Alþýðublaðið - 20.10.1994, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994
Menning
Þorgeir Þorgeirsson
Hugleiðingar
á hátíðarári
Þorgeir Þorgeirsson, einn snjall-
asti og beinskeyttasti þjóðfélags-
gagnrýnandi okkar, hefur sent frá
sér kverið Sex hugleiðingar á há-
tíðarári.
Hugleiðingamar heita: Bamið
og túkallinn, Lögrétta, Svefnró
Hæstaréttar, Opinber skrif eiga að
vera opinber, Tvö bréf til stjómar
Lögmannafélags íslands og Loka-
orð.
A bókarkápu segir: „Sex hug-
leiðingar á hátíðarári sveima allar í
kringum sama spmngusvæðið á
hjami íslenskrar fjölmiðlaum-
ræðu. Og þessir textar em ekki
samdir til að berja neitt í þá bresti.
Þvert á móti.
Hér er verið að rýna í ástæðum-
ar fyrir því, að réttarfar og dóms-
mál landsins má ekki ræða nema
eftir forskrift jábræðralags, sem
enginn heilhuga lýðræðissinni fær
af sér að taka þátt í.
Og meira en það.
Rödd lýðræðissinnans er lögð í
einelti af hagsmunavörðum kerfis,
sem jábræðralagið hefur komið á
hér í lýðveldinu á undangengnum
50 ámm.
Þetta rit gæti því rétt eins heitið
Bænarstund við þagnarmúr-
inn.“
Sex hugleiðingar á hátíðarári
fást í Bókabúð Máls og menningar
við Laugaveg, Eymundsson í
Austurstræti og hjá útgefandan-
um, Leshúsi. Utsöluverð er aðeins
335 krónur.
Nánar verður sagt ffá riti Þor-
geirs í Alþýðublaðinu á næstunni.
Þorgeir Þorgeirsson
Bænarstund við þagnarmúrinn.
Miðvikudag - Fitnmtudag - Föstudag - Laugardag
19.- 22. okt.
KRINGLU
komdu
íFJÓRA DAGA
Mjólkursamsalan
styður íslenska málvernd
íslensk tunga er
stoð atvinnulífsins
- í þeirri samkeppni sem íslenskt atvinnulíf mun takast á við
í bráð og lengd, segir Guðlaugur Björgvinsson forstjóri MS
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri MS: „Stolt þjóðarinnar, sjálfstæði
hennar og reisn, er ómissandi stoð í þeirri samkeppni sem islenskt
atvinnulíf mun takast á við í bráð og lengd."
„í alþjóðlegu samstarfi er það
öðm fremur íslensk tunga sem
gerir okkur að sjálfstæðri þjóð. Ef
við glötum henni er voðinn vís.
An hennar verðum við lítið annað
en hjákátleg nýlenda án afgerandi
þjóðareinkenna, án raunvemlegr-
ar menningararfleiðar og sögu.
Stolt þjóðarinnar, sjálfstæði henn-
ar og reisn, er ómissandi stoð í
þeirri samkeppni sem íslenskt at-
vinnulíf mun takast á við í bráð og
lengd.“
Þetta sagði Guðlaugur Björg-
vinsson, forstjóri Mjólkursamsöl-
unnar, meðal annars þegar hann
greindi frá stuðningi samsölunnar
við íslenska málvemd. I fyrradag
var undirritað samkomulag á milli
Mjólkursamsölunnar annars vegar
og Islenskrar málnefndar og mál-
ræktarsjóðs hins vegar um víðtækt
samstarf á sviði málvemdar. I til-
efni af 10 ára afmæli málstöðvar-
innar á næsta ári og 60 ára afmæli
Mjólkursamsölunnar þann 15.
janúar næst komandi afhenti
Mjólkursamsalan Islenskri mál-
stöð nýjan tölvubúnað að gjöf.
Samkvæmt því sem blaðið kemst
næst er sú gjöf að verðmæti á aðra
milljón króna.
Ábendingar á umbúdir
Stuðningur Mjólkursamsölunn-
ar við íslenskt mál verður einkum
með þrennum hætti. I fyrsta lagi er
gert ráð fyrir að því að mjólkur-
umbúðir verði helgaðar margs-
konar ábendingum um íslenska
tungu. Guðlaugur Björgvinsson
benti á í samtali við blaðið að
þessar umbúðir vem gífurlega
sterkur miðill enda mjólk á hvers
manns borði. I öðru lagi mun
Mjólkursamsalan leggja málvemd
lið með beinum tjárframlögum,
gjöfum og styrkjum og í þriðja
lagi mun fyrirtækið leggja sitt af
mörkum til hvatningar og sam-
stöðu landsmanna um málefnið.
Má þar nefna nýja auglýsingu sem
Mjólkursamsalan hefur látið gera
fyrir kvikmyndahús og sjónvarp
þar sem Alexandra Gunnlaugs-
dóttir syngur frumsamið ljóð
Þúrarins Eldjárn við lag Atla
Heimis Svcinssonar.
