Alþýðublaðið - 28.09.1994, Page 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
UÞIftlMIID
Miðvikudagur 28. september 1994
VÖRUSKIPTIN við útlönd fyrstu átta mánuði ársins:
Hagstæð um 13,6
milljarða króna
- Voru hagstæð um 7,8 milljarða króna á sama tíma í
fyrra á föstu gengi
Fyrstu átta mánuði þessa
árs voru fluttar út vörur
fyrir 71,6 milljarða króna
en inn fyrir 58 milljarða króna
fob. Afgangur var því á vöru-
skiptunum við útlönd sem nam
13,6 milljörðum króna en á
sama tíma í fyrra voru þau hag-
stæð um 7,8 milljarða króna á
föstú gengi.
I ágústmánuði voru fluttar út
vörur fyrir 8,4 milljarða króna
og inn fyrir 8,7 milljarða króna
fob.
Vöruskiptin í ágúst voru því
óhagstæð um 300 milljónir
króna en í ágúst í fyrra voru
þau óhagstæð um 200 milljónir
á föstu gengi.
Fyrstu átta mánuði þessa árs
var verðmæti vöruútflutnings-
ins 13% meira á föstu gengi en
á sama tíma árið áður. Sjávaraf-
urðir voru 78% alls vöruút-
flutningsins og var verðmæti
þeirra 9% meira en á sama tíma
í fyrra. Þá var verðmæti útflutts
áls 39% meira en á síðast liðnu
ári og kísiljárns 9% meira.
Verðmæti vöruinnflutnings
fyrstu átta ntánuði þessa árs var
5% meira á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Innflutn-
ingur sérstakrar fjárfestingar-
vöru (skip, flugvélar, Lands-
virkjun), innflutningur til stór-
iðju og olíuinnflutningur er
jafnan mjög breytilegur frá einu
tímabili til annais. Að þessum
liðum frátöldum reyndist annar
vöruinnflutningur hafa orðið
4% meiri á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Þar af
jókst innflutningur á matvöru
og drykkjarvöru um 14%, bfla-
innflutningur dróst saman um
10%, innflutningur annarrar
neysluvöru var 1 % meiri en á
sama tíma í fyrra en innflutn-
ingur annarrar vöru jókst um
5%.
Ruglið í þjóðarsálinni ríður ekki við einteyming:
Jakob Frímann
úthrópaður sem
alkóhólisti
Laufin burt...!
Starfsmenn Reykjavíkurborgar munu hafa vaxandi áhyggjur af hinu
gífurlega laufafargani sem angrar allt og alla á þessum árstíma. Al-
þýðublaðið hefur fregnað að dagskipun yfirmanna borgarinnar til
starfsfólks síns sé: Burt með helvítis laufin...
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
- og þáttastjórinn sakaður um nótulaus viðskipti
aði tóninn um nokkrar áttundir
og vissi ekki hvaðan á sig stóð
veðrið. Heimtaði hann aftur og
aftur yfirlýsingu urn að þetta
væri rangt, en viðmælandinn
gaf lítið út á það, en viður-
kenndi þó undir lokin að þessi
ummæli sín væru ekki annað
en sprell.
Lauk þættinum svo að Hall-
grímur var sýknaður af nótu-
lausu viðskiptunum, enda
áreiðanlega 100% borgari, einn
af fáum. En Jakob Frímann
Magnússon úti í London er
áreiðanlega enn í hugum
margra hin argasta fyllibytta,
enda þótt hann gangi hljóðlega
um gleðinnar dyr.
GÚRKU
TÍÐ-
engin
forsíðu-
frétt!
I andsbyggðarblaðið
LwtEystrahorn fitjar upp á
nýjung í síðasta tölublaði. A
forsíðu segir svo: „Engin
forsíðufrétt verður í blaðinu í
dag. Það er gúrkutíð. Ekkert
að gerast ekkert að frétta.
Sfldin er ekki komin að
neinu gagni. Smábátamir
kroppa sitt vanalega kropp.
