Alþýðublaðið - 30.11.1994, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 30.11.1994, Qupperneq 1
Væringar sjálfstæðismanna á Norðurlandi vestra: ESB vann Vilhjálmi - segir Pálmi Jónsson á Akri, og kveður fjarri sanni að hann hafi grafið undan samþingmanni sínum. Vilhjálmur: Pálmi hefði bara notað eitthvað annað en Evrópumálin gegn mér ef þau hefðu ekki komið til. „Ég tel rétt að menn spari stóru orðin sem stundum er gripið til eftir prófkjör. Ég tek hinsvegar ekki nærri mér þótt eitthvað sé sagt í minn garð,“ sagði Pálmi Jónsson al- þingismaður í samtali við Alþýðu- blaðið í gær. Pálmi hefur um árabil verið oddviti sjálfstæðismanna í Norðurlandi vestra en dregur sig í hlé við kosnjngarnar í vor. Vil- hjálmur Egilsson, samþingmaður hans í kjördæminu, hefur látið þung orð falla um þátt Pálma í því að Hjálmar Jónsson náði efsta sætinu í prófkjöri um helgina. Vilhjálmur lenti í öðru sæti eftir harða baráttu. Pálmi fer ekki dult með að hann studdi Hjálmar, segist enda hafa fulla heimild til hafa skoðun á mönnum og málefnum." Pálmi hafnar því alfarið að hann hafi unn- ið gegn Vilhjálmi. En Vilhjálmur hefur aðra sögu að segja: „Þú getur einfaldlega hringt f menn sem hann talaði við. Ymsir af stuðningsmönnum mínum voru í þeim hópi. Skilaboð Pálma til þeirra voru skýr: Hann vildi ekki sjá mig á Iistanum.“ Að sögn Vilhjálms var ekki nóg með að Pálmi styddi Hjálmar Jóns- son í baráttunni um efsta sætið, heldur reyndi hann að koma í veg fyrir að Vilhjálmur héldi 2. sæti. Heimildamaður á Norðurlandi sem Alþýðublaðið talaði við, staðfesti að Pálmi hefði lagt að mönnum að kjósa Ágúst Sigurðsson á Geita- skarði í 2. sætið. Vilhjálmur Egilsson hefur lýst þeirri skoðun sinni að ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusamband- inu, og aðspurður kvaðst Pálmi telja að það hefði öðru fremur grafið undan Vilhjálmi í prófkjörinu. „Evrópumálin voru honum fjötur um fót, það heyrði ég á mönnum í kjördæminu. Vilhjálmur er greindur og dugmikill, og Evrópumálin voru helst notuð gegn honum.“ Vilhjálmur tekur undir að ESB- málin hafi verið notuð gegn sér en segir líka: „Pálmi hefði bara notað eitthvað annað gegn mér, ef þau hefðu ekki komið til.“ .. ... , , .. Þrátt fyrir þetta kvaðst Vl,hIalmur Egilsson: Palmi hafði samband við Pálmi, í samtalinu við menn og sa9ðist ekki vilía sía mi9 a Hstanum. blaðið, telja að Vilhjálmur Hann mun halda áfram að grafa undan mér. ætti að vera í 2. sæti list- A-mynd: E.ÓI. ans. „Það er ekki spurning. Úrslitin fram ásakanir um að framsóknar- eru skýr. í reynd var enginn sem sótti að þeim Hjálmari í tvö efstu sætin." En telur Pálmi vænlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjördæminu að hafa mann í baráttusætinu sem er yfirlýstur stuðningsmaður umsókn- ar að ESB? „Ég ætla að vonast til að það megi ganga vel. Ég leyni því ekki að ég er ekki sömu skoðunar og Vilhjálmur Egilsson." I kjölfar prófkjörsins hafa komið mönnum hafi verið smalað til að kjósa Hjálmar. Pálmi segir að það sé „fjarri öllu lagi. Þó ég hafi ekkert fylgst með, nema að litlum hluta, þá get ég fullyrt það.“ Vilhjálmur sagðist í gær ekki enn vera búinn að ákveða hvort hann yrði á listanum. „Það liggur ekkert á. Ég á rétt á þessu sæti. Pálmi mun hinsvegar halda áfram að grafa und- an mér. Það er alveg ljóst.“ Alþýðublaðið í dag Óttinn sigraði í Noregi Leiðari 2 Eyðimerkurganga vinstrimanna Einsog gengur 2 Alþýðuflokkur í pilsnerstyrk? Magnús Árni 2 Deyjum ekki úrfordómum! Hörður Torfason tónlistarmaður og Olga Guðrún Árnadóttir rithöfundur eru í landsliði íslenskra menningarvita sem fram kemur á fjölskylduskemmtun Alnæmissamtakanna og ÍTR í Kolaportinu á morgun, 1. desember, í til- efni alþjóðlega alnæmisdagsins. Alnæmissamtökin og ÍTR standa um þessar mundir isameiningu að átaksverk- efni á höfuðborgarsvæðinu gegn alnæmi; „Fjölskyldan gegn alnæmi - umræða án fordóma". Aðrir listamenn sem troða upp (og gefa vinnu sina) í Kolaportinu á morgun eru Borgardætur, Bubbi Morthens, Bubbleflies, Gys- bræður, íslenski dansflokkurinn, KK, Kolrassa krókríðandi, Möguleikhúsið, P.S., Páll Óskar og Milljónamæring- arnir, Rúnar Júlíusson, Sigfús Bjartmarsson, Sjón, Stefán Jónsson, Steinn Ármann Magnússon, Tweety, Unun og Þórarinn Eldjárn. Vert er að geta þess, að í tengslum við fjölskylduátakið gegn alnæmi standa 700 unglingar fyrir maraþon-áheita-dansleik í Kolaportinu í dag. - Sannarlega þarft og gott framtak þarna á ferðinni; málefni sem vert er að styrkja. A-mynd: E.