Alþýðublaðið - 27.10.1994, Síða 3
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Hverjir eru verstir?
Sú mikla umræða sem verið hefur
í gangi um siðferði í pólitíkinni hefur
greinilega haft mikil áhrif í þjóðfé-
laginu. Stjómmálamenn hafa verið
undir smásjánni og einhvem veginn
virðist manni sem allar þeirra gerðir
séu nú vegnar og metnar á einhverri
siðferðisvogarskál. Það út af fyrir sig
er alls ekki slæmt, því vitaskuld á allt
sem stjómmálamenn aðhafast að
þola dagsbirtuna, en miklu vena er,
þegar einkanlega einn ilokkur er tek-
inn fyrir og reynt að koma á hann ein-
hverjum spillingarstimpli.
Er Alþýðuflokkurinn
spilltastur?
Nú um stundir beinast öll spjót að
Alþýðuflokknum og keppast fjöl-
miðlar við að sannfæra þjóðina um
að öll hin pólitíska spilling sé tengd
flokknum. Þar gildir raunar einu, þó
tfunduð séu dæmi um svipuð vinnu-
brögð úr öðmm stjómmálaflokkum,
þeim virðist allt fyrirgefið, sama
hvort um er að ræða Hrafnsmál Sjálf-
stæðisflokksins, kaup Ólafs Ragnars
á úreltum forritum eða makalausir
samningar Guðmundar Bjarnasonai'
við starfsmann í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Allt em þetta mál, sent tæpast
þola dagsbirtuna, en einhvem veginn
virðast ekki skaða viðkomandi
flokka.
Þetta er vissulega umhugsunarefni
fyrir okkur alþýðuflokksmenn, því
við vitum allra manna best, að sá
spillingarstimpill sem nú er reynt að
setja á okkur er með öllu ómaklegur.
Vitaskuld getur okkur orðið á í mess-
unni rétt eins og öðmm, en að halda
því fram að Alþýðuflokkurinn sé
spilltastur allra, er fáránlegt.
Hvar er til varnar
vorum sóma?
Ef Alþýðuflokkurinn ætlar að ná
einhveijum árangri í komandi kosn-
ingum, þá verður hann að bregðast
við þessum áróðri á fumlausan og
ákveðinn hátt. I mínum huga verður
það að gerast, að þeir sem harðast
hafa verið gagnrýndir geri afdráttar-
laust hreint fyrir sínum dymm. Ef
þeim finnst að þeir hafi þegar gert
það, þá verður það að standa. Hér
dugar ekkert næstum því. Við verð-
um að hafa hreint borð.
Við eigum að fara í allsherjar na-
flaskoðun á ílokknum og reyna að
Pallborðið
Guðmundur
Oddsson
skrifar
skilgreina þau vandamál sem heitast
brenna. Til þess eigum við að fá fag-
fólk okkur til aðstoðar, sem getur
leiðbeint okkur. Það er okkur svo
mikils virði, aö hreinsa flokkinn af
þeirri óværu sem á honum hvílir, að
við megum ekkert til spara og raunar
engan tíma missa.
Hvenær er mælirinn fullur?
Sú mikla umfjöllun sem ýmis verk
Guðmundar Ama hafa fengið í þjóð-
arsálinni hlýtur að kalla fram þá
spumingu, hvenær stjómmálamenn
hafa gengið of langt og þá kannski
ekki síður hver á að ráða hvaða við-
brögðum eða viðurlögum er beitt.
Mín skoðun er alfarið sú, að viðkom-
andi aðili eigi að hafa allt fmmkvæði
í þessum málum. Við verðum að gera
þá kröfu til stjómmálamanna að þeir
hafi rétt stöðunrat.
Hins vegar verða allir stjómmála-
menn að gera sér Ijóst að þeir em
hvergi nærri einir í heiminum og þeir
hvorki geta né mega haga sér þannig,
að þeir skaði með gerðurn sínum
þann flokk sem þeir em f. Ef slíkt
gerist, þá er það ekki orðið neitt
einkamál viðkomandi stjómmála-
manna, heldur alls flokksins. Þess
verið gagnrýndir geri afdráttarlaust hreint fyrir sínum dyrum.
Ef þeim finnst að þeir hafi þegar gert það, þá verður það að
standa. Hér dugar ekkert næstum því. Við verðum að hafa
hreint borð.“
vegna verða menn að gæta alls vel-
sæmis í störfum sínum en umfram
allt að fara að almennunt leikreglum
og þekkja mörkin.
Hver er stada
flokksins í dag?
Ég hef vitaskuld eins og fjölmargir
okkar flokksmanna velt fyrir mér
stöðu Alþýðuflokksins nú um stund-
ir. Satt best að segja er hún í engu
samræmi við það sent hún gæti verið,
því ég tel að við höfum staðið okkur
vel í núverandi ríkisstjóm og haft þar
afgerandi forystu í mörgum þýðing-
armiklum málum. Málefnalega er
staða flokksins góð og hennar vegna
gælum við náð góðum árangri í kom-
andi kosningum, en fleira kemur til.
