Alþýðublaðið - 06.12.1994, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994
HffYBITOfMI)
20834. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Skipulag
náttúruverndarmáfa
Nýverið lagði Össur Skarphéðinsson umhverfísráðherra fram
frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd. Lög-
in um náttúruvernd eru frá 1971 og að stol'ni til mun eldri, eða
frá 1956. Endurskoðun náttúruverndarlaganna er afar brýnt
verkefni í ljósi nýrra viðhorfa og aukins skilnings á mikilvægi
náttúruvemdar í landinu. Við stofnun umhverfísráðuneytisins
sköpuðust forsendur til að taka með mun ákveðnari hætti á nátt-
úruverndarmálum en áður. Frumvarp umhverfísráðherra er
fyrsta skrefíð í endurskoðun náttúmvemdarlaganna og tekur
fyrst og fremst á stjórnun þessa málaflokks.
Með tilkomu umhverfisráðuneytisins gjörbreyttust allar for-
sendur núverandi stjómkerfís náttúmvemdarmála. Þetta stjóm-
kerfi hefur byggst á óháðu Náttúmverndarráði sem hefur haft
nánast allt fmmkvæði í þessum efnum og verið ígildi ráðuneyt-
is í náttúruvemdarmálum, en samt heyrt yndir ráðherra og ver-
ið rekið á hans ábyrgð. Þetta kerfi var skiljanlegt á símum tíma
þegar náttúmvernd var aukaatriði innan menntamálaráðuneyt-
isins, en fær ekki staðist eftir að umhverfísráðuneytið var stofn-
að. í frumvarpinu er lagt til að öll stjómsýsla og ríkisrekstur
verði aðskilin frá Náttúruvemdarráði og sett á stofn ný stofnun,
Landvarsla ríkisins, sem taki þetta hlutverk að sér. Náttúm-
vemdarráð verður vettvangur frjálsra félaga, sérfræðinga og
annarra sem málið varðar og mun veita stjómvöldum ráðgjöf
og aðhald. Þetta nýja kerfí mun tryggja skýrari verkaskiptingu
stofnana og aukna ábyrgð umhverfisráðuneytisins á stefnu-
mörkum og aðgerðum á sviði náttúmverndar.
Hækkun
bensíngjalds
I síðustu viku hækkaði ríkisstjómin bensíngjaldið til að standa
straum af auknum vegaframkvæmdum. Þessi hækkun var eðli-
leg, enda ljóst að auknar vegaframkvæmdir hefðu að óbreyttu
haft í för með sér óveijandi halla á ríkissjóði. Þrátt fyrir hækk-
un bensíngjaldsins eykst halli ríkissjóðs vegna vegafram-
kvæmda á næsta ári um 900 milljónir króna. Það er einföld
staðreynd - sem forysta ASÍ virðist á stundum gleyma - að til
framkvæmda og þjónustu ríkisins þarf að afla tekna með skatt-
heimtu. Krafa um auknar vegaframkvæmdir em því auðvitað
krafa um hækkun á bensíngjaldi.
Vegaframkvæmdir, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, em afar
arðsamar og því skynsamlegt að hraða slíkum framkvæmdum.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um átak á þessu sviði er því einkar
skynsamleg og tímabær. Eðlilegt er að bifreiðaeigendur greiði
kostnaðinn sem þessu em samfara, enda er hagur þeirra af bætt-
um samgöngum mikill. Þetta þýðir auðvitað aukinn kostnað
vegna reksturs á fjölskyldubíl, sem auðvitað kemur mishart
niður á fólki eftir notkun og þörfínni fyrir bfl.
Á hitt ber að benda að aukinn kostnaður vegna reksturs einka-
bflsins mun væntanlega aukast um heim allan á næstu ámm.
