Alþýðublaðið - 28.09.1994, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 28. september 1994
GREINARGERÐ GUÐMUNDAR ÁRNA
hvort rétt hafi verið af minni hálfu,
að skipa aðstoðarmann minn sem
formann stjómar Ríkisspítalanna
skömmu fyrir síðustu áramót. Sér-
staklega hefur verið bent á það, að
sú ráðstöfun hafi verið tvíeggjuð í
ljósi nýrra stjómsýslulaga sem
gildi tóku um þau áramót. Efst í
mínum huga við þessa ákvörðun
var sú nauðsyn sem óumdeild er,
að ráðherra heilbrigðismála hverju
sinni hafi eigin trúnaðarmann í for-
mennsku þessarar mikilvægu
stjómar, þar sem milli 6 til 7 millj-
örðum króna er til ráðstafað.
Aðstoðarmaður ráðherra var í
því ljósi álitlegur valkostur að
mínu áliti. Alit lögfræðings ráðu-
neytisins var að þessi skipan færi
ekki í bága við umrædd stjórn-
sýslulög jafnvel þótt þau hefðu þá
þegar tekið gildi, sem ekki var. í
Ijós kom hins vegar að skiptar
skoðanir vom um það.
Við ráðherraskipti íjúní á þessu
ári, sem urðu vegna brotthvarfs Jó-
hönnu Sigurðardóttur úr ríkis-
stjórn, taldi ég sjalfgefið að eftir-
maður ntinn myndi óska breytinga
á skipan formanns eins og nokkur
hefð hefur skapast um. Það hefur
líka komið á daginn. Um þá breyt-
ingu er fullt samkomulag og gagn-
kvæmur skilningur milli aðstoðar-
manns míns og núverandi heil-
brigðisráðherra. Um þau mál kom-
ust þeir að samkomulagi í viðtali
þeirra í milli um síðustu mánaðar-
mót.
Nokkur grundvallaratriði
Heilbrigðis- og tryggingamál
em þess eðlis, að þau koma við
daglegt líf hverrar einustu fjöl-
skyldu í landinu beint og óbeint.
Eg hef ævinlega verið stoltur af
hlutdeild Alþýðuflokksins fyrr og
sfðar við uppbyggingu þessa mikil-
væga þáttar velferðarkerfisins. A
erfiðleikau'mum í þjóðarbúinu er
hins vegar erfitt um vik að auka
þjónustu. Viðfangsefnið er helst að
stemma stigu við stórauknum út-
gjöldum , þó án þess að grundvelli
samhjálpar sé raskað. Þörfin og
eftirspumin eftir aukinni þjónustu
á sviði heilbrigðis- og tryggingar-
mála verður sennilega alltaf meiri
en möguleikar þjóðfélagsins um
framboð á þessum vettvangi. Erf-
iðara en ella á samdráttartímum,
þegar eitirspumin er vaxandi en
fjárhagslegir möguleikar samfé-
lagsins á framboði fara minnkandi.
Þetta er því vandaverk.
Eg hafði áður en mér vom falin
störf ráðherra lýst yfir áhyggjum
mfnum af því, að ekki mætti of
langt ganga í upptöku þjónustu-
gjalda í heilbrigðiskerfinu.Einnig
þegar ég tók við embætti heilbrigð-
isráðherra lýsti ég þeirri skoðun
minni, að mikið lengra yrði ekki
gengið í þá vem að fjármagna heil-
brigðiskerfið með þjónustugjöld-
um á notendur, sjúklingana sem að
stómm hluta em böm og aldraðir.
Þar væmm við komin á ákveðin
endimörk. Eg vildi leita annarra
leiða. Hófleg þjónustugjöld ýta á
hinn bóginn óumdeilanlega undir
betra kostnaðareftirlit neytandans.
Það er hinn jákvæði þáttur þeirra.
Þjónustugjöld geri ég sérstak-
lega að umtalsefni vegna þess að
þau vom meðal þeirra atriða sem
hvað umdeildust hafa verið i' hinu
viðkvæma endurmati heilbrigðis-
og tryggingarmála.