Sú ákvörðun Jóhönnu Sigurðar-
dóttur að segja sig úr flokknum hefur
vissulega skaðað flokkinn. Það er
hins vegar hlutur sem ég er sannfærð-
ur um að við munum vinna okkur út
úr þegar nær dregur kosningum og
kosningabaráttan kemst í algleym-
ing. Ég hef því ekki svo miklar
áhyggjur af Jóhönnu.Ég hef hins veg-
ar miklar áhyggjur af því, að á meðan
þessi spillingammræða er í gangi tak-
ist okkur ekki að ná starfmu almenni-
lega í gang. Hinn almenni flokks-
maður er tilbúinn til starfa, en hann
krefst þess, að forysta flokksins sé
með hreint borð og tilbúinn til átaka
af fullum krafti.
Höfundur er bæjarfulitrúi í Kópavogi
og formaður framkvæmdastjórnar
Alþýðuflokksins.
Gluggagægir
dagsins
Markús Örn Antonsson, alias
Krúsi, starfsmaður í Myndbæ býr á
Vesturgötu 36. Hann fær sér stund-
um göngutúr síðla kvölds, og trítl-
ar einatt ÍTamhjá Vesturgötu 39. í
gær sagði Krúsi lesendum Mogg-
ans hvað hann sá innum gluggann:
„Þegar formaður Alþýðuflokksins
fær sér dömuvindil og sötrar svart
kaffi að næturlagi á Vesturgötunni
er ráðabmgg í uppsiglingu...“
Þetla er spennandi. En Kmsa hefiir
orðið kalt sfðasta vetur, enda hclur
hann greinilega noipað marga nótt
á glugganum. Hann segir:
„Þeir vom býsna margir vindlamir,
sem tottaðir vom sl. vetur þegar R-
lista framboðið var undirbúið...“
Enginn furða þótt Krúsi væri ögn
kalinn þegar hann klöngraðist úr
borgarstjórastólnum! En piottið
sem hann afhjúpar nú er þetta:
JBH gaf Alþýðublaðinu fyrirskip-
un urn að gefa Agli Helgasyni fyr-
irskipun um að ráðast á Sollu borg-
arstjóra af því Solla styður heilaga
Jóhönnu. Got it?
Ungir sjálfstæðismenn í
Garðabæ em ekkert að
skafa utan af því í nýjasta
blaði sínu. Þar er Ólafur G.
Einarsson sakaður um
„valdhroka og yfirlæti" fyr-
ir að hafa lengstaf neitað að
birta upplýs-
ingar um ráð-
stöfunarfé
menntamála-
ráðuneytisins.
Samkvæmt ör-
uggum heim-
iidum varð allt
vitlaust meðal
sjálfstæðis-
manna í
Garðabæ
vegna greinarinnar um Ólaf
- enda er hann Garðbæing-
ur sjálfur og hefur sterkasta
vígi hans í kjördæminu ver-
ið. Hinir og frökku sjálf-
stæðismenn vom teknir
rækilega á beinið fyrir að
veitast að leiðtoganum. Það
setn kannski er skondnast
við málið et' hinsvegar það,
að á forsíðu sarna tölublaðs
er mynd af hæstvirtum
menntamálaráðhena að
taka fyrstu skóflustungu að
nýjum skóla. Er nerna von
að ráðherranum hafi bmgð-
ið þegar hann fékk gusuna
yfir sig á næstu opnu...
Nokkrar forvitnilegar
ljóðabækur em vænt-
anlegar, þótt sjálfsagt fari
ekki mikið fyrir þeim í
flóðinu mikla. Mál og
menning gefur út nýja bók
eftir Geirlaug Magnússon
skáld á Sauðárkróki, sem er
tvímælalaust kominn í fá-
mennan hóp okkar albestu
skálda. Ekki er ólíklegt að
önnur ljóðabók frá MM
veki athygli líka; það er
fyrsta bók matkrákunnar og
bóhemsins Jóhönnu
Sveinsdóttur. Hún hefur
áður skrifað bók uni ís-
lenska elskhuga og matar-
gerðarlist, og auk þess birt
ljóð og ljóð á stangli. En nú
er það sumsé heil bók...
Ekki sér fyrir endann á
útvarpsfarsanum. Á
laugardaginn ntun einn af
brottreknu pistlahiifundun-
um, Ólafur Hannibalsson,
flytja pistil sinn hjá Páli
Heiðari Jónssyni. Ólafur
var, sem kunnugt er, rekinn
í hádegisfréttum en ráðinn
aftur í kvöldfréttum. Hann
verður væntanlega á fram-
boðslista sjálfstæðismanna
fyrir vestan og getur þess-
vegna átt yfir höfði sér að
vera rekinn aftur...
Ein ástsælasta skáldkona
seinni ára, Jakobína
heitin Sigurðardóttir, lét
eftir sig handrit með minn-
inguni sem koma út á næst-
unni. Þar segir frá bemsku
hennar á Homströndum á
öndverðri öldinni. Bókin
ber heitið I bamdómi og
verður efalítið mörgum kær
lesning...
