Alþýðublaðið - 28.09.1994, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 28.09.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MENNING Miðvikudagur 28. september 1994 MÞÍÐVBLM9 HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Simi: 625566 - Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140 Umræða um siðferði í stjórnmálum - já takk! Guðmundur Ámi Stefánsson félagsmálaráðherra hefur kynnt greinargerð þar sem hann svarar ásökunum og ávirðingum á hendur sér um meinta pólitíska siðspillingu og siðblindu. Greinargerð þessi er birt í heild í Alþýðublaðinu í dag. Ráð- herra sat fyrir svörum fréttamanna á löngum og íjölmennum blaðamannafundi í fyrradag og gerði grein fyrir máli sínu. Þar kom meðal annars fram að ráðherra játar á sig mistök í tveimur málum er tengjast mannaráðningum en telur engin efni vera til afsagnar ráðherradóms. Sjaldan eða aldrei hefur einn ráðherra í sögu íslenskra stjómmála setið undir jafn hörðum og linnulaus- um árásum fjölmiðla og núverandi félagsmálaráðherra. Gagnrýni og aðhald íjölmiðla á ráðamenn er ekki aðeins gagnleg heldur nauðsyn í opnu og lýðræðislegu þjóðfélagi. I raun á almenningur enga aðra útverði en íjölmiðla til að halda uppi eftirliti á gerðir og embættisfærslur ráðamanna, þing- manna, embættismanna og annarra er að opinberri stjómsýslu og stjórnkerfi koma. Mikilvægi fjölmiðla sem útvarða almenn- ings gerir það að verkum, að fólkið í landinu verður að gera gíf- urlegar kröfur til fjölmiðla og fréttamanna sem þar starfa. Al- menningur verður að gera jafn strangar - ef ekki strangari - kröfur til fréttamanna og fjölmiðla en ráðamannanna sjálfra. Almenningur sem verður að geta treyst fjórða valdinu, það er fjölmiðlum, gerir því kröfu um menntun, reynslu og dómgreind fréttamanna og þeirra sem fjölmiðlum stýra, auk ströngustu krafna um hlutleysi og sjálfstæði miðlanna. Aðeins þá er fjöl- miðill trausts almennings verður. Oll opinber umræða um siðferði í stjómmálum er af hinu góða. Hún skerpir dómgreind almennings og veitir ráðamönn- um aðhald. Einmitt þess vegna er nauðsynlegt að fjölmiðlar Qalli um siðferði í stjómmálum á breiðum gmndvelli og af mik- illi þekkingu og innsýn. Það er dapurleg staðreynd að fjölmiðla- fár undanfarinna ára og áratuga kringum einstakar fréttir af meintri pólitískri spillingu, snúast nær eingöngu um hin minni mál sem miður fara í siðferði ráðamanna. Ráðherrabílar, áfeng- isveitingar, stöðuráðningar einstakra flokksgæðinga eða biðlaun einstakra ráðamanna em dæmi um mál sem hljóta hina miklu og æsingarkenndu umfjöllun meðan stóm spillingarmálin sigla í kyrrþey framhjá fjölmiðlum jafnt sem almenningi. Stóm spillingarmálin varða almenning miklu fremur en þau litlu. Það er kannski ekki siðferðislegur munur á því hvort ráða- menn sukka með milljarða króna af fé skattgreiðenda eða nokk- ur hundmð þúsund. En hvers vegna er milljarða sukkið ekki tekið sömu hörðu tökum fjölmiðla? Hvers vegna fjalla fjölmiðl- ar ekki af sama krafti um sjóðasukkið gegnum tíðina, úthlutanir Byggðastofnunar í skugga hins pólitíska valds, fyrirgreiðslur stjómmálamanna af almannafé til einstakra kjördæma, pólitíska vemd fyrirtækja í ríkisbönkum sem kosta almenning milljarða? Listinn er nánast ótæmandi: Hvað er hið ríkistryggða landbún- aðarkerfi undanfarinna áratuga annað en einhver óhugnanleg- asta pólitíska spilling sem um getur í íslenskum stjómmálum? Hvers vegna gerði enginn fjölmiðill úttekt á mannaráðningum og verktakasamningum meirihluta Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á liðnum áratugum? Hvað með botnlausar fjárfest- ingar hins opinbera í atvinnulífi, þar sem