Alþýðublaðið - 30.09.1994, Page 1
I
Kostnaður vegna LÝÐVELDISHÁTÍÐAR á Þingvöllum fór verulega fram úr áætlun. Kostnaður
rauk úr 80 milljónum í 160 milljónir og tilteknir kostnaðaiiiðir eru 37 milljónum hærri en áætlað var:
100% framúr heimikl
Kostnaður vegna hátíðar-
halda á Þingvöllum hinn
17. júní síðastliðinn og
kostnaður sem tengist störfum
Þjóðhátíðarnefndar mun verða
nærri 130 milljónir króna. Við
þetta bætast um 30 milljónir
króna vegna kostnaðar við
komu erlendra gesta og vegna
vegbóta og heildarkostnaður er
því um 160 milljónir. Tilteknir
kostnaðarliðir urðu 37 milljón
króna hærri en gert var ráð fyrir
í kostnaðaráætlun Þjóðhátíðar-
nefndar.l yfirlýsingu sem barst
frá forsœtisráðuneytinu í gær
segir, að af þessum 130 millj-
ónum beri Alþingi að greiða
um 13 milljónir króna, sem
reiknast vera þau útgjöld, sem
forsætisráðuneytið hefur innt af
hendi og tengjast sérstaklega
þingfundi þeim, sem Alþingi
efndi til hinn 17. júní síðastlið-
inn.Kostnaður aðalskrifstofu
ráðuneytisins verður því um
117 milljónir króna. Heimildir í
íjárlögum 1994 voru 70 millj-
ónir og fluttar heimildir uin síð-
ustu áramót voru 10 milljónir
eða alls 80 milljónir króna.
Mismunur þama á er um 37
milljónir króna og helgast hann
af því að tilteknir kostnaðarliðir
urðu hærri en gert var ráð fyrir
í kostnaðaráætlun þeirri, sem
Þjóðhátíðamefnd 50 ára lýð-
veldis á Islandi skilaði forsætis-
ráðuneytinu í nóvembermánuði
1993. Má nefna að kostnaður
vegna löggæslu varð meiri en
reiknað hafði verið með, svo og
kostnaður vegna auglýsinga,
hljómlistarflutnings, sorphirðu,
gæslu björgunarsveita á hátíð-
arsvæðinu, frágangs sölutjalda,
salema og flutninga, auk þess
sem tap varð á veitingasölu. Þá
Góða helgi...! Breki og hinir krakkarnir á Lindarborg voru í hörkustuði
í gærdag þegar blaðið var að þvælast þar um á lóðinni. Aiþýðubiaðsmynd/Einaróiason
ákvað ríkisstjómin á fundi sín-
um hinn 14. júní síðastliðinn að
heimila Þjóðhátíðamefnd að
niðurgreiða fargjöld með al-
menningsvögnum til og lfá
Þingvöllum um fimm milljónir
króna.Varðandi annan kostnað
sem tengist lýðveldisafmælinu
og fellur á aðra fjárlagaliði en
forsætisráðuneytið skal upplýst
að er tjárlög voru samþykkt á
Alþingi síðastliðið haust hafði
ekki verið tekin um það
ákvörðun hvort bjóða ætti til
hátíðarhaldanna erlendum
þjóðhöfðingjum. Því var ekki
gert ráð fyrir útgjöldum vegna
þessa í fjárlögum yfirstandandi
árs, en ákveðið, er samþykkt
hafði verið að bjóða hingað til
lands þjóðhöfðingjum Norður-
landanna og fulltrúum sjö ríkis-
stjóma, að óska eftir aukaíjár-
veitingu vegna kostnaðar er af
því hlytist. Kostnaður vegna
komu erlendra gesta er greidd-
ur af ljárlágaliðnum Opinberar
heimsóknir, líkt og kostnaður
við aðrar slíkar heimsóknir, og
nema útgjöld vegna komu er-
lendu gestanna á þjóðhátíð um
19,1 milljón króna.
Þá er rétt að benda á að ríkis-
stjómin samþykkti á fundi sín-
um 14. júní síðastliðinn að óska
eftir aukaíjárveitingu vegna
vegbóta, jarðvinnu og brúar-
gerðar sem Vegagerð ríkisins
annaðist á Þingvallasvæðinu og
er sótt um 11 milljónir króna
vegna þess á fjáraukalögum nú
í haust. Stærstur hluti þeirra
framkvæmda er varanlegur.