Annað mikilvægt atriði í þeim
efnum er sú breyting sem gerð hef-
ur verið í vaxandi mæli á trygging-
arkerfinu og er í átt til aukinnar
tekjutengingar bóta. Um þetta hef-
ur verið deilt, þótt skilningur á
nauðsyn hennar hafi vaxið. Ákveð-
in skref vom tekin í þá vem í
minni heilbrigðisráðherratíð.
Tekjutenging almannatrygginga-
bóta er þó einnig takmörkunum
háð.
Ég var fljótlega gagnrýndur
harðlega sem heilbrigðisráðherra
fyrir ýmsar spamaðartillögur sem
ég lagði fram vegna fjárlagafmm-
varps fyrir árið 1994. Og enda er
það svo, að það þrengist að sjálf-
sögðu um spamaðarleiðir eftir því
sem samdráttur í þjóðarbúi stendur
lengur yfir og höggva þarf endur-
tekið í sama knémnn. Flatur spam-
aður hjá sjúkrastofnunum umliðin
ár hefur til að mynda tekið sinn toll
og margir talsmenn sjúkrahúsa á
landinu segja að ekki verði lengra
gengið á þeirri braut.
Ein þeirra tillagna sem ég lagði
fram haustið 1993 og fékk ekki
brautargengi vom svokölluð
heilsukort. Þrátt fyrir afdrif þeirra á
sfðastliðnu ári er ég enn ákveðið
þeirrar skoðunar, að ekki verði
framhjá því komist að nýtt „eyma-
merkt" íjármagn komi inn í heil-
brigðiskerfið, ef unnt eigi að vera
að halda úti jafnvíðtækri og góðri
þjónustu sem þrátt fyrir allt er að
finna hér á landi í þessum mála-
flokki. Vafalaust hefði mátt standa
betur að kynningu heilsukortahug-
myndarinnar á sínum tíma en lítill
tími var til stefnu. En það er sama
hvað tekjustofninn er kallaður, það
verður ekki hjá því komist að
marka heilbrigðiskerfinu tiltekinn
tekjustofn, þar sem greitt er til
þessa mikilvæga þáttar velferðar-
kerfisins í samræmi við tekjur og
íjárhagslega stöðu hvers og eins.
Hugmyndin var að þessi tekju-
tengdi tekjustofn skilaði 400 millj-
ónum króna til heilbrigðismála á
þessu ári.
Annað mál sem var líka mjög í
brennidepli síðastliðið haust laut
að leikskólum sjúkrahúsanna. Þar
! voru miklar tilfinningar á ferð og
ég fékk miklar ákúrur víða að fyrir
mínar hugmyndir í þeim efnum.
Góð sátt náðist hins vegar um nið-
urstöður. Vist bamanna var áfram
tryggð, eins og alltaf var ráð fyrir
gert og umtalsverðum spamaði var
náð fram. Eins og stundum áður
var minna gert úr farsælum lyktum
málsins íyrir alla aðila, en átökun-
\ um sem urðu meðan á samningum
um lausn stóð.
I þvf írafári öllu er mér minnis-
stætt, að það þótti sérstaklega frétt-
næmt, og þykir raunar ennþá því
það mál hefur verið tekið upp að
nýju á síðustu vikum sem eitt af
„vandræðamálum" Guðmundar
Áma, að ég hefði fremur staðið við
áður gefið loforð mitt til sona
minna tveggja, 8 og 10 ára, um að
fara á handboltaleik, en að mæta til
fundar með hagsmunaaðilum þess-
arar deilu; fundar sem ég fékk boð
á með nokkurra klukkustunda fyr-
irvara. Þeir urðu áður en yfir lauk
margir fundimir, smáir og stórir,
með hagsmunaaðilum leikskóla-
málsins. Þeir leiddu líka til farsæll-
ar niðurstöðu. Handboltaferð okkar
feðga stefndi því góðri niðurstöðu
málsins ekki í jafnmikla hættu og
tilteknir fréttamenn vildu vera láta!
