Alþýðublaðið - 12.08.1994, Side 3
Föstudagur 12. ágúst 1994
TIÐINDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Sýning úr saflii HAFNARBORGAR,
menningarmiðstöðvar Hafhfirðinga:
/
Ur landslagi í afstrakt
HAFNARBORG. Sannkölluð menningarmiðstöð Hafnfirðinga; miðstöð þar sem
alltaf eru sýningar ígangi og ekki má gleyma kafftstofunni sem setur sterkan svip á
safnið. Víst er að bœjarlífið væri fátœkara til muna án Hafnarborgar.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Amorgun verður opnuð
í Hafnarborg í Hafn-
arfirði sýning á verk-
um úr safni hússins. Þema sýn-
ingarinnar er samband íslensks
landslagsmálverks við afstrakt-
list - uppbrot landslagsmynda
og ómur af landslagi í annars
óhlutbundnum verkum. Sýn-
ingin stendur til 29. ágúst.
í frétt frá Hafnarborg um
sýninguna segir meðal annars
eftirfarandi:
Það er einna helst í lands-
lagsmálverkinu að segja má að
nokkuð samhengi hafi verið
milli kynslóða í íslensku lista-
lífi og hefðin var svo sterk að
margir sem höfðu lært á nýjasta
módemmálverkið í listaskólum
Evrópu fundu sig knúna til að
takast á við landslagið þegar
þeir snem aftur heim. Þannig
varð hæg endumýjun í meðferð
listmálara á landslaginu eftir
því sem fleiri fóm að bræða
það saman við nýjar og tillærð-
ar aðferðir.
Aðrar aðferðir
Líklega er það mikilfengleiki
íslensks landslags sem hefur
orðið til þess að svo margir list-
málarar einbeittu sér að því að
máia það. íslenskt landslag
kallar á allt aðrar aðferðir en
evrópskt útsýni og í því er að
finna slíkar öfgar að það verður
listamanninum ótæmandi upp-
spretta nýs myndefnis. Litir og
form í landslaginu hér em
stundum svo undarleg að
ókunnugum kann að virðast
jafnvel raunsæilegasta eftir-
myndun þess jaðra við afstrakt-
sjón eða vitfirringalist. Túlkun
þessa landslags kveikir eitthvað
í myndfletinum sem kallar á
fijáisari útfærslu en kyrrlátar
skógartjamir meginlandsins.
Aður en málarinn veit af hefur
málverkið losnað alveg frá fyr-
irmyndinni og unnið sér í stað-
inn tilvemrétt sem sjálfstætt
framlag til veraldar litanna og
formanna.
Undarleg tvíræðni
Á svipaðan hátt gerist það að
málari sem tekur til við að mála
mynd út frá afstrakt forsendum
og hyggst aðeins fylgja þeirri
reglu sem býr í litunum sjálfum
eða hreinum formum finnur oft
fljótlega að í myndinni verður
til einhvers konar landslag.
Einhvers staðar myndast sjón-
deildarhringur og fyrr en varir
verða litimir og formin á strig-
anum að náttúmöflum sem tak-
ast á í myndinni á hliðstæðan
hátt við öflin í landslaginu.
Á sýningunni er teflt saman
myndum úr ýmsum áttum til að
skerpa þessa undarlegu tví-
ræðni og sýna fram á hin nánu
tengsl sem oft em milli lands-
lagsmynda og afstraktlistar.
Kjarvalsmyndir
I Sverrissal Hafnarborgar
verður opnuð á morgun sýning
á teikningum og vatnslita-
myndum eftir Jóhannes
Sveinsson Kjarval sem fengn-
ar hafa verið að láni frá Þor-
valdi Guðmundssyni (í Síld &
fisk).
Eins og margir vita á Þor-
valdur afbragðsgott safn mynda
eftir Kjarval og á þessari sýn-
ingu er aðeins um að ræða lítið
brot úr því safni.
Myndimar em af ýmsum
toga og frá ýmsum tíma, en
veita þó góða innsýn í mynd-
hugsun Kjarvals og þá stefnu
sem hann mótaði sér í listinni.
Olivia Petrides
Bandaríska listakonan Olivia
Petrides sýnir kola- og olíupa-
stelmyndir í Kaffistofu Hafnar-
borgar.
Olivia hefur áður komið til
Islands og dvaldi hún hér í
nokkra mánuði á síðasta ári. Þá
var hún einkum að skoða
landslag og fuglalíf við strend-
ur landsins, en það er einmitt
þema sýningarinnar sem hún
setur upp nú.
Olivia hefur sýnt verk sín
víða erlendis auk þess sem
mörg þeirra hafa komið út á
bók. Þá kennir hún við skóla
listastofnunar Chicagoborgar
hefur dvöl hennar á íslandi orð-
ið kveikjan að nýju námskeiði
um listir og umhverfi þar við
skólann.
Bollar
í kaffískála Hafnarborgar
sýna meðlimir úr Leirlistarfé-
laginu nýstárlega bolla.
Með sýningunni er lögð
megináhersla á það hvemig
jafnvel hversdagslegustu hlutir
geta umbreyst í höndum lista-
mannsins og kveikt með okkur
nýja tilfmningu fyrir umhverfi
okkar og daglegu h'fi.
