Alþýðublaðið - 05.08.1994, Side 7

Alþýðublaðið - 05.08.1994, Side 7
I- Föstudagur 5. ágúst 1994 MENNING ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 heim með „a capella“ söng sín- um. Þar blanda þeir saman hefðbundnum skólasöngvum Yale háskólans, jassperlum, og ljúfum ballöðum, svo sem söngleikjatónlist eftir Cole Porter, sem reyndar var með- limur sönghópsins síðasta námsár sitt við Yale, það er ár- ið 1913. The Yale Whiffenpoofs koma fram í Ráðhúsi Reykja- víkur á sunnudaginn klukkan 15 ásamt íslenska sönghópnum A Capella sem flytur sams konar tónlist. A sunnudags- kvöldið kemur sönghópurinn fram á Hard Rock Café klukk- an 18.45. A mánudagskvöld kemur hópurinn svo fram á Kola- og krítarteikningar fegra Menningar- stofnun Bandaríkjanna: OLIYIA PETRIDAS SÝNIR í dag, föstudag, mun banda- ríska listakonan Olivia Petri- des opna sýningu á kola- og krítarteikningum sínum í Menningarstofnun Bandaríkj- anna, Laugavegi 26. Sýningin stendur til 25. ágúst og samtím- is verður opin sýning á verkum listakonunnar í Hafnarborg. Olivia Petrides er aðstoðar- prófessor í málun og teikningu við School of the Art Institute í Chicago, en þar hefur hún kennt síðan 1985. Hún hefur meðal annars sýnt í Van Straa- ten galleríinu í Chicago. Olivia fékk Fulbright-Hays rannsókn- arstyrk árið 1993 til að koma til íslands og vinna að myndlistar- verkefni hér á landi. Við vinnu sina einbeitti hún sér að hinum mikla fjölda farfugla hér á landi og jarðhita og eldvirkni í ís- lenskri náttúru. Hún hefur einnig mynd- skreytt þrjár náttúrufræðibækur í Peterson Field Guide ritröð- inni sem gefin er út af hinni virtu Houghton Mifflin bókaút- gáfu. ktemkýMlífm! t Gamlar kvikmyndir frá Reykjavík sýndar í Arbæjarsafni á sunnudaginn: LOFTUR OG KADORIAN Fólki gefst kostur á að sjá kvikmyndir sem veita innsýn í líf og störf Reykvíkinga á lýð- veldisárinu 1944 á Árbœjar- safni á sunnudaginn. Þá verða sýndar myndir Lofts Guð- mundssonar og bandaríska hermannsins Samuels Kadori- ans. Mynd Lofts ljósmyndara sýnir mannlíf og framkvæmdir í Reykjavík árið 1944, en mynd Kadorians er brot úr heimildar- mynd sem Kvikmyndasafn Is- lands eignaðist nýlega. Er sú mynd í lit og merk heimild um Reykjavík á hemámsárunum. Þennan dag verður boðið upp á poppkom á safninu, en nú em um 50 ár síðan bandarískir her- menn fluttu með sér poppkom til landsins, þó ekki yrði það vinsælt meðal landsmanna fyrr en mun síðar. Sýningar í öllum sölum í menning- armiðstöðinni Hafnarborg í Hafnarfirði: FRÁ TEIKNINGUM TIL LEIRLISTAR Um helgina verða síðustu dagar sýningar Þorfinns Sig- urgeirssonar í hafnfirsku menningarmiðstöðinni Hafn- arborg. Þorfinnur sýnir mál- verk og teikningar í aðalsal. Myndir hans em kyrrlífsstúdíur þar sem birta og skuggi em helsta viðfangsefnið, en fólk og hlutir birtast líkt og minningar eða sýnir á myndfletinum. Þor- finnur hefur áður sýnt hér heima og erlendis, síðast í Listasafni ASÍ og Sólon ísland- us. Bandaríska listakonan Olivia Petrides opnar sýningu á kola- og pastelmyndum í kaffistofu Hafnarborgar á morgun. Hún sýnir einnig í