Alþýðublaðið - 06.09.1994, Qupperneq 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MPtJltffiíÐIÐ
Þriðjudagur 6. september 1994
HAGKAUP leggur allra verslana mest á matvöruna, má lesa út úr upplýsingum sem dagvörukaup-
menn hafa aflað sér - iðnrekendur og heildsalar sagðir logandi hræddir við Hagkaup/Bónus og sam-
eiginlegu birgðastöðina Baug. - Sumir kaupmenn sjá hag í að kaupa vöruna í smásölu hjá Bónus, þar
kann hún að vera 70% ódýrari en hjá heildsala eða framleiðanda - Dagvörukaupmenn segja þá litlu
borga niður lága verðið sem Baugur nærfram
„SVONA TILBOD LYKTA
AF OKURSTARFSEMI“
-segja talsmenn dagvörukaupmanna, sem kæra risann í matvörudreifingu fyrir óeðlilega viðskiptahætti
FRAMLEIÐENDUR og
heildsalar í matvörugeir-
anum munu almennt
fagna því mjög að Félag dag-
vörukaupmanna hefur nú kraf-
ist rannsóknar Samkeppnis-
stofnunar á viðskiptaskilmálum
heildverslana og iðnfyrirtækja
hér á landi gagnvart
Baugi/Bónus annars vegar og
hins vegar gagnvart félögunum
í Félagi dagvörukaupmanna.
Þetta fullyrtu þeir Þórhallur
Steingrímsson, kaupmaður í
Grímsbæ og formaður félagsins
og Friðrik G. Friðriksson,
kaupmaður í F&A, varafor-
maður, á fundi með blaða-
mönnum í gær. Þeir segja að
minni kaupmenn á Islandi
greiði niður verðin sem Hag-
kaup og Bónus fá með sínum
magninnkaupum.
Heildsalinn allt
að 70% dýrari
en Bónus
Félag dagvörukaupmanna lét
afla gagna sem afhent voru
Samkeppnisstofnun og eru
leyniplagg enn sem komið er.
Þar eru kannaðir 12 algengir
vöruflokkar frá 10 fyrirtækjum.
I ljós kom að ijölmargar
neysluvörur eru frá 20% og allt
upp í 70% dýrari hjá innflytj-
endum og/eða framleiðendum
viðkomandi vara, heldur en í
smásölu hjá Bónus, sem þeir
félagar kalla „ódýru deildina í
Baugi“.
Þá kom fram að vöruflokk-
amir væru í raun mun fleiri,
vart undir 70 talsins. Aðeins
hefði verið tekið sýnishom af
vöm sem hefur stöðugt verð
allt árið, en ekki sveiflubundið
eins og til dæmis ávextir.
Kaupmenn
kaupa
inn í smásölu!
Fram kom á blaðamanna-
fundinum að íjölmargir kaup-
menn kaupa inn til verslana
sinna í Bónus, þar fá þeir hag-
stæðari verð en í heildverslun
eða hjá framleiðanda. (Þá hlýt-
ur að vakna spuming um hvað
verður um virðisaukaskattinn).
Einkum mun hér um að ræða
sjoppueigendur, sem kaupa inn
kók, pylsur og sælgæti, en í
minna mæli kaupmanninn á
hominu.
Sigurður G. Guðjónsson,
lögmaður Félags dagvörukaup-
manna, sagði á fundinum að
það væri ekki óeðlilegt að af-
sláttur væri veittur af magninn-
kaupum. Hér væri hins vegar
um að ræða óeðlilega mismun-
un að ræða sem Samkeppnis-
stofnun mundi nú kanna. Allir
kaupmenn ættu að njóta sömu
kjara og ættu að fá magnafslátt,
ef þeir keyptu sama magn. Þess
væri að vænta að málið fengi
hraðferð í kerfinu, og að litið
væri á það sem prófmál.
Rætt um „
óeðlilega
skilmaia“
Hagkaup, Bónus, og sameig-
inleg birgðastöð þeirra versl-
ana, Baugur, em sögð ná fram
óeðlilegum skilmálum í vöm-
innkaupum í krafti stærðar.
Þessar verslanir em sagðar ráða
rúmlega þriðjungi matvöm-
verslunarinnar í landinu, og á
höfuðborgarsvæðinu sé hlut-
fallið enn stærra. Dagvöru-
kaupmenn segja stærð fyrir-
tækjanna slíka að þau séu orðin
markaðsráðandi.
Samkvæmt þeim tölum sem
dagvömkaupmenn viðra nú,
virðist ljóst að Hagkaup býr við
til muna hærri álagningu á vör-
ur sínar en tíðkast almennt í
matvömbúðum á Islandi. Bón-
us býður sem fyrr betur en aðr-
ir, jafnvel langt undir heildsölu-
verðum sem boðin em til
smærri kaupmanna.
„Nú í dag er fjöldinn allur af
vömtegundum mun ódýrari út
úr verslun hjá ódýrari deild
Hagkaups-hringsins (Bónus) en
hjá sjálfum framleiðendum og
innflytjendum varanna. Þrátt
fyrir sameiginleg innkaup Hag-
kaups-deildanna tveggja í sam-
eiginlegu fyrirtæki sem heitir
Baugur, skilar hinn óeðlilegi
afsláttur, sem þessu viðskipta-
veldi tekst að knýja fram, sér
oftast ekki til neytenda, nema í
ódým deildinni“, segja dag-
vömkaupmenn. Þetta er mikill
áfellisdómur yfir Hagkaups-
búðunum, sem áratugum sam-
an hafa státað af sanngjörnu
vöruverði.
