Alþýðublaðið - 18.08.1994, Page 1

Alþýðublaðið - 18.08.1994, Page 1
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk Undanfarin níu ár hafa nær 2.200 fyrirtæki verið tekin til GJALDÞROTASKIPTA. Skiptum er ólokið í 438 þrotabúum og þar af eru 74 bú frá því fyrir 1990: Kröfúr 48 milljarðar - miðað við verðlag í dag. Yfir 40 milljarðar króna hafa tapast í þessum gjaldþrotum Aundanfömum níu ámm hafa samtals 2.177 fé- lög í atvinnugreinum verið tekin til gjaldþrotaskipta á landinu. Kröfur í þessi þrotabú sem tekin vom til skipta og skiptum var lokið 1. júní síðast liðinn nema samtal 48,1 millj- arði króna á verðlagi í júní 1994. Úr þessunt þrotabúum hefur verið úthlutað samtals um sjö milljörðum króna á verðlagi í júní 1994 á þessum níu ámm en skiptum er ólokið í 438 þrotabúum. Stærstu gjaldþrotin áttu sér stað á ámnum 1989 til 1991. Hagstofan hefur tekið saman upplýsingar um gjaldþrot fé- Jaga eftir atvinnugreinum á ár- unum 1985 til 1993 að báðum ámm meðtöldum. Efnið er unn- ið upp úr gögnum fyrirtækja- skrár sem unnin em eftir til- kynningum í Lögbirtingablaði. Sem fyrr segir hafa samtals 2.177 félög verið tekin til gjald- þrotaskipta á þessu tímabili. Flest voru þau í fyrra eða sam- tals 445 en næst flest árið 1990 þegar 372 félög vom tekin til gjaldþrotaskipta. Staða gjald- þrotaskipta á fyrmefndu árabili var þannig þann 1. júní síðast liðinn, að skiptum var ólokið í 438 gjaldþrotum. Þar af eru þtjú frá árinu 1985 og ólokið er skiptum í 15 félögum sem voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 1986. Ólokið er skiptum í sam- tals 74 þrotabúum á ámnum 1985 til 1989. Flest eru þó búin frá síðasta ári eða 211. Kröfur í þrotabú félaga árin 1985 til 1993 nema samtals 48,1 milljarði króna á verðlagi í júní 1994. Árið 1985 vom gjaldþrot uppá 6,7 milljarða miðað við verðlag nú og munar þar mest um gjaldþrot Haf- skips. Kröfur vegna gjaldþrota árið 1988 námu 5,4 milljörðum króna, árið eftir vom kröfur í gjaldþrotum liðlega sjö millj- arðar, árið 1990 vom kröfur 7,6 milljarðar og 1991 námu kröf- umar 9,4 milljörðum, upp- reiknaðar til verðlags nú. Árið 1992 voru kröfumar 3,8 millj- arðar og í fyrra 3,6 milljarðar. Úthlutanir úr þessum gjald- þrotum nema samtals um sjö milljörðum króna miðað við verðlag í dag. Hins vegar er mjög erfitt að meta verðmæti þessara úthlutana fyrir kröfu- hafa með tilliti til þess að gjald- þrotaskipti taka oft mörg ár. Gjaldþrotin em flokkuð eftir atvinnugreinum. Ef árið 1992 er tekið sem dæmi má nefna að það ár voru 29 félög í bygging- arstarfsemi tekin til gjaldþrota- skipta. Lýstar kröfur námu nær 343 milljónum króna. í fisk- veiðurn og fiskeldi urðu 13 fé- lög gjaldþrota og nárnu kröfur 255 milljónum. í iðnaði urðu 65 félög gjaldþrota og námu kröfur í þau samtals 1.240 milljónum króna. I þjónustu- starfsemi urðu 48 félög gjald- þrota og kröfur námu 488 milljónum króna. I verslun og fjármálaþjónustu urðu 86 félög gjaldþrota og námu kröfur 1.202 milljónum króna. Hvemig líst þéráaðfá aukahluti að andvirði alltað RENAULT fer á kostum! - á nýjan Renault CUo eða Renault 19. Komdu og kannaðu máliðl Við erum í einstaklega gjafmildu skapi þessa dagana. Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1 • Reykjavík • Sími 876633

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.