Alþýðublaðið - 30.11.1994, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER
MÞYÐIIBLMS
20831. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Ottinn sigraði
Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Noregi eru mikið áfall fyrir
ráðandi öfl í norskum stjórnmálum jafnt á hægri og vinstri
væng stjómmálanna. Sérstaklega er áfallið mikið fyrir ríkis-
stjóm Noregs og mikil persónuleg vonbrigði fyrir Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra. Þar sem þetta er í annað sinn sem
Norðmenn fella aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæða-
greiðslu er ólíklegt að reynt verði aftur næstu árin. Norðmenn
verða því að lifa við þessa niðurstöðu um ókomna tíð og laga
sig að henni jafnt pólitískt sem efnahagslega. Enginn vafi er á,
að slíkt verður erfitt þegar fram í sækir.
Óttinn við yfirþjóðlegt vald ESB virðist hafa ráðið mestu um
úrslitin. Gamlar hugsjónir um sjálfstæði og fullveldi, ásamt
hræðslu við ólýðræðislegt „bákn“ í Bmssel höfðu mikil áhrif,
sérstaklega meðal eldri kjósenda. Mikill meirihluti kvenna var
andsnúinn aðild og taldi hana grafa undan stöðu sinni og vel-
ferðarríkinu. Andstaðan við aðild var einnig mismikil eftir
svæðum. A þéttbýlissvæðum í suðri, sem mestra hagsmuna
áttu að gæta af því að ganga í ESB, var fylgið mun meira við
aðild en í dreifbýlinu norðar í landinu. Að mati kjósenda var
sjávarútvegssamningur Norðmanna og ESB greinilega ekki
nægilega góður. í heildina verður þó að segja að það hafi ekki
verið málefnin, heldur óttinn við ESB sem hafi sigrað í Noregi.
Það er ekki gæfulegt fyrir Norðmenn, að vera eina vestur- evr-
ópska ríkið utan ESB að íslandi einu frátöldu. Það er fráleitt
með öllu að slík staða geri Noreg sjálfstæðara ríki en ella.
Landið er nú viðskila við nágranna sína og áhrifalaust með öllu
á þróun mála innan Evrópu. Einn helsti styrkur Norðurlanda
átti að vera samvinna þeirra og samstaða innan ESB. I þessu
efni átti að byggja á langri hefð í samstarfi Norðurlandanna og
víst er að mikill árangur hefði náðst með slíku samstarfi. Þessi
samstaða er nú rofin og þróun norrænnar samvinnu í mikilli
óvissu. Við aðlögun Noregs að nýjum aðstæðum geta þeir ekki
búist við miklum skilningi á hagsmunamálum sínum hjá Evr-
ópusambandinu. Auðvitað verður Noregi ekki refsað fyrir
ákvörðun sína, en þeir geta heldur ekki búist við neinum sér-
stökum tilslökunum af hálfu ESB.
Á upprisunnar mikla morgni
Sjálfseyðingarhvöt vinstrimanna sig að eina
er verðugt athugunarefni fyrir sál- vinstrimanna
fræðinga. Hversu mörg samtök og sameiningin
flokkar hafa ekki verið stofnuð í sem hún
þeim fróma tilgangi að verða móð- Brynjólfur
urskip nýrrar vinstrihreyfingar?
Hversu margir hugsjónamenn hafa
ekki tekið að sér að gerast messías-
ar langþráðrar samfylkingar; vopn-
aðir giitrandi vonum og vígorðum.
Sfðustu áratugir hafa skapað eft-
irfarandi hefð: Þegar sameina skal
jafnaðarmenn er fyrsta skrefið að
kljúfa Alþýðuflokkinn.
Sumir af litríkustu og ágætustu
foringjum_______________________________
manna hafa EÍnSOg gengUr
lífsvon
væri
- hvað
kostaði.
Bjarna-
Hrafn
Jökulsson
skrifar
sagt skilið
við flokk-
inn, og lagt
af stað á vit
fyrirheitna
landsins.
Engum hef-
ur tekist______________________
æ 11 u n a r -
verkið. Allar hafa ferðirnar endað
einhversstaðar í eyðimörkinni.
Örlög Hédins
Dómar sögunnar eru ekki alltaf
ígrundaðir eða rökstuddir. Ég hef
að minnsta kosti ekki rekist á víð-
hlítandi skýringu á því, hversvegna
Héðinn Valdimarsson, þáverandi
varaformaður Alþýðuflokksins,
gekk til liðs við kommúnista árið
1938. Kannski var þetta örlagarík-
asti atburður allrar sögu flokksins;
hann gerði útum vonir um að tak-
ast mætti að efla einn stóran flokk
jafnaðarmanna á Islandi h'ktog á
Norðurlöndum. A fjórða áratugn-
um mældist fylgi Alþýðuflokksins
einatt miili 30 og 40%. Síðan hefur
ílokkurinn lengstaf háð varnarbar-
áttu .smáflokksins.
