Alþýðublaðið - 03.11.1994, Side 8

Alþýðublaðið - 03.11.1994, Side 8
Fimmtudagur 3. nóvember 1994 Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk MfflllBLÍÐIB 167.tölublað - 75. árgangur Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi: Árni fær ekki studning í fyrsta sætið - frá þeim sem skrifuðu uppá stuðning við eitt af þrem- ur efstu sætunum! Árni M. Mathiesen þingmaður Sjálfstæðisflokks vill komast í „eitt af þremur efstu sætunum“ á fram- boðslista flokksins við prófkjörið í Reykjaneskjördæmi sem fram fer á laugardaginn. Þegar rætt er við stuðningsmenn Árna kemur hins vegar í Ijós að þeir eru ekki tilbúnir til að lýsa yfir stuðningi við fram- bjóðandann í 1. sætið. I Morgunblaðinu á þriðjudaginn birtist heilsíðuauglýsing (kostar nær 200 þúsund krónur) með nafnalista fólks sem kveðst styðja Árna í eitt af þremur efstu sætun- um. Alþýðublaðið gerði stikkprufu á því hvað þessi stuðningsyfirlýs- ing ætti að merkja. Hringt var í nokkra sem skrifa upp á yfirlýsing- una í Morgunblaðinu og þeir spurð- ir hvort þetta þýddi stuðning við Árna í 1. sæti. Sumir neituðu því þegar, en vöflur komu á aðra. „Hann nefndi ekki fyrsta sætið við mig. Eg held að hann sé ekki að sækjast eftir því sæti og ég styð hann bara í eitt af þremur efstu sæt- unum eins og stendur þarna í aug- lýsingunni,“ sagði Davíð Scheving Thorsteinsson. „Á þessum lista sem birtist í Morgunblaðinu er örugglega inn- anum fólk sem styður Árna í fyrsta sæti og vill sjá breytingu þar. En þar er líka fólk sem styður hann bara í þriðja sæti en ekki ofar. Sjálf- ur gef ég ekki annað upp en ég styð hann í eitt af þremur efstu sætun- um,“ sagði Hreinn Loftsson hæsta- réttarlögmaður. „Nei, ég styð Árna ekki í fyrsta sætið því ég styð Ólaf G. Einarsson í það sæti,“ sagði Arnór L. Pálsson bæjarfulltrúi í Kópavogi. Hann sagðist hins vegar styðja Árna í eitt af þremur efstu sætunum. Ólafur Schram sagðist styðja Árna M. Mathiesen í öruggt sæti og fyrstu þrjú sætin væru örugg sæti. Hann styddi Árna í eitt af þeim og hefði ekki meira um það að segja. Helgi Hallvarðsson sagðist ekki vera að lýsa yfir stuðningi við Árna M. Mathiesen í fyrsta sæti þótt hann hefði skrifað upp á þessa yfir- lýsingu. Hins vegar styddi hann Árna í eitt af þremur efstu sætun- um, en hann vildi líka sem Kópa- vogsbúi sjá Sigurrós Þorgrímsdótt- ur fá góða útkomu úr prófkjörinu. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma er því harla lítill stuðningur við Árna í 1. sætið sem Ólafur G. Einarsson skipar. Þá er Árni ekki talinn ógna Salome sem er í 2. sæti og virðist því niðurstaðan vera sú Árni: Harla lítill stuðningur við hann í 1. eða 2. sætið á Reykjanesi. Heldur hann 3. sætinu? að barátta Árna snúist um að halda 3. sætinu frá síðustu kosningum.. Formenn ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna um Evrópusambandsmálin: Umræðan í trúarbragdastfl? Magnús Árni Magn- ússon, for- madur Sam- bands ungra jafnadar- manna: „Afstaða mín og alls Sam- Magnús Arni, 5anjs ungra SUJ: Framtíð ís- jafnaðarmanna lands best borgið [i| Evrópusam- innan Evrópu- bandsmálanna sambandsins. ætti að vera llestum kunn. Við teljum að fram- tíð íslands sé best borgið innan Evrópusambandsins. Island á að sækja um sem fyrst. Alþýðuflokk- urinn hefur nú tekið upp þessa stefnu SUJ að miklu leyti. Það er staðreynd að mörg sterkustu Evr- ópusambandsríkin, sérstaklega Þýskaland, munu taka vel í slíka umsókn. Svo ekki sé talað um bræður okkar á Norðurlöndum sem við gætum myndað með gífurlega áhrifaríkt bandalag innan sam- bandsins. íslendingar eru Evrópu- menn og í samfélagi Evrópuþjóða eigum við auðvitað heima. Það hryggir mig hinsvegar hvernig um- ræðan um þessi mál hér heima