Hræðsla við
refsingu
Vitað er að Hagkaup hefur
lengi gengið hart eftir afslætti
hjá þeim fyrirtækjum sem
birgja verslanimar upp. Að-
gangsharkan er sögð hafa verið
og sé slík að þeir em orðnir
vinafáir í stétt framleiðenda og
heildsala. Dagvörakaupmenn
segja að þessir aðilar hafi lang-
flestir ákaflega veika samnings-
stöðu gagnvart viðskiptaveld-
inu Hagkaup/Bónus. Mundu
þeir flestir fagna leiðbeinandi
reglum sem tækju af öll tví-
mæli um hversu langt þessir
aðilar gætu seilst til að þóknast
stórveldinu.
„Síðasta uppátæki fyrirtækis-
ins Baugs er að bjóða framleið-
endum/innflytjendum stað-
greiðslu í stað víxla og
áskilja sér í staðinn enn
meiri afslátt. Þar sem
víxilkostnaður er 3%
og hefur hingað til ver-
ið greiddur af framleið-
endum/innflytjendum,
þá vilja Baugsmenn fá
enn meiri afslátt en því
nemur. Svona tilboð
lykta af okurstarfsemi,
sem því miður mörg
smærri fyrirtæki þurfa
að kyngja, annað hvort
vegna veikrar aðstöðu í
bönkum eða af hræðslu
við refsingu frá Hag-
kaups/Bónusveldinu“,
segja dagvörukaup-
menn. Þeir Friðrik og
Þórhallur sögðu blaða-
manni Alþýðublaðsins
að ljölmörg dæmi væm
um það að framleiðend-
um matvöm eða heild-
sölum, hefði verið
„hent út úr Hagkaupi
vegna þess að þeir
vildu ekki makka með“.
Dæmin í Bónus væm
einnig íjölmörg. Aðrir
hefðu sætt þeirri refs-
ingu að vara þeirra var
sett í gólfhillur búð-
anna, en úr þeim selst
minnst.
Gullmaðurinn
hættir
„Ég vil ekki kannast
við að Bónus sé „ódýra
deildin“ í Hagkaup.
Þetta fékk ég framan í
mig á fundi með félög-
um mínum á fimmtu-
dagskvöldið. Séu dag-
vörukaupmenn í erfið-
leikum með rekstur
sinn, þá er við aðra að
sakast en mig og mitt
fyrirtæki“, sagði Jó-
hannes Jónsson í Bón-
us í gær.
Jóhannes sendi úrsögn sína
úr Kaupmannasamtökum ís-
lands, og þar með Félagi dag-
vömverslana, morguninn eftir.
Uppsögnin er miðuð við næstu
áramót.
Jóhannes hefur starfað mikið
með samtökunum, meðal ann-
ars setið í framkvæmdastjóm
þeirra, og er handhafi gull-
merkis samtakanna. Á fyrr-
greindum fundi var samþykkt
með öllum atkvæðum gegn
einni hjásetu að bera erindi fé-
lagsins upp við Samkeppnis-
stofnun.
Yfírgáfu félagið vegna
kaupa Hagkaups í
Bónus
„Rök Jóhannesar Jónssonar
fyrir úrsögn úr félaginu sýna
ljóst að fyrirtæki sem ekki get-
ur stutt félag sitt í öðm eins
réttlætismáli, á ekki erindi inn-
an þess, og má vænta að fyrr-
um félagar, sem yfirgáfu félag-
ið þegar Bónus sameinaðist
Hagkaupum komi nú aftur og
styrki félagið í þessari lífsbar-
áttu smærri fyrirtækja til hags-
bóta fyrir þá og meirihluta
neytenda", segja dagvömkaup-
menn.Jóhannes sagði í samtali
við Alþýðublaðið í gær að það
kæmi sér á óvart ef einhver
kaupmaður hefði sagt sig úr fé-
laginu vegna hans. Á þetta
hefði aldrei verið minnst. Sagði
Jóhannes að ástæðan hefði þá
verið einhver allt önnur. Kaup-
menn ættu við að striða mikla
óeiningu á ýmsum sviðum, og
hún hitti þá einmitt fyrir nú,
þegar nútíma viðskiptahættir
hefðu verið teknir upp á íslandi
með lægra verðlagi til almenn-
ings en áður hefur tíðkast
ORÐABÆKURNAR
34.000 cmk uppflctliord
Ensk
íslensk
orðabók
English-lcelondtc
Didionory
islensk
íslensk
dönsk
orðnbók
fysk
'sjensk
'slensk
rdt>ból<
ístets
Þýsk
íslensk
íslensk
þýsk
orðobók
Frönsk
íslensk
íslensk
frönsk Á
orðabók
* Jr Á
ílölsk
ís'ensk | íslensk sa<«**2t
fslensk
ítölsk
orðabók
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann,
ó skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN