Alþýðublaðið - 27.10.1994, Page 8

Alþýðublaðið - 27.10.1994, Page 8
Fimmtudagur 27. október 1994 Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk Mi>YniiRifnih 163.tölublað - 75. árgangur Viðtal við Arnór Benónýsson, skotspón fjölmiðla undanfarna daga. í dag er ég fullkomlega rúinn æru og sárin sem ég hef hlotið munu seint gróa. Ég er fyrirfram dæmdur af fjölmiðlum og þarafleiðandi almenningi, segir Arnór. Ég er fyrirfram dæmdur sem þjófur Ekki ágreiningur við stjórn Davíðs - varðandi vaxtamál, seeir Steinarímur „Ég held að það sé ekki uppi neinn ágrein- ingur milli mín og rtkis- stjórnarinnar v a r ð a n d i vaxtamál. Ég vek athygli á því að við- skiptaráð- Fl;am ' sviðsljósið: herra hefur til F'n9 BSRB dæmis lagt samþykkti sérstakt mikla áherslu traust á Steingrími á það að bankar gætu lækkað vexti og ég er honum sammála. Ég tel að vextir á hærri endum kjörvaxtakerf- isins þar sem einstaklingamir eru séu hættulega háir og held að engan greini á um það,“ sagði Steingrímur Hermannsson Seðlabankastjóri í samtali við blaðið. Steingrímur flutti erindi um vaxta- og Ijármagnsmál á þingi BSRB í fyrradag og ræddi erfiða skuldastöðu heimilanna. Fréttir af ræðunni urðu tilefni til ummæla forsætisráðherra á Alþingi sem bentu til að hann væri ekki sammála bankastjóranum. Þing BSRB samþykkti þá sérstaka tillögu þar sem Steingrími er þökkuð ræðan og Iýst yfir fyllsta trausti á hann í til- efni „ómaklegrar gagnrýni.“ í samtali við Alþýðublaðið sagðist Steingrímur ekki hafa gert athuga- semdir við þau ummæli Qármálaráð- herra að skuldastaða heimilanna skapaði ekki neina hættu á kreppu í bankakerfmu. Hins vegar væri það eins og að fljóta að ósi, ef ekki feigðarósi, ef menn horfðu ekki á þá staðreynd að engar skuldir hér hefðu vaxið hraðar á þessu ári en skuldir heimilanna. Steingrímur Hermanns- son sagðist líka hafa bent á þá stað- reynd að bilið á milli bankavaxta og vaxta af ríkisbréfum hefði tvöfaldast á tveimur til fjórum árum. Hins veg- ar færi þetta eftir hvaða bankalán væri miðað við. Hér væru neyslulán eins og yfirdráttur á reikningi eða skuld á krítarkorti á tiltölulega lágum vöxtum miðað við önnur lönd. Vext- ir á algengustu skuldabréfum væm hins vegar háir. ,J>að sem ég gerði á fundinum hjá BSRB var að segja í hreinskilni það sem ég veit réttast í þessum málum,“ sagði Steingrímur Hermannsson. Frítt á barnum í Ingólfscafé Ingólfscafé býður til afmælis- veislu þann 28. til 29. október næstkomandi. Vegna afmælisins hefur verið boðað til hátíðahalda sem hefjast stundvíslega klukkan 22 næstkomandi fóstudag og munu standa með hléum til 03, að- faranótt sunnudags. Frítt verður á barnum milli 22 og 23 á föstudags- kvöldið. Þetta kemur fram í til- kynningu frá stjórnendum Ing- ólfscafé, töffurunum Skildi og Erik. I tilefni afmæiisins hefur skreytingameistarinn Claudio breytt Ingólfscafé í aðra veröld. Verslunin Flauel verður með „Furðushow“ og listamennirnir Ingibjörg Stefánsdóttir, Þossi, Svala Björgvinsdóttir, Grétar og Margeir vcrða á staðnum með uppákomur. Einnig treður upp Brassbandið og erlendur rappari heiðrar gesti með nærveru sinni. Miðað við afmæla-reynslu síðustu ára eru gestir minntir á að mæta tímanlega til að losa við mestu bið- raðirnar. Jafnaðarmenn eru sér- staklega hvattir til að svipast um eftir barþjóninum „Skugga- Baldri“, Baldri Stefánssyni, sem hversdags gegnir stöðu fram- kvæmdastjóra SUJ... „Það yrði fullkomnað ef ég yrði látinn dúsa á dýflissunni fyrir starf mitt að Listahátíð í Hafnarfirði, það yrði þá eftir öðru sem á undan er gengið. Og það mun ég gera ef mál þróast á þann