Alþýðublaðið - 06.12.1994, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
+
ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994
Alþýðuflokkurínn í upphafí kosningabaráttu
Kosningabaráttan er hafin. Af því tilefni hafði Stefán Hrafn Hagalín samband ígœr við nítján liðsmenn Alþýðuflokksins -Jafnað-
armannaflokks íslands - um land allt og spurði þá þriggja spurninga: (1) Hverjir eru veikleikar Alþýðuflokksins? (2) Hverjir eru
styrkleikar Alþýðuflokksins? (3) Hver eiga að vera helstu kosningamál flokksins? ístuttu máli má segja að inntakið ísvörum
fólksins sé, að helsti veikleiki flokksins liggi í lélegri kynningu á störfum flokksins, innanflokksátökum og deilum flokksforystu
sem hrjáð er af sambandsleysi við almenning, styrkur flokksins sé hinsvegar fólginn í heilsteyptri oggóðri málefnastöðu ogmikil-
vægum árangri flokksins í ríkisstjórn. Efnahagsmál og velferðarmál - atvinnu- og kjaramál - eiga að vera helstu kosningamál
flokksins næsta vor ásamt Evrópumálunum. Það er því Ijóst, að mikið verk er framundan hjá Alþýðuflokknum:
Anna Margrét Guð-
mundsdóttir, Keflavík:
Innanhúss-
atokin eru
lýjandi
1. Helsti veikleiki flokksins eru
þessi innanhússátök sem eru að gera
mig - og alla flokksmenn - ansi lúna
og þreytta.
2. Stefna flokksins er styrkleiki
hans. Við höfum góða og málefna-
lega stefnu; afar heilsteypta.
3. Ég held fyrir það fyrsta að við
eigum að fara svolítið hægt í Evr-
ópumálin. Við eigum fyrst og fremst
að hafa frumkvæði í umræðunni og
upplýsa fólk um kosti og galla aðild-
ar. Ef ég svara fyrir mig og horfi á
það sem brýnast er fyrir fólk í kring-
um mig þá em það atvinnu- og kjara-
málin sem standa uppúr. Þau eiga að
vera aðalmálin; atvinnumálin.
Eiríkur Stefánsson, Fá-
skrúðsfjörður:
Verðum að
tala við fólkið
1. Númer eitt hef ég sagt við for-
mann flokksins að hann verði að fara
tala við fólkið í flokknum. Hann
verður einnig að fara tala um at-
vinnu-, fátæktar-, heilbrigðis-, efna-
hags-, félags-, kjara- og önnur vel-
ferðarmál. Jón Baldvin hefur einbeitt
sér alltof mikið að utanríkismálun-
um. Síðasta ár og árið þar á undan
gaf hann Jóhönnu algjörlega lausan
tauminn og hún einokaði velferðar-
málin. Og síðan getur hann samið
flokkinn í ríkisstjóm og samið okkur
inní EES en hann getur ekki samið
þannig að halda mætti Jóhönnu inni í
flokknum. Sjáið bara ræðumar sem
Jóhanna flytur í dag; þær em allar
um velferðarmálin og hún fitnar og
fitnar á þessum málflutningi. Al-
þýðuflokkurinn hefur látið umræð-
una um velferðarmálin f hendumar á
Jóhönnu, Framsókn, Kvennalista og
Alþýðubandalaginu. Alþýðuflokk-
urinn verður að fara tala um velferð-
annálin. Það sem þessir toppar hafa
talað um atvinnumálin; það er ekkert
annað en tal. Það er hægt að benda á
ótal leiðir einsog aukna fullvinnslu í
sjávarútvegi; þar er vaxtarbroddur-
inn. Það getur vel verið rétt að engin
önnur ríkisstjóm hafi gert eins mikið
fyrir fyrirtækin í landinu, en hefur
það skilað sér í auknum störfum?
Nei. Mér finnst það sárara en támm
taki að Jón Baldvin Hannibalsson,
þessi maður sem er einn hæfasti
stjómmálamaður sem þjóðin hefur
átt, skuli verða þess valdur að flokk-
urinn sveiflist svona niður í fylgi.
2. Ég held að helsti styrkleiki AI-
þýðuflokksins og ríkisstjórnarinnar
liggi í vaxtamálunum og verðbólg-
ustiginu. Staða okkar þama er sterk
en því miður hefur alveg mistekist að
koma því til skila, að þetta sé flokkn-
um að þakka. Við skulum átta okkur
á þvf að þessi tvö mál, lækkun vaxta
og engin verðbólga, em ómetanleg
fyrir skuldum vafið fólkið í landinu.
