Alþýðublaðið - 21.10.1994, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994
Sumir hafa meiri
(kosninga)rétt
Munur á atkvæðavægi milli kjör-
dæma á íslandi jafngildir því að Vest-
firðingur geti kosið þrisvar sinnum
meðan Reykvíkingurinn greiðir sitt
eina atkvæði. Alþýðublaðið leggur
spurningar um kjördæmamál og at-
kvæðavægi fyrir þingmenn og lítur á
langa og stranga baráttu fyrir jöfnun
kosningarétti
Geir H. Haarde, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, þingmaður í Reykjavík:
Eitt kjör-
dæmi er
ekki lausnin
1. Nei. Hér er í eðli sínu um að
ræða einfalt mannréttindamál sem
snýst um það að hver og einn borgari
eigi að hafa jöfn áhrif á það hverjir
veljast til starfa á löggjafarsamkom-
unni. Hér ætti að sjálfsögðu að gilda
gamla kjörorðið „einn maður, eitt at-
kvæði“ til þess að réttlætinu sé full-
nægt. Hvenær það markmið næst
síðan fram að fullu hér á landi verð-
ur tfminn að leiða f ljós.
2. Nei. Með því að gera landið allt
að einu kjördæmi myndi stór hluti
þingmanna tapa af því aðhaldi sem
fylgir nálægð við kjósendur í fleiri
og minni kjördæmum. Kjósendur
myndu sömuleiðis finna fyrir meiri
fjarlægð við þingmenn sína en nú er.
Þótt hugmyndin um eitt kjördæmi
muni tryggja kjósendum fullt jafn-
rétti að því er varðar atkvæðavægi tel
ég ekki að hún sé raunhæfur kostur
eins og nú standa sakir. Jöfnuði er
einnig hægt að ná með öðrum leið-
um sem skyldari eru núgildandi
kerfi.
Alþýðublaðið lagði fjórar
spurningar skriflega fyrir
þingmenn úr stjórnmála-
flokkunum fimm sem sæti
eiga á Alþingi. Spurning-
arnar voru svohljóðandi:
1.
Finnst þér einhver rök
mæla með því, að vægi at-
kvæða sé mismunandi eftir
landshlutum?
2.
Ertu hlynntur því að landið
allt verði eitt kjördæmi, og
ef ekki, hvaða rök mæla
gegn því að þínu mati?
3.
Hvað finnst þér um þá hug-
mynd að kjósendum verði
gert kleift að velja einstakl-
inga fremur en flokkslista í
alþingiskosningum?
4.
Finnst þér að fækka eigi
þingmönnum?
3. Ég tel mjög álitlegt að auka val-
frelsi kjósenda um frambjóðendur á
kjördag og gefa kost á persónukjöri
jafnhliða kosningu flokksins. Slík
kerfi þekkjast víða í nálægum lönd-
um og gefast vel. Eg tel það af hinu
góða að auka vald kjósenda um nið-
urröðun frambjóðenda á listum
flokkanna.
4. Já, mér finnst það. Um það hef-
ur reyndar einnig verið ályktað á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Ágæt byrjun væri að fækka um einn
í hverju kjördæmi.
Jóhannes Geir Sigurgeirs-
son, þingmaður Framsóknar-
flokksins í Norðurlandi
eystra:
Landid allt
verði eitt
kjördæmi
1. Það má alveg eins snúa þessari
spumingu við og spytja: Þarf það að
vera grundvallaratriði að atkvæði
séu jöfn eftir landshlutum? Ef við lít-
um á hvemig þetta er annarsstaðar,
þá sjáum við að það er engin algild
regla að svo sé. I flestum löndum em
önnur sjónarmið lögð til grundvallar
og af þeim leiðir síðan hvemig vægi
atkvæðisréttarins skiptist á milli ein-
stakra landshluta þó svo að víðast sé
tekið mið af þessu atriði.
Hér á landi hafa verið færð rök að
því að eðlilegt sé að nokkurt mis-
ræmi sé á milli landshluta varðandi
atkvæðisréttinn. Það er hinsvegar
erfitt að sjá að það hafi þjónað þeim
tilgangi sem til var ætlast, það er að
vinna gegn byggðaröskun.
2. Já ég er hlynntur því að landið
verði gert að einu kjördæmi. Það
byggi ég meðal annars á eftirfarandi
atriðum:
a. Það er eina leiðin til þess að fá
gegnsæjar kosningareglur ef halda á
því markmiði að jafna að fullu á
milli flokka.
b. Sú sérstaða okkar að meirihluti
þjóðarinnar býr á til þess að gera á
litlum hluta landsins gerir það óað-
laðandi að vemlegur meirihluti þing-
manna verði kjördæmakosnir af því
svæði. Frá sjónarhóli landsbyggðar-
innar er miklu æskilegra að þeir
væm kjömir þingmenn landsins alls.
c. Við gleymum því oft í þessari
umræðu að við Islendingar emm
ekki fjölmennari en svo að það sam-
svarar einu kjördæmi í nágranna-
löndum okkar. Þá vil ég einnig
benda á að á síðustu árum hefur það
færst í vöxt í öllum stjómmálaflokk-
um að þingmenn fari í heimsóknir og
fundarferðir í önnur kjördæmi en
þeirra eigin. Það hefur sýnt sig að
kjósendur kunna mjög vel að meta
þetta og það eykur hæfni þingmanna
til þess að takast á við verkefni sín.
