Alþýðublaðið - 06.09.1994, Side 3
Þriðjudagur 6. september 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
TÍPINPI
DAGBLAÐIÐ í frétlahraki reynir að gera Alþýðublaðið og
Alþýðuflokkinn tortryggileg - DV og morgunblað þess, TIMINN, hafa
ekki síður en Alþýðublaðið fengið auglýsingar frá Hafnarfjarðarbæ
til birtingar, - einnig Kóþavogskaupstað þar sem bæjarstjórinn er
framsóknarmaður. Þó erTíminn einkanlega blað dreifbýlisfólksins
ERU ÞEIR LÍKA
MEÐSKÆRIÁ
TÍMANUM OG DV?
SVARTUR FÖSTUDAGUR á ritstjórit DV - nœstum öllforsíða
blaðsins fór íað ítreka dugtiað framkvœmdastjóra Alþýðublaðs-
ins, sem er gott mál. En fréttahrakið hefur verið mikið á ritstjórn
síðdegisblaðsins.
FYRIR nokkrum dögum
birtist auglýsing í Tíman-
um frá Kópavogsbæ. Það
er í sjálfu sér ekki merkilegur
atburður. Nema hvað Dagblað-
ið Vísir, sem reyndar gefur út
Tímann í dag, er kominn í
krossferð gegn Alþýðublaðinu,
- einmitt vegna dugnaðar þess
blaðs á viðskiptasviðinu. Að-
al“frétt“ DV á föstudaginn var:
Klipptu út auglýsingar í öðmm
blöðum og birtu“.
Lík í lestinni hjá DV og
TÍMANUM
í þessari „frétt“ DV er reynt
eftir megni að koma því á
framfæri við lesendur blaðsins
að rotið samsæri framkvæmda-
stjóra Alþýðublaðsins og Guð-
mundar Arna Stefánssonar
hafi fleytt miklum tekjum í
sjóði blaðsins. Með þessu til-
skrifi er næstum hálfsíðumynd
af hinum vaska framkvæmda-
stjóra Alþýðublaðsins,
Ámunda Ámundasyni, þar
sem hann er sagður vera að
klippa út auglýsingu til birting-
ar, sem er auðvitað haugalygi
og aðeins uppstilling fyrir
myndasmiðinn.
En Frjáls ijölmiðlun hf., sem
í reynd gefur út tvö af fimm
dagblöðum landsins, DV og
Tímann, hafa lík í lestinni sam-
kvæmt eigin skilgreiningum.
Sveitablaðið auglýsir
fyrir Hafnarfjörð og
Kópavog
Tíminn, sem er í eilítið
stærra upplagi en Alþýðublað-
ið, og er að langmestu leyti
dreift í sveitir landsins, hefur á
þessu ári birt jafnmikið ef ekki
meira af auglýsingum frá Hafn-
arfjarðarkaupstað en Alþýðu-
blaðið, sem er þó í góðri dreif-
ingu í Hafnarfirði. Tíminn hef-
ur líka birt fjölmargar auglýs-
ingar frá Kópavogskaupstað, á
sama tíma og Alþýðublaðinu
eru meinaður aðgangur að
þeim auglýsingamarkaði.
Væntanlega getur DV slegið
því upp næst að Sigurður
Geirdal, framsóknarmaður og
bæjarstjóri í Kópavogi, sé að
hygla Tímanum og Frjálsri fjöl-
miðlun á kostnað annarra með
þessum birtingum. Hvort sem
auglýsingadeild Tímans og
kannski DV líka, hafa yfir að
ráða skærum eða ekki, þá er
það staðreynd að þeir högnuð-
ust sæmilega á viðskiptum við
Hafnfirðinga fram að síðustu
kosningum.
„Mega nota skærin sín
að vild..“
„Ég hef aldrei vitað aðra eins
vitleysu“, sagði Ámundi
Ámundason, framkvæmdastjóri
Alþýðublaðsins í gær. „Ég hef
miðlað auglýsingum ýmissa
aðila til DV og þar áður til Vís-
is og Dagblaðsins, um 25 ára
skeið. Þar var um að ræða
munnlega samninga við aug-
lýsingastjóra blaðanna, og þeir
gátu þá notað skærin sín að vild
mín vegna. Þessi tilhögun er
ekki verri en hver önnur. Að
Hafnarfjarðarkaupstaður, eitt
helsta vígi Alþýðuflokksins á
Islandi, skuli auglýsa fyrir rúm-
ar 200 þúsund krónur á ári í Al-
þýðublaðinu getur varla talist
til stórra tíðinda“, sagði
Ámundi.
Hann benti á að dreifmg Al-
þýðublaðsins í Hafnaríírði er til
muna meiri en á Tímanum,
sem einkum fer á sveitaheimili,
þar sem auglýsingar Hafnfirð-
inga eiga væntanlega lítið er-
indi. Alþýðublaðið væri enn-
fremur iðulega í dreifingu á
hvert heimili í Hafnarfirði, en
Tíminn sæist þar varla.
