Alþýðublaðið - 01.11.1994, Blaðsíða 8
iunnum
Þriöjudagur 1. nóvember 1994
165.tölublaö - 75. árgangur
Verð í lausasölu kr. 140 m/vsk
Seyðisfjörður:
Mikil grútar-
mengun drep-
ur æðarfugl
Grútamiengun frá skipum og
verksmiðju hefur valdið umtalsverð-
um fugladauða á Seyðisftrði, sam-
kvæmt frétt í Austurlandi. Blaðið
segir frá því að lögreglan haft nýlega
kannað ástand mála í Lóninu, sem er
í hjarta bæjarins, og fundið tíu æðar-
fugla sem voru svo illa leiknir af grút
að ekki reyndist unnt að bjarga þeim
öllum. „Hver yrði talan, væri allur
fjörðurinn kannaður?" spyr blaðið.
Ekki reyndist unnt að fá upplýsingar
um málið hjá lögreglunni á Seyðis-
ftrði, þarsem símsvari á lögreglu-
stöðinni gefur einungis upp númer í
farsíma sem ekki náðist í.
Sigurjónssafn:
Skrúfan
afhjúpuð
Nýverið var stytta eftir Siguijón
heitinn Olafsson myndhöggvara af-
hjúpuð á lóð safnsins sem við hann
er kennt á Laugamesi. Verk Sigur-
jóns ber heitið Skrúfan, og var eitt
lykilverka hans í vinnu að íslands-
merki til minningar um lýðveldis-
stofnun. Undanfarin ár hefur verið
unnið að því að færa Skrúfuna í var-
anlegt efni og hafa ijölmargir lagt
málinu lið.
S
\
Eldhuginn og Skrúfan: Birgitta
Spur hefur byggt Sigurjónssafn
upp af míklum krafti.
Allaballar:
Skattar og
skattsvik
Alþýðubandalagið í Reykjavík
heldur fund á fimmtudagskvöldið
um skattamál og skattsvik. Þar mun
Skúli Eggert Þórðarson skattrann-
sóknastjóri ijalla um skattsvik og
Steinþór Haraldsson yfirlögræðingur
hjá rfkisskattstjóra ijalla um skatta-
kerftð. Þeir munu síðan svara fyrir-
spurnum. Jónas Eggertsson, sem titl-
aður er skattgreiðandi í fréttatilkynn-
ingu, flytur ávarp í upphafi fundar-
ins. Fundarstjóri er Sjöfn Ingólfs-
dóttir, nýkjörinn varaforseti BSRB.
Fundurinn er haldinn á Komhlöðu-
loftinu, hefst klukkan hálfníu um
kvöldið og er öllum opinn.
ff
Nú þarf Friðrik að
taka upp budduna"
-segir Kristín Á. Ólafsdóttir, formaður stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar. Borgar-
spítalinn rekinn með um 300 milljón króna halla í ár og rætt um sameiningu við Landakot.
Rekstur Borgarspítalans í Foss-
vogi stefnir í 300 milljón króna tap í
ár. í fyrra var hallinn af rekstrinum
124 milljónir króna. Kristín A. Ól-
afsdóttir, stjórnarformaður sjúkra-
stofanna borgarinnar segir að fram-
undan séu flóknar ákvarðanir um
hugsanlegar breytingar á rekstrar-
formi sjúkrahússins, meðal þeirra er
sú hugmynd að Borgarspítalinn
verði einskonar verktaki fyrir ríkið.
„Nú þarf Friðrik að taka upp budd-
una,“ sagði Kristín. „Ríkið getur
ekki lengur undan því vikist að
greiða það sem til þarf til reksturs
spítalans".
Viðræðunefnd hefur starfað frá
því í byrjun september á vegum heil-
brigðis- og ijármálaráðuneyta og
skoðað ýmsa möguleika varðandi
sameiningu Borgarspítala og Landa-
kots, sem í raun er meginmálið í
starfi net'ndarinnar. FuIItrúar spítal-
anna hafa setið í nefndinni.
„Hér er um afar flókin mál að
ræða, ekki síst hvað varðar starfs-
mannamálin. Það er ekki hægt að
segja til um hver niðurstaðan verður,
en ætlast er til að nefndin skili áliti
ekki síðar en I5. nóvember næst-
komandi", sagði Kristfn.
Heilbrigðisráðherra, Sighvatur
Björgvinsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið um helgina að í urn-
ræðunni væru tvær leiðir til að leiða
til lykta vandamál Borgarspítala.
Annars vegar að Borgarspítalinn geri
samning við ríkið um skilgreind
verkefni sem ríkið kaupir af sjúkra-
húsinu. Hins vegar er um að ræða
breytingar á stjómfyrirkomulagi þar
sem inn í stjórn Borgarspítala komi
fulltrúi heilbrigðisráðuneytis. Báðar
þessar leiðir munu tengdar því að
spítalarnir tveir sameinist.