Að spara of mikið
-eðaoflítið
Spamaðartillögur mínar sumar
hveijar fengu kaldar kveðjur síð-
astliðið haust. Ég þótti ganga of
langt í spamaði á ýmsum sviðum.
En hálfu ári síðar bar svo við, að
gagnrýnisraddir breyttu um hljóm
og nú þótti ég ekki taka nægilega
hressilega til hendi í spamaði í
heilbrigðisráðuneyti. Meira að
segja einstaklingar sem lögðust
gegn spamaðartillögum síðastliðið
haust, fóm nú í fararbroddi og
sögðu ekki nóg að gert og að heil-
brigðisráðherra hefði ekki gengið
| nægilega langt.
Það er vissulega rétt, að fljótlega
var séð á yfirstandandi fjárlagaári,
að allar forsendur fjárlaga gagnvart
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu myndu ekki standast. Þar
kom ýmislegt til. Ríkisstjómin tók
ákvörðun um að greiða út svokall-
aðar eingreiðslur til bótaþega al-
mannatryggingakerfisins eins og
launafólks almennt og sama gildi
um svokallaða sex þúsund króna
greiðslu, sem ríkisstjómin tók
ákvörðun um í maí. Þessar viðbæt-
ur samsvara 300 milljóna króna
viðbótarútgjöldum, sem íjárlög
gerðu ekki ráð fyrir.
Spara átti umtalsvert í lyfja-
kostnaði. Frestun gildistöku lyfjal-
aga á Alþingi til l.nóvember á
næsta ári gegn mínum vilja, gerði
þau ítmstu áform að engu. Lækkun
álagningar lyfja í mars, fyrir minn
tilstuðlan,í heildsölu og smásölu,
var ekki farin að skila sér að gagni
um mitt ár, þegar ég hvarf úr starfi
heilbrigðisráðherra. Hins vegar em
bundnar vonir við það að ný heim-
ild um samhliða innflutning lyfja
sem fer í framkvæmd fljótlega geti
lækkað lyijakostnað umtalsvert.
Ný reglugerð sem ég gaf út sem
heilbrigðisráðherra um minni lyfja-
skammta svokallaðra magasárs-
lyfja, sýrabindandi lyíja, er á hinn
bóginn farin að skila sér með vem-
lega lækkandi útgjöldum, eftir því
sem heimildir mínar segja. Þessu
til viðbótar er rétt að geta þess að
álagning lyfja í helstu viðskipta-
löndum okkar hefur hækkað. Þetta
samanlagt hefur hins vegar gert
það að verkum að lækkun útgjalda
í lyijakostnaði hefur ekki náð fram
að ganga eins og vonir vom
bundnar við, þrátt fyrir þessar
margháttuðu aðgerða sem ég greip
til.
Einnig náðust ekki ffam nýir
kjarasamningar við sérfræðinga
eins og búist var við framan af ár-
inu og þar með áformuð lækkun
sjúkratrygginga Tryggingastofnun-
ar af þeim sökum. Mikið var reynt
og af hálfu ríkisins var samningum
sagt upp. Vandinn er hins vegar sá,
að þótt Tryggingastofnun gæti
formlega einhliða lækkað þessa
gjaldskrá til sérfræðinga, þá er við
því að búast að sérfræðingar inn-
heimti eftir sem áður skv. „gömlu“
gjaldskránni, „gömlu“ samningun-
um og mismunurinn félli beint á
sjúklinga. Tryggingastofnun var
því í raun áfram bundin eldri
samningum. Núverandi heilbrigð-
isráðherra hefur lýst opinberlega
að hann telji einustu leiðina til að
losa þessa stíflu sé að taka upp til-
vísunarkerfi. Að vísu em skiptar
skoðanir um það hvort slíkt leiði til
spamaðar, en vissulega er nauð-
synlegt með einhverjum hætti að
klippa á þennan hnút.
Fjármál heilsugæslustöðva em
yfirleitt í ágætu lagi víðast hvar.
