Alþýðublaðið - 30.11.1994, Síða 5

Alþýðublaðið - 30.11.1994, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Suður-Afríku. Hann veit allt um þau áhrif sem hann hefur á fólk. Við matarborðið - hvort sem það er á veitingastað eða í mikilli veislu - leggur Mandela sig ávallt fram um að heilsa vikapiltum, þjónum og öðm þjónustufólki í eldhúsinu á sama hátt og hann heilsar diplómöt- um og stjórnmálamönnum. En hann veit hinsvegar ekki einu sinni nöfnin á eigin lífvörðum. Mandela á í eng- um örðugleikum við að sýna ólíkleg- asta fólki hlýju - þrátt fyrir að það sé ef til vill bláókunnugt eða einungis lauslegir kunningjar - en við fólkið sem stendur næst er hann oft kaldranalegur. Hástemmdasta lofsyrði sem hann getur goldið nokkmrn manni er að viðkomandi sé „h'tillátur náungi“ („a humble chap“) og hann gerir sitt ítr- asta til að vera lítillátur sjálfur. Það hlutverk á Mandela samt alltaf erfið- ast með að leika og er hans ótrúverð- ugasta viðmót. Ríka og fræga fólkid Mandela þreytist aldrei á að minna fólk á að Afríska þjóðarráðið sé samvinnuverkefni; orðið „við“ á alltaf greiðari og náttúmlegri leið af vömm hans en „ég“. Þegar ég spurði um hvaða per- sónulega hlutverki hann hefði gegnt í hinum eða þessum atburðinum þá skammaði hann mig oft fyrir það sem hann áleit vera dæmigerða við- leitni Bandaríkjamanna til að per- sónugera atburði. En þegar ég síðan spurði um hlutverk samtakanna eða samstarfsmanna í ákveðnu fmm- kvæði að hlutum þá var viðkvæðið gjarnan að snúa hlutum uppí fyrslu persónu eintölu: „Nei, það var mér að þakka.“ Mandela er heillaður af ríku fólki og frægu. Hann var til dæmis djúpt snortinn af viðkynnum sínum og El- izabeth Taylor sem hann hitti fyrst við verðlaunaafhendingu á Spáni fyrir nokkmm ámm. Tíu ámm áður hafði hann verið fangi númer 466/64 og fylgst með henni tæla Richard Burton í kvikmyndinni Kleópötm sem sýnd var á tætingslegu og heimatilbúnu kvikmyndatjaldi á Robbeneyju. Mandela getur jafnvel sjálfur átt það til að hæðast að tengslum sínum við ríka og fræga fólkið. Við lok eins viðtalstíma okkar hafði hann á orði með skelmislegu glotti: „Ég er í dag að fara til hádegisverðar með þriðju ríkustu fjölskyldu Suður-Afríku; ég mun ekki svelta." Breska arfleifdin Einhver sagði eitt sinn, að Man- dela væri skrítin blanda afrísks hefð- armanns og bresks göfugmennis. Og það er rétt, hann er í laumi einlægur aðdáandi Breta og breskra gilda. Mandela var menntaður af bresk- um trúboðum og var alinn upp við það, að breskar hugmyndir um lífið og tilvemna væm þær bestu í heimi; að breskur heiðursmaður væri af- bragð annarra manna. Þrátt fyrir and- úð hans á breskri nýlendustefnu þá hefur hann tekið upp breskan stíl sem nær allt frá klæðaburðinum til tungumálsins - mállýskunnar - og framkomunnar. Bretland og bresk viðhorf til starfa hans skiptir Nelson Mandela mun meira máli en til dæm- is viðhorf annarra Evrópuríkja og Bandaríkjanna. Hann minntist eitt sinn á að hann hefði sérstaklega gaman af að hitta John Major þar sem þeir tveir eyddu megni viðræðu- tímans í að ræða krikkett. Viðhorf Mandela til ýmissa hluta geta á stundum verið dálítið ein- feldningsleg; til að mynda hvað fjöl- miðla snertir. Það er með þann