Koma þar helst til umhverfissjónarmið og mikið álag á sam-
göngukerfi. Auknar kröfur munu í framtíðinni verða gerðar til
þess að bifreiðaeigendur greiði allan kostnaðinn af rekstri bíla
sinna, jafnt félagslegan sem umhverfíslegan. Aukinn kostnaður
vegna einkabflsins mun einnig gera almenningssamgöngur
samkeppnishæfari, sem er mjög hagkvæmt frá þjóðhagslegu
sjónarmiði. Til lengri tíma litið eiga eigendur bifreiða rétt á því,
samfara aukinni skattheimtu á bflana, að aðrir skattar lækki á
móti.
Rökstólar
Mjallhvít og
dvergarnir sjö
Þegar Davíð Oddsson brá sér um
daginn í sakleysislega ferð til Kína
lét hann sem vind um eyru þjóta þótt
ungir jafnaðarmenn æptu að honum
ókvæðisorð fyrir að sötra kampavín
með elliæru blóðhundunum í Pek-
ing. Davíð Oddsson vissi nefnilega
ekki betur en hann væri á góðri leið
með að vera formaður í flokki sem
hefði meirihluta á Alþingi Islend-
inga. Svo mæltu véfréttir skoðana-
kannana fyrir þremur vikum. En
meðan Davíð og Astríður sóluðu
sig á Kínamúrnum gerðust kynlegir
atburðir í skammdeginu uppi á Is-
landi. Ekki var nóg með að nýjustu
skoðanakannanir feyktu meintum
þingmeirihluta sjálfstæðismanna útf
úlfgrátt hafsaugað, heldur stóð stóri
flokkurinn allt f einu frammi fyrir
þvf að tapa ÁTTA þingmönnum.
Skoðanakannanir færðu þessi átta
þingsæti í einu lagi yftr til heilagrar
Jóhönnu; og sjö til viðbótar átti hún
að fá frá Alþýðuflokknum - sem
rcyndar er síður aflögufær um svo
íjölmennt lið.
En þetta er staðan: Hin pólitíska
Mjallhvít getur gert sér vonir um að
hirða dvergana sjö af Alþýðuflokkn-
um og þriðjung þingliðs sjálfstæðis-
nianna.
Pólitík á innsoginu
Jónas Kristjánsson ritstjóri DV
er einn skemmtilegasti og beittasti
penni landsins. Hann er búinn að
finna skýringuna á velgengni Jó-
hönnu. Hún er einfaldlega sú, að fólk
er orðið leitt á mælskuskörungum
stjómmálanna, og styður þessvegna
konu sem kann „enga ræðulækni
heldur æpir á áheyrendur á innsog-
inu“, svo notuð séu orð ritstjórans.
Kannski það. Alltjent má nú búast
við að ungir menn, sem komast vilja
til áhrifa við stjóm landsins, tileinki
sér nú „innsogsstfl" í ræðumennsku.
Þá verður nú fyrst gaman á Alþingi:
Allirá innsoginu.
En það var þetta með Sjálfstæðis-
Taktík sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu var um margt athyglis-
verð: Fyrst börðust þeir gegn Vil-
hjálmi á þeim forsendum að kjós-
endur í héraði vildu ekki sjá hann
vegna ESB- daðursins - en segja
nú að hann verði geysilega sterk-
ur í baráttusæti flokksins!
flokkinn. Einsog menn
muna gerði Davíð hall-
arbyltingu gegn Þor-
steini Pálssyni skömmu
fyrir kosningar 1991.
Állir bjuggust við að
fylgi flokksins næði þá
sögulegu hámarki. Dav-
íð var enn í guðatölu og
rnargir bjuggust við
hann næði hreinum
meirihluta eftir viður-
eign við dapra vinstri-
stjórn. Raunin varð önn-
ur, 37% fylgi var nú
ekkert til þess að monta
sig af f stóra flokknum.
En það gleymdist auð-
vitað fljótt þegar Davíð
leiddi flokk sinn aftur til
hásætis valdsins sem
Þorsteini hafði verið
steypt svo smánarlega
úr.