Það má því með sanni segja að við
séum að nokkm farin að vinna eins
og landið væri eitt kjördæmi.
Eg tel hinsvegar að forsenda fyrir
þessari breytingu sé sú, að vald verði
fært frá Alþingi og ríkisstjóm til hér-
aðanna í þeim málaflokkum sem
standa næst einstaklingunum og eðli
máls samkvæmt er miklu eðlilegra
að séu leyst á þeim vettvangi.
3. Eg er hlynntur því að leitað
verði leiða til þess að kjósendur geti
valið bæði flokk og einstaklinga í
kosningum.
4. Ég hef ekki ákveðna skoðun á
því. Ég bendi hinsvegar á, að þegar
þingmönnum hefur verið Ijölgað, þá
hefur það gerst sem hluti af sam-
komulagi um kjördæmabreytingum
en ekki vegna þess að það hafi verið
talin brýn þörf á fjölgun vegna þeirra
verkefna sem þingmenn þurfa að
leysa af hendi.
Rannveig Guðmundsdótt-
ir, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, þingmaður í
Reykjaneskjördæmi:
Einn maður -
eitt atkvæði
1. Misvægi atkvæða er misvægi
mannréttinda og það er grundvallar-
sjónarmið í mínum flokki að kosn-
ingaréttur sé jafn. Það er ótrúlegt að
við höfum búið við það hátt á fjórða
áratug að einstaklingar með 5-600
atkvæði taki sæti á Alþingi meðan
frambjóðendur með allt að 3500 at-
kvæða stuðning ná ekki kjöri. Fyrir
Geir Haarde: Gamalt mannrétt-
indamál að allir borgarar landsins
hafi jöfn áhrif.
mér er einn maður eitt atkvæði hom-
steinn lýðræðisins.
2. Já, ég styð að landið verði eitt
kjördæmi. Við emm fámenn þjóð í
samfélagi þjóðanna og þingmenn
eiga að leggja áherslu á samkennd
og heildarhagsmuni. Kjördæmispot
eins og það þekktist áður fyrr er sem
betur fer að verða úrelt fyrirbrigði.
En staða okkar á alþjóðavettvangi
fær stöðugt aukið gildi fyrir afkomu
og aðbúnað þjóðarinnar allrar.
3. Innan framboða flokkanna er
mikilvægt að haf áhrif á röðun list-
ans. Ég myndi vilja sá að þeim mark-
miðum verði náð að kjósendur ráði
hvemig frambjóðendur skipist í sæti
verði náð í kosningunni sjálfri, því
prófkjörin hafa ekki reynst sú lýð-
ræðislega leið að því marki sem
þeim var ætlað. Konur á Alþingi em
því miður ennþá aðeins um Ijórð-
ungur þingmanna og ein skýring
þess er talin vera fjöldi kjördæma þar
sem aðeins efsti maður á lista á góða
möguleika. Konur eru sjaldan efsti
maður á lista. Það er söguleg stað-
reynd. Það þarf að einfalda kosn-
ingareglur og gera það að eðlilegum
þætti kosninga að velja einstaklinga
innan þess lista sem kosinn er.
Jóhannes Geir: Kjósendur eiga að
geta valið bæði flokk og einstakl-
inga í kosningum.
4. Það er fyrst og fremst mikilvægt
að vera með gott starfhæft Alþingi.
Mér finnst umræðan um fækkun
þingmanna byggja of mikið á þeim
sjónarmiðum að starf þingmannsins
sé viðveran og umræðan í þingsal.
Góð þingvinna og vönduð lagasetn-
ing byggir á öflugu starfi nefnda Al-
þingis sem vinna með ályktanir og
fmmvörp. Alþjóðleg samskipti em
einnig orðin veigamikill þáttur
starfsins og mikilvæg fyrir okkar
þjóð. Hvort fjöldi þingmanna er 63
eða lægri tala er ekki meginmál fyrir
mér. Mestu ræður að skipulag og
starfsemi þingsins tryggi lýðræðis-
leg og góð vinnubrögð. Öflugt lýð-
ræði og vönduð vinnubrögð tryggir
þann góða árangur sem við viljum
öll sjá.
Kristín Ástgeirsdóttir,
þingmaöur Kvennalista í
Reykjavík:
Lítil kjör-
dæmi eru
konum erfið
1. Nei. Kosningaréttur er persónu-
bundinn réttur og ég sé engin rök
Atkvæðavægi á Vestfjörðum, þarsem fæstir kjósendur eru á bakvið hvern þingmann, er reiknað 100%, og vægi atkvæða í öðrum kjördæmum síðan reiknað sem hlutfall af því. Þannig er til dæmis vægi atkvæða á Suð-
uriandi 56% af vægi atkvæða á Vestfjörðum.
100% 92
O,
'O
72% 66% 56% 50%
Vestfirðir
Kjósendur á þingmann
Norðurland vestra Austurland
Kjósendur á þingmann Kjósendur á þingmann
Vesturland
Kjósendur á þingmann
Suðurland
Kjósendur á þingmann
Norðurland eystra
Kjósendur á þingmann
1.096.
1.432.
1.824.
1.978.
2.328.
2.633.