Fjármál sjúkrastofnana í dreifbýli
em það einnig, þótt nauðsynlegt sé
að taka á staðbundnum vandamál-
um af ýmsum toga, sem mörg hver
eiga rætur í fortíðinni, (Fjórðungs-
sjúkrahúsið Neskaupsstað) og sum
til orðin vegna úrskurða dómstóla
(Sjúkrahús Vestmannaeyja,
Sjúkrahús Suðumesja).
Málefni stóm sjúkrahúsanna í
Reykjavík þarf að skoða sérstak-
lega. Langvarandi halli á Borgar-
spítala og Landakotsspítala em
vandamál sem erfitt hefur verið að
eiga við. Staða Ríkisspítala er við-
unandi. Ég gaf út reglugerð um
verkaskiptingu sjúkrahúsanna á
höfuðborgarsvæðinu þegar ég var í
heilbrigðisráðuneytinu. Mál sem
misserum saman hafði verið í und-
irbúningi og mjög skiptar skoðanir
vom um. Um það náðist að lokum
víðtæk og allgóð sátt milli for-
svarsmanna viðkomandi sjúkra-
húsa í minni ráðherratíð eftir lang-
ar og strangar viðræður. Ég trúi því
að sú reglugerð og sá gmndvöllur
verkaskiptingar, sem þar er lagður,
muni þegar til lengri tíma er litið
spara umtalsverða fjármuni og
koma í veg fyrir ný útgjaldatilefni f
sjúkrahúsarekstri á höfuðborgar-
svæðinu án þess þó að dregið sé úr
þjónustu. I þeirri reglugerð er gerð
ítarleg grein fyrir hlutverki hverrar
sjúkrastofnunar fyrir sig. Það mun
koma í' veg fyrir að offramboð
verði í sérgreinum lækninga, þann-
ig að mörg sjúkrahús bjóði upp á
sams konar þjónustu á afmörkuð-
um sérsviðum læknisfræðinnar.
Hafa skal það
sem sannara reynist
Því hefur verið slegið upp f frétt-
um, að 1700 milljón króna framúr-
akstur hafi verið í heilbrigðisráðu-
neytinu þá sex mánuði, sem ég sat
þar sem heilbrigðisráðherra. Hér er
vemlega hallað réttu máli.
I fyrsta lagi er er verið að vísa til
nýtilorðinna tillagna ráðuneytisins
vegna fjáraukalaga haustið 1994
og miðast vitaskuld við afkomu
ársins alls.
Verður hér farið yfir þessi mál,
þessar 1700 milljónir, lið fyrir lið,
þannig að öllum megi ljóst vera
hver raunveruleiki þessa máls er.
Fjárvöntun lífeyristrygginga
telst 400 milljónir. Þar af vegna áð-
urgreindra eingreiðslna, 300 millj-
ónir. Önnur hækkunarþörf skýrist
með Qölgun lífeyrisbótaþega og
fjölgunar rétthafa vegna heimildar-
bóta.
Fjárvöntun sjúkratrygginga telst
800 milljónir. Þar vegur hækkun
lyfjakostnaðar mest, eða 300 millj-
ónir. Ástæður þessa hafa áður ver-
ið raktar. Lækkun lyfjakostnaðar
náðist ekki fram um 250 milljónir.
120 milljón króna spamaður í
lækniskostnaði ekki heldur vegna
þess að samningar náðust ekki við
lækna, eins og vonir stóðu til og
áður er getið. Ennfremur er ljóst að
sú tímabunda fækkun vitjana hjá
læknum, sem varð vegna upptöku
þjónustugjalda fyrir nokkmm
misseram, er ekki lengur vemleiki.
Vitjunum hefur fjölgað og kostn-
aður aukist að sama skapi. Kostn-
aður af hjálpartækjum hefur aukist.
Lækkun gjaldskrár sem ég setti
vegna röntgenrannsókna mun hins
vegar skila tugmilljóna króna
spamaði. Lækkun gjaldskrár vegna
rannsókna náði ekki fram að
ganga, en fullbúnar vom tillögur
um útboð eða einhliða ákvörðun
um lækkun hennar á borði ráð-
herra, þegar ég fór úr ráðuneytinu í
júní.