er komin á villigötur. Menn voga sér meira að segja, að lýsa því yftr að málið sé ekki einu sinni á dagskrá. Hvaða hagsmunir ráða hér ferð? Getur það verið að enn á ný taki menn pól forpokaðrar þjóðernis- hyggju í hæðina? Ég vona nú að málið fari að komast á vitrænt um- ræðustig hvað úr hverju. Innantóm- ar upphrópanir fylgjenda og and- stæðinga aðildar eru viðkomandi aðilum til lítils sóma. Það er ljóst að fyrr en við sækjum um aðild fáum við ekki úr því skorið hverskonar samningur okkur býðst. Slíkur samningur verður síðan lagður undir þjóðina. Þjóðin á að fá að skera úr um málið. Ekki misvitrir pólitíkusar. Ekkert getur verið lýð- ræðislegra. Hver heilbrigð sál sér það skýrum augum. Islendingar hafa allt að vinna í Evrópusam- bandsmálinu og öllu að tapa. Öllu. Hver vill sjá Island framtíðarinnar á köldum klaka þegar kemur að pólit- ískri ákvarðanatöku í álfunni?" Gudjón Ól- afur Jóns- son, for- madur Sam- bands ungra framsóknar- manna: „Ég hef nú alltaf verið frek- ar andsnúinn _ . Evrópusam- snumn Evropu- bandinu Það er sambandinu af aðaiiega af þjóðernisástæð- þjóðernisástæð- um- um. Menn geta alveg sagt að það sé forneskjuleg skoðun, en þessi skoðun á rétt á sér einsog aðrar. Ef við erum að tala um hugsanlega aðild þá er það Ijóst að mínu mati, að aðild felur í sér fullveldisafsal, sérstaklega að því er varðar þrískiptingu rfkisvaldsins. Aðild er bara eitthvað sem þjóðern- issinnar einsog ég geta ekki sætt sig við.“ Guðjón Ólafur, SUF: Ég er and- Helgi Hjörv- ar, formadur Verdandi - samtaka ungs al- þýdubanda- lagsfólks og óhádra: „Evrópusam- Helgi Hjörvar, bandsumræðan Verðandi: Evr- er í trúarbragða- ópusambands- stíl. í rauninni umræðan er í eru þetta tveir trúarbragðastíl. hópar sem glíma: Hinir heittrúuðu boðendur fagnaðarerindisins og efasemdar- mennirnir. Minnir óneitanlega til viðhorfið til Sovétríkjanna fyrr á öldinni. Spurt er: Brússel-ísland, óskalandið, hvenær kemur þú? í fyrsta lagi: Hagsmunir 250 þúsund íbúa í 350 milljón manna rfki munu ávallt víkja fyrir hagsmunum heild- arinnar. I öðru lagi: Enginn veit hvert Evrópusambandið stefnir og á næstu árum getur það þróast á mjög ólíka vegu. I þriðja lagi: Það er barnaskapur að viðurkenna ekki að 250 þúsund hræður sem tala eig- ið tungumál, eru landfræðilega fjarri meginlandinu og byggja af- komu sína á allt öðrum forsendum hafi ekki sérstöðu. I fjórða lagi: Hugmyndir um samning við NAFTA hljóta að fela t sér umtals- vert meiri möguleika. Niðurstaða: Málið er ekki aðkallandi. Við eig- um að gefa okkur nokkur ár til að fylgjast með þróun Evrópusam- bandsins. Við eigum að reyna til þrautar santninga við NAFTA. Og ennfremur, vegna þess að við vilj- um tengjast Evrópu sterkum bönd- um, eigum við að leita eftir auknu samstarfi við Evrópusambandið, til dæmis á sviði skóla og menningar- máia.“ Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, talsmadur ungra kvennalista- kvenna: „Það er lands- fundur hjá okk- Þórunn, Kvenna- ur f Kvennalist- lista: Ekki tilbúin annm eftir tfu að styðja aðildar- daga og þar umsókn á þess- verða Evrópu- ari stundu. sambandsmálin lil umfjöllunar. Það liggur nokkuð ljóst fyrir að einhverjar konur vilja breytingar á stefnunni og þar heyr- ist hæst í yngri konunum. Hreint út sagt er afar ólíklegt að einhverjar slíkar stefnubreytingar verði. Mín persónulega skoðun er sú, að við eigum að horfa opnum augum framá veginn og gera okkur grein fyrir því að þetta mál er á dagskrá og verður á dagskrá næsta kjör- tímabil. Eftir 1996 verða fslending- ar vissulega að ákveða hvernig við ætlum að haga samskiptum okkar við Evrópusambandið í framtíð- inni. Varðandi Evrópusambandsað- ildina sjálfa þá er ég ekki tilbúin að