„Mér finnst þessi fyrri leið heppi-
legri, enda þótt í henni séu fólgnar
ýmsar hættur. Fjárlagaleiðin er blind
og tekur ekki mið af þjónustunni
sem innt er af hendi. Að því leyti er
fyrri kosturinn betri,“ sagði Kristín.
Kristín A. Ólafsdóttir vildi ekki
líta svo á að gjörðir Ama Sigfúsdótt-
ur, fyn verandi borgarstjóra og fyrir-
rennara hennar sem formaður stjóm-
ar sjúkrastofnana borgarinnar hefðu
haft mikil áhrif á rekstur Boigarspít-
ala. Eins og kunnugt er stóð Arni fyr-
ir launahækkunum innan spítalans,
sem og „heimatilbúnum vanda",
sem Sighvatur kallar svo, en það er
að búa til ýmsa titla innanhúss í
heimildarleysi og ijölga stjómunar-
stöðum á hjúkrunarsviði.
„Það hefur komið fram í skýrslu
endurskoðanda að í fyrra jukust
heildarlaun hjúkrunarfræðinga við
Borgarspítalann ekki. Varðandi
samningana sem gerðir vom 1992
við hjúkrunarfræðinga er það að
segja að þar er ekki um háar fjárhæð-
ir að ræða. Og varðandi skipulags-
breytingarnar, sem ég tel að eigi eftir
að skila sér í betri stjórnun, þá námu
þær ekki nema 12 milljónir af þeim
300 sem spítalann vantar á þessu ári,
en þessar breytingar á skipulagi voru
ákveðnar af fyrri stjórn spítalans á
síðasta ári,“ sagði Kristín.
Kristín A. Ölafsdóttir sagði að í
íjáraukalögum 1994 væri reiknað
með að bæta spítalanum rekstrartap-
ið, en þó í allt of Iitlum mæli. Megin-
ástæða hins ntikla taps væri að sjálf-
sögðu stóraukið álag á sjúkrahúsinu.
Fram hefði komið í samantekt Sím-
onar Steingrímssonar, rekstrarráð-
gjafa hjá heilbrigðisráðuneytinu ný-
lega að álagið á sjúkrahúsum í
Reykjavík hefði aukist um 5% á
þrem árum, árin 1990-1993 vegna
mannijölgunar og vegna aldraðra.
Bráðavaktir sem fluttust til Borgar-
spítala frá Landakoti 1992 hefðu
reynst dýrari en reiknað var nteð. Þá
hefur spítalinn þurft að greiða upp-
bætur á lífeyri til lífeyrissjóðs, hátt í
100 milljónir á fimm árum. Hvorki
Kristín: Meiri sparnaður kemur af
fullum þunga niður á þjónustu við
sjúklinga.
ríki eða borg hafa talið sig eiga að
greiða þessa peninga. Þetta hefur
hreinlega étið innan úr spítalanum.
„Borgarspítalinn hefur nú þegar
náð fram sparnaði þar sem hægt er
að spara. Verði framhald þar á er
ljóst að sá spamaður mun koma af
fullum þunga fram á þjónustunni,”
sagði Kristín Á. Ólafsdóttir að lok-
um.
Framsókn á Reykjanesi:
Drífa í slaginn
Guðmundur Bjarnason um kyrrt fyrir norðan.
Drífa Sigfúsdóttir forseti bæjar-
stjórnar Keflavíkur, Njarðvíkur og
Hafna hefur tilkynnt að hún sækist
eftir efsta sæti á lista Framsóknar-
flokksins í Reykjanesi. Það sæti er
laust eftir að Steingrímur Her-
mannsson tók við embætti seðla-
bankastjóra. Þá liggur fyrir að Unn-
ur Stefánsdóttir úr Kópavogi og
Hjálmar Árnason skólameistari í
Keflavík taka þátt í slagnum um
efsta sætið. Siv Friðleifsdóttir og Jó-
hann Einvarðsson hafa líka verið
orðuð við framboð, en þau hafa ekki
tilkynnt neitt opinberlega.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Reykjanesi verður haldið
13. nóvember og þar verður tekin
ákvörðun um, hvernig valið verður
á listann. Heimildainaður Alþýðu-
flokksins í Framsóknarflokknum
sagði að langlíklegast yrði haldið
prófkjör, þótt ýmsir séu því mót-
fallnir. Með öðrum hætti væri ekki
hægt að gera upp á milli frambjóð-
enda án eftirmála.
Ekki er talið að Jóhann Einvarðs-
son, sem var í öðru sæti síðast, gefi
kost á sér. Hinsvegar er fullvfst að
Siv, sem er leiðtogi framsóknar-
manna á Seltjarnarnesi, sækist eftir
fyrsta sæti.
Guðmundur Bjarnason, fyrsti
þingmaður Norðurlands eystra og
varaformannsframbjóðandi á
flokksþingi Framsóknar síðar í
mánuðinum, hefur sterklega verið
orðaður við framboð á Reykjanesi.
Það væri í samræmi við hina svo-
kölluðu „þéttbyggðastefnu“ for-
ystumanna Framsóknar. Stein-
grímur flutti sig af Vestfjörðum á
Reykjanes og fylgdi þarmeð í fót-
spor Ólafs Jóhannessonar, þáver-
andi formanns. sem færði sig af
Norðurlandi vestra til Reykjavíkur.
Heimildir Alþýðublaðsins herma að
Guðmundur hafi útilokað að hann
fari í framboð syðra. Það þýðir hins-
vegar að þrír þingmenn Framsókn-
ar nyrðra, þau Guðmundur, Val-
gerður Sverrisdóttir og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson munu væntan-
lega berjast hart um efstu tvö sætin
á listanum þar. Framsóknarmenn
munu nær örugglega missa þingsæti
á Norðurlandi eystra, þarsem eitt
þingsæti verður flutt úr kjördæm-
inu við næstu kosningar - einmitt
suður á Reykjanes.
Úrslit í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Pétur H. Blöndal á hæla þingmanna
Katrín Fjeldsted upp fyrir Markús Örn sem hafnaði í 10 sæti.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík röðuðu sér í sjö efstu sæt-
in í prófkjöri flokksins um helgina
ineð formann og varaformann í
broddi fylkingar. Á hæla þingmann-
anna komu þau Pétur H. Blöndal,
Katrín Fjeldsted og Markús Örn An-
tonsson sem lenli í 10 sæti og kom
slæmt gengi hans nokkuð á óvart.
Davíð Oddsson fékk 5.376 at-
kvæði í I. sæti en samtals 6.480 at-
kvæði af 6.885 gildum atkvæðum
prófkjörsins. Hann fékk 152 atkvæði
í 10. sæti eða 20 fleiri en Friðrik Sop-
husson sem fékk 4.330 atkvæði í 2.
sæti og 6.406 atkvæði samtals. Björn
Bjamason vann ömggan sigur í 3.
sæti með 2.362 atkvæði og 6.398 at-
kvæði samtals. Þetta er óbreytt röð
frá lista tlokksins við síðustu kosn-
Vinningstölur
laugardaginn:
29. okt. 1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
H 5af5 0 1.892.308
g+4at5 4 82.011
04af5 68 8.321
0j 3af5 2.585 510
Aðaltölur:
®@®
BÓNUSTALA:
4
Heildarupphæð þessa viku
kr. 4.104.530
UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULlNA 99 10 00 • TEXTAVARP 451
ingar. Geir H. Haarde fékk 2.089 at-
kvæði f 3. sæti og vantaði því nokk-
uð á til að velta Birni. Geir fékk flest
atkvæði allra frambjóðanda saman-
lagt eða 6.567 og 4. sætið.
Þær Sólveig Pétursdóttir og Lára
Margrét Ragnarsdóttir háðu tvísýna
baráttu um 5. sæti. Svo fór að Sól-
veig vann þar sem hún fékk samtals
52 atkvæðum meira í fimm efstu
sætin og 5.913 atkvæði í heild. Lára
Margrét er í 6. sæti með heldur fleiri
atkvæði í heild eða samtals 6.138.
Guðmundur Hallvarðsson hafnaði
síðan í 7. sæti með 5.526 atkvæði í
heild. Pétur H. Blöndal náði 8. sæti
með 5.257 atkvæði samtals, Katrín
Fjeldsted fékk samtals 5.141 at-
kvæði og 9. sæti og Markús Öm
hafnaði í 10. sæti með 5.033 atkvæði
í heild. Síðan kom Ari Edwald í
11. sæti, Ásgerður Jóna Flosa-
dóttir í 12. sæti, Ari Gísli Braga-
son í 13. og Guðmundur Krist-
inn Oddsson rak lestina.
Á kjörskrá voru 15.016. At-
kvæði greiddu 7.297 eða 48,6%.
Gild atkvæði voru samtals 6.885
en auðir og ógildir 412. Urslitin
eru ekki bindandi þar sem þátt-
taka var undir 50% en ekki er
búist við að röð 10 efstu verði
breytt.
