Alþýðublaðið - 12.10.1994, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. október
Unglist ’94
Listahátíð unga fólksins í Reykjavík
Unglist, listahátíð ungs
fólks verður haldin í
þriðja sinn dagana 15.
til 23. október næstkomandi.
Á hátíðinni - sem sett verður í
Ráðhúsi Reykjavíkur laugar-
daginn 15. október klukkan
12:00 - gefst fólki kostur á að
kynnast þeirri listsköpun sem
ungt fólk er að fást við þessa
dagana á hinum og þessum
stöðum í Reykjavík; á kaffi-
húsum og markaðstorgum, í
verslunarmiðstöðvum og
kvikmyndasölum - og víðar.
Aðalskipuleggjandi Ung-
listar '94 er Hitt Húsið,
menningar- og upplýsinga-
miðstöð ungs fólk sem heyrir
undir íþrótta- og tómstunda-
ráð Reykjavíkur.
Skipulagning
Starfshópur frá listafélögum
framhaldsskólanna vinnur að
skipulagningu hátíðarinnar í
samstarfið við Hitt Húsið
ásamt öðru ungu fólki. Síðast-
liðið ár var sú stefna tekin, að
færa list unga fólksins út til al-
mennings; því var Hitt Húsið
ekki notað undir uppákomur -
né aðrir staðir sem unga fólk-
inu tengjast - heldur var há-
tíðin flutt á kaffihús og aðra
samkomustaði. Svo verður
einnig í ár.
Á eftirtöldum stöðum verða
tónleikar, upplestrar. kvik-
myndasýningar, leiksýningar
og fleira sem lýtur að listsköp-
un dagana sem Unglist '94
stendur yfir:
Ráðhúsi Reykjavíkur, Perl-
tinni, Sólon íslandus, Kaffi
Reykjavík, Ara í Ögri, Kola-
portinu, Kringlunni, Há-
skólabíói og einnig verður
Hressó og fyrrum Skrifstofu
Flugleiða í Lækjargötu breytt
í gallerí á meðan Unglist '94
stendur.
Maraþon
Fyrsta atriðið á Unglist ’94
er ljósmynda- og stuttmynda-
maraþon sem hefst í Ráðhúsi
Reykjavíkur laugardaginn 15.
október klukkan 12:00 (strax
að setningu hátíðarinnar lok-
inni).
Úrslit keppninnar verða birt
á ljósmynda- og stuttmynda-
sýningu í Háskólabíói mánu-
daginn 17. október klukkan
20:00, en þar verða einnig
sýndar aðrar áhugaverðar
stuttmyndir eftir ungt fóik og
sýnishom úr myndum eldri og
reyndari kvikmyndaleikstjóra
sem nú eru í vinnslu.
Skráning í Ijósmyndamara-
þonið og stuttmyndamaraþon-
ið er í Hinu Húsinu, Brautar-
holti 20, sími 624320. Fyrir þá
sem seint eru á ferðinni verður
hægt að skrá sig í Ráðhúsi
Reykjavíkur frá klukkan
11:00 sama dag og maraþonin
hefjast.
Ljósmyndir
Keppendur í Ijósmynda-
maraþoni eiga að mæta með
35 millimetra myndavélar í
Ráðhús Reykjavíkur klukkan
12:00 á laugardaginn og þar
fá þeir 12 myndverkefni
(þemu), 12 mynda filmu og
12 klukkustundir til að leysa
verkefnin.
Það er því ekkert svigrúm
fyrir mistök og keppendur
þurfa að vanda vinnu sína.
Dómnefnd skipa Gunnar
Finnbjörnsson frá Hans Pet-
ersen, Gunnar Andrésson frá
DV, Már Guðlaugsson frá
Hinu Húsinu og Bára Krist-
insdóttir ljósmyndari.
Verðlaun fyrir bestu mynd-
imar gefur Hans Petersen hf;
glæsilegar Canon EOS og
Canon Prima myndavélar.
Stuttmyndir
Keppendur í stuttmynda-
maraþoni eiga að mæta með
vídeótökuvélar sínar (VHS, S-
VHS, Video-8mm, Hi-8) í
Ráðhús Reykjavíkur klukkan
12:00 á laugardaginn og fá
þar úthlutað myndverkefni og
5 mínútna langri vídeóspólu.
Skilafrestur er til klukkiin
18:00 sama dag.
Bæði einstaklingar og lið
geta tekið þátt í keppninni.
Verðlaun fyrir bestu stutt-
myndina em 50 þúsund króna
úttekt í einu besta SP-Beta
klippistúdíói landsins, Nýja
bíó. Fyrir aðrar áhugaverðar
myndir verða veitt verðlaun
frá Myndbandavinnslunni.
Listasmiðjur
Á Unglist ’94 verða starf-
ræktar þrjár listasmiðjur í
Hinu Húsinu:
- Leiksmiðjan sem hefur
starf á opnu helgarnámskeiði
15. og 16. október og uppúr
því verður Skieruleikhúsið
stofnað, en það ntun troða
óforsvarandis upp vítt og
breitt unt borg og bý. Leið-
beinandi verður Rúnar Guð-
brandsson.
- Rokktextasmiðja sem
reynir að svara spumingunni:
Er íslenskan hæf í rokki?
Leiðbeinendur verða Kristján
Kristjánsson (KK) og dokt-
or Gestur Guðmundsson.
- Slelpurokksmiðjan verður
einnig starfrækt fyrir stelpur
með rokkbakteríuna og er
leiðbeinandi þar á bæ Mar-
grét Ömólfsdóttir, fyrmm
Sykumtoli.
