Alþýðublaðið - 19.10.1994, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 19.10.1994, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Ekki hafði ég verið lengi í Sambandi ungra jafnaðarmanna á Viðreisnarárunum, þegar formaðurinn, Sigurður E. Guðmunds- son, tilkynnti mér það að hefði ég í huga ein- hverja framtíð í flokknum, þá skildi ég ræða við Emilíu, sem ég og gerði. Ég komst fljótt að því að við Emilíu var hægt að ræða flest. Varðandi praktíska hluti sagði hún jafnan: „Talaðu við hann Baldvin og sjáðu svo til.“ Þær urðu margar ferðimar til Baldvins og alltaf rættist úr. Öðlingur eins og faðirinn, ráðagóður eins og eiginkonan, skíragull eins og háleitasta stjómmálastefna veraldar, jafn- aðarstefnan. Baldvini mínum, Jóhanni og öllum vinum og ættingjum votta ég mína dýpstu samúð. Megi algóður Guð styrkja þau í hinni miklu sorg og leggja Emilíu mína sér að hjarta. - Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Einn besti liðsmaður Alþýðuflokksins er fallin frá. Emilía Samúelsdóttir lést á sjúkra- húsi í Reykjavík, aðfaramótt 12. þessa mán- aðar Emilía var eldheitur jafnaðarmaður og starfaði af miklum þrótti fyrir Alþýðuflokk- inn og jafnaðarstefnuna alla sína tíð. Það var leitun að liðsmanni, sem var eins ósérhlífin og Emilía var. Hún var alllaf boðin og búin að vinna hvaða verk sem var fyrir Alþýðu- flokkinn. Það var sama hvort það var vinna í stjóm eða skemmtinefnd Alþýðuflokksfé- lags Reykjavíkur, starf á kosningaskrifstofu eða söfnun í afmælisgjöf fyrir einhvem flokksmanninn, alltaf var Emilía liltæk og reiðubúin til starfa. Leiðir okkar Emilíu lágu fyrst saman á Al- þýðublaðinu, þar sem hún var auglýsinga- stjóri en ég blaðamaður. Hún var duglegur auglýsingastjóri eins og í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var mjög sannfærandi þegar hún talaði við auglýsendur. Þeir vom ekki margir sem neituðu henni um auglýs- ingu. Það var reglulega gaman að vinna með Emilíu á Alþýðublaðinu. Emilfa var unt skeið fomtaður Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur og stjómaði þá fé- laginu af miklum þrótti. En mest lét hún að sér kveða sem formaður skemmtinefndar Al- þýðuflokksfélagsins. Því starfi gegndi hún um langt árabil með miklum glæsibrag. Fræg vom spilakvöldin sem hún stóð fyrir ámm saman en engin af forystumönnum Alþýðuflokksins í Reykja- vík komst hjá því að mæta þar. Hér verða ekki rakin öll þau miklu og margvíslegu störf sem frú Emilía vann fyrir Alþýðuflokkinn, aðeins látið nægja að geta þess, að hún sat í miðstjóm og flokksstjóm Alþýðuflokksins um langt árabil og einnig sat hún mörg flokksþing, meðal annars það síðasta, fyrr á þessu ári. Emilía var traustur flokksmaður. Hún var ávallt holl forystumönnum flokksins á hverj- um tíma enda þótt hún væri ekki alltaf sam- mála þeim. Fyrir henni var jafnaðarstefnan hugsjón um réttlátt þjóðfélag og Alþýðu- flokkurinn tækið til þess að láta þá hugsjón verða að veruleika. Ef henni fannst einhver vinna sérstaklega vel í llokknum fyrir hug- sjón jafnaðarstefnunnar, tók hún þann hinn sama upp á arma sína og studdi hann í einu og öllu. Þannig var Emilía. Hún var mjög hjálpfús. Hún vildi hvers manns vanda leysa. Ætíð gaf hún sér tíma til jtess að aðstoða aðra. Ef hún vissi um vanda- mál hjá einhverjum var