Átti von á þessu
Pétur H. Blöndal sagði úrslit
prófkjörsins svipuð og hann átti
von á. Hann væri mjög ánægður
með þennan árangur. Pétur
kvaðst ekki viss um að kosn-
ingabarátta í prófkjöri hefði
verulega mikið að segja. Það
Pétur og þingmennirnir sjö: Pétur
H. Blöndal náði 8. sæti og varð
efstur utanþingsmanna í prófkjör-
inu. Allt bendir því til þess að hann
láti til sín taka á Alþingi í vor.
skipti meira hvað menn væm búnir
að vinna fram að þeim tíma. Hann
hefði verið með ákveðna ímynd í
hugum fólks, tiltölega þekktur og
þetta hefði hjálpað sér að ná þessum
árangri.
Pétur flutti röð nfu erinda á kosn-
ingaskrifstofu sinni fyrir prófkjörið
þar sem hann gerði grein fyrir við-
horfum sínu til ýmissa mála og svar-
aði fyrirspumum. Hann sagði að
þessir fundir hefðu fallið í góðan
jarðveg hjá þeim sem þá sóttu en að
jafnaði voru milli 40 og 60 manns á
hverjum fundi og yflrleitt nýir gestir
á hverjum fundi. Pétur Blöndal sagði
greinilegt að kjósendur vildu fá
miklu meiri pólitíska umræðu en var
í gangi. Líflegar umræður hel'ðu orð-
ið eftir hvert erindi.
Magur listi
Ingi Björn Albertsson alþingis-
maður, sem nú gaf ekki kost á sér í
prófkjörinu, sagði úrslit þess svipuð
og hann bjóst við. Þó hefði hann átt
von á að Katrín Fjeldsted næði betri
kosningu en það hefði eitthvað
bmgðist í kynningunni. Slæm útreið
Markúsar Arnar kæmi nokkuð á
óvart. Það hefði hins vegar ekki
komið á óvait að þingmennirnir röð-
uðu sér í þessi sæti, enda listinn mag-
ur og úr litlu að moða. Dræm þátt-
taka í prókjörinu hljóti að vera um-
hugsunarefni fyrir forystuna. Þarna
hefðu tryggir flokksmenn mætt fyrst
og fremst en þeir sem væru óánægð-
ir eða tvístígandi leitt prófkjörið hjá
sér.
Gód byrjun
Ari Edwald var einn af fáum ung-
um frambjóðendum og sóttist eftir
sjöunda sæti í prófkjörinu en hafnaði
í því ellefta. Hann kvaðst þó ekki
óánægður með niðurstöðuna. Þeir
sem væm minna þekktir ættu alltaf
nokkuð undir högg að sækja í svona
prófkjöri. En þetta væri góð byrjun
þvf hann hefði fengið yfir tjögur þús-
und atkvæði. Ef prófkjörið hefði ver-
ið bindandi í heild hefði það verið
bindandi til og með ellefta sæti.
„Mér fínnst ég geta vel við unað
persónulega með að vera í því sem
kalla má 2. varamannasæti. Hitt er
annað mál að yfir helmingur kjós-
enda á landinu eru undir 40 ára aldri.
Með hliðsjón af því vildi ég sjá ein-
hverja undir fertugu í öruggu sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins sem ann-
arra flokka. En þessi útkoma í próf-
kjörinu dregur ekki úr mér kjark
heldur herðir mig í baráttunni,“ sagði
Ari Edwald.
Markús í baráttusæti?
Það vakti athygli í úrslitum próf-
kjörsins að Markús Öm Antonsson
skyldi hafna í 10. sæti en hann bauð
sig fram í 4. sæti og var talinn eiga
góða von um öruggt sæti. Markús
sagði að það væri hægt að stefna að
því að gera þetta 10. sæti að baráttu-
sæti. Sjálfstæðisflokkurinn ætti nú
níu þingmenn í Reykjavík og hann
hefði sterkan meðbyr. Það væri
ógæfa vinstri aflanna að eftir því sem
sameiningarhjalið ykist þá yrði
sundrungin þeim mun meiri.
Markús var spurður hvort þessa
útkomu hans mætti að einhverju
leyti rekja til þess að þátttaka í próf-
kjörinu var ekki meiri en raun ber
vitni. Hann sagði að ef mark væri
takandi á þeim sem segðu menn
óánægða með að hann hætti sem
borgarstjóri og vildu kenna honum
um iapið í kosningunum, þá ætti slíkt
uppgjör sér væntanlega helst stað í
flokksstarfinu. Reikna mætti með að
þeir sem væru virkastir í starfinu
hefðu helst skilað sér í prófkjörinu
og ef þetta væri tilfelli þá mætti segja
að uppgjör hefði farið fram og þessu
máli lokið. En vissulega hefði það
verið vonbrigði að hafna í tíunda
sæti og raunar hefði tilviljun ráðið
því nokkuð í hvaða sæti menn lentu.