Alþýðublaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 3
Föstudagur14. október 1994
TIÐIHDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
, Almenningur væntir svo mikilla lífsgæða að tilkostnaður þjóðfélagsins
verður mikill við að halda uppi þeim stuðli sem menn vilja búa við.. .Færra
fólk nyti betri efnahags því arðurinn af fiskunum sem veiðast dreifðist á færri
hendur. Ég tel því að íslendingar ættu að nota getnaðarvamir betur og meira
og gera sig ánægða með tvö eða þrjú böm í stað fjögurra eða fimm,“ segir
REYNIR TÓMAS GEIRSSON, sérfræðingur í kvensjúkdómalækningum:
Alttof mörg
bömfæðast
Kér á landi...
- segir kvensjúkdómalæknirinn. Hann bíður spenntur eftir að franska
fóstureyðingarpillan komi hér á markað og bendir einnig á að þótt ýmis
getnaðarvamarlyf séu ekki komin á íslenskan markað
þá megi sækja um undanþágu vegna flestra
Verður framtíðin fólgm
«pungunarvörn" í staði
getnaðarvarnar
íssas r
lclur.luum tifíþno ork,
fSSSSr-"-
í,eínaðurvarnir verð i
‘’tornukín, en á sviði'
mm-r
taa a gið ..franskn piflun--
£nn”“ur™
■"ttCírS!1'®
um tr rðr !,na «‘;n>í*UvaMar
‘Ctút áil Jtnla '4'fram!'“? nn:"n
í.nÆ.Wa-1
IBiihrnianu,',, i£ " 1 ví *<’«■ <
ii „iSnÍTJ „ t<ar
K-U mc!,r„mSnnni*"ia. a„
íjenið og dður hafíi ös,n>'
’’aerTr-' kvensjúkd
xyo .suinax ktMw,
lUa. Iin þcsxi mri
(prógthiilöiicn) c
cinin voru unni
nirt) virg 5,UI
k.,,1 kv nnh.i rnit,
PTOfMtósraiu li„|
vurkun, ‘vo m„io
(irirra Vcrtd hii-
upnrii„„kj„r„i„„
Pr„tír.s,„gcnmn J)(
nnfil Ifkn „ukj.
Eg álít að við íslendingar
séum að eiga of mörg
böm. Hér fæðast
kannski 20-30% fleiri börn ár-
lega en æskilegt væri. Fæðing-
artíðni í þessu 250 þúsund
manna þjóðfélagi er 4500 til
4600 nýburar árlega. Væri tíðn-
in hlutfallslega sú sama og í
grannlöndum okkar væm fæð-
ingarum 1000færri.“
Þetta segir Reynir Tómas
Geirsson, sérfræðingur í kven-
sjúkdómalækningum, meðal
annars í viðtali við tímaritið
Lyíjatíðindi. Hann segir að við
íslendingar eigum við fólks-
fjölgunarvandamál að etja eins
og aðrir á tímum atvinnuleysis
og minnkandi þorskgengdar.
Því sé nauðsynlegt að fólk
spyrji á hverju öll þessi böm
eigi að lifa. Reynir Tómas vill
stórauka notkun getnaðarvama
og fræðslu um vamir. Þungun-
artíðni meðal stúlkna 19 ára og
yngri sé langtum meiri hér en í
grannlöndunum af því að hér
sé getnaðarvamarnotkun ekki
jafn mikil.
„í Danmörku láta árlega um
helmingi fleiri konur af hveij-
um þúsund framkvæma fóst-
ureyðingu en hér á landi - en
þar er þungunartíðnin líka
mun minni. Þetta má ekki
skilja svo að Danir séu svo
slæmt fólk að þeir vilji fremur
láta eyða fóstmm en við íslend-
ingar. Dönsku konumar virðast
að vísu fremur fara í fóstureyð-
ingu en íslenskar konur, ef þær
verða á annað borð þungaðar -
en þær verða líka síður þungað-
ar,“ segir læknirinn.
Reynir Tómas segir í viðtal-
inu að takmörkun fólksijölda sé
okkur hagsmunamál rétt eins
og í þróunarríkjunum.
