Alþýðublaðið - 05.01.1995, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Leirlist á Islandi:
Þessi listgrein hefur
stadið í skugganum
— segir Eiríkur Þorláksson sýningarstjóri Leirlistar á Islandi
sem opnuð verður að Kjarvalsstöðum á laugardaginn
„Þarna eru um 20 sýnendur leir-
listar og fyrstu gripirnir eru frá
1930, hógværir byrjunargripir, litlir
Verk eftir frumkvöðul leirlistar á ís-
landi, Guðmund frá Miðdal.
og nettir sem eru í eigu Þjóðntinja-
safnsins. Sýningin spannar feril
hinna elstu og síðan þeirra sem á
eftir koma alveg fram á síðustu ár,“
sagði Einar Þorláksson gestasýning-
arstjóri Kjarvalsstaða í samtali við
Alþýðublaðið.
Eiifkur stjórnar sýningunni Leir-
Sýnishorn af verkum Ragnars
Kjartanssonar.
list á íslandi sem opnuð verður að
Kjarvalsstöðum á laugardaginn.
Sýningin er haldin í Vestursal og
Miðsal hússins.
Eiríkur Þorláksson var spurður
uni upphaf leirlistar hér á landi.
„Það má segja að hún hefjist árið
1930. Árið áður kom hingað fyrsti
leirbrennsluofninn sem Guðmundur
Einarsson frá Miðdal lét smíða fyrir
sig í Miinchen og kom með hingað
uni vorið. Fyrsta brennslan er skráð
í nóvember 1929 og 1930 er þetta
komið á fullt skrið. Það er því innan
við mannsævi frá þvf að leir-
brennsla hófst hér á landi. Guð-
rnundur var fruntkvöðull leirlistar
og Listmunahúsið sent hann rak
sína leirmunagerð í var eina fyrir-
tækið á þessu sviði um langt árabil.
eða allt fram til 1948. Það lærðu hjá
honum ýmsir sem síðar áttu eftir að
verða gjaldgengir í þessu svo seni
Ragnar Kjartansson sem 1948
stofnaði ásamt fleirum leirmuna-
gerðina Funa og Gestur og Rúna
stofnuðu Laugamesleir. Sonur Guð-
Gestur og Rúna létu snemma að
sér kveða í leirlist.
mundar, Einar, tók við Listmuna-
húsinu og rekur það enn,“ sagði Ei-
ríkur.
-Hefur verið gróska í leirlistinni
hérfrá upphafi?
, Já, það hefur verið það. Kennsla
í leirlist hefst í Myndlista- og hand-
íðaskólanum 1969 og þeim fjölgað
sem leggja stund á þessa listgrein.
Guðmundur frá Miðdal kemur með
séríslensk verk inn í þetta og allir
þekkja snjótittlingana hans og aðra
smáfugla, falleg ker og fleira sem
verða hér á sýningunni. Það er svo
með Ragnari og Gesti og Rúnu sem
nútímalistin kemur inn í þetta sem
mótív og viðfangsefni líka. Síðustu
áratugina eru mörkin á milli leirlist-
ar og höggmyndalistar og raunar
málverks líka orðin tiltölulega óljós.
Listafólk leitar í allar áttir.“
Vasi eftir Kolbrúnu Kjarval.
-Leirlistin er líka nytjalist að
hluta?
„Jú, það hefur verið svo frá upp-
hafi. Guðmundur frá Miðdal sótti
um styrk til Alþingis til að koma
brennslunni á stað á sfnum tíma og
þar var orðið listiðn nokkuð algengt
í málflutningi. Þama yrði lista-
Kristín ísleifsdóttir gerði þessi
verk.
mönnum geftnn kostur á að vinna
að list sinni og gerð nytjagripa sem
síðan hafa orðið algengir. Það hefur
alltaf verið hluti af þessu og nokkur
dæmi hér af slíkum gripum. Það
hefur að vísu lítið varðveist alveg
Unnið að uppsetningu sýningarinnar að Kjarvalsstöðum.
Styttur eftir Kristjönu Samper.
heilt af því sem Guðmundur frá
Miðdal gerði, en frá Ragnari Kjart-
anssyni og alveg síðan. Á einhverju
árabili var togstreita í gangi og þótti
ekki eins fínt að gera það sem við
köllum nytjagripi og önnur lista-
verk. En ég held að það sé alveg
horfið og mjög fallegir nytjagripir
sem margt leirlistarfólk er að gera
enn í dag. Því miður getur þessi sýn-
ing ekki tekið til alls þess en þetta er
svona sögulegt yfirlit."