einstakir þingmenn og ráðherrar hafa getað göslast í opinberum sjóðum og eytt fé al- mennings í virkjanir, refarækt, tilraunaatvinnurekstur og allt sem nöfnum kann að nefna? Hvers vegna fjallar enginn fjölmiðill um þessi stóm spillingar- mál og dregur einstaka þingmenn og ráðherra til ábyrgðar? Er það af þekkingarleysi, áhugaleysi eða vegna þess að ljölmiðl- ana skortir sjálfstæði til að taka á þessum málum? Hvaða sið- ferði íslenskra fjölmiðla er það að eltast endalaust við litlu mál- in - sem vissulega er nauðsynlegt að fjalla einnig um - en stinga hausnum í sandinn þegar hin stóm spillingarmál em annars vegar? LEIKLIST: Leikfélag Reykjavíkur LEYNIMELUR13-51 árs gamall farsi vakti mikinn hlátur. Þegar pólitfldn grípur inn í Það er ys og þys á sviðinu í Borgarleikhúsinu, þegar Leynimelur 13 er leikinn á fjölunum þar. Persón- urnar koma og fara, hraðar skiptingar inn á sviðið, fólk tal- ar hratt og hver misskilningur- inn öðmm meiri kemur upp. Sannkallaður farsi, sem Leikfé- lag Reykjavíkur hefur sett upp. Og hann bara ágætur og hefur merkilegt nokk staðist tímans tönn. Það kom mér mest á óvart. Liðin er meira en hálf öld frá því að Leynimelur 13 var ffum- sýndur, höfundamir landskunn- ir leikhúsmenn, þeir Emil Thoroddsen, Haraldur Á. Sigurðsson og Indriði Waage. Leikurinn gerist í hverfi nýríkra Reykvíkinga á Melunum, sem í eina tíð þótti hvað flottasta hverfi borgarinnar. Á þessum ámm hafta og vömskorts virð- ist sem fjölmargir hafi efnast ótrúlega vel. Einn þeirra er Madsen klæðskeri, sem er ný- fluttur í villu eina stóra ásamt eiginkonunni og ótrúlega leið- inlegri tengdamóður sinni. Har- aldur Á var sérfræðingur í að skapa slíkar tengdamæður. Pólitíkin grípur inn í örlög fólksins á Leynimel 13. Því er ekki ætlað að njóta nýju húsa- kynnanna sinna. Alþingi sendir frá sér lög þar sem kveðið er á um að húsnæðislaust fólk fái inni hjá þeim sem rúmt hafa um sig. Madsen-fjölskyldan fær því múg og margmenni inn á sig í hinum nýju og glæsilegu húsakynnum að Leynimel 13. Það fólk er afar sérkennilegt svo ekki sé meira sagt. Ekki hafði ég miklar vænt- ingar til þessa leikrits, sem í ár- anna rás hefur verið sýnt víða um land af áhugaleikfélögum. Það kom mér því á óvart hversu hressilega var hlegið. Leikurinn er hraður og ber þess merki að vera saminn af fólki sem kunni til verka. Vissulega breytist kímnigáfa þjóðarinnar ár frá ári, og er talsvert önnur í dag en hún var fyrstu ár lýð- veldisins. En hvað um það. Þetta var hin ágætasta stund í leikhúsinu, enda hollt að hlæja. Án efa á Leynimelurinn eftir að skemmta mörgum leikhúsgest- inum í vetur. Það skiptir sköpum að hér hefur verið staðið skemmtilega að verki hjá fagfólki Borgar- leikhússins. Farsa eins og þess- um er einfalt að klúðra, og hon- um má líka lyfta með faglegum vinnubrögðum. Stærsta hlutverkið, Madsen klæðskera, leikur Þröstur Leó Gunnarsson og er bráð- skemmtilegur í þessu fyndna hlutverki. Sigurður Karlsson fer með stórt hlutverk Sveins Jóns skósmiðs, sem er heldur óprúttinn bamakarl. Skilar Sig- urður því skemmtilega, enda leikari góður, og vekur margan hláturinn. Þórey Sigþórsdóttir er í hlutverki frú Madsen og Guðrún Ásmundsdóttir leikur tengdamúttuna voðalegu. Fara þær báðar vel með sín hlutverk og eru sannfærandi. Þá vakti Jón Hjartarson mikla kátínu sem danskur milljónamæringur, en texta hans hefði ef til vill mátt gera betur skiljanlegan leikhúsgestum. Fjölmargir góð- ir leikarar aðrir koma við sögu og stóðu sig með ágætum, þar á meðal krakkastóðið hans Sveins Jóns skósmiðs, sem gæddi verkið enn meira lífi. Leikstjóranum, Ásdísi Skúladóttur, hefur tekist hér vel