geira einsog svo marga aðra, að hann tók miklum stakkaskiptum á meðan fangelsisdvöl Mandela stóð. Þegar Mandela kom fyrst útúr fangelsi og hitti fyrir fjölmiðlamenn vopnaða ullarklæddum hljóðupptökubómum Niðurlæging: íklæddur einkennis- búningi fanga á Robbeneyju stag- ar Mandela í tættar peysur. Þetta var (angþráð tilbreyting frá hræði- legum þrældómi fanganna hvers- dags í kalknámum á eyjunni. Vladimír Zhírinovsky: Sumar öfgahreyfinga Rússlands fara slíkum ham- förum í boðskap sínum að iiðsmenn Zhírinovsky líta út einsog sakleysis- leg lambahjörð. gamla þingsins gegn öflum hliðholl- um Bóris Yeltsín í október 1993. í goðsagnafræði fiokksins em þessir hermenn gerðir að píslarvottum sem öðluðust guðlega stöðu þegar þeir vom „myrtir af leyniskyttum 6. her- deildar NATO sem send var til Moskvu til að verja ginningarfífl Vesturlanda, Bóris Yeltsírí'. Hreinsanir Menn skyldu fara varlega í að af- skrifa öfgahreyfingarnar sem lélega brandara er aldrei muni skipta nokkru máli í rússneskum stjómmál- um; fordæmi fyrir hinu gagnstæða eru ótalmörg. Rússneska þjóðemisbandalagið og stærsti keppinautur þess, Þjóðlegi rússneski lýðveldisflokkurinn, deila svipaðri hugmyndafræði og stefnu- skrár þeirra eru keimlíkar. Ef þessar öfgahreyfingar kæmust til valda myndu þær endurreisa rússneska heimsveldið, hervæða efnahagskerfi landsins á nýjan leik og fara af stað með gífurlegar þjóðernishreinsanir: „Gyðingar og sígaunar verða upp- rættir eins fljótt og mögulegt verður." Zhírinovsky Fyrmefndir tveir stjómmálaflokkar eiga það einnig sameiginlegt að fyrirlíta Vladimír Zhírinovsky af öllu hjarta, en hann varð al- ræmdur eftir að hafa fengið 24% atkvæða í þingkosningunum 1993. Séður með augum trylltra öfgamanna er Zhírinovsky miklu frek- ar hjálparhella Bóris Yeltsín en ógnandi and- stæðingur. Öfgamenn líta á mál- ið á einfaldan hátt: Zhír- inovsky hefur sundrað almennri andstöðu við forsetann og án aðstoðar öfgamannsins alræmda hefði Yeltsín aldrei get- að náð í gegn samþykkt nýrrar stjómarskrár í desember 1993. Stjórnmálaflokkar öfgamanna á borð við Rússneska þjóðemis- bandalagið og Þjóðlega rússneska lýðveldis- llokkinn segja Zhfrinov- sky ekki vera neitt annað en leikbrúðu í höndum núverandi valdhafa og honum verði auðvelt að fórna; gyðinglegt fað- erni hans og tæp geð- heilsa sjái til þess. Byggt á The Economist /shh harðnaði og varð að ríkjandi þætti: Hann hafði bara ekki efni á að láta yfirvöld sjá bilbug eða veikleika á sér. Það var fangelsið sem mótaði þann Nelson Mandela sem við þekkjum í dag. Fangelsið gerði hann að skynsemishyggjumanni því til að halda lífi þurftu fangamir að gera málamiðlanir í liinu og þessu og fara stundum bil beggja. I þeirri viðleitni sinni að brynja sig gegn yfirvöldum byggði hann múr í kringum sjálfan sig í leiðinni sem útilokaði næstum alla aðra. Óhagganleg manneskja Mandela er yfimáttúrulega árrisull og finnst best að hetja hvem dag með góðum göngutúr. Þegar ég dvaldist með honum í Transkei hitti ég hann hvem morgun klukkan 05:30 á heimili hans. Þaðan fómm við í þriggja tíma gönguferðir um sveitirnar í kring og umkringdir líf- vörðum hans röltum við frá þorpi til þorps. Stundum vöktum við fólk upp og honum til