hún þegar búin að bjóða fram hjálp sína. Þeir vom orðnir marg- ir innan Alþýðuflokksins sem Emilía hafði aðstoðað. Það var því eðlilegt, að hópurinn í kringum Emilíu væri orðinn stór. Hún var vinsæl. Það laðaðist að henni fólk úr öllum áttum. Þess vegna var aðeins eðlilegt að henni væri sýndur margvíslegur trúnaður. Sfðustu árin átti Emilía við vanheilsu að stríða. Það varð gífurlegt áfall fyrir hana þeg- ar sonarsonur hennar féll frá í blóma lífsins. Emilía lét ekki bugast. Hún sýndi aðdáunar- verðan kraft fram til hins síðasta. Emilía var tvígift. Fyni maður hennar var Sigurður Möller vélstjóri. Eignuðust þau einn son, Jóhann G. Möllertannlækni. Sfðari maður hennar var Baldvin Jónsson hæstarétt- arlögmaður. Hann lifir konu sína. Útför Emilíu verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag. Ég votta eftirlifandi eiginmanni hennar, syni og öðram aðstandendum inni- legustu samúð mína. Drottinn blessi minn- ingu Entilíu Samúelsdóttur. - Björgvin Guðmundsson. Ég hef aðeins einu sinni sótt flokksþing breska Verkamannaflokksins sem gestur - og það fyrir löngu síðan. Hugh Gaitskell var þá leiðtogi flokksins í stjórnarandstöðu. Eins og venja er um þing breskra stjóm- málaflokka var þetta eldheitur pólitískur eld- húsdagur, en um leið eins konar fjölskyldu- hátíð og vakningarsamkunda þar sem menn gerðu sér dagamun í góðum félagsskap þeirra sem þóttust skyld í andanum. Ein var sú kona sem lét að sér kveða á þessu flokksþingi og greinilega átti hug og hjörtu hinna útvöldu í framvarðasveit flokks- ins sem þama var saman komin. Hún heitir Barbara Castle og átti síðar eftir að gegna ráðherraembættum í ríkisstjómum Wilsons. Þegar hún hafði lokið máli sínu fór fagnaðar- bylgja um salinn. Sessunautur minn, sem aldrei ætlaði að hætta að klappa, sagði til út- skýringar: „She is the darling of the Party.“ - Hún er eftirlætið okkar allra. Þessi löngu gleymda minning brýst fram í hugann þegar ég minnist Emilíu Samúels- dóttur. Ég geymi margar myndir af henni frá flokksþingum og kosningabaráttu okkar jafnaðarmanna í Reykjavík þar sem hún var lífið og sálin í góðra vina hópi. Því að hún var eftirlætið okkar allra - átti hug okkar og hjörtu. Emilía Samúelsdóttir var fríð kona sýnum. Grönn og kvik í hreyfingum, glaðvær og. hláturmild, örgeðja og ákaflynd, en kvenleg fram í fíngurgóma. En hafi einhverókunnug- ur haldið að þar færi eitthvert flöktandi ftðr- ildi. komst sá hinn sami fljótlega að því full- keyptu. Hún var nefnilega ekki öll þar sem hún var séð, hún Ernilía. Hún mótaði sér ein- arðar skoðanir og fylgdi þeim fram af festu og sannfæringarkrafti og gat verið býsna hörð í horn að taka ef því var að skipta. Og tók ógjaman nei fyrir svar. Og komst upp með það. Ernilía naut góðrar skólagöngu á þeimar tíðar mælikvarða. Hún útskrifaðist úr Kvennaskólanum og hafði greinilega ekki slegið slöku við námið. Samt fór hún ung að vinna fyrir sér, aðeins 16 vetra yngismær. Fyrsta launaða vinnan hennar var reyndar að bera út Alþýðublaðið, þá á bamsaldri. Rit- stjórn Alþýðublaðsins varð síðan vinnustað- ur hennar í um 20 ár, þar sem hún gegndi starfi auglýsingastjóra. Síðar tók hún að sér starf framkvæmdastjóra Alþýðuprentsmiðj- unnar. Þessi störf hennar í þágu Alþýðublaðsins verða reyndar ekki aðskilin frá