veginn. I dag er ég full- komlega rúinn æru og sárin sem ég hef hlotið munu seint gróa. Ég er fyr- irfram dæmdur af fjölmiðlum og þarafleiðandi almenningi. En þjófur hef ég aldrei verið,“ sagði Árnór Benónýsson leikari sem íjölmiðlar og bæjarstjóm Hafnaríjarðar hafa sótt að af miklu offorsi að undan- fömu. Amór segir að í raun sé eng- inn að leita að sannleikanum í mál- efnum Listahátíðar. Verið sé að leita að manni til að negla, - og maðurinn sé Guðmundur Árni Stefánsson. Sjálfur sé hann aukaatriði í málinu. Arnór Benónýsson segir í viðtali við Alþýðublaðið að það hafi verið í janúar I993 sem Guðmundur Árni Stefánsson hafði samband og spurði hvort hann væri á lausu. Amór var síðan ráðinn til að hafa umsjón með íjárstreymi Listahátíðar í Hafnarfirði og veita listræna ráðgjöf. Hófst hann handa hinn I9. janúar við starf sitt. Þá lá fyrir að mestu dagskrá hátíðar- innar, metnaðarfull dagskrá, sem spannaði heilan mánuð vorið 1993. Hátíðin var ekki einasta stór í snið- um, hún tókst vel og fékk mörg fal- leg lýsingarorðin, bæði í fjölmiðlum og í munni þeirra fjölmörgu sem hennar nutu. Ósammála í upphafi hvernig ad var stadid „Eins og fram hefur komið fór margt úrskeiðis í fjárhags- og bók- haldsmálum hátíðarinnar. Þetta vom mistök sem gerð vom í upphafi og ég varstrax ósammála mönnum um það hvemig að var staðið. Ég bað ítrekað um að annar háttur yrði hafður á í fjármálum hátíðarinnar. Ég vildi að hlutafélagið hefði eigin ávísana- reikning og tékkhefti, sem auðvitað var eðlilegt fyrir þetta stórt fyrirtæki. Þess í stað var hátíðin rekin fyrir reiðufé, sem er óðs manns æði. En þetta var semsé sameiginleg niður- staða bæjaryftrvalda og stjórnar Listahátfðar Hafnarfjarðar hf.,“ sagði Amór Benónýsson. Listahátíð Hafnarfjarðar hf. var framkvæmdaaðili listahátíðarinnar, fyrirtæki í eigu stjómarmannanna þriggja aðila, þeirra Gunnars Gunnarssonar, skólastjóra Tónlist- arskóla Hafnarfjarðar, sem er for- maður stjórnarinnar; Sverris Olafs- sonar myndhöggvara; og Arnar Óskarssonar, hljómsveitarstjóra og skólastjóra Myndlistarskóla Hafnar- fjarðar. Óljós skil milli hlutafélags og bæjar „Þegar ég kom að lá fyrir ákvörð- un um I5 milljón króna styrk Hafn- arfjarðarbæjar til hátíðarinnar. Þegar til kastanna kom reyndust skilin milli bæjarins og hlutafélagsins alls ekki nógu skýr. Sannleikurinn var sá, og ég fullyrði það, að það vildi enginn koma nálægt peningamálum hátíðar- innar, og það er mergurinn málsins. Það lá fyrir fjárhagsáætlun sem menn gerðu auðvitað ráð fyrir að mundi standast. Ákveðin atriði í þessari fjárhagsáætlun gagnrýndi ég strax og mitt mat á ákveðnum kostn- aðarliðum var hreint ekki alltaf það sama og hjá stjómendum hátíðarinn- ar. En mitt valdsvið var ekki að taka ákvarðanir í stóm málunum. I raun- inni varég valdalaus maður, en starf- aði með stjóm hlutafélagsins eftir að ég kom að þessu og sat fundi hennar. Eins og eðlilegt er urðu stundum átök á þessum fundum og deildar meiningar um hvaðeina. Ég átti minn þátt í því að horfið var frá þvf ráði að ráðast í að setja upp ópem eftir Finn Torfa Stefánsson, tón- skáld. Ég sá í hendi mér að það hefði reynst allt of dýrt fyrirtæki, sem hefði aðeins höfðað til örfárra. I þessu efni fékk ég stuðning stjómar- innar og við þetta var hætt,“ segir Amór Benónýsson. Útreikningar sem stódust ekki „Eins og ég hef áður sagt var kerfi fjárstreymisins þannig að ég tók út greiðslur nánast daglega hjá bæjar- gjaldkera, eftir því sem fé þurfti meðan á hátíðinni stóð. Það stóð ekkert á greiðslunum. Minn nánasti samstarfsmaður á bæjarskrifstofun- um var hins