Sýslumannsauglýsing-
ar DV
Athygli hefur lengi vakið að
aðeins DV birtir hinar hroll-
vekjandi uppboðsauglýsingar
Sýslumannsins í Reykjavík, þar
áður embætti Borgarfógeta.
Hefur svo verið um fjölmörg
ár. Auglýsingamenn blaðanna,
ekki síst Morgunblaðsins, hafa
undrast þetta stórum, enda er
DV ekki nema kannski rétt
hálfdrættingur á við Moggann í
útbreiðslu. Engu að síður hefur
DV haft einkarétt á þessum
birtingum og hagnast af veru-
lega. Nú ættu rannsóknarblaða-
menn DV að svipta hulunni af
þeim leyndardómi sem þessar
birtingar eru. Hversvegna aug-
lýsir sýslumaðurinn aðeins í
litlu blaði, þegar annað til
muna stærra er í boði? Og
hvers vegna auglýsa ekki allir
auglýsendur eingöngu í Morg-
unblaðinu, en hætta auglýsing-
um í blöðum eins og DV og
Tímanum, sem hljóta að vera
grútmáttlausir miðlar í saman-
burði við risann á dagblaða-
markaðnum?
Ergelsi DV yfir velgengni
Alþýðublaðsins er hlægilegt.
Alþýðublaðið er að sjálfsögðu í
samkeppni við aðra fjölmiðla
og hefur gengið allbærilega að
halda úti rekstri blaðsins á und-
anfömum ámm, meðal annars
með auglýsingatekjum. Blaðið
hefur boðið auglýsingar á góðu
verði og íjölmargir auglýsend-
ur notfært sér þjónustu blaðs-
ins. Það að Tíminn er nánast
auglýsingalaus og DV með sí-
minnkandi auglýsingamagn er
hinsvegar ekki Alþýðublaðinu
að kenna. En einhvers staðar
þarf ergelsið að brjótast út, og
það gerðist í DV fyrir helgina.
Hversvegna auglýsa í
TÍMANUM?
Á þessu ári hefur Hafnar-
fjarðarkaupstaður auglýst 17
auglýsingar í Tímanum, - og
ekki sjaldnar í DV.
Frjáls fjölmiðlun hefur því
gert það gott í Firðinum. Át-
hygli vekur að eftir bæjar-
stjómarkosningar í vor hefur
Hafnarljörður aðeins auglýst
þrisvar í Tímanum.
Kópavogskaupstaður, sem
vill ekki skipta við Alþýðu-
blaðið, hefur auglýst 11 sinnum
á árinu í Tímanum, enda þótt
nokkuð hafi dregið úr auglýs-
ingum þar eftir kosningar, enda
munu þeir Kópavogsmenn
standa á bremsunni í öllum
auglýsingakostnaði vegna
slæmrar skuldastöðu bæjarfé-
lagsins.
Staðreynd er að Tíminn,
blaðið sem kennir sig við fé-
lagshyggjufólk, gefið út af
Fijálsri fjölmiðlun hf., eiganda
DV, hefur birt 360 dálksenti-
metra af auglýsingum Hafnar-
fjarðarkaupstaðar á þessu ári, -
og 265 dálksentimetra af aug-
lýsingum Kópavogskaupstaðar.
Bændasamtökin og fyrirtæki
tengd þeim hafa líka hugsað
hlýlega til Tímans, enda þótt að
þeim mætti vera ljóst að aug-
lýsing í öðm blaði og stærra
hefði borið betri árangur.
J TT j? ^ TT J K,
Fyrrum Hagkaupsmaður tif KA
Þorsteinn Pálsson, fyn-verandi framkvæmdastjóri hjá Hag-
kaupi hefur verið ráðinn frainkvæmdastjóri Kaupfelags Ar-
nesinga og dótturfyrirtækja þess. Þorsteinn er 40 ára og
menntaður frá Verslunarskóla íslands. Hann er sonur hjón-
anna Jóhönnu Símonardóttur og Páls Þorsteinssonar, sem
um áratugaskeið var aðalféhirðir Flugfélags íslands og síðar
Flugleiða. Eiginkona Þorsteins er Kristín Árnadóttir, skrif-
stofumaður, og eiga þau fimm böm. Hagkaup missti góðan
mann þegar Þorsteinn lét af starfi og tók við framkvæmda-
stjóm hjá Örtölvutækni hf.. KÁ er einn stærsti vinnuveit-
andi Suðurlands með viðamikla og fjölbreytta staifsemi í
verslun, iðnaði og ferðaþjónustu, og starfa á fjórða hundrað
manns hjá fyrirtækinu.