3. Ég vil að Alþýðuflokkurinn fari
að tala um fátæktina og kjörin hjá
þeim lægstlaunuðustu. Ég er alls
ekki sammála því, að Evrópusam-
bandsaðildin verði helsta kosninga-
málið. Við emm þama að róa á önn-
ur mið en ég hélt að jafnaðarmanna-
flokkur ætti að gera og það verður að
leiðrétta kúrsinn. Velferðarmálin og
kjör fólksins í landinu eiga að verða
aðalkosningamál flokksins. Það ertil
að mynda ótrúlegt að verið sé að búa
til fjárlög þar sem teknar em af
launabætur til öryrkja, fatlaðra og
aldraðra einsog mér skilst að verið sé
að gera á meðan bankastjómm er
skömmtuð desembemppbót uppá
hundmð þúsunda.
Finnur Birgisson, Akur-
eyri:
Atvinnu- og
kjaramálin
1. Helstu veikleikar Alþýðu-
flokksins em slæm ímynd flokksins
og formanns hans. Flokkurinn hefur
einhvem veginn eignast svo slæma
ímynd, að það þykir sjálfsagt í um-
ræðunni að hamra á flokknum og
fara um hann hinum verstu orðum.
Formaðurinn hafa sér einnig stund-
um dálítið glannalega og tekur ekki
tillit til þess hvernig aðgerðir hans
verka og líta útávið.
2. Styrkleiki flokksins er heil-
steypt og góð stefna. Við stöndum til
dæmis vel í heilbrigðismálum og fé-
lagsmálum og það hefur mikið og
vel verið unnið í utanríkismálum.
3. Ég held að aðalkosningamál
flokksins í Alþingiskosningunum
eigi að vera atriði sem varða hag
fólksins í landinu. Þar er hægt að tfna
til skatta og vaxtamál, kjara- og at-
vinnumál og velferðarmálin al-
mennt. Það þarf einnig að koma al-
menningi í skilning um það að Al-
þýðuflokkurinn er meira en bara for-
maðurinn. Við höfum á breiðri og
hæfri forystusveit að skipa og á það
þarf að leggja áherslu.
Friðrik Kristján Jóns-
son, Keflavík:
Kynningin
hef ur brugð-
ist
1. Það er fyrst og fremst innbyrðis
deilur forystumanna og hversu há-
værar þær eru í fjölmiðlum sem eru
helstu veikleikar Alþýðuflokksins í
dag. Einnig hefur brugðist að kynna
árangur flokksins í ríkisstjórn og
slíkt gengur ekki.
2. Helstu styrkleikar flokksins em
tvímælalaust flestöll verk hans í rík-
isstjórn. Stefnan er góð; á því leikur
enginn vafi.
3. Mér finnst að Evrópusam-
bandsaðildin eigi að vera á oddinum
og síðan á að flagga þeim mikla ár-
angri sem við höfum náð í ríkis-
stjóm. Kynningu á stefnu og störfum
flokksins verður að bæta. Það hlýtur
að vera forgangsverkefni að almenn-
ingur viti hver árangur flokksins hef-
ur verið.
Gísli Bragi Hjartarson,
Akureyri:
Málefnastað-
an er sterk
1. Helstu veikleikar Alþýðu-
flokksins er þessi upplausn sem ríkir
í flokknum; sérstaidega í kjölfar
brottfarar Jóhönnu. Einnig hefur
flokknum ekki tekist að koma á
framfæri þeim málum sem hann hef-
ur unnið brautargengi í ríkisstjóm og ®
komið í gegn. Kynninguna vantar.
2. Málefnastaða Alþýðuflokksins
er sterk. I verkum okkar liggur styrk- 0
ur flokksins. Við höfum staðið okkur
vel á þessum yfirstandandi erfið-
leikatfmum.
3. Þau stefnumál sem við höfúm í
dag eiga að verða helstu kosningamál
flokksins. Við verðum að halda áfram ®
að beijast í okkar málum; það miðar
áfram en margt er eftir. Ég legg ekki
mikið uppúr kjaftæðinu í kringum
Evrópusambandsaðildina - allavega
ekki miði ég við umræðuna í kringum
mig. Fólki finnst svo margt annað
þarfnast brýnni úrlausnar. Atvinnu-
leysið hér á Akureyri er til að mynda
7% í dag þannig að fólk hér hefur
ekki mikinn áhuga á Evrópumálun-
um. Þá verðum við að reyna koma
okkar verkum á framfæri. Kynningu
verður að kippa í liðinn.
Ihádeginu kr. 1.890 og
á kvöldin kr. 2.290.
Börn 6 ára ogyngri fá frítt og
krakkarfrá 6-12 árafá 50% afslátt.
Pantanir í síma 62 55 40.
VESTURGÖTU 2
1K B A R
> 40 cA Wf
f N
1 1