Menningarstofn- un Bandaríkjanna eins og fram kemur hér á eftir. í kaffiskála Hafnarborgar sýna meðlimir úr Leirlistafé- laginu nýstárlega bolla. Með sýningunni er lögð áhersla á það hvemig jafnvel hversdags- legustu hlutir geta umbreyst í höndum listamannsins og kveikt með okkur nýja tilfinn- ingu fyrir umhverfi okkar og daglegu lífi. I Sverrissal Hafnarborgar stendur yfir sýning á verkum úr safni hússins. Þar er einkum um að ræða verk sem bæst hafa í safnið á síðustu ámm eftir ýmsa listamenn, íslenska og er- lenda. Þetta er síðasta sýningar- helgi. Einn frægasti háskóla- sönghópur Bandaríkjanna kemur fram um helgina í Reykjavík: THE YALE WHIFFEN- POOFS Á morgun kemur hingað til lands sönghópurinn The Yale Whiffenpoofs, sem er einn frægasti háskólasönghópur Bandaríkjanna. Kórinn kemur þrisvar fram í Reykjavík og er aðgangur ókeypis að öllum tónleikunum. Heimsókn háskólakórsins til íslands er hluti af menningar- framlagi bandaríska sendiráðs- ins til hátíðarhaldanna vegna fimmtíu ára afmælis íslenska lýðveldisins. Sönghópurinn The Yale Whiffenpoofs var stofnaður ár- ið 1909 og hefur æ síðan heill- að tónlistamnnendur um allan Sólon íslandus klukkan 21 en þar mun A Capella einnig syngja. OECD og Alþjóða gjaldeyríssjóðurínn sammála um stóraukinn hagvöxt í heiminum á þessu og næsta ári: Evkur sóknin<i í íslenskar vörur Hagvöxtur eykst í heim- inum samkvæmt skýrslum frá Efna- hags- og framfarastofnuninni, OECD frá í júní, segir í Vís- bendingu, vikuriti um við- skipti og efnahagsmál. Sömu bjartsýni gætir hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum í skýrslu frá því í maí. Sérstaklega gætir bjartsýni í spá OECD. Þar er gert ráð fyrir að landsframleiðsla að- ildarríkja [ress, iðnríkjanna, aukist að meðaltali um 2,5% á þessu ári og þar að auki um 3% á næsta ári. í fyrra var hagvöxtur þessara ríkja um 1 %. GATT-samkomulagið um frjálsari viðskipti milli landa eykur á bjartsýni um þróunina á næstu árum. Bcnda athuganir til að það verði til þess að auka heimsverslunina um 10% og tekjur um að minnsta kosti 1%. Þá mun samkomulagið eyða hættu á viðskiptastríði, sem hefði get- að orðið dýrkeypt. Athuganir á áhrifum GA'IT-samkomulagsins benda til að hagræðið sé mjög undir stjómvöldum í hverju landi komið, því þau hafi nokkuð frjálsar hendur um framkvæmdina. Að mati OECD verður landsfram- leiðsla Bandaríkjanna 0,4% meiri árið 2002 en ella hefði orðið, ef ekki hefði orðið af samningnum. í Japan er talið að landsframleiðsla aukist um 1,8% og í löndum Evrópu- sambandsins um 1,7%. En mestur er ávinningur þeirra landa sem nú mynda EFTA, og í þeim hópi eru íslending- ar, - ávinningurinn er sagður 6%. „Aukinn hagvöxtur í heim- inum eykur sókn í íslenskar vörur og hækkar verð þeirra. Þessa sáust merki í spá Þjóð- hagsstofnunar frá 4. júlí“, seg- ir í Vísbendingu. m safni, sýning- ar I öllum söl- um í Hafnar- borg, banda- rískur há- skólasöng- hópur og kola- og krítarteikn- ingar I Menn- ingarstofnun- inni. Kannski maöur skelli sér...!“ Atþyóubladsmynd / Einar Ólason

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.