AÐVÖRUN við Mýrdalssand
Fjarstýrð aðvörunarskilti vegna
sandibks hafa verið sett upp
sitt hvom megin við Mýrdalss-
and og vom þau tengd fyrir
skömmu. Þau virka þannig að
þegar vegagerðarmenn í Vík
verða varir við sandfok skrá
þeir upplýsingamar í tölvu.
Hún sér um að hringja í farsíma á skiltunum en við hann er
tengdur búnaður sem kveikir á viðvörunarljosum. Þessar
upplýsingar koma fiam í Framkvanndafréttum Vegagerðar-
innar. Þannig háttar til í Vík að það sést vel út á sandinn úr
áhaldahúsi Vegagerðarinnar og þekkja starfsinenn þar vel
merki um sandfok. Einnig fá þeir yfirleitt fljótt fréttir frá veg-
farendum ef sandfok er að byija. Veðurstöð hefur verið sett
upp á sandinum og munu upplýsingar frá henni einnig nýtast.
í fiumtíðinni verður kerfið líklega að hluta til sjálfvirkt, það
er þegar veðurstöðin gefur upp veður sem þýðir ömgglega
sandfok, þá kveikir tölvan á viðvömnarskiltunum.
Hætta á sandfoki
Þegar tjós btikka er haatta á
sandfokl á Mýrdatssandi.
Danger Sandstorm
Rashlng ííghts indicate dangcr
of sandstorm on Mýrdalssandur
„ 'mjír
Fjallkonuljóð vantar
Æskulýðs- og lómstundarád Hafharijarðar sem umsjón
hefur með 17. júní hátíðahöldum í bænum vinnur að því að
safna saman ljóðuni sem flutt hafa verið af Ijallkonum há-
tíðahaldanna frá árinu 1944. Enn vantar nokkuð upp á að
fullgera ljóðasafnið. Þar vantar ljóðin frá 1944 til 1954. Árin
1955 og 1956 vantar, sem og 1958. Þá vantar árin
1963-1966. Þeir sem kunna að hafa þessi Ijóð og jafnvel
ntyndir af fjallkonum þessara ára í farteski sínu em beðnir að
hringja í Árna Guðmundsson, æskulýðsfulltrúa. Sírninn er
53444.
Réttir í Landnámi Ingólfs
Senn líður að því að bændur fara til smaiamennsku. Þetta
ættu ökumenn að hafa í huga, því ævinlega er hætta á ferð-
um, þegar reksturinn rennur eftir þjóðvegum landsins í haust-
myrkrinu. Fjölmargir borgarbúar halda til rétta í sínu ná-
grenni. I Landnámi Ingólfs er réttað á 11 stöðum. Styst er að
fara í Lækjarbotnarétt fyrir Reykvfkinga og nágranna. Þar
verða réttir í Fossvallarétt síðdegis sunnudaginn 18. septem-
ber. Þá helgi verða réttir í Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit,
Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Nesjavallaiétt í Grafningi og
Lönguhiíðarrétt við Bláljallaveg laugardaginn 17. september,
en í Lækjarbotnum, Dalsrétt í Mosfellsdal og Þórkötlustaða-
rétt í Grindavík á sunnudag, Stærstu réttimar em tnílega Ölf-
usrétt í Ölfusi á þriðjudag, og Kjósanétt á mánudag um há-
Okeypis bíó hjá MIR
Regiubundnar kvikmyndasýningar
félagsins MÍR em að hefjast að
nýju eftir sumarleyfin. Sýnt er í
salnum að Vatnsstíg 10, fyrsta sýn-
ing á sunnudaginn kl. 16. í tilefni
þess að nú er hálf öld liðin frá því
að Sergei Eisenstein og samstaifs-
menn hans luku við gerð fyrri hluta
myndarinnar Ivan grimtni, verða
báðir hlutar myndarinnar sýndir í
þessum mánuði, sá fyrri á sunnu-
daginn kemur, sá síðari sunnudag-
inn 18. september.
Úrkvikmynd Eisen-
steins, - Ivan grimmt
140 þúsund þátttökuseðlar
Mjólkurbikarleiknum sem íslenskur mjólkuriðnaður hefur
staðið lyrir í sumar er nú formlega lokið. Þátttaka fór langt
fram úr öllum væntingum, eins og Alþýðublaðið greindi frá
nýlega. Upphafiega var gert ráð fyrir 20 þúsund þátttakend-
um, en þátttökuseðlar urðu alls um 140 þúsund. Má ætla að
40-50 þúsund fjölskyidur hafi verið með í leiknum. Fjöl-
margir fengu í hendur ávísanir á mjólkurbikarglösin eltir-
sóttu og rnunu fá þau í hendur fyrri hluta næsta mánaðar og
verður auglýst sérstaklega þegar glösin berast til landsins.