ákvæði
EES- samningsins að ríkisborg-
umm frá aðildarríkjunum sé
ekki mismunað.
ESA skrifaði bréf
í bréfi frá ESA, sem fjár-
málaráðuneytinu barst fyrir
nokkm og dagsett er 20. júlí
1994 er greint frá því að eins
og stendur sé það skoðun ESA
að tiltekin atriði í löggjöf um
sölu á áfengi séu þess eðlis að
þau kunni að brjóta í bága við
ákvæði EES-samningsins. Er
þar um að ræða einkarétt
ÁTVR til innflutnings og heild-
sölu á áfengi.
íslenskum stjómvöldum er í
bréfí þessu gefmn tveggja mán-
aða frestur til að gera grein fyr-
ir afstöðu sinni til þessara sjón-
armiða. Að fengnu svari ís-
lenskra stjómvalda eða eftir að
fresturinn er útrunninn mun
stofnunin taka málið til frekari
athugunar.
Telji hún þá enn að á skorti
að ákvæði samningsins séu
uppfyllt mun hún gefa út rök-
stutt álit um málið. Þar mun
koma fram hvaða breytingar
em nauðsynlegar að mati stofn-
unarinnar til þess að uppfylla
samningsákvæðin. Fari íslensk
stjómvöld ekki að þeim tilmæl-
um, sem fram kunna að koma í
hinu rökstudda áliti getur ESA
farið með málið fyrir EFTA-
dómstólinn, sem sker endan-
lega úr um ágreiningsmálin.
Ekki mismunun
Islensk stjómvöld hafa greint
ESA frá því að þau telji núver-
andi fyrirkomulag áfengissölu
ekki fela í sér mismunun milli
seljenda eða framleiðenda á
áfengum drykkjum og sé það
því ekki í ósamræmi við EES-
samninginn.
Var í því sambandi sérstak-
lega gerð grein fyrir þeim regl-
um um vömval og innkaup,
sem nýlega vom settar í þeim
tilgangi að bæta þjónustu við
neytendur og að auka mögu-
leika á samkeppni. Jafnframt
var stofnuninni tjáð að óháð
þessari afstöðu væri af hálfu
ijármálaráðherra stefnt að frek-
ari breytingum á skipulagi
áfengissölu og boðaðar aðgerð-
ir í þeim tilgangi að auka frelsi
í viðskiptum með áfengi innan
þess ramma sem hin viðtekna
stefna í áfengissölumálum set-
ur.
Fjármálaráðherra hefur skip-
að þriggja manna nefnd til að
undirbúa lagafrumvörp og aðr-
ar þær breytingar sem að fram-
an greinir.
Árni Tryggvason HARÐUR
Menn tóku stórt upp í sig í líílegum umræðum á síðasta að-
alfundi Landssambands smábútaeigenda sem greint er frá í
nýútkomnu fréttabréfi. Árni Tryggvason, leikarinn góð-
kunni og alræmdur trillukarl í Hrisey, sagði meðal annars
um vilja ráðamanna til að útrýma smábátum, sem hann sagði
að biði ekki annað en að verða brenndir á báli: ,Ábyrgðar-
menn ástandsins ættu að sitja á bak við lás og slá“. Hann
sagði togara vera búna að eyðileggja fiskimiðin og vildu fara
inn að þrem mflum. Gott væri að vita hvar smábátamenn
hefðu Kristján Ragnarsson. Hitt hefðu menn ekki vitað,
það væri hvar þeir hefðu þjóðina. Nú gætu menn geit eitt
skynsamlegt, - það væri að standa s’aman og hætta að bíta
hvem annan í hælana. Á meðfylgjandi mynd er Ámi með
skrásetjara sínum, höfðingjanum Ingólfi Margeirssyni...
Sumartónleikar í SKÁLHOLTI
Um helgina lýkur 20. starfsári Sumartónleika íSkálholti.
Flytjendur verða Hljómeyki og Guðrún Óskarsdóttir. sem-
balleíkari. Tónleikamir verða klukkan 15 á laugardag. en þá
syngur Hljómeyki fjölradda kirkjuverk frá Bretlandi undir
stjóm Bernharðs Wilkinsson Klukkan 17 leikur Guðrún,
hennar fyrstu einleikstónleikar, sembaltónlist frá 17. öld.
Tónleikar hennar verða endurtluttir klukkan 15 á sunnudag,
og Hljómeyki mun syngja trúarleg verk við messu sem hefst
klukkan 17. Á laugardag klukkan 13.30 mun Þorsteinn
Gylfason flytja erindi, sem hann nefnir: Er tönlist mál?. ..
Erlend skip selja LOÐNU
Alls bámst loðnuverksmiðjunum hér á landi 149.123 tonn af
loðnutirú í júlí. Þetta er rúmlega 11 þúsund tonnum meiraen
landað var í sama mánuði í fyrra. Afli íslensku skipanna í
júlí er ekki nema 1.100 tonnum meiri en í júlí í fyrra. Það
sern gerir gæfuntuninn er að erlend skip, aðallega norsk,
lönduðu rúmlega 14 þúsund tonnum í íslenskum höfnutn í
síðasta mánuði. í fyrra lönduðu erlend skip 3.794 tonnum.
Sumarvertíðin í ár og í fyrra hefur gengið framar björtustu
vonum. Fyrir tveim árum lönduðu íslensk skip aðeins 3.456
tonnum af loðnunni...
ARNAR með fyrirlestur
Arnar Gestsson, sérfræðingur, Kefisverkfræðistofu Verk-
ftæðistofnunar Háskóla íslands, heldur opinn fyrirlestur t
dag klukkan 15 í stofu 158 í húsi Verkfræðideildar og Raun-
vísindadeildar, VRII við Hjarðarhaga 2-6. Fyrirlesturinn er
hluti af meistaraprófi Amars. Fjallar hann unt „Uppbygg-
ingu ijölbreytukerfa - afgagnverkandi stýringu fyrir FeSi-
ofn“, greinilega ekki beinlínis við ahnenningshæfi, heldur
sérfróða...
Ausgewáhlte WANDERROUTEN
Umfang ferðamannaþjónustunnar l'er vaxandi. Greinilegt er
að allt of lítið hefur verið gefið út af leiðbeiningabókum á
hinum ýmsu þjóðtungum. Almenna bókafélagiö hefur nú
bætt úr og gefur út handbók á ensku og þýsku þar sem lýst
er áhugaverðum gönguletðum í nágrenni höfuðborgarinnar.
Höfundur er Einar Gudjohnsen. ferðagaipurinn kunni.
Handbókin heitir Selected Hikes ttear Reykjavtk á ensku, en
á þýsku Ausgewahlte Wanderrouten in der Umgebung von
Reykjavtk. Gott framtak hjá AB...
SVEINN heitir ekki PÉTUR!
Hér á blaðsíðu 3 var í gær smá pistill um leiksýningu
Bandamanna á Fornsagnaþinginu á Akureyri unt þessa
helgi. Þau leiðu mistök vom gerð í myndatexta með pistlin-
um að Sveinn Einarsson var nefndur Pétur. Og ekki einu
sinni heldur þrisvar! Sveinn er beðinn þrefaldrar afsökunar á
Ídúðrinu. (Því tná svo bæta við í ofanálag, að sýningunni -
sem átti vitaskuld að vera í Sjallanum - hefur verið aflýst
vegna veikinda.J Og hana nú...