Alþýðublaðið - 05.01.1995, Síða 8

Alþýðublaðið - 05.01.1995, Síða 8
Fimmtudagur 5. janúar 1995 3.tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Allt upp í loft í Kvennalistanum út af seinagangi við uppröðun á framboðslista í Reykjavík: Þingkonu hafnað Óánœgja meðal yngri kvenna sem hugleiða hliðar á kostnað Elínar G. Olafsdóttur? Uppstilling á framboðslista Kvennalistans í Reykjavík fyrir al- þingiskosningamar í vor er að verða hin mesta þrautaganga. Niðurstöður forvals, sem fram fór í desember, liggja ekki enn fyrir og margir telja ólíklegt að þær verði nokkm sinni birtar opinberlega. Búið mun vera að telja atkvæðin tvisvar en þrátt fyrir það er engin niðurstaða fundin. Það verður uppstillinganefnd sem þarf að taka af skarið og gera tillögu um upp- röðun á listann, en innan nefndarinn- ar mun vera bullandi ágreiningur. Togstreitan mun vera millum yngri kvennalistakvenna, annarsvegar fylgjenda Þómnnar Sveinbjamar- dóttur, framkvæmdastjóra Kvenna- listans, og hinsvegar fylgjenda Elínar G. Ólafsdóttur, skólastjóra, Lang- holtsskóla. Úrslit hins leynilega forvals Samkvæmt ömggum heimildum Alþýðublaðsins mun röð frambjóð- enda í forvalinu hafa verið eftirfar- andi: I. sæti: Kristín Astgeirsdóttir alþingismaður, 2. sæti: Guðný Guð- bjömsdóttir, 3. sæti: Þómnn Svein- bjamardóttir og 4. sæti: Elín G. Ól- afsdóttir. Kristín hlaut nokkuð afger- andi kosningu í efsta sætið en mjög mjótt var á mununum milli næstu frambjóðenda. Styrrinn mun standa um það, að stuðningsmenn Elínar vilja að hún skipi þriðja sætið, en ungu konumar Óskoraður oddviti Kvennalistans í Reykjavík. Kristín Ástgeirsdóttir hlaut afgerandi kjör í efsta sætið í hinu harðlokaða forvali. em fastar fyrir: „Ef Elín verður sett ofarlega á listann en Þórunni ýtt til hliðar, munu ungu konumar einfald- lega segja skilið við Kvennalistann. Við getum ekki séð að Elín muni fiska mikið af atkvæðum," sagði ein af viðmælendum Alþýðublaðsins úr þeirra hópi. Þessi afstaða var staðfest af fleirum. Annað sem vekur athygli er að Guðrúnu Halldórsdóttur, sem nú situr á Alþingi, virðist algerlega hafa verið hafnað í þessu forvali. að segja skilið við flokkinn. Þórunni Sveinbjörnsdóttur ýtt til Pirringur yfir seinagangi Mikill pirringur er nú innan Kvennalistans í Reykjavík út af þess- um seinagangi. Ekki er búist við til- lögu uppstillingamefndar fyrren í. næstu viku. Það sem vefst fyrir nefndinni er hve fá atkvæði ber á milli og því hefur þurft að telja tvisv- ar eins og áður sagði. „Nú reynir á hvað Kvennalistinn getur verið pró- gressívur," segir ein hinna ungu. „Okkur finnst þessi bið lykta af því að markvisst sé verið að vinna að því að sniðganga okkur,“ segir önnur. Viðmælandi Alþýðublaðsins í hópi hinna eldri neitar því hinsvegar alfar- ið að nokkuð slíkt sé í farvatninu og fmnst sérkennilegt að einhver viti eitthvað um hvað skoðanakönnunin hafi sýnt, því það „eigi enginn að vitá' nema uppstillinganefndin. Uppstillingamefndin er nú að tala við þær konur sem gáfu kost á sér, og þannig hefur þegar verið rætt við Kristínu Ástgeirsdóttur. Hún var hinsvegar ófáanleg til að staðfesta það í samtali við Alþýðublaðið að rætt hefði verið um fyrsta sætið. Ekkert talad vid