í allar þær aðgerðir, sem sem til-
greindar voru í forsendum fjárlaga,
var farið eða þær vom á lokastigi
undirbúnings hvað varðar sjúkra-
tryggingar, þegar ég hvarf úr stóli
heilbrigðisráðherra. Sumar skiluðu
árangri, aðrar ekki. Það er ekki
nýtt. Afkoma sjúkratrygginga tek-
ur á hverju ári mið af ástandi mála
í þjóðfélaginu hverju sinni, hvað
sem beinum aðgerðum stjómvalda
líður. Það hefur þannig verið alla
tíð.
Samtals ljárvöntun Ríkisspítala
(52 milljónir), Borgarspítala (240)
milljónir og St. Jósefsspi'tala
Landakoti (100 milljónir), er talin
392 milljónir króna og skýrast af
uppsöfnuðum hallarekstri umlið-
inna ára, ofáætlun sértekna, van-
metnum lífeyrirgreiðslum og
hækkun launa vegna nýrra kjara-
samninga, sem vegur þyngst. Fjár-
hagsvandamál stóm sjúkrahúsanna
eru ekki ný af nálinni og hafa verið
viðvarandi um langt árabil. Fjár-
málum þeirra er ekki stýrt með
beinum hætti úr heilbrigðisráðu-
neyti. Þau vinna sjálfstætt sam-
kvæmt forsendum fjárlaga. Á hinn
bóginn hafa forsvarsmenn þeirra ít-
rekað hin síðustu ár kvartað yfir of
naumum fjárframlögum á fjárlög-
um. Þannig var það einnig á þessu
fjárlagaári.
Sjúkrahúsið Akranesi er með
umtalsvert uppsafnaðan halla frá
undanfömum ámm. Nærri 30
milljónum króna.
Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri
þarf að standa skil á þremur millj-
ónum vegna skaðabótamáls. Fjórð-
ungssjúkrahúsið Nesskaupstað
glímir við uppsafnaða vanda sem
nær mörg ár aftur f tímann og er
nærri 25 milljónum króna. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja þarf að standa
skil á 30 til 40 milljónum króna
vegna greiðslu fyrir bakvaktir
vegna dóms sem féll á þessu ári.
Sjúkrahúsið á Suðumesjum þarf að
standa skil á 6 milljónum vegna
skaðabótamáls. Víðihlíð í Grinda-
vík glímir við 10 milljón króna
rekstrarhalla. SÁA vantar 17,2
milljónir og Hlaðgerðarkot 2,8
milljónir vegna ákvarðana Alþing-
is í desember 1993 að heimila
þessum aðilum ekki gjaldtöku og
jafnframt var þá gefið vilyrði um
aukaljárveitingu af þeim sökum
haustið 1994.
Að þessu öllu samanlögðu er því
Ijóst, að það er gjörsamlega fráleitt
að bera þær sakir á mig sem heil-
brigðisráðherra, að framúrakstur
eins og það er nefnt, hafi verið upp
á 1700 milljónir króna. Staðreynd
er sú, þegar þessi tala er skilgreind
og skoðuð eins og hér að framan,
þá skýrist langstærsti hluti þessarar
fjárhæðar af ákvörðunum Alþingis,
ríkisstjómar, uppsafnaðs vanda ffá
fyrri ámm, niðurstöðu dómsmála,
nýrra kjarasamninga og áhrifa um-
hverfisins, fjölgun bótaþega, auk-
innar eftirspurnar eftir læknisþjón-
ustu og fleira. Þetta em atriði sem
allir fyrri heilbrigðisráðherrar hafa
þurft að glíma við og er ekki á
þeirra færi að breyta. Svo var einn-
ig um mig.
Þessar tölur sýna lika, að nettó-
fjárvöntun heilbrigðisráðuneytis að
áliðnu hverju fjárlagaári, sem birt-
ist í fjáraukalögum, er eftirfarandi,
þegar atvinnuleysistryggingarsjóð-
ur hefur verið dreginn frá (hann er
nú vistaður t félagsmálaráðuneyt-
inu):
1993: 693 milljónir
1992: 1236 milljónir
1991: 1303 milljónir
1990: 1545 milljónir
1989: 1870 milljónir
Almennt fullyrði ég því, að mið-
að við áðumefndar kringumstæður
vom fjármál heilbrigðisráðuneytis-
ins fullkomlega viðunandi þegar
ég hvarf úr heilbrigðisráðuneytinu.