vegar Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, bæjarritari, en ekki Guðmundur Ámi. Það er svo innanhússmál þeirra á bæjarskrifstofunum hver sagði hvað. Upphaflega var talað um 15 milljón- ir króna styrk bæjarins, en þegar ljóst var að hann hrykki engan veginn fyr- ir kostnaði var styrkurinn hækkaður og um það sömdu stjóm Listahátíðar Hafnartjarðar hf. og bæjarstjóm sín á milli,“ segir Amór. Það var því ljóst að útreikningar stjórnar Listahátíðar Hafnartjarðar hf. stóðust ekki, enda var bætt við atriðum á hátíðinni og forsendur breyttust stómm. Fagnar lögreglurannsókn Nú þarf semsagt að hengja mann. Og hann heitir Arnór Benónýsson, maðurinn sem ráðinn var meðal ann- ars til að hafa umsjón með fjár- magnsstreymi hátíðarinnar. Hann fær að lesa í blöðum að hann megi eiga von á lögreglurannsókn á starfi sínu fyrir listahátíðina góðu í Firðin- um. „Ég fagna innilega niðurstöðu bæjarstjómar Hafnarfjarðar að und- irbúa málið þannig að hægt verði að senda það til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Ég fagna og óttast ekki. I þessu máli hef ég hreina samvisku", segir Amór Benónýsson. Fjölmiðlar hafa fjallað um starf Amórs á óæðri nótunum og gjarnan slegið undir belti eins og kallað er á máli hnefaleikara. Rætt hefur verið um stórar veislur, sukk með fjármuni og plastpoka með bókhaldsgögnum uppi í Kjós. Var listahátíðin í Hafn- arfirði ein samfelld orgía? „Það er fjarri lagi að svo hafi ver- ið, alla vega tók ég ekki þátt í neinni slíkri óráðsíu. Þvert á móti var lögð rík áhersla á að fara sparlega með fjármuni hátíðarinnar og við gerðum oft góð kaup og fengum alls konar afslætti hjá fyrirtækjum. Reikningar og tölur sem hafa verið viðraðir í fjölmiðlum um mikil veisluhöld eiga eðlilegar skýringar. Þannig mátti skilja á blaðafréttum að Nigel Kennedy fiðlusnillingur hafi borðað og drukkið fyrir 40 þúsund krónur - væntanlega ásamt mér - á veitinga- húsinu A. Hansen. Það er ekkert ver- ið að benda á að með Kennedy var 17 manna lið, hljóðfæraleikara, um- boðsmann, rótara og fleiri, sem nutu matarins. Ég kom þar hvergi nærri. Reikningurinn var fyrir málsverð handa öllum þessum hópi. Annar reikningur og stærri er gerður tor- tryggilegur, frá veislueldhúsinu Kokknum. Þar er innifaldar meira en 400 máltíðir málsverðir, sem eldhús- ið matreiddi handa listamönnum há- tíðarinnar allan mánuðinn. Sjálfur sat ég engar stórar veislur á vegum hátíðarinnar, en væntanlega skilja það allir að hátíðin varð að taka al- mennilega á móti gestum sínum og veita þeim eðlilegan beina,“ segir Arnór. Eftirmiddagsbladid heggur Amór segir að kviksögur um per- sónu hans og framgang við hátíðina hafi borist sér til eyra strax á meðan á hátíðinni stóð og jafnvel fyrr. Blaðakona við eftirmiðdagsblaðið DV spurði Amór beint út í viðtali: Dastu í það og stalst fé úr sjóðum Listahátíðar? Amór segist eðlilega hafa svarað þessu neitandi, enda hafi hann hvorki dottið í það, né heldur að hann hafi látið greipar sópa um sjóði hátíðarinnar. Upp úr þessari spurningu blaðsins kom fyrirsögn: Datt ekki í það og stal ekki pening- um. Þetta finnst mörgum afar leið- andi fyrirsögn og til þess fallin að fá lesendur til að efast um sannindi svars Amórs. Arnór segir að vissulega sámi sér vinnubrögð fjölmiðla af þessu tagi. Hann hafi ekki verið sakaður um þjófnað. Auk þess sé enginn sé sekur fyrr en sekt hans sé sönnuð. Hann eigi ekki von á því að neitt misjafnt verði á hann sannað. Veidileyfi á Arnór - og Gudmund Árna Eftir að bæjarstjórn Hafnarfjarðar fékk Guðmund Friðrik Sigurðs- son, endurskoðanda, til að fara ofan í fjárhagsmál