ánægju höfðu margir ekki hugmynd um hver væri þarna á ferð. Að morgni dagsins 10. apríl 1993 eftir eina slfka gönguferð settumst við Mandela niður á skrifstofu hans og vomm albúnir til að hefja hljóð- upptekið viðtal. Við höfðum aðeins ræðst við í nokkrar mínútur þegar húsfreyjan kom inn og tilkynnti komu 30 félaga í rúgbý-liðinu Aust- ur-London sem hefðu komið sér fyr- ir í aðkeyrslunni að húsinu og biðu nú eftir tækifæri til að heilsa uppá mikilmennið. I bláa æfingagallanum sínum og hvítum sokkuni (hann hafði þegar tekið af sér skóna) reis Nelson Mandela stirðlega og sjálf- krafa á fætur og rölti útfyrir. M a n d e 1 a hafði tekið í 15 hendur og brosað og spjallað við hvern og einn þegar hús- freyjan birtist enn á ný og til- kynnti um neyðarsímtal. Mandela sneri aftur til skrif- stofu sinnar og var þar sagt af aðstoðarmanni sínum að Chris Hani, hinn heiftúðugi fyrmrn leið- togi hemaðar- arms Afríska þjóðarráðsins og annar vin- sælasti maður landsins á eftir Mandela sjálf- um (og einn af villuráfandi sauðum gamla mannsins inn- an samtakanna), hefði verið myrtur í Jóhannesarborg af hvftum öfga- sinna. Mandela lagði símtólið á og horfði fjarrænum augum útí bláinn, andlit hans tekið og áhyggjufullt. A þeirri stundu var það fullvissa margra Suður-Afríkubúa að dauði Chris Hani myndi enda samninga- viðræður við stjómvöld og marka upphaf hroðalega blóðugrar borgara- styrjaldar milli svartra og hvítra. Uppruni: Mandela er sonur ættflokkshöfðingja af hinni konunglegu Xhosa-fjölskyldu. Hann er skrítin blanda afr- ísks hefðarmanns og bresks göfugmennis þar sem hann er menntaður af breskum trúboðum. Mandela stóð augnabliki síðar á fæt- ur, bað mig afsökunar á trufluninni, gekk síðan aftur útfyrir, setti upp hina brosandi ímynd og kláraði að taka í 15 hendur þakklátra meðlima rúgbý- liðsins Austur-London. Þýtt úr The Spectator / shh Minningar: Fyrr á þessu ári sneri Mandela aftur til kalknámanna þar sem hann hafði þrælað í áratug. Sólskinið eyðilagði augu hans vegna þess að árum saman fékk hann ekki sólgleraugu. hélt hann, að þama væri komið eitt- hvað nýmóðins vopn suður-afrísku lögreglunnar. En þegar kemur að pólitískum hernaðaráætlunum vinnur Mandela hinsvegar með slíkri hámákvæmni og yfirburðaþekkingu á málefna- stöðu og fólki að manni svimar við, að fylgjast grannt með. Að hlusta á Nelson Mandela rökræða friðsam- legar mótmælaaðgerðir sem hemað- aráætlun eða siðferðisleg gmndvall- aratriði er einsog að hlusta á stór- kostlegan fiðluleikara spinna flúrað- an einleikskafla af fingmm fram. Einmana í fjölmenni Mandela er oft einmana, ekki vegna skorts á félagsskap heldur vegna skorts á nánum samskiptum. Hann á fjölda vina, þúsundir kunn- ingja og milljónir aðdáenda, erí það eru afar fáar manneskjur - ef einhverjar - sem hann getur slakað á með. Ég átti viðtöl við fjölda kollega hans sem dvöldu með Mandela í fangelsi um áratuga skeið og þrátt fyrir að þeir hefðu elskað hann og virt þá urðu þeir að játa að þeir þekktu manninn ekki mjög vel; eiginlega alls ekkert. Fálætið sem Mandela leyfði sér annað slagið - og einkenndi í raun per- sónuleika hans áður en fangelsisvistin hófst -

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.