„í okkar daglega lífi krefj-
umst við þess að geta haldið
uppi ákveðnum lífsgæðum. Til
dæmis þykir nú hveijum ung-
lingi sjálfsagt að hann eigi bíl.
Almenningur væntir svo mik-
illa lífsgæða að tilkostnaður
þjóðfélagsins verður mikill við
að halda uppi þeim stuðli sem
menn vilja búa við. Færra fólk
nyti betri efnahags því arðurinn
af fiskunum sem veiðast dreifð-
ist á færri hendur. Ég tel því að
íslendingar ættu að nota getn-
aðarvamir betur og meira og
gera sig ánægða með tvö eða
þrjú böm í stað fjögurra eða
fimm,“ segir Reynir Tómas.
Sem lið í því að halda
mannfjölgun í skefjum hér á
landi vill kvensjúkdóma-
fræðingurinn láta fella niður
virðisaukaskatt af getnaðar-
vömum sem mundi lækka
verðið um 19,7%.
„Þá álít ég að fleiri hér á
landi ættu að láta gera á sér
ófrjósemisaðgerðir en verið
hefur. í ófijósemisaðgerðum
hafa ýmsar nýjungar koinið
fram og tæknin hefur batnað,“
segir Reynir Tómas.
„Enn einn nýr þáttur í getn-
aðarvömum sem við emm að
reyna fá hingað til lands gæti
kallast „contragestion“ í stað
„contraception" - sem mætti
þýðast sem þungunarvöm
fremur en getnaðarvöm. Hér á
ég við frönsku pilluna sem
stundum er kölluð „fóstureyð-
ingarpillarí* á íslensku.. .Enn
hefur lyfið ekki komist í al-
menna notkun nema í 3-4 lönd-
um. Framleiðandinn er franskt
lyfjafyrirtæki sem að hálfu er í
eigu stórrar lyfjasamsteypu
sem einkum framleiðir efni fyr-
ir evrópskan landbúnað. Það
veldur erfiðleikum hve bændur
í Mið-Evrópu em íhaldssamir
og andvígir fóstureyðingum,
enda flestir kaþólskir. Hefur
samsteypan því verið treg til að
leyfa þessu undirfyrirtæki sínu
að selja lyfið, þar sem hún ótt-
ast viðbrögð viðskiptavina
sinna,“ segir kvensjúkdóma-
læknirinn.
Um önnur getnaðarvamalyf
segir hann: „.. .úrvalið fer sí-
vaxandi og þótt ekki séu öll
lyfin komin hingað til lands má
nálgast þau flest með því að
sækja um undanþágur.“
Endurgreiöslu KRAFIST
Furðumálin um opinbera embættismenn sem tekist hefur að
mergsjúga kerfið var efni í ályktun á fundi Menningar- og
friðarsamtaka kvenna um síðustu helgi. Fundurinn vill að
Rikisendurskoðun og Ríkisskattstjóri athugi vandlega og
beri saman samninga rflcisins við félög opinberra starfsmanna
hvort þeir opinberir embættismenn sem fengið hafa greiðslur
fyrir ónotaða námskeiða- og þingfararstyrki hafa fengið
greiðslur samkvæmtgildandi samningum við félögin, til
dæmis Lœknafélag Islands. Komi í ljós að embættismenn
hafi tekið við hærri greiðslum en samningar kveða á um, ber
að krefja þá um endurgreiðslu á mismuninum. Siðanefnd
lækna og aðrar hliðstæðar nefndir í fagféfögum em hvattar til
að taka ábyrga afstöðu til þess hvort það teljist til misnotkunar
ef styrkir til endunnenntunar og faglegrar þjíílfunar em mót-
teknir án þess að styrkþeginn notfæri sér þau námskeið eða
þing sem styrkþeginn gerði ráð fyrir að sækja...