upp og vandað vel til verka sinna. Áhorfendur á fmmsýn- ingunni á fimmtudaginn skemmtu sér vel og fögnuðu leikendum og öðmm aðstand- endum sýningarinnar með þéttu lófataki að leikslokum. - Jón Birgir Pétursson. TÓNLISTARÚTGÁFA: Spor hf. Diskurinn „Reif í sundur“ Síðastliðinn mánudag kom út hjá Spori hf. safnplatan „Reifí sund- ur“, en hún er sú sjöunda í Reif-útgáfuröðinni sem notið hefur mikilla vinsælda hér á landi undanfarin tvö ár. Til marks um það er að allar fyrri plöturnar hafa náð efsta sæti á íslenskum vinsældalistum og lög af þeim jafnframt. Á „Reif í sundur" er ein- göngu að finna lög með evr- ópskum flytjendum. Lögin em sautján talsins og þar af em sex með íslenskum. Þrjú íslensku laganna em ný og líta nú dags- ins ljós í fyrsta skipti; það er að segja lögin Ekkert mál með Tweety, Stars með Pís Of Keik og I Need You meðAtsjú. Hin þrjú em endurgerðir áður útgef- inna laga þar sem upphaflegu lagi er nánast gjörbreytt. Þetta em lögin Garden Party með Mezzzoforte, Can You See Me með Pís Of Keik og Swingur- inn með Sálinni hans Jóns míns. Síðasta Iagið hét áður Krókurinn. Erlendu lögin ellefu hafa öll notið vemlegra vinsælda í Evr- ópu og víðar, en þau em sem fyrr segir öll með flytjendum sem koma víðsvegar að úr álf- unni. Má þama helst nefna: - Wigfield með lagið Satur- day Night hefur farið einsog eldur í sinu um alla Evrópu og náð efsta sætinu á vinsældalist- um í hverju landinu á fætur öðm. Núna situr lagið til að mynda í efsta sæti í Bretlandi. Wigfield er annars 24 ára dönsk stúlka; gífurlega hæfi- leikamikil stúlka sem fram að þessu hefur unnið sem fyrir- sæta. Sérstakur dans var búinn til við þetta lag og hefur hann án vafa átt mikinn þátt í vel- gengni þess. (Án efa hafa nokkrir íslendingar lært sporin í sumarfríi sínu...) Dansæði hef- ur gripið um sig í álfunni og þykir mjög svipa til Lambada- æðisins hér um árið og Fugla- dansins þar áður þrátt fyrir að vera gjörólíkur þeim báðum. - Corona með lagið Rythm OfThe Night hefur einnig tyllt sér í efstu sæti vinsældalista víða í Evrópu og er núna til að mynda í öðm sætinu í Bret- landi. Corona er ein af nokkr- um í röð ítalskra flytjenda sem að undanfömu hafa verið að ná góðum árangri í danstónlistinni. - Stella Getz er 17 ára norsk stúlka sem farið hefur sigurför í heimalandi sínu og annarsstað- ar í Evrópu með Yeah, Yeah. - 2 Brothers On The 4th Floor koma frá Hollandi og lag þeirra Dreams (Will Come Ali- ve) sat nýverið í efsta sæti þar í landi. Nú er það lag að hefja sigurför sína í öðmm löndum. - Jam & Spoon höfðu getið sér gott orð sem helstu disk- ótekarar Þýskalands áður en þeir tóku til við hljómplötuupp- tökur og ávextir þeirra á því sviðinu hafa komið við á topp- um vinsældalista margra Evr- ópulanda. Find Me er þeirra nýjasta og vinsælasta afurð ein- sog áhorfendur MTV Europe geta staðfest. - D J. Bobo kemur frá Sviss og lag hans Everybody nýtur nú vaxandi vinsælda á Bretlandi og jafnframt á íslandi; í báðum löndum þeytist það upp vin- sældalistana. Hér á undan hefur einungis það helsta verið talið upp en ár- angur 2 Unlimited; 24/7; Jaki Graham; B.G. The Prince Of Rap og Ice MC - sem einnig eiga lög á „Reif í sundur“ - er ekki síður athyglisverður. Vert er að geta umslagsins á „Reif í sundur“ en það hefur vaJdð vemlega athygli fyrir fmmlega hönnun þótt vafalaust sýnist hverjum sitt. Á myndinni má sjá íslenska stúlku bókstaf- lega rífa sig í sundur einsog veggspjald. Útgefendur „Reif í sundur“ vilja benda áhugasöm- um á að reyna þetta ekki eftir fyrr en búið er að þjálfa upp tæknina sem að baki liggur...

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.