Alþýðublaðið - 14.10.1994, Síða 4

Alþýðublaðið - 14.10.1994, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ PÓLITÍK -4- Fðstudagur 14. október 1994 SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMAN NA 41. þing SUJ - Ölfusborgir 4. til 6. nóvember 1994 Föstudagur 4. nóvember: 19:00 - 20:30 Greiðsla þinggjalda og afhending þinggagna. 20:30 - 20:45 Þingsetning. Magnús Ámi Magnússon, formaður SUJ, flytur ávarp. 20:45 - 21:00 Ávarp gests. 21:00 - 21:15 Kosning starfsmanna þingsins: Þingforseta, varaforseta, aðalritara, 3 manna kjörbréfa- nefndar, 7 manna nefndanefndar, forstöðumanna starfshópa. 21:15 - 22:00 Skýrsla framkvæmdastjómar SUJ, skýrsla framkvæmdastjóra SUJ, skýrsla gjaldkera SUJ, skýrsla formanna fastanefnda SUJ, skýrsla formanns Styrktarsjóðs SUJ. 22:00 - 22:30 Umræður um skýrslur. 22:30 - 23:00 Lagabreytingar, fyrri umræða. 23:00 - ??:?? Létt spjall og léttar veitingar. Laugardagur 5. nóvember: 09:00 -10:00 Sameiginlegur morgunverður. 10:00 -10:30 Lagabreytingar, seinni umræða. Afgreiðsla. 10:30 - 11:10 Skýrslur forstöðumanna málefnahópa SUJ, tillögur að ályktunum kynntar. 11:10 -12:20 Skipað í málefnahópa. Fundir málefnahópa. 12:20 -13:00 Matarhlé. 13:00 -15:20 Fundir málefnahópa. 15:20 - 16:20 Álit málefnahópa. Umræður. 16:20 -17:20 Almennar umræður. 17:20 -18:00 Kosning framkvæmdastjómar SUJ. 18:00- 19:00 Hlé. 19:00 - ??:?? Hátíðardagskrá. Sunnudagur 6. nóvember: 09:00 -10:00 Sameiginlegur morgunverður. 10:00 -11:00 Fundir starfshópa. 11:00 -12:20 Álit starfshópa. Umræður. 12:20 -13:00 Matarhlé. 13:00 -13:30 Almennar umræður. 13:30 -14:30 Umræður. Afgreiðsla ályktana. 14:30 -15:00 Kosningar: Málefnanefndir, stjóm Styrktarsjóðs SUJ, 2 endurskoðendur og 2 til vara. 15:00 -17:00 Stjómmálaályktun 41. þings SUJ. Umræður. Afgreiðsla. 17:00-17:15 Þingslit. Nánari upplýsingar gefur Baldur Stefánsson, framkvæmdastjóri Sambands ungra jafnaðarmanna. Skrifstofur SUJ eru að Hverfisgötu 8-10, II. hæð, 101 Reykjavík. Sími 91-29244, fax 629155. Alþýðuffokkurínn á Vesturlandi: Kjördæmis- ráðog prófkjörs- nefnd fundaá laugardag Kjördæmisráð Alþýðu- flokksins á Vesturlandi og prófkjörsnefiid boða til fundar laugardaginn 15. október. Fundurinn verður haidinn í félagsheimil- inu Röst á Akranesi og hefst hann klukkan 10:30 árdegis. Áætlað er að fundi Ijúki um klukkan 14:00. Dagskrá: 1. Akvörðun um próf- kjörsreglur. 2. Kosningaundirbún- ingur og flokksmál. Framsögumenn: Sig- urður Tómas Björg- vinsson, framkvæmda- stjóri Alþýðuflokksins, og Sigurður Eðvarð Arnórsson, gjaldkeri Alþýðuflokksins. - Stjóm kjördœmisráðs. Samband ungra jafnaðarmanna: Áríðandi fundur Sambands- stjómar í Kópavogi Samband ungra jafn- aðarmanna heldur síð- asta fund Sambands- stjórnar fyrir 41. lands- þing SUJ, næstkom- andi laugardag, 15. október. Fundurinn hefst klukk- an 12:00 og verður í fé- lagsmiðstöð jafnaðar- manna í Kópavogi, að Hamraborg 14a. Á fundinum verða meðal annars kynntar tillögur að breytingum á lögum Sambands ungra jafnaðarmanna. Áríðandi er að fulltrú- ar FUJ-félaganna á 41. landsþingi SUJ mæti. - Formaður. Æ, ÞESSI VERÖLD... Frumlegir ALLABALLAR? Varist eftir- 11 kingar... Olafur Ragnar Gríms- son og félagar hans í Alþýðu- bandalaginu þjófstörtuðu kosningabarátt- unni í fyrradag með pompi og prakt. Ólafur Ragnar boðaði til blaðamanna- fundar, eins og alltaf þegar hann þarf að segja þjóðinni „merki- lega“ hluti. Ástæðan var kynning á ein- hveiju sem hann kallar íslandsrút- CfticUaTisarttltBbl»«m»Sí« llm 600 kauptilboð föst Stjá Kúsnæðisstofnun *»!!»:« aíí«-Saemjiö3) Xöm ■•«*»»« s U«fcM0 IkaajMi CBta8ÍbBI9> I R*ök(f focWtUntfamksi- «mt?SB$5B 8 aada^WotatyliLi-ivlnnu | «»u»s DVIGÆR: Hinn frumlegi leiðtogi allaballa stal hug- myndinni um íslandsrútuna frá sœnskum krötum, enda vill Ólafur Ragnar trúa því sjálfur að hann sé formaður í krata- flokki. an, sem eru einskonar sérleyfisferðir kommúnista um landið. Mörgum kann að þykja þetta afar frumleg hug- mynd hjá Ólafi Ragnari og félögum. En írumleg- heitin ná ekki langt þar sem blaðamaður Alþýðu- blaðsins sá samskonar bfl með pólitískum merking- um er hann var á ferð um Svíþjóð fyrir kosningam- ar þar í landi í síðasta mánuði. Nú gæti hugmyndasmiðurinn Ólafur Ragnar reyndar hafa fengið sömu hugmynd og sænskir krat- ar. Það þykir hins vegar ólíklegt þar sem sami blaða- maður hitti Einar Karl Haraldsson, framkvæmda- stjóra Alþýðubandalagsins, á útifundi með Ingvar Carlsson í Stokkhólmi, en það var einmitt þessi sami Carlsson sem ók um Svíaríki á rauðum sendi- ferðarbfl sem nefndist „Carlssonstáget". Sömu heimildir herma að Einar Karl hafi fengið þá línu frá Ólafi Ragnari að fylgjast aðeins með krötunum í Svíþjóð en ekki skoðanabræðrum sín- um í gamla Kommúnistaflokknum. En eins og menn vita þá trúir Ólafur Ragnar því sjálfur að Al- þýðubandalagið sé jafnaðarmannaflokkur líkt og Alþýðuflokkurinn. Sú skoðun er þó ekki útbreidd meðal hinna almennu félaga í Alþýðubandalaginu, sem nýlega stofnuðu Sósíalistafélag sem stefnir að vopnaðri byltingu öreiganna á íslandi. Það verður síðan gaman að fylgjast með því á næstunni hvort Ólafur Ragnar og Einar Karl hafa lært meira af sænskum krötum? 4

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.