Ymsir stjómmála-
skýrendur hafa hinsveg-
ar leitt að því getum að
Sjálfstæðisflokkurinn
muni stórauka fylgi sitt í
vor. Það yrði semsagt
kosið um hinn ábyrga
Davíð, í hlutverki íeið-
toga og landsföður,
versus villta vinstrið
þarsem menn vega hver
annan f hóflegri góð-
semi.
En draumurinn fagri
er nú að engu orðinn.
Kosningabarátta sjálf-
stæðismanna í flestum
kjördæmum verður
hörð vamarbarátta.
Ferðist með Rökstólum
um landið:
Vígstada stóra
flo Irfcsins
Á Suðurlandi vígbýst Hin pólitíska Mjallhvít getur gert sér vonir um að
HaukdtrgegífeTöfum hirðo dvergana sjö af Alþýðuflokknum og þriðjung
innUmað08kiLían8tsamTn Þ^gliðs sjálfstœðismanna.
lista. Einu markverðu aflciðingarnar
af framboði Eggerts verða vitaskuld
þær að hafa eitt þingsæti af Sjálf-
stæðisflokknum.
Á Reykjanesi er Sjálfstæðisflokk-
urinn að reyna að ná sér uppúr tauga-
áfalli prófkjörsins um daginn þegar
virðulegur þingforseti var borinn út
hjamið einsog hver annar pólitískur
ómagi. Hinn nýi leiðtogi, hrossa-
læknirinn með blíða brosið, mun
tæpast verða sá atkvæðasegull að
dugi til að vega uppá móti þeim sem
ekki geta fyrirgefið honum meðferð-
ina á eldri borgaranum úr Mosfells-
sveit.
í Reykjavík gerðu sjálfstæðis-
menn beinlínis ráð fyrir þvf að tapa
einum þingmanni af níu - áðuren
heilög Jóhanna blés til orustu. Nú er
staðan þannig að reykvíski D-listinn
kann að sjá á bak allt að þremur
þingmönnum; að minnsta kosti er
lílil von til þess að Krúsi & Katrín
Fjeldsted vermi þingsæti á næst-
unni.
Á Vesturlandi er sérkennileg
staða. Þar eru nefnilega tvö af best
geymdu leyndarmálum Sjálfstæðis-
flokksins: Sturla Böðvarsson og
Guðjón Guðmundsson. Ekki er vit-
að um nokkurn mann sem hefur
heyrt í þeim félögum síðan þeir náðu
kjöri, en samkvæmt áreiðanlegum
heimildum eru þeir nú samt enn á
þingi. Ekki er víst að sú sælutíð Guð-
jóns verði öllu langvinnari.
Á Vestfjörðum er Sjálfstæðis-
flokkurinn einna sterkastur um þess-
ar mundir; þótt ógróin séu sárin sem
bjargvætturinn frá Flateyri, Einar
Oddur Kristjánsson, hlaut í glím-
unni við leiðtogaefnið unga frá Bol-
ungarvík, Einar K. Guðfinnsson.
Líklega er best að hafa sem fæst
orð um stöðuna á Norðurlandi
vestra, þarsem Pálmi Jónsson stór-
bændahöfðingi frá Akri lauk pólit-
ískum ferli sínum með því að varpa
samþingmanni sínum, Vilhjálmi
Egilssyni, í fjóshaug sóknarprestsins
á Sauðárkróki. Taktík sjálfstæðis-
manna í kjördæminu var um margt
athyglisverð: Fyrst börðust þeir gegn
Vilhjálmi á þeim forsendum að kjós-
endur í héraði vildu ekki sjá hann
vegna ESB-daðursins - en segja nú
að hann verði geysilega sterkur í bar-
áttusæti flokksins! Þetta ber kímni-
gáfu norðanmanna óneitanlega fag-
urt vitni.
