Alþýðublaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 1
Framboðsmál á Norðurlandi vestra:
Jóhanna hefur ekki
haft samband viö mig
- segir Jón Sæmundur Sigurjónsson, sem útilokar ekki framboð. Vitað er um
fjóra hugsanlega frambjóðendur í fyrsta sætið fyrir Alþýðuflokkinn í kjördæminu.
„Ég veit það nú ekki. Ég held það
þurli tvo til. Jóhanna hefur ekki haft
samband og beðið mig um það. Ann-
ars skil ég ekki afhverju ég er stöðugt
spurður að því, hvort ég ætli kannski
í framboð með Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Ég veit ekki betur en ég
greiði enn flokksgjöldin mín, ekki
hef ég sagt mig úr Alþýðuflokknum
og áskrifandi að Alþýðublaðinu hef
ég lengi'verið. Annars er ég svona
yfirhöfuð tregur til að fara í framboð
og þá gildir einu fyrir hvem það er.
Ég myndi segja um framboðsmál
mín á Norðurlandi vestra, að það
væri allt óráðið á þessari stundu,"
sagði Siglfirðingurinn Jón Sæ-
mundur Sigurjónsson þegar Al-
þýðublaðið hafði samband og spurði
um framboðsmál hans - og þá hvort
hann ætli ef til vill í framboð fyrir
Jóhönnu Sigurðardóttur, sem
kunnugir teljaað sé jafn líkiegt og að
hann fari fram fyrir Alþýðuflokkinn.
Vitað er um þrjá aðra hugsanlega
frambjóðendur ef til prófkjörs Al-
þýðuílokksins kemur á Norðurlandi
vestra: I samtali við Alþýðublaðið
kvaðst Kristján L. Möller forseti
bæjarstjómar á Siglufirði enn óráð-
inn hvort hann muni gefa kost á sér í
fyrsta sætið. Vitað er um áhuga
Björns Sigurbjörnssonar, for-
manns bæjarráðs Sauðárkróks, en
hann gaf það sterklega til kynna fyrr
í haust að hann hefði áhuga á að
bjóða sig fram í fyrsta sætið ef til
prófkjörs kæmi. Þá er einnig mikið
rætt um að Jón F. Hjartarson,
skólameistari Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki, hafi áhuga á þessu
sama sæti, en hann hefur meðal ann-
ars starfað mikið að menntamálum
innan Alþýðuflokksins að undan-
förnu.
Þess má geta að einn af tíðinda-
mönnum blaðsins taldi það fráleitt
að Jón Sæmundur Sigurjónsson færi
Ætlar Jón Sæmundur Sigurjóns-
son í framboð með Jóhönnu? „Ég
veit það nú ekki. Ég held það þurfi
tvo til. Jóhanna hefur ekki haft
samband og beðið mig um það."
A-mynd: E.ÓI.
fram fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur -
og hvað þá Alþýðuflokkinn - á
Norðurlandi vestra. Hinsvegar vissi
hann til þess, að sú hugmynd væri
rædd meðal stuðningsmanna Jó-
hönnu að Jón Sæmundur færi fram
fyrir hana í Reykjaneskjördæmi.
Nýjar bækur
hækka um 10%
- segir Björn Eiríksson í Skjaldborg.
„Ég spái því að nýjar bækur
muni hækka í verði að meðaltali
um 10% frá því í fyrra. Útgefendur
geta ekki lengur tekið á sig virðis-
aukaskattinn og aðrar kostnaðar-
hækkanir, en engu að síður verður
bókaverð mjög hagstætt,“ sagði
Björn Eiríksson forstjóri Bókaút-
gáfunnar Skjaldborg í samtali við
Alþýðublaðið. Björn sagði verð-
lagningu bóka aldrei vera sam-
ræmda rnilli útgefanda og það væri
hending hvað bókaverð væri svip-
að. Hann gæti því bara talað fyrir
sitt forlag þegar hann ræddi um
verðbreytingar á bókum, en hins
vegar væri líklegt að aðrir útgef-
endur hækkuðu verðið álíka.
„Hér munu sumar bækur
hækka um 20% og aðrar ekki neitt.
Við höfum ekki hækkað verð á
harnahókum lengi og verðlagt þær
undir eitt þúsund krónum meðan
aðrir útgefendur hafa selt sínar
barnabækur nokkur hundruð
krónum dýrara. En nú komust við
hjá Skjaldborg ekki hjá því að
hækka verð barnabóka. Undan því
verður ekki vikist lengur,“ sagði
Björn.
Björn sagði ennfremur að síð-
ustu þrjú árin hefðu útgefcndur
tekið á sig kostnaðarhækkanir sem
næmu hátt í 30% án þess að láta
það koma fram í bókaverði. Þar
munaði mestu um 14% virðisauka-
skattinn í fyrra. Nú væru nokkrar
verðhækkanir á pappír auk þess-
ara fyrri hækkana. Nauðsynlegt
væri að koma með nokkra verð-
leiðréttingu enda flest forlögin
komin á hnén, þau sem ekki væru
búin að loka.