störfum henn- ar í þágu flokks og hreyfingar. Á þeim vett- vangi féll henni ekki verk úr hendi í meira en 60 ár. Og það væri synd að segja að hún hafi gengið til verka með hangandi hendi eða af skyldurækninni einni saman. Þvert á móti. Hún var lífið og sálin í félagsskapnum. Hún vissi flestum betur að stjómmála- hreyfing er ekki bara endalaust strit fyrir málefnunum sjálfum, heldur líka lifandi hreyfing þar sem manneskjan sjálf skiptir mestu máli. Og Emilía vissi að maður er manns gaman. Og til þess að viðhalda og hlú að lífsneistanum í hreyfmgunni þurfti að fá fólk til að hittast og gleðjast saman; gera sér dagamun saman - kynnast hvert öðra á óformlegan hátt og í afslöppuðu umhverfi. Þessu hlutverki gegndi Emilía Samúels- dóttir í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur ára- tugum saman, íyrst sem fonnaður skemmti- nefndar félagsins og síðar sem fyrsta konan sem var formaður félagsins. Emilía var ætíð boðin og búin að leggja sitt af mörkum ef á þurfti að halda og að eig- in frumkvæði. Vinsældir hennar vora miklar enda var hún mikill vinur vina sinna. Hún fylgdist með högum fjölda fólks. Ef eitthvað bjátaði á var hún boðin og búin að leggja fram hjálparhönd. Þegar vel gekk var hún mætt á staðinn til að samfagna félögum sín- um. Hún var sú sent hringdi til að minna á af- mæli eða önnur tímamót í lífi eða starfi fé- laga og vina. Hún laðaði að sér fólk vegna þess að menn fundu að henni stóð ekki á sama. Hún bar góðan hug til samferðamanna og vissi af reynslu að sælla er að gefa en þig&ja. Þess vegna átti hún hug okkar og hjörtu. Þess vegna var hún „the darling of the Party“ - eftirlæti okkar allra til hinstu stundar. Við jafnaðarmenn kveðjum Emilíu Samú- elsdóttur ineð eftirsjá, hlýhug og virðingu. Ástvinum hennar, eftirlifandi eiginmanni Baldvini Jónssyni, bömum þeirra og fóstur- bömum og öðrum vinum og vandamönnum sendum við hlýlegar hugsanir samhygðar og vináttu. - Jón Baldvin Hannibalsson. Minningarorð: Emilía Samúelsdóttir Fædd 10. júní 1916 - Dáin 12. október 1994 Kvedja frá Akureyri Árið 1956 var mikið íþróttafár fyrir ungan smala í Mosfellsdal. Það voru ófá þrístökkin sem vora æfð á melunum fyrir neðan Kýrgil- ið. í gilinu þar sem Egill faldi sjóðinn. En einnig ár sem smalinn ungi sótti á Læ- kjames. Sumarbústað föðursins og Emmu. Þar smakkaði smalinn ungi á beikoni í fyrsta sinn. Bragðið situr enn í munni. Á þeim áram var mikið ræktað í Laxnes- landinu. Þó smalinn ungi fengi oft andlega ræktun hjá bóndanum, í Gljúfrasteini sem hann hitti á fömum vegi var hann einnig sett- ur í ræktun trjáa. Emma var verkstjórinn. Hún gaf mér fyrir- skipanir og rak áfram með harðri hendi. Þó karli föður mfnum virtist það ekki vera Ijúft er ég viss um að svo var ekki undir skelinni. En Emma stundaði einnig mannrækt. Einu sinni eftir eina beikonveisluna sagði hún við smalann unga: Veistu Gísli að það er eitt sem er nauðsynlegt í lífinu. Það er að kunna að þakka fyrir sig. Þú átt alllaf að þakka fyrir þig. Leika í heimahúsum. Ég skildi sneiðina og upp frá því fór smalinn ungi að þakka fyr- ir sig. Emma var af Briemsætt. Hún var mikill „Brímari". Þegar leikbróðir minn sem nú er forsætisráðherra kom í heimsókn og sest var í kaffi í Hlíðunum hjá Emrnu var hún sífellt að leggja okkur