Alþýðublaðið - 30.09.1994, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 30.09.1994, Qupperneq 3
Föstudagur 30. september 1994 TIÐINDI ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 FRIÐRIK SOPHUSSON fjármálaráðherra hefur ákveðið að tekið verði upp olíugjald af notkun díselbifreiða í stað núverandi þungaskatts. Ríkið tapar vart krónu við þessa aðgerð sem taka mun gildi um mitt næsta ár. Með breytingu á skattheimtunni geta neytendur á íslandi nýtt sér - með sama hætti og íbúar í nágrannaríkjunum - kosti díselbifreiða um leið og dregið er úr mengun: Umhverfis- og heimilavænn fjármálaráðhevra riðrik Sophusson fjár- málaráðherra hefur ákveðið að tekið verði upp olíugjald af notkun dísel- bifreiða í stað núverandi þunga- skatts. I því skyni hefur fjár- málaráðherra skipað nefnd til að semja lagafrumvarp og sjá um að umrædd breyting komist áþann 1. júlí 1995. A vegum fjármálaráðherra hefur verið unnið að mörkun stefnu til lengri tíma í skatt- lagningu á bifreiðum og bif- reiðanotkun. Þar kemur meðal annars fram að notkun díselbif- reiða hér á landi er nær einung- is bundin við atvinnubifreiðar. Það er ólíkt þróun sem orðið hefur í öðrum Evrópuríkjum, en þar er áætlað að markaðs- hlutdeild díselbifreiða verði um 20% árið 2010. Þungaskattskerfið er ein meginskýring á því, að díselbif- reiðar hafa átt erfltt uppdráttar sem heimilisbifreiðar hér á landi. Við núverandi þunga- skattskerfi er óhagstætt að reka díselbifreið samanborið við bensínbifreiðar nema þegar þungaskattur er greiddur sam- kvæmt föstu árgjaldi og akstur er kominn yfir 25 þúsund kíló- metra á ári. Framfarir í gerð díselbifreiða hafa verið miklar. Brennsla þeirra er minni en bensínbif- reiða. Með breytingu á skatt- heimtunni geta neytendur á ís- landi nýtt sér með sama hætti og íbúar í nágrannaríkjunum kosti díselbifreiða um leið og dregið er úr mengun af umferð. Starfshópur sem Friðrik Sop- husson fjármálaráðherra skip- aði árið 1992 til að kanna hvort rétt væri að leggja niður þunga- skattskerfið og taka upp olíu- gjald, skilaði nýverið skýrslu til ráðheirans. í henni er lagt til að þungaskattskerfið verði aflagt og tekið upp olíugjald. Þar er meðal annars bent á að flestar Evrópuþjóðir hafa tekið upp ol- íugjald. Tveir kostir í olíugjaldi voru sérstaklega skoðaðir: Annarsvegar að lita gjaldfijálsa olíu - það er olíu sem ekki á að vera gjald - og hinsvegar að lita ekki olíuna en endurgreiða þess í stað gjaldið. Starfshópur- inn lagði til að seinni kosturinn yrði valinn og hefur fjánnála- ráðherra ákveðið í samræmi við þá tillögu að miða við olíugjald án litunar. Kostimir við olíugjald án lit- unar em að mati starfshópsins afgerandi. Kostnaður við hana er lítil og hún er í sjálfu sér ein- föld, undandráttur á að vera minni en í núverandi kerfi og alll eftirlit auðveldara. Reynsla af þungaskatti fyrir atvinnubif- reiðar, svosem vöruflutninga- bifreiðar, hefur sýnt að núver- andi kerfi er alls ófullnægjandi. Það er flókið og erfitt í fram- kvæmd, býður upp á undanskot sem erfitt er að stemma stigu við og stuðlar að óviðunandi mismunun á samkeppnisað- stöðu til óhagræðis fyrir hina skilvísu. I skipunarbréfi nefndarinnar sem ætlar er að semja laga- fmmvarp um olíugjald, kemur meðal annars fram að fjármála- ráðherra vill að farið verði í öll- um meginatriðum eftir tillögum meirihluta áðurnefnds starfs- hóps. Ennfremur að við undir- búning málsins verði hugað að þeim frávikum og sértilvikum sem vakin er athygli á í skýrslu starfshópsins. I því efni verði meðal annars miðað við eftir- farandi: - Tiyggt verði að upptaka ol- íugjalds íþyngi ekki búrekstri og verði olíugjald vegna hans endurgreitt eða það bætt með öðmm hætti - Sérleyfishafar og eigendur almenningsvagna fái olíugjald endurgreitt eða starfsemi þeirra styrkt á annan hátt, til að mynda með beinum framlögum sem þá geta tekið mið af þörf fyrir slíka aðstoð - Auknum rekstrarkostnaði vegna vinnuvéla verði mætt, til dæmis með lækkun gjalda á að- föng og eftir atvikum með tímabundnum endurgreiðslum - Gjald af olíu til húshitunar verði endurgreitt samkvæmt stöðluðum reglum - Utgerðum sem nota gasolíu á fiskiskip verði gert kleift að kaupa olíu án gjalds eða fái endurgreiðslur