Forsætisráðuneytið segir að
þar með sé talinn allur sá
kostnaður sem ráðuneyti og
stofnanir urðu fyrir vegna há-
tíðarhalda í tengslum við 50 ára
afmæli lýðveldisins síðastliðið
sumar. Alþýðublaðsmynd
BÍBÍ FLODERUS, 67 ára kona frá Akureyri, og
kunnur stjómmálamaður í Svíþjóð, var meðal
farþega á Eystrasaltsferjunni EÍSTLANDI:
Saknað eftir ferju-
slysið á Eystrasalti
■■■ára íslensk kona, Bí-
M bí Floderus, ættuð
m frá Akureyri, er í
hópi þeirra fjölmörgu farþega
feijunnar Eistland, sem nú er
saknað. Bíbí hefur búið í Sví-
þjóð í 47 ár og er í hópi kunn-
ustu stjórrimálamanna Uppsala,
hefur meðal aftnars starfað sem
bæjarfulltrúi fyrir Moderata
Samlingspartiet, hægri menn
þar í borg, og formaður mikil-
vægra nefnda borgarinnar.
Bfbí Floderus er ekkja lög-
manns í Uppsala og áttu þau
þrjú uppkomin böm. Hún starf-
aði við Tingsretten, sýslu-
mannsembætti Uppsalaborgar,
auk viðamikilla stjómmála-
starfa sinna. Hún var að koma
heim eftir vinabæjarheimsókn
til Tartu í Eistlandi, og var í 26
manna hópi nefndafólks í Upp-
sala. Talið er að flestir í hópn-
um hafi látið lífið í hinu hryggi-
lega ferjuslysi á Eystrasalti.
Bíbí Floderus hefur ævinlega
haldið tryggð við lánd sitt og
þjóð og íslensk vinkona hennar
sem blaðið ræddi við á heimili
hennar í Uppsala í gær sagði að
hún hefði talað sérlega góða ís-
lensku alla tíð og verið stolt af
íslenskum uppmna sínum.
Böm Bíbí Floderus og vinir
hennar biðu á heimili hennar í
gærdag í ofvæni og vonuðust
eftir að kraftaverkið gerðist, að
fréttir bærust af björgun hennar.
Var þá búist við að Ijóst yrði
hverjir hefðu bjargast úr sjó-
slysinu og nafnalistar gefnir út
um hina látnu.
Samkvæmt fréttum af slysinu
í gær var talið að yfir þúsund
manns hefðu verið með skip-
inu, og að hátt á 9. hundrað
manns hefðu farist. Þar af vom
meira en 500 Svíar um borð.
íslensk stjómvöld hafa sent
ríkisstjómum Svíþjóðar og
Eistland samúðarkveðjur vegna
slyssins.
ALÞÝÐUSAMBAND
VESTFJARÐA:
Krefst
hækkunar
átöxtum
launafólks
Stjóm Alþýðusambands
Vestljarða fagnar því að
fómir þær sem verkafólk
færði með fmmkvæði sínu
við gerð Þjóðarsáttarsamn-
inganna í febrúar 1990 virð-
ast vera að skila árangri í
bættum þjóðarhag“, segir í
álykmn stjómar Alþýðusam-
bands Vestfjarða.
,,Efnahagsbatinn sem nú
djarfar fyrir, hefur kostað al-
mennt launafólk rýmandi
kaupmátt á tímabilinu og þar
að auki öryggisleysi gagn-
vart atvinnu sinni“, segir í
ályktuninni. Stjórnin segir að
í næstu kjarasamningum
verði að hafa það að leiðar-
ljósi að næst á eftir aðgerð-
um til að treysta atvinnuör-
yggi komi vemleg hækkun á
töxtum verkafólks. I næstu
framtíð verði fólk að treysta
meira og meira á dagvinnu-
tekjur sér til framfæris.
Beinir stjóm Alþýðusam-
bands Vestfjarða því til að-
ildarfélaga sinna að taka nú
þegar upp umræður um
kröfugerð í komandi kjara-
samningum þannig að geng-
ið verði frá sameiginlegri
niðurstöðu á þingi sam-
bandsins, sem haldið verður
á Isafirði 4. til 6. nóvember
næstkomandi.
BANDARÍKIN:
Áritun
óþörf í
október
Sendiráð Bandaríkjanna
hefur tilkynnt að Islend-
ingar sem fara til Bandaríkj-
anna í október næstkomandi
þurfi ekki að fá vegabréfs-
áritun. Reglur um niðurfell-
ingu á áritunarskyldu hafa
verið framlengdar til loka
október. Reglumar sem gera
vegabréfsáritanir óþarfar
eiga að falla úr gildi í dag og
enn sem komið er hef'ur
bandaríska þingið ekki sam-
þykkt lög til að endumýja
þær. Þar sem óttast var að
við niðurfellingu þessara
reglna kynni að skapast
neyðarástand hjá venjuleg-
um ferðamönnum ákváðu
utanríkisráðuneytið og inn-
flytjendaeftirlitið að fram-
lengja reglumar út október-
mánuð. Nýjar reglur um af-
nám áritunarskyldu ættu að
verða komnar í gildi fýrir lok
október.