lífsreglumar. Oftlega feng- um við að heyra söng Áma Kristjánssonar ásamt mannræktinni og þegar söngvarinn náði hæstu tónunum í Hamraborginni, sagði Emma: Svona langt ná fáir. Þannig ræklaði hún metnað í okkur Davíð. Emma var jafnaðarmaður. Hún tók mikinn þátt í flokksstarfi Alþýðuflokksins og starf- aði um skeið við Alþýðublaðið. Mérerkunn- ugt unt að hún starfaði með mörgum góð- gerðarsamtökum enda mátti hún ekkert aumt sjá. Ég held að þó hún hafi ekki verið í sviðs- ljósi stjómmála hafi hún haft áhrif á marga ráðamenn. Slíkur var sannfæringarkraftur hennar ef hún beitti sér. Fyrir það era margir þakklátir henni. Nú er haust í Lækjamesi. Trén fella laufin og þau era mörg. Smalinn er löngu hættur að vökva þau enda þau vaxin yfir höfuð hans. En eftir situr minningin um góða konu sem er sárt saknað af syni og eiginmanni og allri fjölskyldunni sem er stór. Ég sendi mínar samúðarkveðjur. Þakklæti frá smalanum. Þakklæti til konunnar sem kenndi honum að þakka fyrir sig. Þakkir frá okkur systkinunum. - Gísli Baldvinsson. En cístin er björt sem barnsins trú, hún blikar í Ijóssins geimi; og jjarlœgð og ndlcegðfyrr og nú ossfmnst f>ar í eining streymi. Frd heli til lífs hún byggir brú og bindur oss öðrum heimi. - Einar Benediktsson. Ást og gleði eru yndislegar tilfinningar. Saman umvefja þær það besta í góðum fé- lagsskap. Þannig umhverfi bjó Emilía vinum sínum. Henni þótti vænt um alla og alls stað- ar var hún gleðigjafi. Emilia var jafnan formaður skemmti- nefndar Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur, sá um árshátíðir og stjómaði spilakvöldum. Hún var óþreytandi að koma með heims- fræga gesti á árshátíðimar og máttu ráðherr- ar Alþýðuflokksins hafa sig alla við að hjálpa henni. Hún gat lfka töfrað fram svo góð verð- laun á öllum spilakvöldum, að alltaf var fullt hjá henni, þótt þjóðin væri reyndar löngu hætt að spila en horfði bara á sjónvarpið. Síð- ar varð hún svo formaður Alþýðuflokksfé- lagsins, fyrst kvenna til að stjóma því. Emilía var vakin og sofin yfir Alþýðu- flokknum. Hún var endalaust í símanum yfir málefnum flokksins og allir gátu leitað til hennar. Eftir Viðreisnarstjómina kom mikill afturkippur í starf flokksins. Við, sem þá skipuðum stjórn Alþýðuflokksfélagsins hér í Reykjavík, gerðum hvað við gátum til þess að flokkurinn sykki ekki alveg. Árin 1974 rétt mörðum við formanninn, Gylfa Þ. Gísla- son, inn sem kjördæmakjörinn og fjórir komu á uppbót. Þessi vamarsigur var ekki si'st Emilíu og hennar frábæra manni, Bald- vin Jónssyni, að þakka. Fjóram árum síðar kom svo Vilmundar- sigurinn og fjórtán manna þingflokkur. Þá reyndi aftur mikið á. Formaður flokksins, sem þá var Benedikt Gröndal stóð í ströngu, ekki síst þegar hann var bæði orðin forsætis- og utanríkisráðherra. Emilía hélt herráðs- fundi og varði formanninn og flokkinn, eins og henni var lagið. Þau hjón hafa svo staðið heilsteypt að baki Jóni Baldvin og þeirri sig- urgöngu, sem flokkurinn hefur átt síðustu ár. Margir áttu góð viðskipti við Emilíu sem framkvæmdastjóra Alþýðuprentsmiðjunnar og stolt sýndi hún mér þakkarbréf frá þáver- andi leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur, Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Islands.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.