styðja hana á þessari stundu. Um- sókn er ekki ti'mabær." Gudlaugur Þór Gud- mundsson, formadur Sambands ungra sjálf- stædis- manna: „Mér finnst Guðlaugur Þór: Evrópusam- Brýnt að tryggja bandsumræðan hagsmuni íslend- svona almennt inga komi til að- einkennast af ildarumsóknar. miklum sveifl- um og taugaveiklun. Evrópuum- ræðan er mjög ung hér á landi, óþroskuð og sveiflast því gífurlega. Þetta er ekki nógu gott. Ég vildi sjái umræðuna þróast á vitrænan hátt; menn leggi málin kalt á borðið og spyrji spurninga einsog: Hvernig mun þróunin verða hjá samband- inu? Hvað mun koma útúr ríkjaráð- stefnunni 1996? Vilji menn sækja um aðild, hvernig er þá best hægt að gæta hagsmuna fslands? Þetta er stórt mál og einsog önn- ur slík í stjórnmálunum er það allt- af á dagskrá. Sú staðreynd hefur alltaf legið fyrir; málið hlýtur að vera á dagskrá til umræðu og skoð- unar með framtíðina í huga. Spurn- ingin um aðild er hinsvegar ekki brýn. Það er Ijóst að þrátt fyrir að við sækjum um á morgun þá fáum við ekki inngöngu fyrr en eftir ríkjaráð- stefnuna 1996. Ef við hinsvegar sækjurn um þá verður að sjá hvern- ig hagsmunir fslands verði best tryggðir." Fyrirspurn á Alþingi: Ekkert leyni- samkomulag - um Kfsiliðjuna, sagði Össur í svari til Jóhann- esar Geirs, og benti á að málið hefði verið upplýst í fjölmiðlum fyrir þremur árum. „Það var ekkert leynisamkomulag gert af hálfu ráðherra Alþýðuflokks- ins um málefni Kísiliðjunnar eða nokkurra annarra,“ sagði Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra, í svari til Jóhannesar Geirs Sigur- geirssonar, Framsóknarflokki, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Al- þingi í gær. Niðurstaðan um starfs- leyft verksmiðjunnar var þveit á móti kynnt í öllum fjölmiðlum á sín- um tíma. Ráðherrann rifjaði upp að fram- lenging á starfsleyfi Kísiliðjunnar vorið 1993 hefði verið viðkvæmt deilumál, og iðnaðarráðherra fengið leyftð framlengt til 2010. Náttúru- Jóhannes Geir: Oft verið aftarlega á merinni, sagði umhverfisráð- herra, en nú hefur hann hreinlega dottið af henni. vemdarráð, sem samkvæmt sérstök- um lögum um Mývatn og Laxá er mjög valdamikið um málefni svæð- isins, hefði fyrir sitt leyti ekki gert at- hugasemd við það. Forsenda afstöðu ráðsins hefði hinsvegar verið, að Eiður Guðnason, þá umhverfisráð- herra, myndi freista þess að leggja fram stjórnarfrumvarp sem lögbindi að vinnsluleyfið rynni út það ár. Það hefði ekki tekist vegna andstöðu í liði ríkisstjómarinnar. Össur kvað fráleitt að þetta hefði að nokkru farið leynt; þvert á móti hefði verið send út fréttatilkynning um iyktir málsins og þær að auki kynntar á fundi nyrðra og í þing- nefndum. Össur kvað Jóhannes Geir oft hafa verið aftarlega á merinni, en nú hefði hann hreinlega dottið af henni, með því að spyrja fregna af máli, sem hefði verið í öllum fjölmiðlum fyrir þremur ámm. Erlendar fréttir: Hvernig stönd- um vid okkur? Hvemig standa íslenskir tjölmiðlar sig í erlendum fréttaflutningi? Þessi spuming er yftrskrift ráðstefnu sem námsbraut í hagnýtri tjölmiðlun við Háskóla Islands stendur fyrir á laugar- daginn klukkan 14 f Logbergi. Gestir ráðstefnunnar verða Ásgeir Sverris- son fréttastjóri erlendra frétta á Morg- unblaðinu, Ásgeir Friðgeirsson rit- stjóri Iceland Review og Einttr Karl Haraldsson fyrrverandi ritstjóri Nor- disk Kontakt. Erindi þremenninganna taka tuttugu mínútur hvert og að þeim loknurn verða almennar umræður. Ráðstefnan er öllum opin. Meðal þeirra spurninga sem varpað verður fram em: Hvað stjómar fréttanrati? Hvaða heinrsmynd sýna Ijölmiðlar okkur? Eiga neikvæðir atburðir greið- ari leið inní fréttimar en þeir jákvæðu?

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.