Nýtt kvótaár nýbyrjað en all-
ir að spara kvótann svo þeir
drepist ekki úr leiðindum
eftir áramótin“. Þannig halda
þeir á Eystrahomi áfram -
og skrifa í raun skemmtilega
forsíðufrétt í gúrkutíð. Síðar
í almennu yfirliti um mann-
lífið eystra segir: „Það er
líka dálítil frétt að Siggi Ein-
arsson símamaður fór göngu
í Veðurárdal urn daginn.
Frétt vegna þess að þetta er
mjög erfið ganga, ekki síst
fyrir mann sem hefur 230
sentimetra kjörhæð, en er
ekki nema 173 sentimetrar.
En af því að hann er bróðir
minn þá kann ég ekki við að
birta það sem frétt þótt hann
hafi unnið [retta rnikla afrek,
að koma óstuddur til byggða
úr Veðurárdal þar sem marg-
ir hafa gefist upp og sumir
villst“. Þeir hafa húmor fyrir
austan...
mmmmmmmmmmmmmmmimmímmmmmmmmmmmm
ÚTBOÐ
Grunnur undir birgðageymslu
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að
gera grunn undir birgðageymslu við Oseyri 9 á Ak-
ureyri. Útboðsgögn verða seld fyrir 1.500 krónur ái
skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins við Óseyri 9 á
Akureyri, frá og með miðvikudeginum 28. septem-
ber 1994.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
rfldsins á Akureyri fyrir klukkan 14:00, miðviku-
daginn 5. október 1994, og verða þau þá opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Þóknun
fyrir gerð tilboða er engin.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „Rafmagns-
veitumar - 94015 - Akureyri - Grunnbygging".
Verkinu á að vera að fullu lokið miðvikudaginn 30.
nóvember 1994.
RAFMAGNSVEITUR
^ RÍKISINS tcfautcaJC
LAUGAVEGI 118 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI 91-605500 • BRÉFSÍMI 91-17891
Umræðumar á þjóðarsál-
um útvarpsstöðvanna
geta farið út í algjöra
vitleysu. I þætti Hallgríms
Thorsteinssonar á Bylgjunni í
fyrradag fór dellan úr öllum
böndum og þáttastjómandinn
brást illilega í hlutverki sínu.
Að margra mati eru skoðanir
hans og leiðandi spjall útvarps-
stöðinni til hins mesta vansa oft
á tíðum, enda hættir honum til
að einelta menn og þátturinn
ber nokkurt merki ofsóknaræð-
is. Gott dæmi um þetta:
Kona ein hringdi í þáttinn til
að skíta út Jón Baldvin
Hannibalsson og verk hans.
Sagði hún meðal annars efnis-
lega að Jón Baldvin væri nýbú-
inn að gera Jakob Frímann
Magnússon að diplómat, -
rnann sem væri nýkominn af
Vogi, og hefði verið þar marg-
sinnis!
Hallgrímur reyndi í fyrstu lít-
illega að sussa á konuna, en
hún sat föst við sinn keip og
endurtók vitleysuna. Þá fór
þáttastjórinn að sperra við eyr-
un og var ekki annað að heyra
en að honum þætti þetta feitur
biti fyrir þátt sinn.
Það rétta er að Jakob Frí-
mann Magnússon hefur aldrei
verið bendlaður við óreglusemi
af neinu tagi.
„Ég er undrandi að heyra
þetta", sagði Jakob Frímann í
viðtali við Alþýðublaðið í gær.
„Ég hef að vísu komið oftar en
einu sinni á Vog, en þá aðeins
til að heimsækja vistmenn þar.
Sem betur fer hef ég ekki þurft
á þjónustu þessa ágæta heimilis
að halda og vona að svo verði
aldrei“.
JAKOB FRÍMANN, - úthróp-
aður á þjóðarsál Thorsteins-
sotis sem alkóhólisti. Pátta-
stjórnandinn gerði lítið annað
en ýta undir ummœli þar að
lútandi.
Alþýðublaðsmynd
Annað grátbroslegt atvik
kom upp í þessum þætti Hall-
gríms. Maður einn, sem sagðist
vinna hjá hjólbarðaverkstæði
uppi á Höfða minnti Hallgrím á
að hann hefði nú keypt fjögur
dekk hjá sér og beðið um nótu-
laus viðskipti. Þama kom held-
ur betur á kappann, sem hækk-