Varðandi jólabókaútgáfuna í ár
sagðist Björn Eiríksson telja að von
væri á liðlega 300 titlum sem væri
tcmmilcgu fjöldi. Þetta væri ein-
hver fækkun á titlum frá í fyrra og
kæmi einkum frani í því að lítið
yrði nú gefið út af stórum og dýrum
verkum scm væru lengi að borga
sig upp. Haun bjóst við að auglýs-
ingum yrði stillti í hóf til að halda
kostnaði niðri. Björn kvaðst sann-
færður um að bóksala yrði ekki
minni en fyrir jólin í fyrra.
Gísli S. Einarsson alþingismaður:
Ber Vegagerðin
enga ábyrgð?
Gísli S. Einarsson, alþingismaður
jal'naðarmanna á Vesturlandi, hefur
óskað eftir svömm Halldórs Blöndal
samgönguráðhena vegna útboðs-
ntála Vegagerðar ríkisins. Fyrir-
spurnimar em sex talsins og em til
komnar meðal annars vegna fréttar í
Alþýðublaðinu nýlega þar sem
Rögnvaldur Kristinn Rafnsson verk-
taki telur sig hafa farið halloka í við-
skiptum við Vegagerðina.
Gísli spyr í fyrsta lagi hvort Vega-
gerð ríkisins noti staðalinn ÍST 30 í
útboðsgögnum sínum. Hann spyr
hvort brögð hafi verið að þvf að
verktakar haft lögsótt Vegagerðina
síðustu fimm ár vegna þess að þeir
haft talið að hún l'ari ekki að eigin
skilmálum. Og spuil er hvort Vega-
gerð ríkisins hafi boðið bætur vegna
ósamkomulags eða vegna aukaverka
í kjölfar ónákvæmra útboðsgagna
undanfarin fimm ár. Þá er spurt
hversu oft Vegagerðin hefur viður-
kennt galla í útboðslýsingu eftir
samninga í kjölfar tilboða. Loka-
spurningin er: Ber Vegagerðin
ábyrgð á eigin útboðsgögnum?
I Alþýðublaðinu 14. október segir
frá viðskiptum verktakans Rögn-
valdar Kristins Rafnssonar við
Vegagerð ríkisins. Þar lýsir jarð-
fræðingur yfir því að verktakanum
haft verið gert skylt að nota efni sem
reyndist afarerfitt í vinnslu, auk þess
sem það standist vart kröfur Vega-
gerðar ríkisins um gæði. Upplýsing-
um um burðarlagsefnið var ekki
komið á framfæri í útboðsgögnum,
en í staðli ÍST 30, sérskilmálum
Vegagerðarinnar er skýrt tekið fram
að allar niðurstöður rannsókna á því
efni sem vinna á, skuli fylgja.
i
Kót i I ett u ka rl i n n
Líflegar umræður urðu á Alþingi í gær um matvælaverð á íslandi og Bandaríkjunum, í kjöl-
far könnunar fréttastofu Sjónvarps. Egill Jónsson, bóndi og alþingismaður, kollvarpaði
þeim niðurstöðum könnunarinnar að matur kostaði miklu meira á íslandi, með því að
skipta einfaldlega bandarískum kjúklingi út og taka inn í staðinn rammíslenskar lambak-
ótilettur. Egill brá sér í matvörubúð í gær með ljósmyndara Alþýðublaðsins og rannsakaði
verð á þeim tíu vörum sem könnunin náði til - að kjúklingnum semsagt undanskildum. Inn-
kaupakarfa Egils kostaði 2.694 krónur, en hann hefur reiknað út að sömu vörur kosti 2.619
krónur vestra. Niðurstöður Sjónvarpsins voru hinsvegar þær að íslensk innkaupakarfa
kostaði 3.442 en bandarísk 1.423,90. Nánar er sagt frá málinu á baksíðu.
Alþýðublaðið í dag
Vitsmunir eða
aflsmunir
Jón Baldvin Hanni-
balsson skrifar 3
Pólsk nýlenda
á Haití 5
Einn Reykvíkingur
- þrír Vestf irðingar
ítarleg umfjöllun um
kjördæmamál
og atkvæðisrétt 6
Goðsögn
Framsóknar
Rökstólar 2
Landbúnaður
í kreppu
Leiðari 2
Kgsið um ESB
á íslandi 8
Ungir jafnaðar-
menn halda nor-
ræna ráðstefnu
Um helgina mun Samband
ungra jafnaðarmanna vera gest-
gjafi ráðstefnu Samtaka ungra
jafnaðarmanna á Norðurlöndum
um stöðu jaðarbyggða Evrópu og
nýtingu auðlinda þeirra er þar
kunna að finnast. Ráðstefnan fer
fram á Flúðum. Vænst er tuttugu
framámanna í hreyfingum nor-
rænna ungra jafnaðarmanna til
landsins.
Búast má við að engin logn-
molla ríki á ráðstefnunni ef mál-
efni Evrópusambandsins ber á
góma, en ungir jafnaðannenn í
Svíþjóð og Noregi leggjast ein-
dregiðgegn Evrópusambandsaðild
þjóða sinna, á meðan félagar þeirra
hér á landi eru helstu stuðnings-
ntenn Evrópusambandsaðildar ls-
lands. Danir eru sem kunnugt er
aðilar að Evrópusambandinu og
ekki er vitað annað en að ungir
jafnaðarmenn þar í landi, séu
nokkuð sáttir við sinn keip þar inn-
an.
Magnús Árni Magnússon
formaður SUJ: Ráðstefna um
stöðu jaðarbyggða Evrópu.