Vetrarfagnaður REGNBOGA
Herleg veisla verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu föstudags-
kvöldið 21. október næstkomandi á vegum Regnbogans.
samtaka um Reykjavíkurlistann. Þar munu nienn rifja upp
sætar endurminningar frá baráttunni síðastliðið vor og eiga
saman góða stund. Fagnaðurinn hefst klukkan 19:30 með for-
drykk, en síðan er borðhald með miklum krásurn. Kvennakór
Reykjavtkur, Steinunn Sigurðardóttir, Steini Frœndi og
Einar Kárason munu skemmta gestum og Saga-Class mun
leika fyrir dansi. Veislustjóri verður Helgi Hjörvar. Að-
gangseyrir er 3.500 krónur. Látið skrá ykkur hið snarasta í
síma 1-68-00 milli klukkan 13 og 16.
Stjömur í KIRSUBERJAGAREM
Á sunnudagskvöldið fmmsýnir Frú Emilía gamanleikinn
Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekov. Verkið var hið síð-
asta og af mörgum talið mikilvægasta verk skáldsins, nánast
farsi á köflum. Fyndið fólk sein segir eitt og gerir annar, sem
reynir að róa sjálft sig með því að tala um nágrannana, veik-
indin, gömlu dagana og fjarlæg lönd - og þráast við að opna
augu sín fyrir sannleikanum. Það er Kristbjörg Kjeld sem fer
með hlutverk frú Ranevskaju, aðalhlutverkið. Fjölmargir okk-
ar bestu leikara koma fram: Jóna Guðrún Jónsdóttir, Edda
Heiðrún Backman, Þröstur Guðbjartsson, Ingvar E. Sig-
urðsson, Steinn Ármann Magnússon, Harpa Arnardóttir,
Kjartan Bjargmundsson, Eggert Þorleifsson, Helga Braga
Jónsdóttir, Árni Tryggvason og Valgeir Skagjjörð. Leik-
stjóri er Guðjón Pedersen...
Dagur HVÍTA STAFSINS
Lögreglan vekur sérstaka athygli öku-
manna á skyldu þeirra í umferðarlögum
að aka skal hægt miðað við aðstæður,
nálgist ökutæki aldraða eða fatlaða veg-
farendur, sem og vegfarendur sem bera
auðkenni sjónskertra. Þá er minnt á
ákvæði untferðarlaga sem banna að leggja
bflum á gangstéttir eða fyrir göngustíga.
Of rammt kveður að þessu. Dagur hvíta
stafsins er á morgun, fcistudaginn 15.
október. Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, segir að í tilefni dagsins muni lögreglan verða með
kranabfla í sinni þjónustu og tjarlægja bíla sem fagt er á gang-
stéttir eða göngustíga...
KÓPAVOGUR, karlrembubær
Helga Sigurjónsdóttir, bæjarfulltrúi Kvennalistans í Kópa-
vogi, óskapast yfir því í fréttabréfi Kvennalistans að enginn
fiokkur var tilbúinn að gefa eftir áhrif og völd til liennar að
loknum bæjarstjómarkosningum í vor. „Vissulega erum við
bjartsýnar, þó að við búum í mesta karlrembubæ landsins“,
segir Helga Sigurjónsdóttir...
THE TOYS láta skíra sig
Sniglabandið kynnir söngdúettinn The Toys, sem er skipaður
tveim ungum Sömurn, sem komnir eru til Islands til að láta
skíra sig! Sltm hf stendur nú í alvarleguin samningaviðræðum
við piltana um plötuútgáfu. The Toys koma fram á Tveim
vinum um miðnæturleytið á föstudags- og laugardagskvöld,
en staðurinn hefur nú fengið verulega andlitslyftingu, stærri
og flottari staður og hljómburðurinn ætti ekki að plaga dreng-
ina úrTheToys...
Þýsk KOSNINGAVAKA
Á sunnudag fara fram kosningar til 13. Sambandsþings
Þýskalands. Pýska sendiráðið og Goethestofnunin hér á
landi efna af því tilelni til kosningavöku í Norræna húsinu.
Fylgst verður með þýsku kosningasjónvarpi sem hefst klukk-
an 16:30 á sunnudaginn. Fljótlega upp úr klukkan 17:00 má
búast við fyrstu tölvuspám úr útvöldum kjördæmum landsins.
Á kosningavökunni er boðið upp á þýskan kabarett auk þess
sem Helmut Ruge hefur samið, en hann mun einnig
skemmta gestum á kosningavökunni...