Alþýðublaðið - 30.11.1994, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Erfiður dagur
Þetta er einkennilegur dagur og
ekki auðvelt fyrir mig að stinga nið-
ur penna. Flokkurinn minn fer æ
neðar í skoðanakönnunum og nálg-
ast nú hraðbyri „pilsnerfylgið" eins
og orðhcppinn maður hér á rit-
stjórninni sagði (er raunar kominn
niður í það í Reykjavíkurkjördæmi,
2,6% samkvæmt skoð- mmm—mmm
anakönnun Gallup).
Norðmenn höfnuðu að-
ild að Evrópusamband-
inu í gær (þessvegna er
„málið ekki á dag-
skránni“ hjá mér í dag)
og forsætisráðherra er í
heimsókn í Kínaveldi
að klóra fjöldamorð-
ingjanum Li Peng á
bakinu. Skál, ská! fyrir hinu mikla
veldi stúdentadráparanna í Beijing.
Enn ein frétt vakti athygli mfna.
Forsíðufrétt Alþýðublaðsins í gær,
um að varaformaður flokksins míns
ætlar að taka þátt í jólabókaflóðinu
og gefa „greinargerð félagsmála-
ráðherra" út innbundna í bókarkápu
og bæta safaríkri innanbúðarvitn-
eskju við hana; segja frá leynifund-
unum og plotti allra vondu kallanna
í þjóðfélaginu sem urðu til þess að
framahraðbátur Flafnfirðingsins
steytti á skeri. Það verður vafalaust
yndislegt og uppbyggjandi innlegg í
komandi kosningabaráttu, Alþýðu-
flokksins - Jafnaðarmanna 11 okks
Islands.
Ljósi punkturínn
Einn er þó ljós punktur í öllu
svartnættinu og það er hinn nýi fé-
lagsmálaráðherra okkar Islendinga.
Þar er kona hvers hæfileikar hafa
allt of lengi fengið að liggja í þagn-
argildi vegna framapots karlanna
allt um kring. Þar kom að því að Al-
þýðuflokkurinn ákvað að nýta sér
hæfileika Rannveigar Guðmunds-
dóttur og reynslu, þjóðinni til heilla.
Rannveig sýndi það þegar hún var
leiðtogi okkar jafnaðarmanna í
Kópavogi að hjarta hennar slær
réttu megin og flokkssystkin okkar
á Norðurlöndum hafa þekkt þar aft-
ur einn af sfnum og falið henni for-
ntennsku í þingntannahópi jafnað-
armanna í Norðurlandaráði, sem er
vitaskuld stærsti þingmannahópur
Norðurlanda, svo og formennsku í
veigamestu
nefnd Norð-
urlandaráðs,
Menningar-
málanefnd.
En enginn er
spámaður í
sfnu föður-
landi. Annað
sem vert er
að taka til er
Pallborðið
Magnús Arni
Magnússon
i skrifar
hið aukna líf innan kvennahreyfing-
ar Alþýðuflokksins. Það vekur von-
ir um bjartari framtíð. En gleymið
því ekki stelpur, að þið þurllð að
berjast nteð kjafti og klóm, því þið
munið ekki fá neitt gefins hjá okkur
körlunum f flokknum. Verið
ALLTAF með kandidat í öll emb-
ætti innan flokksins og í sæti á list-
um. Minnimáttarkenndin hefur
aldrei verið leiðin til afreka.
Ó, þú fagra flokkakerfi
Ég dreg enga fjöður yfir þá skoð-
un mína að mér þykir flokkakerfið á
Islandi vera komið að fótum fram.
Þar breytir engu flokksstofnun fé-
laga minna Sigurðar Péturssonar og
Ólínu Þorvarðardóttur. Það að enn
einn flokkurinn bætist f þann
skrípaleik gerir hann bara dapur-
legri. Við höfum ekki neinn grund-
vallarágreining á vinstri vængnum
lengur og því er engin þörf fyrir alla
þessa stjórnmálaflokka. En ég geri
mér jafnframt grein fyrir því að því
verður ekki breytt fyrir næstu Al-
þingiskosningar. Þær verða sóknar-
barátta fyrir Sigurð og Ólínu, en
varnarbarátta fyrir Alþýðuflokkinn,
Alþýðubandalagið og Kvennalist-
ann. Við verðum svo að spá í spilin
eftir kosningar og sjá hvað hver
leikmaður hefur á hendi.
Hægri stjórn eftir
kosningar
Ef við horfum á hagsmuni ís-
lensku þjóðarinnar í stærra sam-
hengi en til næstu fjögurra ára. (en
það gera stjórnmálamenn aldrei) þá
má hugsa sér að hægri stjórn þeirra
Halldórs Asgrímssonar og Davíðs
Oddssonar yrði gagnleg til að skýra
línurnar í pólitíkinni. I stjórnarand-
stöðu yrðu Alþýðuflokkur, Þjóð-
vakinn, Alþýðubandalag og
Kvennalisti. Ekki er ólíklegt að inn-
an Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags verði ákveðin kynslóðaskipti í
forystunni, sérstaklega ef flokkarnir
eru utan stjórnar. I Kvennalistanum
eru að komast til áhrifa ungar konur
sem hafa fengið blóðbragð valdsins
á tunguna í gegnum Reykjavíkurl-
istann og ég þekki Sigurð og Ólínu
það vel að ég veit að þau vilja ekk-
ert frekar en sameiningu vinstri
manna (en flokksstofnun þeirra er
einlæg viðleitni í þá átt, þó sagan
hafi sýnt að aðferðin er út í hött).
Framsóknarmenn skilgreina sig
margir sem félagshyggjumegin og
þeim ntun svíða stjómarsamstarfið
við Sjálfstæðisflokkinn. rétt eins og
Alþýðuflokksmönnum hefur sviðið
það þetta kjörtímabil. Vafalaust
yrði þetta líka hin versta stjórn.
Sjálfsagt á núverandi stjórnar-
mynstur einna stærstan þátt í erfið-
leikum þeim sem Alþýðuflokkurinn
á við að glíma við að skilgreina sig í
huga þjóðarinnar sem hinn eina
sanna jafnaðannannaflokk á Is-
landi. En, eins og þeir sögðu hér í
Danaveldi í gamla daga: „den tid
den sorg.“ í dag er vitaskuld fullur
tjandskapur milli allra aðila eins og
vera ber í aðdraganda kosninga. Ég
vona bara að menn beri gæfu til
þess að nota föstu skotin á hinn
raunverulega óvin: Málsvara for-
réttindastéttanna. Þennan sem þing-
„Þetta er einkennilegur dagur og ekki auð-
velt fyrir mig að stinga niður penna.
Flokkurinn minn fer æ neðar í skoðana-
könnunum og nálgast nú hraðbyri
„pilsnerfylgið" eins og orðheppinn maður
hér á ritstjórninni sagði (er raunar kom-
inn niður í það í Reykjavíkurkjördæmi,
2,6% samkvæmt skoðanakönnun Gall-
up)...Einn er þó Ijós punktur í öllu svart-
nættinu og það er hinn nýi félagsmálaráð-
herra okkar íslendinga.“
mennirnir okkar kalla í daglegu tali
„samstarfsflokkinn". Þannig gætum
við hugsanlega forðast „pilsnerinn"
á landsvfsu._______________________
Höfundur er heimspekinemi og situr í
framkvæmdastjórn Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks Islands.
Millistétt
dagsins
„Þar eð nú er ekki kostur á,
eða mun verða um hríð, að
koma upp þess konar nieðal-
stétt á Islandi, sem er í öðrum
lönduin, þá er auðsætt að
bændastéttin h,já oss verður að
gánga í meðalstéttarinnar stað.
En ef hún á að geta það með
sóma og iandinu til heilla, þá
verður hún að sjá sér fyrir
menntun. Bændur eru nú þeg-
ar kallaðir til sveitarstjórnar,
sættanefnda og ráðgjafar á al-
þingi um nokkur atriði í lögum
og stjórn landsins; vér erum
vissir um, að enginn muni reið-
ast því, þó vér ímyndum oss, að
inargir þeir beztu hafi játað
með sjálfum sér, að þá skorti
menntun til að gegn slfkri köll-
un vel sein þeir vildu og að þeir
hafi óskað, að sér hefði veizt
færi á að nema meira í æsku
sinni.“
- skrifar Jón Sigurðsson [forsetil í
ritgerð sinni um skólamál í IMýjum
félagsritum árið 1849.
Sóknarböm Grenjaðar-
staðarprestakalls sáu
mjög eftir séra Þóri Jökli
Þorsteinssyni, en hann
sigraði í prestkosningum á
Selfossi snemma í haust
einsog frægt varð. Grenjað-
arstaður var auglýstur laus
til umsóknar en aðeins einn
sótti um, séra Ólafur Þór-
isson. Sóknamefndin kaus
hinsvegar að hafna umsókn
hans og hefur kallað séra
Sigurð Ægisson til starfa
frá Noregi. Hann hefur
þjónað sóknarbömum í
Norður-Noregi að undan-
förnu - en ekki fylgir sög-
unni hvort skipulagðar
voru í sókn hans sérstakar
bænastundir gegn ESB
einsog sumstaðar við-
gekkst...
Samkeppni Morgun-
póstsins og DV fer nú
harðnandi, þótt DV keppist
raunar við að láta einsog
Morgunpósturinn sé ekki
til. Morgunpóstsmenn hafa
nú gert innrás á fengsæl
smáauglýsingamið DV, en
það er sannkölluð gullnáma
þarsem ntiklir peningar eru
í húfi. Samkvæmt nýlegri
könnun náði Morgunpóst-
urinn til liðlega 10% les-
enda. A þeint bæ þótti
mönnum sem sú tala kæmi
ekki heim og saman við
seld eintök og efndu því til
eigin könnunar. Við heyr-
um að niðurstaða hennar sé
talsvert önnur: Að um
fjórðungur blaðalesenda
sjái Morgunpóstinn reglu-
lega. Samkvæmt þessu em
Páll
Magnús-
son og
Gunnar
Sniári
Egilsson
ritstjórar
á réttri
leið - eða
pósturinn Páil & köttur-
inn Njáll einsog þeir em
víst kallaðir þessa dag-
ana...
Hinumegin
Yntsir fróðleiksfúsir ís-
lendingar hafa kvartað
yfir því að ævisagnaflóran
sé nú fáskrúðugri en einatt
áður. Víst er um, að færri
ævisögur og samtalsbækur
koma út fyrir jólin en síð-
ustu ár. Nú í vikunni kom
bók sem margir spá vel-
gengni og jafnvel toppbar-
áttu á metsölulistum: bók
leikhúshjónanna Brynju
Benediktsdóttur og Er-
lings Gíslasonar. Þau
fjalla unt aragrúa af frægu
fólki og það vekur alltaf
forvitni...
Dvergavestri...
Viti menn
Ég átti eiginlega mest við það
að glíma að fólk vildi ekki að
ég færi úr prestskapnum.
Séra Hjálmar Jónsson um sigur sinn í
prófKjöri Sjáifstæöisflokksins á
Norðurlandi vestra. Mogginn í gær.
Gaman hefði þó verið að skíra
nýja flokkinn Örkina. Það
hefði gefið tvíbenta yfírlýsingu
um Jóhönnu af Örk og um
björgun úr yfirvofandi synda-
flóði stjórnmálanna.
Jónas Kristjánsson. Leiðari DV í gær.
Varla þarf að orða það beint
en skal þó gert: Kvæði 94 eru
meðal helstu tíðinda þessa
bókmenntaárs.
Ritdómur Jóhanns Hjálmarssonar um
nýja Ijóðabók Kristjáns Karlssonar.
Moggirin í gær.
Ég óttast að það muni fljótlega
verða þreifíngar um að
Jóhanna gangi aftur inn í
Alþýðuflokkinn.
Halldór Ásgrímsson í Tímanum í gær.
Meðal nýrra stuðningsmanna
hennar (Jóhönnu Sigurðar-
dóttur) eru kunnugleg andlit,
sem ekki hafa náð árangri
innan eigin flokka, í samræmi
við væntingar.
Leiðari Morgunblaðsins í gær.
Það var sérkennileg reynsla að
sitja á fundi Þjóðvaka og
hlusta á Ágúst Einarsson pró-
fessor í hlutverki einhvers
boðbera lítilmagnans... Ég er
nú nokkuð kunnug viðhorfum
prófessorsins til kjaramála
síðan við sátum að
samningaborði fyrir nokkrum
misserum.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
varaforseti ASl. Tíminn í gær.
Við vöknuðum í frjálsu landi í
morgun!
Ónefndur glaðbeittur Norðmaður um
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
DV í gær.
Sorpritið Pressan hóf
ofsóknirnar á hendur
Guðniundi Árna í sumar og er
varla vert að nefna það blað,
þarsem ekki er beinlínis hægt
að segja að pennar þess hafi
margir hverjir verið í háum
gæðafíokki.
Rúna Guðmundsdóttir markaðsfulltrúi.
Aðsend grein í Mogganum í gær.
Fimm á förnum vegi
Á ísland að sækja um aðild að ESB?
Karl Pétur Jónsson, háskóla-
nemi:Já. Þannig tel ég að hag lands-
ins verði best borgið.
Kolbrún Ólafsdóttir, verslunar-
maður: Ég held ekki.
Steindór Halldórsson, bílstjóri:
Já, auðvitað. Það er bara svo einfalt.
Hafliði Helgason, nemi: Það á að
skoða þann möguleika, óháð afstöðu
Noregs.
Gísli Ólafsson, nemi: Já, viðeig-
um að sækja um og láta reyna á sjáv-
arútvegssamninginn.
Það getur verið erfitt fyrir
stjórnmálamenn með langan
feril að baki að sannfæra
kjósendur um, að þeir hafl
eitthvað nýtt fram að færa, að
ekki sé talað um, að þeir séu
fulftrúar nýs afls í íslenskum
stjórnmálum. Var nokkuð
nýtt í ræðu Jóhönnu á
fundinum í fyrradag.
Víkverji Morgunblaðsins (gær.
Vissulega hefur Jóhanna safn-
að um sig hjörð hlaupastráka
og landshornalýðs, en óvíst er
hinsvegar með ölfu að
almættið sé í hennar liði.
Garri Tímans í gær.