Hvaða samleið átti Héðinn
Valdimarsson með Kommúnista-
flokki íslands? Hver var hinn mál-
efnalegi grunnur Sósíalistaflokks-
ins sem þeir stofnuðu í sarnein-
ingu? Hver voru hin sameiginlegu
pólitísku baráttumál Héðins og
Brynjólfs Bjarnasonar?
Héðinn fékk sjálfur svör við
þessum spurningum einu ári eftir
að hann stofnaði til sameiningar-
flokks alþýðu: Millum hans og
kommúnistanna var óbrúanleg gjá.
Héðinn hrökklaðist úr selskapnum
með klofinn hjálm og rofinn
skjöld. Pólitískum ferli Héðins var
lokið 1939 en Alþýðuflokkurinn
var þá varanlega laskaður, enda í
höndum forystumanna sem ekki
nutu mikillar pólitískrar stríðs-
gæfu.
Snýst pólitík
bara um tHfinningar?
Hver voru mistök Héðins? Ég
held að þau hafi einfaldlega verið
fólgin í því, að til samfylkingar var
efnt einvörðungu samfylkingarinn-
ar sjálfrar vegna. Stefnumál hans
sjálfs, hugsjónir Iýðræðisjafnaðar-
stefnunnar, voru vegin og léttvæg
metin. Héðinn var eldheitur hug-
sjónamaður, og virðist hafa bitið í
son, fskaldur og
stefnufastur í komm-
únískum rétttrúnaði,
fékk að móta stefn-
una, taka kúrsinn.
Þegar Héðinn átt-
aði sig á mistökunum
var of seint að snúa
við. Pólitísk örlög
hans voru dapurleg
og harm-
söguleg.
H vaða
lexíu get-
um við
lært af
d æ m i
Héðins?
M e ð a 1
annars þá
_________ að pólitík
er því
miður ekki alveg ein-
sog ástin: Hún snýst
ekki fyrst og fremst
um tilfinningar fólks,
einsog Agúst Einars-
son, sá mæti jafnað-
armaður, hélt fram á
stofnfundi Þjóðvaka.
Héðinn lét tilfinning-
arnar hlaupa með sig
í gönur: hann trúði
því að hann væri
þjóna göfugum mál-
stað þegar hann efndi
til samfylkingar - en í
reynd var hann að
greiða hugsjónum
jafnaðarstefnunnar
þungt högg.
Grunnur loft-
kastalans
Ég veigra mér við
að kalla Héðin Valdi-
marsson skýjaglóp,
en alltof oft eru ís-
lenskir vinstrimenn
óendanlega óraunsæir
í íoftkastaiabygging- skýjaelóp, en alltof oft eru íslenskir vinstrimenn
um sinum þegar sam- J J ° 1
eína á jafnaðarmenn, óendanlega óraunsæir í loftkastalabyggingum sín-
félagshygojufólk *■*'
vinstrisinna aiia þi um þegar sameina á jafnaðarmenn, félagshyggju-
erú^hiaðnh - fþennan fólk, vinstrisinna - alla þá sem erfiði og þunga eru
tiokk. °gHvInæ8rÞráer hlaðnir - í þennan eina og langþráða flokk. Hve-
byrjað á grunninum? nær er byrjað á grunninum? Spurt um hvað menn
Spurt um hvcið menn J J ^ 1
eigi að sameinast - eigi að sameinast - annað en að öll dýrin í skógin-
annaðen aðöll dýrin í . . „ . .
skóginum eigi að vera um eigi að vera vinir.
vinir.
Héðinn, Hannibal, Vilmundur úrulögmál: tilvist flokksins er ekki
markmið í sjálfu sér.
Ég veigra mér við að kalla Héðin Valdimarsson
Hannibal, Vilmundur
og Jóhanna. Þvflíkt gallerí af tal-
enti, einsog maðurinn sagði. Öll
kusu þau að hefja sameiningu jafn-
aðarmanna á því að kljúfa Alþýðu-
flokkinn. Allar hafa tilraunirnar
runnið útí sandinn - sagan segir
okkur að jafnvel Þjóðvaki muni
einnig verða eyðimerkursandinum
orpinn. Annað mál er svo, að til-
vera Alþýðuflokksins er ekki nátt-
Ást og stríd
Allt er leyfilegt í ástum og stríði,
stendur þar, og mín reynsla bendir
til þess að það sé talsvert til í því.
Engir verða grimmari fjendur en
fyrrum samherjar, það er lfka al-
kunna. Vonandi munu samt al-
þýðuflokksmenn ekki líta á Jó-
hönnu Sigurðardóttur og núver-
andi samherja hennar sem helstu
óvini jafnaðarstefnunnar - og öf-
ugt. Það væri mikil firra. Menn
ættu frekar að láta sig dreyma um,
að allir þjáðir jafnaðarmenn hittist
á upprisunnar mikla morgni - þeg-
ar stofnuð verður breiðfylkingin
stóra utanum stefnumál en ekki
sært stolt eða pólitíska paník.
Ákvörðun Norðmanna mun hafa mikil áhrif á stjómmál hér-
lendis og aðlögun okkar að ESB. Norskir stjórnmálamenn létu
mjög óvarleg orð falla um EES-samninginn og töldu hann lítils
virði. Gildi hans fyrir Noreg er hins vegar ómetanlegt í þeirri
stöðu sem þeir em í í dag. Á þessari stundu er óvíst hvort synj-
un Norðmanna hefur einhver áhrif á aðlögun EES- samnings-
ins að því að flestar aðildarþjóðimar eru gengnar í ESB. Hugs-
anlega hefði það verið betra fyrir íslendinga eina, að aðlaga
stofnanaþátt samningsins að nýjum aðstæðum.
Hugsanleg aðild íslendingar að ESB verður áfram á dagskrá ís-
lenskra stjómmála, niðurstaðan í Noregi breytir engu þar urn.
Við verðum að meta það út frá okkar eigin hagsmunum líkt og
Svíar og Finnar hafa gert. Niðurstaðan í Noregi minnkar þó
óneitanlega þann pólitíska og sjálfstæða þrýsting sem var á því
að Islendingar gerðu upp hug sinn hið fyrsta í þessu máli. Al-
þýðuflokkurinn mun fyrir sitt leyti taka afstöðu til aðildarum-
sóknar á aukaflokksþingi í janúar næstkomandi.
Dagatal 30. nóvember
Atburdir dagsins
1900 Skáldið, lífsnautnamaðurinn
og háðfuglinn Oscar Wilde deyr í
París, 46 ára gamall. 1919 Konur fá í
fyrsta skipti að kjósa í Frakklandi.
1957 Hetjutenórinn Benjamino
Gigli, arftaki Carusos, deyr. 1983
Hollenska bjórjöfrinum Alfred
Heineken rænt í Amsterdam.
Afmælisbörn dagsins
Mark Twain bandanskur rithöfund-
ur og háðfugl, 1835. Winston
Churchill enskur stjómmálamaður,
forsætisráðherra á seinni stríðsárum
og Nóbelshafi í bókmenntum, 1874.
Virgina Mayo bandarísk kvik-
myndaleikkona, 1920.
Annálsbrot dagsins
Brotnaði tyrkneskt skip undir Snæ-
fellsjökli. Komst enginn lífs af.
Hafði verið stórt skip, járnslegið of-
an. Spurðist seinna af dönskum, að
þeir hefðu ætlað að ræna þar landið,
en þeir brutu sig á skeri um nótt og
drápust svo.
Setbergsannáll, 1530.
Málsháttur dagsins
Þeir segja mest af Olafi kóngi sem
hvorki hafa heyrt hann né séð.
Líffrædi dagsins
Reiði hvers manns er í galli en líf í
hjarta. minni í heila, metnaður í
lungum, hlátur í milti, lystisemi í lif-
ur.
Fóstbræðra saga.
Lokaord dagsins
Ég dey einsog ég hef lifað: Um efni
fram!
Hinstu orð Oscars Wildes, mælt eftir að hann
hafði pantað kampavín á veitingahúsi í París,
þennan dag fyrir 94 ámm.
Orð dagsins
Gœfun btíða beri þig
brjóstci þinna milli,
vcmti þig aldrei eins og mig
cmð og manna hylli.
Kristján Jónsson Fjallaskáld.
Skák dagsins
Þá er komið að skák sómapiltanna
Mitkovs og Summermatters.
Mitkov hefur hvítt og er, einsog les-
endur sjá, tveimur mönnum undir en
á þess kost að sálga biskup á b3.
Hann hafði ekki minnsta áhuga á
slíkum smámunum en ákvað í stað-
inn að máta í fjórum leikjum. Spun
er: Hvemig?
1. Bxh6! gxh6 2. Dxh6+! Bxh6 3.
Hg7+ Kh8 4. Hh6 mát Sætl og
sóðalegt!