ÓI. Breytingar á kosningalögunum til umræðu: Sífellt fleiri þing- menn aðhyllast eitt kjördæmi - segir Guðmundur Árni Stefánsson sem situr í viðræðunefnd um breytt kosningalög. „Það á að gera úrslitatilraun til að ná samkomulagi um breytingar á kosningalögunum, meðal annars til að jafna vægi atkvæða. Stefna Al- þýðuflokksins er skýr því við viljunt að landið verði eitt kjördæmi. Þeim þingmönnum annarra flokka sem koma fram með sömu sjónarmið fer stöðugt tjölgandi. En það á eftir að reyna á það hvort jafnvel verður hægt að ná þverpólitískri samstöðu á þess- um nótum," sagði Guðmundur Ámi Stefánsson alþingismaður í samtali við blaðið. Hann á sæti í viðræðunefnd sem ætlað er að leita samkomulags flokk- anna um breytingar á kosningalögun- um, en nefndina skipa tveir fulltmar frá hverjum stjómmálaflokki. Fyrsti fundur nefndaiinnar mun ráðgerður á föstudaginn. Guðmundur Ámi sagði að einkum Rannveig Guðmundsdóttir fé- lagsmálaráðherra gaf í gær út reglugerð um fjölgun gjalddaga á fasteignaveðbréfum húsbréfadeild- ar úr fjóruni í 12 á ári. Húsnæðis- málastjórn hefur einnig ákveðið að ný skuldabréf Byggingasjóð ríkis- ins og Byggingasjóðs verkamanna verði með mánaðarlegum afborg- unum frá og með 1. janúar ú næsta ári. Skuldurum eldri fasteignaveð- bréfa f eigu húsbréfadeildar verður nú einnig gefinn kostur á að fjölga hafi verið rætt um að jafna vægi at- kvæða og halda jöfnuði milli flokk- anna. Hann kvaðst hins vegar líta svo á að ekkert væri í veginum fyrir því að menn ræddu líka ieiðir til að auka möguleika kjósenda á að velja ein- staklinga ekki síður en flokka. „Það þarf tvennar kosningar til að koma á breytingum á kosningalög- um. Sitjandi þing þaif að samþykkja breytingu og síðan nýtt þing eftir að kosningar hafa farið frarn. Þú fyrst taka lögin gildi," sagði Guðmundur Ámi. Hann vildi engu spá um hvort sam- komulag næðist milli flokkanna á þessu þingi um breytingar á kosn- ingalögunum, en sagði að þótt sam- komulag næðist ekki fýrir jólafri væri möguleiki á samkomulagi eftir nýár fyrir þingslit. gjalddögum og greiða afborganir mánaðarlega. Það sama gildir um lántakendur sem tekið hafa lán hjá Byggingasjóði ríkisins eftir 1. september 1986 eða hjá Bygginga- sjóði verkamannaeftir l.júlí 1980. Mun Húsnæðisstofnun senda þeim tilkynningu unt það, ásamt eyðu- blaði til útfyllingar, sem endur- senda þarf stofnuninni ef lántak- andi óskar að fjölga gjalddögum í 12 á ári. Nýjar lánveitingar verða hins vegar allar með mánaðarleg- unt gjalddögum. Mandela - maður- inn og leiðtoginn 4 Jesús var slavi 4 Kosningaréttur: Helgasti réttur mannsins Guðmundur Odds- son 7 Éger saklaus - segir Guðmundur J. Guðmundsson um þátttöku í Þjóð- vaka. „Nei, ég hef ekki heyrt að ég sé að ganga til liðs við Þjóðvaka. Ég er saklaus af því,“ svaraði Guð- mundur J. Guðmundsson þegar hann var spurður hvort hann væri á leið í Þjóðvaka. Kvittur hefur komið upp þess efnis að formaður Dagsbnínar hyggði á þátttöku í Þjóðvaka en sá orðróntur er greinilega ekki á rök- urn reistur. Guðmundur J. Guð- mundsson var spurður hvort hann teldi Þjóðvaka verða hjálpræðis- her láglaunafólks. Hann kvaðst ekkert vilja ræða málið á þessu stigi. Húsnæðislán: Greitt af lánum 12 sinnum á ári - í stað þess að greiða afborganir á 3 mánaða fresti.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.