Ýmsar aðgerðir mínar í heilbrigð-
is-ráðuneytinu sem vonandi munu
tryggja tii lengri tíma þennan
gmndvöll velferðarkerfisins hafa
ekki hlotið mikla umfjöllun, því
þótt sparað sé og hagrætt í heil-
brigðismálunum, þá miðar samt
mörgum mikilvægum málum fram
á veg. Ég nefni örfá dæmi: Sam-
komulag ríkis, borgar og Hrings-
kvenna um byggingu og fjármögn-
un nýs barnaspítala Hringsins á
Landspítalalóð, opnun Fæðingar-
heimilisins sem er innan seilingar,
aukna þjónustu við aldraða, öiygg-
isnet fyrir launalága, sem hafa
mikinn kostnað af heilbrigðisþjón-
ustunni og fleira Og almennt, að
heilbrigðisþjónustan hafi gengið
vel fram, án nýrra þjónustugjalda
og teljandi og óeðlilegs útgjalda-
auka, þá tólf mánuði sem ég
gegndi störfum heilbrigðisráð-
herra.
Margt ofsagt
I þessari greinargerð hef ég
drepið á nokkur þau atriði, sem
oftast og helst em nefnd til sögu,
þegar gagnrýni á mín störf em bor-
in á borð. Ýmis önnur atriði hefur
að sönnu borið á góma, en ef
marka má spumingar fréttamanna
hygg ég þau sem ég hef hér nefnt
til sögu , vera þau sem helst hefur
óskað frekari og nánari skýringa
við.
I hita umræðunnar hefur ýmis-
legt verið sagt. Margt af því ofsagt.
Engin þau mál sem mér hafa verið
borin á brýn em þess eðlis að varði
við lög. Enginn hefur haldið slíku
fram. Enda ekki um slíkt að ræða.
Einstaka maður hefur farið fram
á afsögn mína takist mér ekki að
gera nánari grein fyrir málstað
rm'num gagnvart þeim ávirðingum
sem á mig hafa verið bomar. Ég
vænti þess að þessi ítarlega grein-
argerð taki af öll hugsanleg tví-
mæli um raunvemleika mála. I öll-
urn umræðum um mikilvæg mál er
nauðsynlegt að missa aldrei sjónar
af meginatriðum. Ég segi enn og
aftur, að ég er ekki fullkominn,
fremur en nokkur annar. I þessari
greinargerð játa ég, að ég hefði
getað staðið betur að tilteknum
málum; svo sem í málum trygging-
aryfirlæknis og hvað varðar upp-
hæð greiðslu til upplýsingafulltrúa.
Það viðurkenni ég. Um önnur
kunna að vera skiptar skoðanir. Og
enn önnur njóta almennrar viður-
kenningar og stuðnings.
Öll mannanna verk em umdeil-
anleg. Líka þeirra sem opinberlega
og í felum átelja mig og öll mín
verk.
Ég tel einnig nauðsynlegt að
vekja sérstaka athygli á því, að í
allri þessari orrahríð hef ég aldrei í
; svömm mínum vikið einu orði að
verklagi annarra stjómmálamanna
og stjómmálaflokka. Ekki kveðið
upp dóma yfir öðmm eða bent á
hliðstæður. Margir sem við mig
; hafa talað, hafa viljað tína til um-
deildar ráðningar annarra flokka og
stjómmálamanna í gegnum tíðina
til að undirstrika þetta óeðlilega
einelti í minn garð, eins og margir
viðmælendur mínir hafa orðað
það. Við þeim áskorunum hef ég
ekki orðið. Ég hef ekki viljað
standa þannig að málum.
Stjómmálamenn em og eiga að
vera viðbúnir gagnrýni. Þeir em
hins vegar mannlegir eins og aðrir,
með sínar tilfinningar.hugsjónir og
þrár. Þeir em ekki úr marmara.