-Er þetta í fyrsta sinn sem slík
sýning er haldin?
„Þetta er í fyrsta skipti sem svona
stór sýning er haldin. Það voru
haldnar sýningar 1979 og 1981 sem
hétu Líf í leir og það var leirlistar-
fólk sem tók sig til og hélt þær sýn-
ingar. Þetta var undirbúningur að
stofnun Leirlistarfélagsins sem
stofnað var 1981 og starfar eno. En
þessi listgrein hefur verið svolítið í
skugganum af öðru og til dæmis
ekki verið safnað af listasöfnum
fram á allra síðustu ár,“ sagði Eirík-
ur Þorláksson.
Verk eftirtalinna listamanna
verða á sýningunni: Borghildur
Oskarsdóttir, Bryndís Jónsdóttir,
Elísabet Haraldsdóttir, Gestur
Þorgrímsson, Guðmundur Ein-
arsson, Guðný Magnúsdóttir,
Haukur Dór Sturluson, Helga Jó-
hannesdóttir, Jóna Guðvarðar-
dóttir, Jónína Guðnadóttir, Kol-
brún Björgúlfsdóttir, Kolbrún
Kjarval, Kristín Isleifsdóttir,
Kristjana Samper, Olöf Erla
Bjarnadóttir, Ragna Ingimund-
ardóttir, Ragnar Kjartansson,
Rannveig Tryggvadótir, Sigrún
Guðjónsdóttir, Sóley Eiríksdóttir
og Steinunn Marteinsdóttir.
Sýningin Leirlist á Islandi verður
opin daglega frá 7. janúar til 5.
febrúar klukkan 10 til 18. í Austur-
sal verður á laugardaginn opnuð
sýning á verkum Kjarvals.
A-myndir: E.ÓI.
Lesandinn skrifar
Osómi Hallgríms Helgasonar
- frá Sigfusi Gizurarsyni.
Ágæta ritstjóm.
Tilefni þessara skrifa minna er
að finna í jólablaði Alþýðublaðsins
sem út kom þann 23. desember síð-
astliðinn. Þar gefur að líta á mið-
opnu, Jólasöngbók Alþýðublaðs-
ins, einn mesta ósóma sem birst
hefur á prenti síðustu ár. Hallgrím-
ur Helgason heitir sá sem skrifar,
og er það með ólíkindum hvemig
hann skrumskælir sígildar íslenskar
jólavísur.
Nefnum smá dæmi:
Fimmtándi var Barnagikkur
hann barði hart á dyr:
„Mig langaði að hitta ykkur
Þó hefði verið fyr.“
Hann elti litlu börnin
alla leið heim.
Og plaffaði þau niður
með pístólum tveim.
Og hann heldur áfram við lagið,
Krakkar mínir komiði sæl:
„Hœttu þessu röfli og gefðu
okkur gjöf!
Hvað heldurðu að við séum?
Andskotans djöf...“
' °g,
„Við skulum koma, þetta er
algjörtfól.
Fuckyou þarna feiti! Jóla
asshole.“
Eins og sjá má er þetta alls ekki
slíkum prýðisfjölntiðli, sem Al-
þýðublaðið er, til framdráttar að
birta slfkt á prenti og síst af öllu
daginn fyrir aðfangadag.
Eg vona að þetta hafi verið ein-
hver mistök sem komi ekki fyrir
aftur.
Virðingarfyllst,
Sigfús Gizurarson,
Ægisgmnd 20, Garðabæ.
Eftirskrift: Hér um daginn var
mér brugðið er ég las leiðara
blaðsins sem fjallaði um Jimmy
Carter, fyrrverandi forseta Banda-
ríkjanna. Kom þar fram óvægin
gagnrýni á persónu hans, og mér
fannst sem greinin væri skrifuð af
meira kappi en þekkingu á
raunverulegum staðreyndum
málsins.
,,Þar gefur að líta á mið-
opnu, Jólasöngbók Al-
þýðublaðsins, einn mesta
ósóma sem birst liefur á
prenti síðustu ár.”