án óeðlilegrar fjárbindingar - Kannað verði hvort rétt sé að hafa auk olíugjalds, fast gjald á þyngstu díselbifreiðar I tillögum starfshópsins er lagt til að útsöluverð olíu verði svipað verði 92 oktana bensíns. Ef gengið er út frá því, að gjaldtaka og skattbyrði verði með svipuðu móti og nú er í þungaskattskerfi, er áætlað að nettótekjur af olíugjaldi verði rétt yfir 2,1 milljarði króna eða álíka miklar og tekjur af þunga- skatti eru áætlaðar á þessu ári. Stefnt er að því að nefndin skili lagafrumvarpi, sem lagt verði fram á Alþingi í nóvem- ber. Miðað er við að nýtt fyrir- komulag geti tekið gildi um mitt næsta ár. Alþýðublaðsmynd r Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands: n Flokksstjómarfundur ✓ Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands - boðar til flokksstjórnarfundar sunnudaginn 2. október 1994. Fundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum og hefst klukkan 10:30. Dagskrá: 1. Jón Baldvin Hannibalsson: Stjórnmál og siðferði. 2. Guðmundur Arni Stefánsson: Skýrsla félagsmálaráðherra. 3. Rannveig Guðmundsdóttir: Yfirlýsing og tillögur þingflokks Alþýðuflokksins. 4. Umræður. 5. Önnur mál. Að venju er fundurinn opinn öllum flokksmönnum, en ef til atkvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar í flokksstjórn atkvæðisrétt. Formaður. GUÐMUNDUR KARL aftur í stjóm Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- og ttyggingamálaráð- herra, hefur skipað Guðmund Karl Jónsson. forstjóra Frí- hafnarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem formann Stjórnar- nefndar Ríkisspítalanna. Guðmundur er 54 ára lögfræðingur. Hann gegndi starfi formanns stjómamefndarinnar á ámnum 1992 til ársloka 1993... FISKLYKT á sýningu „Það er fisklykt á Lánsmuseet“, byrjar myndarleg frásögn af íslenskri sýningu í Jönkjöpings-Posten á laugardaginn. Sýn- ingin ísland og hafið var opnuð þann dag í Lénsminjasafninu. Þar eru sýndir bátar, veiðarfæri, líkön, ljósmyndir og fleira úr sögu sjósóknar á Islandi, - þar em jafnvel komnar togvíra- klippumar alræmdu. Þeir Jón Allansson og Björn G. Björnsson hafa sett sýninguna upp en Sjóminjasafn íslands stendur nú í fyrsta sinn að sýningu á erlendri gmnd. Hug- myndin að sýningunni er hinsvegar komin frá Jakobi S. Jónssyni, leiklistarfræðingi, sem búsettur er í Svíþjóð. Á myndinni má sjá Jón Allansson, safnvörð við Sjóminjasafn Islands í Hafnarfirði, við opnun sýningarinnar... Stór og litrík SÝNING Valgerður Árnadóttur Hafstað opnar sýningu á verkum sínum í Listasafni ASÍ á morgun, laugardag. Valgerður hefur undanfarin 20 ár búið í New York, en þar áður 16 ár í Frakk- landi. Hér er á ferðinni stór og litrík sýning, sem vert er að skoða. Ókeypis aðgangur, opið alla daga frá klukkan 14:00 til 19:00, lokað á miðvikudögum... Veröld PÉTURS GAUTS Einn fremsti leikari Noregs, Thoralv Maurstad kemur fram í Norræna húsinu á sunnudaginn klukkan 16:00 og flytur sýn- inguna Nej jeg gjör ei. En personlig parafrase over Peer Gynt, byggt á leikriti Henriks Ibsens um Pétur Gaut. Maurst- ad kemur hér fram sem leiðsögumaður inn í veröld Péturs Gauts... GUNNSTEINN stjómar Valdinu Frá og með 30. september verða þær breytingar á Verdi-óper- unni Valdi örlaganna að Gunnsteinn Ólafsson tekur við hljómsveitarstjóm verksins af Maurizio Barbacini. Mun Gunnsteinn stjóma næstu Ijórum sýningum, en eftir það stjóma þeir til skiptis, Rico Saccani, Barbacini og Gunn- steinn. Aðsókn að óperunni hefur verið með eindæmum góð og nú er sala aðgöngumiða á næstu sýningar hafin... MENNINGIN um helgina ★ Kvikmyndasafn MÍR sýnir á sunnudag klukkan 16:00 myndina Stórbrotið líf í bíósalnum að Vatnsstíg 10. ★Á morgun opnar myndlistarsýningin Salon 1994 í Gallerí Greip við Vitastíg með þátttöku fjölmargra myndlistarmanna. Opið daglega frá klukkan 14:00 til 18:00. ★Gunnar M. Andrés- son opnar sýningu í Gallerí 11 að Skólavörðustíg 4A á morg- un. Opið daglega frá klukkan 14:00 til 18:00. 'kDanshöf- undakvöld er í Tjamarbíói, síðustu sýningar á spennandi dansverkum á laugardagskvöld klukkan 20:00 og sunnudag klukkan 15:00. ★Hjá Frú Emilíu \ Héðinshúsinu við Selja- veg verður opnuð póstkortasýning á morgun...

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.