Þeir eiga fjölskyldur sem eiga þess
ekki kost að bera hönd fyrir höfuð
sér. Það er eins með stjómmála-
menn og aðra einstaklinga, að með
óvönduðum málflutningi er unnt
að grafa undan mannorði með
skjótum hætti. Lengri tíma tekur
að leiðrétta og lagfæra; byggja upp
aftur. Sannleikurinn er líka sá, að
oft verður hönd skamma stund
höggi fegin.
Ég vil þakka heilshugar þeim
fjölmörgu sem hafa sýnt mér, konu
minni og bömum velvild á erfiðum
dögum mig og stutt við bak mitt í
þessari erfiðu orrahríð síðustu daga
og vikur. Sá stuðningur hefur birst
í samtölum, bréfum, skeytum, sím-
tölum og með ýmsum öðmm
hætti, beint og óbeint. Þessi stuðn-
ingur hefur birst jöfnum höndum
ffá flokkssystkinum mínum sem
og mörgum öðmm. Hann hefur
verið ómetanlegur.
Kjósendur hafa
síðasta orðið
Ég er reiðubúinn eins og allir
stjómmálamenn að lúta dómi kjós-
enda. I lýðræðislegu þjóðfélagi, í
réttarríki, em sækjendur ekki um
leið dómarar. Fjölmiðlar hafa hlut-
verki að gegna. Þeir sækja fram.
Stundum með meira kappi en for-
sjá. En allt um það, þá er það ekki
þeirra hlutverk að kveða upp úr-
skurði yfir stjórnmálamönnum.
Það er hlutverk kjósenda.
Það styttist í kosningar. Störf
mín í fortíð, nútíð og ffamtíð verða
þar vegin og metin. Ýmis verk mín
hafa hlotið gagnrýni. Frekari skýr-
inga hefur verið óskað. Ég vona að
greinargerð mín hér svari þeim
álitaefnum. Það mun ég gera áfram
eftir því sem tilefni gefast á kom-
andi kosningavetri, auk þess að
gera grein fyrir öllurn öðmm störf-
um mínum og sjónarmiðum fyrr
og nú. Ég er baráttumaður, en ég
játa að fremur vil ég sjá framan í
andstæðinga mína, en hafa þá í fel-
um, þegar ræða þarf mál, svo sem
gagnrýni á mín störf.
I mínu kjördæmi, Reykjanes-
kjördæmi, verður sennilega viðhaft
prófkjör um röð efstu manna á lista
Alþýðuflokksins vegna þingkosn-
inganna sent fram fara eigi síðar en
í apríl næstkomandi. Það mun fara
fram á næstu vikum eða mánuð-
um.Þá gefst mínum flokkssystkin-
um og öllum stuðningsmönnum
Alþýðuflokksins kostur á því að
meta mín störf og kveða upp
dóma. Það sama gildir um aðra fé-
laga minna sem þar munu gefa
kost á sér. I kosningunum sem
fram fara eigi síðan en í apríl er
síðan stóri dómur almennings
kveðinn upp yfir stjómmálamönn-
um og stjómmálaflokkum.
Þetta eru þeir dómar sem stjóm-
málamenn eiga að hlíta. Það mun
ég gera.
Alþýðuflokkurinn hefur átt und-
ir högg að sækja upp á síðkastið.
Brotthvarf Jóhönnu Sigurðardóttur
úr flokknum hefur sín áhrif. Hin
neikvæða umræða um mig og mín
mál hefur einnig áhrif. Ég vil hins
vegar gera allt sem í mínu valdi
stendur til að þétta raðimar og
styrkja einhug okkar jafnaðar-
manna. Með góðu starfi, málefna-
legum og réttsýnum málflutningi
er ég hins vegar þess fullviss, að
almenningur mun skilja hismið frá
kjamanum, greina aðalatriði frá
aukaatriðum og gera sér ljóst að
verk Alþýðuflokksins fyrr og sfðar
hafa orðið til þess að gera þjóðfé-
lag okkar betra.
Alþýðublaðsmynd / Einar Úlason
I