Alþýðublaðið - 12.10.1994, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ALÞÝÐAN
Miðvikudagur 12. október 1994
SAMBAND
UNGRA
J AFN AÐARMAN N A
41. þing SUJ
- Ölfusborgir 4. til 6. nóvember 1994
Föstudagur 4. nóvember:
19:00 - 20:30 Greiðsla þinggjalda og afhending þinggagna.
20:30 - 20:45 Þingsetning. Magnús Ámi Magnússon,
formaður SUJ, flytur ávarp.
20:45 - 21:00 Ávarp gests.
21:00 - 21:15 Kosning starfsmanna þingsins: Þingforseta,
varaforseta, aðalritara, 3 manna kjörbréfa-
nefndar, 7 manna nefndanefndar,
forstöðumanna starfshópa.
21:15 - 22:00 Skýrsla framkvæmdastjómar SUJ, skýrsla
framkvæmdastjóra SUJ, skýrsla gjaldkera SUJ,
skýrsla formanna fastanefnda SUJ, skýrsla
formanns Styrktarsjóðs SUJ.
22:00 - 22:30 Umræður um skýrslur.
22:30 - 23:00 Lagabreytingar, fyrri umræða.
23:00 - ??:?? Létt spjall og léttar veitingar.
Laugardagur 5. nóvember:
09:00 - 10:00 Sameiginlegur morgun verður.
10:00 -10:30 Lagabreytingar, seinni umræða. Afgreiðsla.
10:30 -11:10 Skýrslur forstöðumanna málefnahópa SUJ,
tillögur að ályktunum kynntar.
11:10 -12:20 Skipað í málefnahópa. Fundir málefnahópa.
12:20 -13:00 Matarhlé.
13:00 -15:20 Fundir málefnahópa.
15:20 -16:20 Álit málefnahópa. Umræður.
16:20 -17:20 Almennar umræður.
17:20 -18:00 kosning framkvæmdastjómar SUJ.
18:00-19:00 Hlé.
19:00 - ??:?? Hátíðardagskrá.
Sunnudagur 6. nóvember:
09:00 -10:00 Sameiginlegur morgunverður.
10:00 -11:00 Fundir starfshópa.
11:00 -12:20 Álit starfshópa. Umræður.
12:20-13:00 Matarhlé.
13:00 -13:30 Almennar umræður.
13:30 -14:30 Umræður. Afgreiðsla ályktana.
14:30 -15:00 Kosningar: Málefnanefndir, stjóm Styrktarsjóðs
SUJ, 2 endurskoðendur og 2 til vara.
15:00 -17:00 Stjómmálaályktun 41. þings SUJ. Umræður.
Afgreiðsla.
17:00-17:15 Þingslit.
Nánari upplýsingar gefur Baldur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Sambands ungra jafnaðarmanna.
Skrifstofur SUJ eru að Hverfisgötu 8-10, II. hæð,
101 Reykjavík. Sími 91-29244, fax 629155.
Samband alþýðuflokkskvenna:
Alþýðuflokkskonur
funda í kvöld!
Samband alþýðuflokkskvenna minnir á
vinnufund alþýðuflokkskvenna sem
haldinn verður í kvöld, 12. október, í
félagsmiðstöð jafnaðarmanna í
Kópavogi að Hamraborg 14a.
Fundurinn hefst stundvíslega klukkan
20:30 og á dagskránni er málefnavinna
vegna landsfundar Sambands
alþýðuflokkskvenna sem haldinn
verður föstudaginn 25. og Iaugardaginn
26. nóvember.
- Stjórnin.
Alþýðuflokkurinn á Vesturlandi:
Kjördæmisráð og
prófkjörsnefnd
funda á laugardag!
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins á
Vesturlandi og prófkjörsnefnd boða til
fundar laugardaginn 15. október.
Fundurinn verður haldinn í
félagsheimilinu Röst á Akranesi og hefst
hann klukkan 10:30 árdegis. Áætlað er
að fundi ljúki um klukkan 14:00.
Dagskrá:
1. Akvörðun um prófkjörsreglur.
2. Kosningaundirbúningur og flokksmál.
Framsögumenn: Sigurður Tómas
Björgvinsson, framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins, og Sigurður Eðvarð Arn-
órsson, gjaldkeri Alþýðuflokksins.
- Stjórn kjördœmisráðs.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKUR
Forval
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað
eftir verktökum til að taka þátt í forvali vegna lokaðs út-
boðs á stækkun Laugardalshallar vegna HM ’95.
Um er að ræða byggingu um 520 m2 áhorfendasalar og
um 90 m2 þjónusturými. Búið verður að grafa grunninn
og fylla upp að neðri brún sökkla.
Forvalsgögn liggja frammi á skrifstofu vorri.
Lysthafendur skili forvalsgögnUm til Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, í síðasta lagi miðviku-
daginn 19. október 1994, fyrir kl. 16:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Eigið fé EIGNAR-
HALDSFÉLAGS
ALÞÝÐUBANKANS
er nú um 850 milljónir
og hefur aukist um
100 milljónir frá
síðustu áramótum:
Hagnaður
80 milUónir
þaðsemaf
erári
Eignarhaldsfélag Al-
þýðubankans er nú á
góðu róli samkvæmt upp-
gjöri fyrstu átta mánuði
ársins. A þeim tíma varð
80 milljóna króna hagnaður
af rekstri félagsins en í
fyrra tapaði félagið 259
milljónum. Eigið fé er nú
um 850 milljónir og hefur
aukist um 100 milljónir frá
síðustu áramótum.
Góð afkoma Eignar-
haldsfélagsins skýrist að
stórum hluta af hækkun
sem orðið hefur á gengi
hlutabréfa í Islandsbanka.
Við uppgjör félagsins í árs-
lok 1993 var miðað við
gengi 0,88 en í uppgjöri 30.
ágúst 1994 er miðað við
gengi 1,01. Við mat á
hlutabréfaeign félagsins
hefur sömu reglu verið
fylgt og við síðasta upp-
gjör. Hlutabréf sem skráð
eru hlutabréfamarkaði eru
færð miðað við meðaltals-
markaðsverð síðustu
tveggja mánaða fyrir upp-
gjör en óskráð bréf miðað
við áætlað markaðsverð.
Um síðustu áramót voru
lagðar til hliðar vegna
óskráðra hlutabréfa í eigu
félagsins rúmlega 20 millj-
ónir króna og nú er bætt í
þann sjóð og nemur hann
nú um 30 milljónum króna.
Gengi hlutabréfa íslands-
banka er í byrjun október
um 1,1. Allar líkur eru tald-
ar á að hagnaður Eignar-
haldsfélagsins eigi enn eftir
að aukast, því haldist þessi
hækkun til áramóta, eykst
hagnaður félagsins um að
minnsta kosti 40 milljónir
króna af þeim sökum. Um
70% af hlutabréfaeign
Eignarhaldsfélagsins er
bundin í hlutabréfum í Is-
landsbanka.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason