Alþýðublaðið - 30.11.1994, Page 4

Alþýðublaðið - 30.11.1994, Page 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER Erlend hringekja Hver er Nelson Mandela? Bandaríkjamaðurinn Richard Stengel, einn af ritstjórum tíma- ritsins Time, hefur um langt skeið dvalist í Suður-Afríku með Nelson Mandela við smíð sjálfsævisögu hans,“Long Walk to Freedom", sem kemur út í lok þessa mánaðar. í síðasta tölu- blaði tímaritsins The Spectator skrifar Stengel afar fróðlega grein, segir þar af nánum kynnum sínum við mikilmennið og leitast við að svara spurningunni: Hver er Nelson Rolihlahla Mandela? Nelson Mandela elskar dagblöð. Hann les þau hægt og yfirvegað, veltir fyrir sér hverri einustu grein og flettir blaðsíðunum með flýtislausri nákvæmni. I fangelsinu á Robbeneyju var honum meinaður aðgangur að dagblöðum þannig að dálætið er skiljanlegt. Mestallan tíma ílugleiðar okkar frá Natal var Man- dela niðursokkinn í helgarútgáfu dagblaðsins Johannesburg Star. Eg sat andspænis honum í þröngri og illa farinni tjögurra sæta flugvél sem komin var nokkuð vel við aldur. Þetta var í apríl 1993: Ég hafði þá dvalið í Suður- Afríku um fimm mánaða skeið og unnið að sjálfsævi- sögu Mandela. Þegar við áttum aðeins tuttugu mínútna flug ófarið að flugvellinum hallaði Mandela sér fram og bankaði laust í hnéð á mér. Ég leit upp og hann benti mér á að gægjast útum flugvélargluggann. Ég varð flemtri sleginn við sýnina sent blasti við: Annar hreyfillinn var ekki í gangi og blakti í vindinum. „Æi, Richard," sagði Mandela í hlutleysistón þess sem ekkert haggar, „viltu vera svo vænn að láta flugmanninn vita af því að annar hreyfíllinn virðist vera í ólagi...“ Ég stóð skjálfandi uppúr sæti mínu og var að mjaka mér áleiðis að flugstjómarklefanum þegar ég hitti aðstoðarflugmanninn sem var á leið- inni til að tilkynna okkur um ástand- ið; að flugumferðarstjórn flugvallar- ins hefði verið látin vita og neyðar- bílar hefðu stillt sér upp og væru til taks við flugbrautina. Flugmaðurinn tjáði okkur ennfremur að hann gerði ekki ráð fyrir að hreyfilsbilunin myndi leiða til alvarlegra vanda- mála. Allt ætti að vera í stakasta lagi og flugvélin gæti auðveldlega lent með öðrum hreyflinunt. Sú vissa, að fyrir utan gluggann væri bilaður og gagnlaus hreyfill jók aðeins á hræðslu mína og óróleika. I stað þess að kíkja á blöðin eða horfa útí loftið þá starði ég staðfastlega á rólyndislegt andlit Nelson Rolihla- hla Mandela: Hann virtist ekki hafa meiri áhyggjur af lífi sínu og tilveru en vegfarandi sem beið eftir nokkr- um mínútum seinkaðri morgunlest- inni er flytja myndi hann til vinnu. Andlit Mandela og yfirbragð róaði Sýknaður: Árið 1961, eftir rúmlega fjögurra ára ofsóknir stjórnvalda fyrir dómstólum, voru Mandela og meðsakborningar hans sýknaðir eftir fyrstu landráðaréttarhöldin. Winnie sést í baksýn. mig. Hann hélt áfram að lesa dag- blaðið sitt. Fimmtán mínútum síðar lenti flugmaðurinn vélinni heilli á höldnu innan um hafsjó af neyðarbflum. Ekkert fór úrskeiðis í lendingunni. Allan þann tíma sem þessi þolraun stóð yfir var andlit Mandela ein gríma rólyndis og festu; fullkomin afslöppun. I flugstöðinni hálftíma síðar - eftir að hann hafði tekið í hendur helstu virðingarmanna á staðnum - hallaði hann að sér og hvíslaði í eyra mitt: „Maður lifandi, mikið ofboðslega var ég hræddur þama uppí háloftunum.“ Madurínn og gríman Ég dvaldi bróðurpart síðasta árs í Suður-Afríku og hitti Mandela næst- um uppá hvem einasta dag. annað- hvort á stflhreinni og formlegri skrif- stofu hans í höfuðstöðvum Afríska þjóðarráðsins eða á heimili hans í Houghton, einu úthverfa Jóhannes- arborgar. Einsog allir þekkti ég hina opinberu ásýnd Mandela; brosandi afann, göfugu frelsishetjuna og al- varlega leiðtogann. Atvikið í flug- vélinni var eitt af örfáum skiptum sem ég hafði séð glitta í einhvem annan persónuleika en þann opin- bera sem allir kannast við. Það var þarna uppí háloftunum sem ég uppgötvaði að sá stolti og þokkafulli persónuleiki sem Man- dela hefur fullkomnað og hlaðið sem múr kringum sig er því sem næst án misfellna: Maðurinn og gríman em eitt. Það er staðreynd, að maðurinn „fann upp sjálfan sig“ við erfiðustu kringumstæður sem nokkur getur reynt. Mandela hefur nokkrum sinn- um ságt mér frá tilvikum í fangavist- inni þegar hann var hræddur - óttað- ist á sig yrði ráðist - og setti upp grímu sýndarhugrekkis eða skeyt- ingarleysis til að villa um fyrir yfír- völdum og stappa stálinu í meðbræð- ur sína. Eddie Daniels, samfangi Mandela á Robbeneyju, dvaldist í Líf: Mandela horfir út á milli rimlanna í gamla klefanum sinum á Robbeneyju. Hann segir í sjálfsævisögu sinni að hann hefði aldrei búist við að þurfa sitja í fangelsi til dauðadags. klefa andspænis honum og hefur sagt mér frá því, að hann hafi dundað sér við það til hughreystingar dagana langa, að fylgjast með Mandela ganga teinréttum með stoltu yfir- bragði um svæðið. Lærdómurinn sem af öllu þessu má draga, er að hugrekki felst ekki í óttaleysi heldur æðruleysi; að dylja óttann fyrir öðrum. Konunglegt uppeldi En persónuleiki Mandela er einnig tilkominn af erfðum. A þeirri stundu sem ég hóf vinnu mína með Mandela að sjálfsævisögu hans bentu nokkrir kollegar hans mér á, að gleyma ekki að hann er sonur ættflokkshöfðingja af hinni konunglegu Xhosa-ljöl- skyldu. Þessir kollegar Mandela sögðu mér, að vegna uppruna síns getur hann verið bæði þóttafullur og yfírgangssamur. Ég bandaði þessum vamaðarorð- um frá mér í fyrstu, en eftir því sem tími minn með Nelson Mandela lengdist, þeim mun betur gerði ég mér grein fyrir því, að sjálfstraust hans og sjálfsmat; hvaða réttindi hann taldi sig hafa; óbeit á of mikl- um hlýlegheitum fólks; umhyggja fyrir eigin virðuleika; bókstaflega öll framkoma Mandela er mótuð og lit- uð af því uppeldi sem hann hlaut í æsku. Allt frá þeim tíma þegar hann var lítill drengur á sjálfsstjómarsvæðinu Transkei hefur Nelson Mandela ver- ið meðhöndlaður sem sérstök per- sóna; bæði vegna náttúrulegra hæfi- leika til forystu og fæðingar í kon- unglegum húsakynnum. Þegar Mandela dvaldi sem ungur maður í Jóhannesarborg og stóð and- spænis þjóðfélagi sem gegnsýrt var af kynþáttahatri hjálpaði þessi sér- staka meðferð á honum í æsku við að láta ekki kúgunina brjóta sig niður og gefa sér tilfinningu magnleysis og undirgefni. I stað þess að verða beygð hryggð- armynd einsog margir aðrir svartir, blés kúgunin og kynþáttahatrið Mandela eldmóði í brjóst; hann reiddist og sór að stöðva óréttlætið. Enn þann í dag reitir ekki nokkur hlutur Mandela meira til reiði en móðgun við virðingu hans. Trylltur af reiði sagði hann mér sögu frá því, þegar honum var sleppt úr fangelsi og ákveðinn ættflokkshöfðingi neit- aði að taka í hönd hans, en tók í stað- inn f hönd De Klerk, þáverandi for- seta. Mandela varð til að mynda einnig stuttur í spuna við mig eitt sinn, þegar ég færði honum nýtt bindi að gjöf fyrir framan starfslið hans. Reiðin var skiljanleg; gjöfln hefði nefnilega átt að berast Mandela í gegnum aðrar manneskjur, en ekki vera komið beint á framfæri við hann. Slíkt var móðgun við virðingu hans. Medvitadur um valdid Bros Mandela er hrífandi og geisl- andi - það vekur sjálfkrafa hlýju í hjarta manns - en dylur þó mann- eskju sem er fullkomlega meðvituð um kraft og völd ímyndar sinnar; ímyndarinnar sem faðir hinnar nýju Rússneskar öfgahreyfingar blómstra sem aldrei fyrr: Jesús Kristur var slavi frá Novogorod „Jesús Kristur var ekki gyðingur, einsog áróðurmeistarar Zíon- ista reyna að telja okkur trú um. Jesús var hreinræktaður slavi frá Novogorod sem ferðaðist til Palestínu til að stöðva innrás gyðingaveldisins í Rómverska keisaradæmið. Þessvegna var hann tekinn af lífi.“ Svo hljóðar ein af kennisetningum Rúss- neska þjóðernisbandalagsins. Fullyrðing: „Jesús Kristur var ekki gyðingur, einsog áróðurmeist- arar Zíonista reyna að telja okkur trú um. Jesús var hreinræktaður slavi frá Novogorod sem ferðaðist til Palest- ínu til að stöðva innrás gyðingaveld- isins í Rómverska keisaradæmið. Þessvegna var hann tekinn af lífi.“ Þetta er dæmigerður hluti af þeim skuggalega lærdómi sem nýliðar í Rússneska þjóðernisbandalaginu verða að tileinka sér. Bandalagið er aðeins ein af allavega áttatíu öfga- hreyfingum sem fara nú um með logandi brandi öfganna í ógeðfelldri illgresisflóru rússnesks stjómmála- Iffs. Lambahjörd Sumar þessara öfgahreyfinga fara slíkum hamförum f boðskap sínum að liðsmenn Frjálslynda lýðræðis- flokksins hans Vladimír Zhírinovsky líta út einsog sakleysisleg lamba- hjörð við hliðina á þeim. í Rússlandi háttar þannig til, að þar hafa skapast algjör kennslubókarskilyrði fyrir öfgahreyfingar. Þær blómstra sem aldrei fyrr. Mörgum liðsmanna öfgahreyfing- anna finnst sem móðurjörðin Rúss- land hafi á hroðalegan hátt verið auðmýkt og beygð í duftið þegar landið „var svipt stöðu sinni“ sem annars mesta stórveldis heims. Þess- ar tilfinningar eru sérstaklega heitar með liðsmanna hersins. Þeim svíður ógurlega undan hrapi Rússlands nið- ur virðingastiga heimsveldanna. Það er dapurleg og óumflýjanleg staðreynd, að lýðræðishugsjónin á enn eftir að skjóta rótum handan við efstu jarðlög rússnesks samfélags. Útungunarstödin Útungunarstöð rússneskra öfga- hreyfinga nefnist Pamyat („rninni" eða „minningar" á rússnesku). Pamyat er hreyflng sem komið var á laggirnar sem einhverskonar sögufé- lagi af Sergei Vasiliev árið I986. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á átta árum: í dag hljóðar kröfugerð sögufélagsins Pamyat uppá á endur- reisn keisaradæmisins og iðkunar dulrænnar útgáfu af réttrúnaði (or- þódox). En vandinn liggur í því, að pólitísk afkvæmi Pamyat eru engan veginn himnesk eða háfleyg. Þau eru stórvarasöm. Tökum sem dæmi kappann Alex- ander Barkashov. Hann yfirgaf skóla á sínum tíma til að gangast undir starfsþjálfun sem rafvirki. Um tíma gegndi hann herþjónustu þar sem hann afrekaði að klífa virðingastig- ann uppí tign undirliðþjálfa og náði sér í leiðinni í brúna beltið í karate. Barkashov var virkur meðlimur í Pamyat árin 1987 til 1990. Þá yfirgaf hann hópinn og stofnaði stjórnmála- flokkinn Rússneska þjóðernisbanda- lagið. Fasísk gildi Þessi nýi stjómmálaflokkur er skipulagður samkvæmt hefðbundn- um gildum fasista. Meðlimir eru til að byrja með flokkaðir sem „stuðn- ingsfélagar“ og Barkashov segist hafa tugþúsundir slfkra innan raða Að minnsta kosti áttatiu ofgahreyfingar fara nú um með logandi brandi öfganna í ógeðfelldri illgresisflóru rúss- nesks stjórnmálalífs flokksins. Seinna eru sumir hækkað- ir í tign og nefnast þá „samstarfsfé- lagar“. Af þeim hópi hafa um 600 rnanns komist svo langt í metorða- stiganum að þeir mynda innsta kjama harðra liðsntanna flokksins og nefnast fullgildir „félagar". Ætli menn að öðlast síðastnefnda heiður- inn verða þeir að vera hreinræktaðir slavar og gangast undir eins árs reynslutímabil, svokallað „skilorð". Allir fullgildir „félagar" sverja foringja sínurn, Alexander Barkas- hov. hollustueiða og lofa „að vera miskunnarlausir við óvini Rússlands innanlands sem á erlendri gmndu“. Þónokkrir félagar í Rússneska þjóð- ernisbandalaginu létu h'fið við vörn

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.