Hans Kristján Árnason
þúsundþjaiasmiður er
búinn að skrifa samtalsbók
við Gunnar Dal rithöfund
og heimspeking. Tryggir
hlustendur þjóðarsálarinnar
muna eflaust að um daginn
hringdi hver konan á fætur
annarri og bað um að end-
ursýndur yrði sjónvarps-
þáttur með Gunnari Dal
þarsem hann útlistaði skoð-
anir sínar á lífi og tilvem,
þessum heirni og öðtum...
Hinumegin
Samkvæmið hafði lukkast frábærlega - en þá sá Mummi
fílabeinið í nótnaborðinu.
Fimm á förnum vegi Stundar þú íþróttir reglulega?
Viti menn
Já, mér finnst það ekki fallegt.
Heimir Steinsson útvarpsstjóri, að-
spurður af Hannesi Hólmsteini hvað
honum fyndist um þau ummæli Sig-
urðar G. Tómassonar að pólitísk aflús-
un færi fram á RÚV. DV í gær.
Eðlilegt er, að Bandaríkja-
menn dragi úr umsvifum sín-
um hér eins og nú horfir en
það skiptir öllu máli, að varn-
arviðbúnaður á Keflavíkur-
flugvelli sé með þeim hætti, að
hægt sé að taka hann í notkun
á skömnium tíma.
Leiðari Moggans í gær.
Clinton vildi fá mig í klúrar
munngælur.
Fyrirsögn á frétt i DV
í gær um konu sem
kært hefur Banda-
ríkjaforseta fyrir kyn-
ferðislega áreitni
þegar hann var ríkis-
stjóri í Arkansas.
Það er grafalvarleg þróun ef
námi og menntun hér á landi
fer hrakandi. Það er óverjandi
sjálfskaparvíti. Það má ekki
gerast.
Ellert B. Schram, leiöari DV í gær.
Auðvitað hefðum við helst
viljað gefa bókina út en maður
sættir sig alveg við að Mál og
menning geri það úr því reglu-
gerðin segir að það sé leyfilegt.
Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri
AB um þá ráðstöfun að Mál og menn-
ing gefur út verðlaunabók AB og
Reykjavíkurborgar. DV í gær.
Þingmenn frá Norðurlöndun-
um höfðu samband við mig í
morgun og voru furðu lostnir
og skildu ekki rökin fyrir því
að ekki mátti greiða atkvæði
um vantraustið.
Guðrún Helgadóttir alþingismaður.
Tíminn í gær.
Þorgeir Þorgeirsson hefur sér-
staklega látið mannréttinda-
málin til sín taka... Margir
kunna honum litla þökk fyrir.
Víða hefur hann orðið „pers-
ona non grata“. Samt lætur
hann hvergi deigan síga, en
heldur ótrauður áfram sínu
striki. Slíkir menn eru svo
sannarlega þarfir hverju því
þjóðfélagi sem ekki vill koðna
í viðjum vanans.
Sigurjón Björnsson, ritdómur um Sex
hugleiðingar á hátíðarári eftir Þorgeir.
Mogginn í gær.
Borgarfulitrúar Sjálfstæðis-
flokksins munu berjast gegn
hærri sköttum á Reykvíkinga.
Árni Sigfússon borgarfulltrúi. Mogginn
igær.
Eg verð að segja það að ég hef
aldrei á minni lífsleið kynnst
öðru eins félagslegu vanda-
máli og ég fékk að takast á við
í Sandgerði... Einnig var
áfengisneysla stórt vanda-
mál... Félagið hefur á undan-
förnum árurn misst alltof
marga leikmenn frá sér vegna
óreglu sem fylgir óhóflegu
skemmtanalífi. Þetta er veikur
hlekkur í samfélaginu og inn-
an félagsins, og á þessu verða
Sandgerðingar að taka.
Janus Guðlaugsson þjálfari 3. deildar
liðs Reynis i fótbolta í viðtali í Suður-
nesjafréttum. Reynir féll í 4. deild.
Ég spái því að þjóðin verði
upptekin af þessari keppni
meðan hún stendur yfir.
Geir H. Haarde, formadur Fram-
Sigurveig Ástgeirsdóttir,
nemi: Já, andlegar íþróttir.
Aðallega bókmenntir.
Skæringur Sigurjónsson,
kaupmaður: Já, ég hleyp mikið og
fer í líkamsrækt annað slagið. Úr
þessu fæ ég orkuforða dagsins.
Ingibjörg Björnsdóttir, list-
danskennari: Nei, tnér dytti það
ekki í hug.
Arnór Diego, húsasmiður: Ekki
einsog er. Ég er alltaf vinnandi.
Ingibjörg Oliver Karlsdóttir: Já,
ég syndi reglulega. Yfirleitt eru
þetta 200 til 500 rnetrar í hvert
skipti.
kvæmdanefndar HM 95. Mogginn í
gær.