í hinu kjördæminu á Norðurlandi
munu sjálfstæðismenn þurfa að hafa
sig alla við, enda færist eitt þingsæti
til Reykjaness. Halldór Blöndal
hefur hinsvegar notað tímann í sín-
um ráðuneytutn vel, og stundað stór-
felldari atkvæðakaup en dæmi eru
um.
Um Austurland er óþarft að tala:
Þar flokkast undir náttúrulögmál að
Egill Jónsson nái kjöri á Alþingi,
hversu fá atkvæði sem koma uppúr
kössunum. Þessi glæsilegi leiðtogi
sjálfstæðisstefnunnar hlýtur að setja
markið hærra á næstu árum en að
veita landbúnaðarnefnd forstöðu.
Svona ber nú allt að santa brunni
hjá liðsmönnum stóra flokksins sem
voru, sumir hverjir, farnir að láta sig
dreyma um að sitja einir að kjötkötl-
um valdsins. Draumurinn er úti og
við skulum þakka það sem þakka
ber: Þetta er vitanlega verk Mjall-
hvítar okkar. Eini hængurinn er sá,
að með þessu er hún að ryðja braut-
ina fyrir valdatöku Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks. Þá verður nú
gaman að lifa!
Dagatal 3. desember
Atburdir dagsins
1793 Madame du Barry, síðasta ást-
kona Lúðvíks XIV, verður fallöxinni
að bráð. 1882 Enski rithöfundurinn
Anthony Trollope deyr; kunnastur
fyrir skáldsögur sem gerðust í ímynd-
unarlandinu Barsetshire. 1926
Franski listmálarinn Claude Monet
deyr, 86 ára. 1963 Christine Keeler
grætur beisklega þegar hún er dæmd í
9 mánaða fangelsi fyrir hlut sinn í
Profumo-hneykslinu.
Afmælisbörn dagsins
Einar H. Kvaran rithöfundur og
máttugasti trúboði spíritismans á Is-
landi, 1859. Ira Gershwin banda-
rískur tónlistarmaður, skapaði sér
nafn í samvinnu við bróðurinn Ge-
orge, 1896. Dave Brubeck banda-
rískur jazzpíanisti og tónskáld, 1920.
Annálsbrot dagsins
Rán og þjófnaður um landið víða af
umhleypingsstrákum og öðmm
ómildum. Stolið bæði fríðurn og
dauðum peningum, brotin upp hús og
hirzlur, hýddir þjófar og markaðir,
karlar og kvinnur, ungir og gamlir.
Setbergsannáll, 1698.
Trúbodi dagsins
Líklega hefur einginn maður gert
Krist öllu vinsælli á íslandi en hann.
Halldór Kiljan Laxness um afmælisbamið Ein-
ar H. Kvaran; Af skáldum.
Móðgun dagsins
Hann var ósöngvinn og trúlaus, stir-
finn og viðskotaillur. Öllum var hann
hvimleiður.
Grettis saga um Glám sauðamann hinn sænska
sem síðar gerðist frægastur draugur íslandssög-
unnar.
Lokaord dagsins
Unaðslegur, unaðslegur er dauðinn.
Hinstu orð breska listmálarans Williains Ettys
(1787- 1849).
Málsháttur dagsins
Ástin er blind, því er hún illur ráð-
gjafi.
Orð dagsins
Víðu til þess vott ég funn
þótt venjist oftur hinu,
uð Guð ú inurgun gimsteinn þunn
sem glóir í mannsorpinu.
Skák dagsins
Þá em það snaggaraleg endalok hjá
Djurovic og Engqvist. Sá síðar-
nefndi hefur svart og á leikinn. Hann
rúllar yfir andstæðinginn af stöku
miskunnarleysi. Hvað gerir svartur?
1.... Rc5! 2. Hxc5 Eini leikurinn. 2.
Hxd4 Rxb3 eða 2. Rxc5 Hel mát. 2.
... Dxc5 3. Rc3 Dxf2! Djurovic gafst
upp - mátið er óumflýjanlegt.