„Ég er sannfærður um gagn-
kvæman hag Mjólkursamsölunn-
ar og íslenskunnar og um leið
þjóðarinnar allrar. Ég er einnig
viss um að fleiri fyrirtæki munu
koma í kjölfarið og Ijá tungunni
lið á komandi árum. Ef sú spá mín
rætist er það Mjólkursamsölunni
sérstakt ánægjuefni að hafa rutt
brautina með þeim hætti sem
framundan er,“ sagði Guðlaugur
Björgvinsson.
Skáldlegt strandhögg
Fjögur íslensk skáldverk
koma út í Bretlandi
Islenskur skáldskapur hefur
fráleitt átt greiða leið á ensku-
ntælandi markað. A dögunum
kom hinsvegar út í Bretlandi
bókin Bnishstrokes of Blue, og
hefur að geyma Ijóð eftir átta
skáld af yngri kynslóð. Páll
Valsson annaðist útgáfuna, en
bókin kemur út að frumkvæði ís-
lenska sendiráðsins í Lundúnum.
Skáldin átta sem eiga ljóð í
bókinni eru Einar Már Guð-
mundsson, Elísabet Jökulsdóttir,
Sigfús Bjartmarsson, Linda Vil-
hjálmsdóttir, Gyrðir Elíasson,
Sjón, Kristín Omarsdóttir og
Bragi Ólafsson. Ljóðin þýddu
þeir David McDuff, Sigurður A.
Magnússon og Bernard Scudder.
Utgefandi hinna bláu pensil-
drátta er Greyhound Press, sem
sýnir íslenskum skáldskap mik-
inn áhuga um þessar mundir, og
hefur hleypt af stokkunum sér-
stakri ritröð íslenskra bóka.
Bernard Scudder hefur þýtt
skáldsögur Einars Más Guð-
mundssonar, Eftirmáli regndrop-
anna og Englar alheimsins, svo
og verðlaunaverk Thors Vil-
hjáimssonar, Grámosinn glóir.
Þá hefur David McDuff þýtt
skáldsögu Ólafs Gunnarssonar,
Tröllakirkja.
Englar alheimsmarkaðs. Tvær af
skáldsögum Einars Más koma út
í Bretlandi og hann er eitt átta
skálda sem eiga Ijóð í nýrri safn-
bók.
Nýjar oöfvu' á útsöluveröi
Gerðu ævintýralega
kaup
Yfir S00 tilboö á nyjum vörum
Aðeins þessa 4 daga
KRlNGLiN
gatanmín
9B9Ý909
AÐALSTÖÐIN
kynnir Kringlukast
Vetrarfagnaöur
R-listans
Einar Kárason, Bubbi Morthens og Steinunn
Sigurðardóttir halda uppi fjörinu.
Vetrarfagnaður Regnbogans,
samtaka um Reykjavíkurlista,
verður haldinn3Englar alheims-
markaðs. Tvær af skáldsögum
Einars Más koma út í Bretlandi
og hann er eitt átta skálda sem
eiga ljóð í nýrri safnbók. í Súlna-
sal Hótel Sögu annað kvöld, 21.
október. Húsið verður opnað
klukkan 19:30 og gestir boðnir
velkomnir með fordrykk. Borð-
hald hefst klukkan 20:30 á hum-
arforrétti og síðan verða bomir
fram lamba- og nautahnappar í
piparrótarsósu og kaffi á eftir.
Veislustjóri er Helgi Hjörvar
varaborgarfulltrúi og Einar Kára-
son rilhöfundur heldur ræðu
kvöldsins. Auk þeirra koma fram
tnóið Skárr’ en ekkert, Bubbi
Morthens, Steinunn Sigurðar-
dóttir, Kvennakór Reykjavíkur
og Steini frændi. Eftir matinn
verður stiginn dans frameftir
nóttu.
Miðaverð er 3.500 krónur og
miðasala er á skrifstofu Regn-
bogans, Pósthússtræti 13, sírni
16800. Fyrir þá sem vilja koma á
ballið en sleppa matnum kostar
miðinn 1.200 krónur og fæst við
innganginn eftir klukkan 23:00.
Bíósjúkir
íslendingar
Islendingar eiga mörg
skemmtilega „höfðatö!u-met“; til
að mynda á kvikmyndasviðinu.
Þrátt fyrir að bíóferðum fjölgi
jafnt og þétt á Norðurlöndum þá
fer engin þjóð jafnoft í bíó og við
íslendingar. Meðan Danir, Finn-
ar og Svíar fara að nteðaltali ekki
einu sinni tvisvar í bíó á ári, þá
heimsækir meðal-íslendingurinn
kvikmyndahúsin tæplega tólf
sinnum á ári.Hverjum þykir stð-
an sinn fugl fagur og Danir eru
hrifnastir af sínum kvikntynda-
skáldum; þrátt fyrir að 74,1%
kvikmynda í bíóhúsum þeirra
séu ættaðar úr draumasmiðjunni
bandarísku - og 17.1 úr þeirri
dönsku- þá voru fjórar af tíu vin-
sælustu kvikmyndunum danskar
á síðasta ári (þegar ellefu danskar
kvikmyndir voru frumsýndar).