Alþýðublaðið - 05.08.1994, Síða 5

Alþýðublaðið - 05.08.1994, Síða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Föstudagur 5. ágúst 1994 HAUSTKOSNINGAR Líklegt er að BJÖRN SIGURBJÖRNSSON á Sauðárkróki gefi kost á sér í fyrsta sæti Alþýðuflokksins á NORDIRI ,ANI)I YESTRA. Hann er hinsvegar alfarið á mótí haustkosningum, telur engar gilclar ástæður vera fyrir þeim. Bjöm óttast að verið sé að misnota þingroferéttínn: Það er verið að tala um kosningar - jafnvel í haust menn eru famir að velta fyrir sér hveijir verði í framboði. Því er ekki að neita að margt fólk hefur haft sam- band og hvatt mig til að gefa kost á mér í fyrsta sætið á fram- boðslista Alþýðuflokksins hér á Norðurlandi vestra. Ég hef svarað þessum málaumleitun- um þannig til, að auðvitað muni maður velta því fyrir sér þegar að framboðsfresti líður. Ég segi ekki nei og ætla hugsa málið. Ef til framboðs míns kemur þá mun ég sækjast eftir fyrsta sætinu,“ sagði Björn Sigurbjörnsson á Sauðárkróki í gær. Mun gefast tími til að halda prófkjör? Aðspurður um prófkjörsmál sagði Bjöm, að ef forsætisráð- herra lýsi því yfir 15. ágúst að kosningar verði í byijun októ- ber þá sé þetta spuming um hvort nokkur tími gæfist fyrir prófkjör. , Auðvitað væri best ef menn gætu stillt upp framboðslista í sátt og samlyndi. En hinsvegar skapa prófkjörin alltaf ákveðna stemmningu, flokksmenn em virkjaðir og þau verða til þess að hrista hópinn saman. Einnig gefa prófkjörin oft kjósendum góða mynd af þeim frambjóð- endum sem í boði em, menn kynna sig betur en ella. Það er síðan gífurlega mikil- vægt að menn hlíti þeim úrslit- um sem koma fram í prófkjöri; sérstaklega ef tekið er tillit til þess að prófkjör í tiltölulega litlum samfélögum verða oft illvígari og persónulegri vegna smæðarinnar, nálægðar fólks við hvort annað,“ sagði Bjöm. Eru alls engar forsendur fyrir haustkosningum? - Björn, ertu stuðningsmað- ur liaustkosninga? „Nei. Ég tel alls enga nauð- syn á að kjósa núna. Menn em bara við öllu búnir hér í kjör- dæminu. Við höfum nú því miður lítið að segja með hvort kosið verður eða ekki. Mín persónulega skoðun er sú að það eigi að setja ákvæði í ' M' ' ' BJÖRN SIGURBJÖRNSSON: „Mín persónulega skoðun er sú að það eigi að setja ákvœði í stjórnar- skrána um að það eigi að kjósa á Jjögurra ára jresti. Enginn á að hafa þingrofsrétt. Það kemur of oft Jyrir að hann er misnotaður. Lítum á hvað er að gerast núna: Það er verið að nota þingrofsréttinn afhreinni hentisemi vegna þess að viðkomandi flokkur stendur vel í skoðanakönnunum. Ríkisstjórnin á að sitja út kjörtímabilið, en ekki rjúka svona frá hálfkláruðu verki.“ Alþýðublaösmynd/EinarÓlason stjómarskrána um að það eigi að kjósa á fjögurra ára ffesti. Enginn á að hafa þingrofs- rétt. Það kemur of oft fyrir að hann er misnotaður. Lítum á hvað er að gerast núna: Það er verið að nota þingrofsréttinn af hreinni hentisemi vegna þess að viðkomandi flokkur stendur vel í skoðanakönnunum. Ríkisstjómin á að sitja út kjörtímabilið, en ekki rjúka svona ffá hálfkláruðu verki.“ Hvað varð um þessa heilsteyptu stjórn? - En hvað með þessa meintu erfiðleika ísamstarfi ríkis- stjórnarflokkanna ? „Ég blæs á þá. Lítum bara á sveitarstjómimar. Svonalagað þekkist ekki þar. Ef menn geta ekki unnið saman í meirihluta í sveitarfélagi þá verður hrein- lega að leitað annarra leiða. Það eru þau vinnubrögð sem menn viðhafa. Engum dettur í hug að nauðsynlegt sé að kjósa uppá nýtt. Kjörtímabilið er jú íjögur ár. Ég óttast það að ef á að fara nota þingrofsréttinn á þennan hátt í tíma og ótíma þá munum við lenda í sömu hringavitleys- unni og ítalimir þar sem stöð- ugt er verið að rjúfa þing og kjósa uppá nýtt, jafnvel annað hvort ár. Ég vil einnig benda á, að ein meginforsendan fyrir því að fara í þessa ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokkmjm var, að menn töldu æskilegt að mynda heilsteypta tveggja flokka stjóm; rikisstjóm sem sæti út kjörtímabilið og ynni sín verk. Það er leitt ef það gengur ekki eftir, sagði Bjöm.“ Afhverju eru menn að hlaupa frá núna? Hvað segirðu um þau rök sem mennfœra Jyrirhaust- kosningum? „Ég veit ekki afhveiju menn em að hlaupa frá núna. Menn tala um erfíða fjárlagagerð, er hún ekki alltaf erfíð? Menn nefna erfiða samninga við verkalýðshreyfinguna. Ég spyr, verður ný ríkisstjóm eitthvað betur í stakk búin til að semja en þessi? Og hvað gerist svo ef ekki nást samningar, verður þá kosið aftur í vor? Svo em einhverjir að tala um veðurfarið snemma á vorin. Gekk þetta ekki ágætlega í apríl 1983? Er ekki hægt að kjósa á öllum tímum árs? Sumir vetur em slæmir, aðrir góðir. Hvað ef eldgos hæfust einhvers staðar? Og enh eitt dæmi: Var ekki kosið í desember 1979? Hafðist þetta ekki þá? Samgöngur í dag em almennt góðar um landið - mun betri en fyrir 10 og 15 ár- um - og Vegagerðin er öflug, auðvitað em engar veðurfars- legar ástæður fyrir því að kjósa í haust frekar en í vor. Nei, ég sé engar gildar ástæður fyrir því að kjósa nú í haust,“ sagði Bjöm Sigurbjömsson að lok- um.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.