Norðrið rokkar
Hluti af Unglist ’94 verður
nonæna tónlistarhátíðin Nor-
den rockar (Norðrið rokkar),
en þar munu hijómsveitir frá
vinabæjum Reykjavíkur troða
upp á Tveimur vinum.
Hljómsveitirnar heita:
Tomski Beat (Danmörk), Bad
IJver (Svíþjóð), Radiofanto-
mene (Noregur), H.C. Ander-
sen (Finnland) og Maus (ís-
land). Aðgangur að öllum
uppákomum er ókeypis og
öllum heimill.
HITT HÚSIÐ við Brautarholt í Reykjavík, menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólk sem heyrir undir
Iþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur, er aðalskipuleggjandi UNGLISTAR ’94, listahátíðar ungs fólks
verður haldin íþríðja sinn dagana 15. til 23. október nœstkomandi. Aiþýðubtaðsmynd/Einaróiason
DÓMSMÁLARÁÐUNE
Áminr
varfél
- Lögreglumaðurinn bn
tíma til að koma að antí
Fyrr á þessu ári var
tveimur lögreglu-
mönnum hjá lög-
reglustjóraemb-
ættinu í Reykjavík
veitt áminning.
Annar þeina kærði áminning-
una til dómsmálaráðuneytisins
og krafðist þess að hún yrði
felld úr gildi. Ráðuneytið hefur
nú kveðið upp úrskurð þar sem
áminning viðkomandi lög-
reglumanns er felld úr gildi þar
sem hann fékk ekki hæfilegan
tíma til að koma að andmælum.
Dómsmálaráðuneytið hefur
sent frá sér greinargerð um
málið þar sem sagt er frá mála-
vöxtum í stuttu máli og gerð
grein fyrir forsendum úrskurðar
ráðuneytisins.
Brugg í Mosfellsbæ
Málavextir eru þeir að föstu-
daginn 25. febrúar 1994 komu
tveir lögreglumenn sem báðir
unnu þá á Breiðholtsstöð lög-
reglunnar í Reykjavík að máli
við varðstjóra þar og óskuðu
þess að fá að vinna daginn eftir
að rannsókn bruggmáls á til-
greindum stað í Mosfellsbæ.
Varðstjórinn hafnaði þessari
beiðni og skýrði lögreglumönn-
unum frá því hvers vegna
beiðni þeirra væri hafnað. Jafn-
framt benti hann þeim á að hafa
samband við þann rannsókna-
lögreglumann hjá embætti lög-
reglustjórans í Reykjavík, sem
hefði umsjón með aðgerðum
embættisins í bruggmálum og
láta hann vita af grunsemdum
sínum til að hann gæti gert nán-
ari ráðstafanir.
Daginn eftir fóm þessir lög-
reglumenn ásamt tveimur
starfsfélögum sem einnig unnu
á Breiðholtsstöð lögreglunnar í
Reykjavík að þeim stað í Mos-
fellsbæ þar sem grunur lék á að
áfengisframleiðsla færi fram.
Þaðan höfðu þeir samband við
rannsóknalögreglumanninn
sem umsjón hefur með aðgerð-
um embættis lögreglustjórans í
Reykjavík í bruggmálum og
skýrðu honum frá því að þeir
væru á umræddum stað og
sögðu menn vera á svæðinu. I
samráði við rannsóknalögreglu-
manninn ræddu fjórmenning-
amir við þá menn sem voru á
staðnum og handtóku þá síðan
þar sem framleiðsla á áfengi
stóð þá yfir.
1 framhaldi af þessu var
tveimur lögreglumönnum sem
þátt tóku í ferðinni í Mosfells-
bæ veitt áminning fyrir að hafa
farið á svig við þau fyrirmæli
og þær starfsreglur sem þeim
ber sem lögreglumönnum að
hafa í heiðri. Hinir tveir lög-
reglumennirnir fengu alvarlega
aðvömn urn að starfa sam-
kvæmt þeim reglurn og starfs-
skyldum sem þeim hafa verið
kynntar.
Brot á fyrirmælum
Niðurstöður í úrskurði ráðu-
neytisins fara hér á eftir, en
nöfn þeirra sem þar em til-
greindir em felld brott:
Lögreglumönnunum A, B, C
og D, sem þátt tóku í þeirri að-
gerð að taka bmggara í sumar-
bústað í landi Z, Xdal, Mos-
fellssveit, laugardaginn 26.
febrúar 1994, var kunnugt um
að beiðni þeirra um að vinna að
uppljóstmn bmggmáls á þeim
stað hafði verið hafnað daginn
áður. A og D sem fóm fram á
að mega vinna að því máli var
bent á að upplýsa M, rann-
sóknalögreglumann um málið
en hann hafði með samræm-
ingu á aðgerðum lögreglunnar í
Reykjavík í bmggmálum að
gera. Það gerðu þeir ekki, en .
fyrir liggur að þetta mál hafði
komið til tals milli C og M dag-
inn áður. Áður en lögreglu-
mennimir hófu lögregluaðgerð-
ir á staðnum höfðu þeir sam-
band við M, rannsóknalög-
reglumann, en ekki aðalvarð-
stjóra á vakt svo sem starfsregl-
ur segja til um að gera eigi við
aðstæður eins og þama vom og
þeim vom kunnar.
Ráðuneytið telur að það eitt
að sammælast um að fara á
staðinn, sem ekki er í alfara-
leið, hafi verið brot á þeim fyr-
irmælum að sinna ekki rann-
sókn á þessu máli, þar sem lög-
reglumönnunum mátti vera
ljóst að á staðnum gæti sú stað:
komið upp að þeir teldu sér
skylt að heija rannsókn á mál-
inu.
Ekki almenn heimild
Samkvæmt 2. málsgrein 66.
greinar laga um meðferð opin-