Listahátíðarinnar og ljóst var að um gat upp á 800 til 900 þúsund krónur var að ræða, hafði lögmaður Amórs samband við end- urskoðandann og benti honum á að eðlilegt væri að Arnór fengi aðgang að fylgiskjölunum til að skýra málið. Endurskoðandinn sagði að til þess þyrfti leyfi frá bæjarstjóra. Skömmu síðar hringdi endurskoðandinn með þau boð bæjarstjóra að það leyfi yrði ekki veitt. „Það er nú mín tilfinning að öll stjórn Listahátíðar Hafnarfjarðar hf. beri ábyrgð í þessu máli, en við hana eða um hana er ekki rætt í því sam- bandi svo mér sé kunnugt og hún reyndar öllum gleymd. Það hefur einfaldlega verið gefið út veiðileyfi, - á mig og Guðmund Áma Stefáns- son sérstaklega. Það held ég að sé mergurinn málsins. Hins vegar er það gott mál að nú liggur fyrir skýrsla endurskoðanda um málið, því nú ætti að vera hægt að ræða þetta mál á rökrænan hátt í stað þess að notast við kjaftasöguformið", sagði Amór. Hann segir að rangfærslurnar og slúðrið í sumum fjölmiðlum hafi verið átakanlegt dæmi um óvönduð og siðlaus vinnubrögð. Þannig var látið að því liggja að einhver slitur af bókhaldsgögnum hátíðarinnar hafi legið í reiðileysi í yfirgefnu húsi í Hvammsvík í Kjós. Þama hafi verið um að ræða poka með afrifum af miðum frá tónleikum Nigels Kenne- dys. „Það vildi svo vel til að afrifumar vom taldar meðan á tónleikunum stóð, - og viðstaddir vom fyrir til- viljun tveir lögfræðingar, sem geta vottað hversu margir borguðu sig inn á tónleikana," segir Arnór. Ég er reidubúinn ad taka á mig það sem að mér snýr „Það sem eftir stendur er þetta: Mistök vom vissulega gerð við framkvæmdina og er ég reiðubúinn að taka á mig það sem að mér snýr. En eftir stendur að haldin var vegleg og ef til vill of löng og dýr listahátíð í bænum. Þessi hátíð þótti heppnast afar vel og naut mikilla vinsælda. Hátíðin átti sinn stóra þátt í að auka veg Hafnaríjarðarbæjar og íbúa hans menningarlega séð. Þannig varð hátíðin bænum til mikils vegs- auka. Ég hef sagt það að ef ég hefði keypt mér hús, þá hefðu menn ef til vill getað farið að bollaleggja um það hvort peningunum hefði verið viturlega ráðstafað. I því tilviki hefði verið hægt að leggja á kaupin raun- sætt mat samkvæmt markaðsverði fasteigna. Þannig er þessu auðvitað ekki far- ið, þegar lagt er mat á eitt stykki listahátíð. Hátíðin skilaði auðvitað „tekjum" þegar hún lyfti andliti gamals bæjarfélags, sem ekki þótti tiltakanlega vel á vegi statt menning- arlega séð til skamms tíma. En lista- hátíð hverfur út í buskann og eftir verður aðeins endurminning um vel heppnað framtak. Auðvitað geta menn rætt um það fram og til baka hvort hátíðin hafi verið þess virði að leggja í hana. Ég held sjálfur að svo hafi verið,“ sagði Amór Benónýsson að lokum. • Ásgerður Búadóttir sýnir í Listasafni íslands Frumkvöðull nútíma veflistar „Það er mikill heiður að vera boðið að sýna hér," sagði Ásgerður Búa- dóttir myndlistarkona í stuttu samtali við Alþýðublaðið í gaer, en hún opnar sýningu sína í Listasafni íslands næstkomandi laugardag. í að- faraorðum sýningar Ásgerðar segir Aðaisteinn Ingólfsson listfræðing- ur, að í listrænni ögrun sinni og lotningu fyrir landinu - lífi þess og ásýnd - sýni myndlistarkonan sig vera helstan arftaka frumherja í ís- lenskri myndlist. „Ásgerður Búadóttir er frumkvöðull nútíma veflistar hér á landi. Hún hefur að verðleikum hlotið mikið lof fyrir myndvefnað sinn og verið í fremstu röð...Þessi sýning á nýjustu veftum hennar staðfestir að hún er einnig meðal helstu listamanna okkar íslendinga í nútíð," skrifar Aðalsteinn.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.