Snyrtifræðingur í fiskútflutningi
Inga Þyrí Kjart-
ansdóttir, snyrti-
fræðingur, söðlaði
yfir og sneri sér að
rekstri eigin fyrir-
tækja í fiskverslun-
argreinunt í desem-
ber síðastliðnum,
hætti í snyrtivörun-
um eftir 24 ára starf.
„Þeir sem taka
frumkvæði í at-
vinnumálum hafa
meðbyr t' dag“, segir Inga Þyrí í viðtali við tíinaritið Gegn at-
vinnuleysi. Inga Þyrí rekur fyrirtæki sín, AtlanLsfisk hf, og
fyrirtækið Hjölur sem ijölskyldufyrirtæki með bömum sín-
um. Þau fóru hægt í sakimar en smám saman hel'ur salan
aukist.
94 mínútur um þunglyndi
Merkilegur blaðamannafundur fer fram í Kaupmannahöfh
18. september næstkomandi í tengslum við 7. þing samtaka
evrópskra sálfræðinga. Níutíuogfjórar mínútur um þung-
lyndi heitir fundurinn. Þar verða lagðar fram niðurstöður sér-
fræðinganefndar í Evrópu setn fjallað hefur um skæðan
menningarsjúkdóm, þunglyndið. Þrátt fyrir umfang sjúk-
dómsins segja sérfræðingamir að 3/4 hlutar sjúklinganna láti
ekki í sér kræla og ræði ekki við sálfræðinga eða lækna, sem
gætu mögulega kotnið til hjálpar. Sálfræðingarnir segja að
þunglyndið sé ekki einasta þung byrði fyrir sjúklinga og að-
standendur þeirra, heldur líka efnahagsleg böl fyrir Evrópu-
þjóðirnar. Meðferð þunglyndra í Bretlandi kostar árlega að
minnsta kostí 50-55 milljarða íslenskra króna. Þar í landi
tapast árlega 155 milljónir vinnudagar vegna þunglyndis.
40-50% tilrauna til sjálfsvíga eiga rætur að rekja til sjúk-
dómsins, aðallega hjá fólki sem ekki hefur fengið fræðilega
meðíérð. Talið er að 5% Þjóðvetja þjáist af þunglyndi ein-
hvemu'ma á ævinni, og það sama er að segja um aðrar Evr-
ópuþjóðir.
Hvaða bjór er bestur?
Bjórtegundirnar
Kronenbourg
frá Frakklandi;
Imperial frá
Costa Rica; og
Castle frá Suð-
ur- Afríku, em
bestu bjóntrnir
að mati bjór-
þekkjara Sum-
arskólablaðs-
itts sem var að konia út. Allir fá þessir bjórar ftmm stjömur.
Fjórar og hálfa stjörnu fá þessir bjórar: Bitburger frá Þýska-
landi; Oranjeboom frá Hollandi; og Guinnes frá írlandi.
Átta bjórar fá fjórar stjömur hjá þeim Guðjóni B. Berg-
mann og Svani Sigurðssyni, bjórþekkjumm. Þar af em tveir
íslenskir, nefnilega Egils Dökkur og Egils Gull.
Sumarskólanum slitiö
í sumar hafa Iðnskólinn í Reykjavík og Reykjavíkurborg
staðið að átaki til að efla menntun og atvinnumöguleika ungs
atvinnulauss fólks. Hefur þetta verið gert með sumarstarfs-
námi. Skólaslit Sumarskólans verða í dag kl. 14 í Iðnskólan-
um og verður þar til sýnis ýmis afrakstur námsins í sumar.
Þar er öllum velkomið að korna og kynna sér þessa nýjung.
MOTOROLA og Danmörk
Danir em einstakir sölumenn á vöru sína. I auðlindalausu
landi að heiui má em framleiddar ótrúlegustu vörur. Meðal
stóm fyrirtækjanna er Motorola með stórt útibú þar sem
1.000 Danir hafa lífsviðurværi sitt af framleiðslu og sölu há-
tæknibúnaðar, rafeindaeininga og samskiptakerfa. Motorola
á heimsvísu er með 117 þúsund starfsmenn, - og velta fyrir-
tækisins á síðasta ári nam á að giska tíföldum ijttrlögum ís-
lensku þjóðarinnar. Danir hafa með eljusemi og dugnaði
komist með tæmar inn í fjölþjóðahringinn, - þeir hafa boðið
erlendu íyriitæki aðstöðu, og hagnast vel á.
Ekki fá allir vínveitingaleyfi
Borgarráð mælir ekki með því að skemmtistaðurinn Kafll
Bóhem að Vitastíg 3 fái viðbótarvínveitingaleyfi. Er það gert
í samráði við félagsmálaráð borgarinnar. Þá hefur skentmti-
staðurinn Casablanca að Skúlagötu 30 fengið leyfi til vín-
veitinga til bráðabirgða, til 6 mánaða. Að þeim tíma loknum
verður lagt mat á áframhaldandi vínveitingaleyfi með hlið-
sjón af reynslu þess tímabils