Þórunni Elín mun vera stödd á Kananeyj- um þessa dagana, svo ekki verður það til þess að flýta því að þetta lang- dregna uppstillingaferli taki enda. Það hefur nú staðið yflr í rúman mán- uð. Þómnn Sveinbjamardóttir sagði í Þórunn Sveinbjarnardóttir lenti í 3. sæti, samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins. Kristín Ástgeirs- dóttir mun hinsvegar ekki vilja hafa hana svo ofarlega á lista. samtali við Alþýðublaðið að ekkert hefði verið talað við sig um niður- stöður könnunarinnar, né um sæti á listanum, en að öðm leyti vildi hún ekki tjá sig um málið og vfsaði á upp- stillinganefnd. Einn heimildamaður blaðsins sagði að Kristín Ástgeirsdóttir beitti sér mjög ákveðið gegn Þórnnni: „Kristín vill að Elín G. Ólafsdóttir skipi 3. sætið, og þessvegna hefur uppstillingarnefndin ekki einu sinni rætt við Þóranni ennþá.“ Elín G. Ólafsdóttir. Ungar kvennal- istakonur hóta að hætta ef hún fær þriðja sætið. Guðrún Halldórsdóttir alþingis- maður, sem eins og áður segir virðist engan veginn vera inni í myndinni að hafa ofarlega á listanum eftir útreið hennar í forvalinu, verður erlendis til 19. janúar. Það verður svo félagsfundur Kvennalistans í Reykjavík sem tekur endanlega ákvörðun um uppröðun á listann og má búast við því að sá fundur verði spennuþmnginn og jafnvel afdrifaríkur fýrir framtíð Kvennalistans. Samstarf MHÍ og Menningar- stofnunar Bandaríkjanna: Skjálist þeirra bestu Myndlista- og handíðaskóli ís- lands og Menningarstofnun Bandaríkjanna efna til sýninga á skjálist (video art) sjö eftirmið- daga í janúar og er fyrsta sýningin klukkan 16 í dag. Á skjálistahátíð- inni verða sýnd valin verk eftir listamennina Vito Acconi. John Baldessari, William Wegman, Bill Viola, Martha Rosler og tíu aðra skjálistamenn sem hlotið hafa viðurkenningu síðustu tutt- ugu árin. Flest þessara verka hafa ekki verið sýnd áður á Islandi. Verkin spanna vítt svið hvað varðar við- fangsefni, tækni og hugmynda- fræði. Þótt ómögulegt sé að gefa neina heildarmynd af þessum miðli em myndböndin valin með það fyrir augum að veita innsýn í mismunandi notkun myndbands- ins sem þróttmikils og mikilvægs listmiðils. Verkin eru fengin frá Electronic Arts Intermix safninu í New York. Myndböndin verða sýnd 5., 10„ 12., 17., 19., 24. og25.janúar í Menningarstofnun Bandaríkj- anna að Laugavegi 26 og hefjast klukkan 16. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill en hver sýning tekur eina til eina og hálfa klukku- stund. Skeggrætt í Hafnarfirði Þessir tveir hafnfirsku kumpánar voru að spjalla saman í vetrarblíðunni í gær þegar Einar Óiason Ijósmyndari blaðsins var á slóðum gafiara. Ekki vitum við umræðuefníð, en sjálfsagt hefur prófkjörsbarátta Alþýðuflokksins borið á góma - og loppur. Auknir styrkir stórhækka ferðakostnað Háskóla íslands: Erlendur ferðakostnaður hækkaði í 70 milljónir — á árinu 1993 en kostnaðurinn var 49 milljónir áirið áður. Styrkir frá Evrópuríkjum stóraukast og kalla á œ fleiri utanlands- ferðir með tilheyrandi kostnaði. Gunnlaugur H. Jónsson, fjármálastjóri Háskólans: Auknir styrkir frá Evrópu kalla á fleiri ferðir og auk- inn kostnað þeim samfara. A-mynd: E.ÓI. Ferðakostnaður Háskóla ís- lands erlendis hækkaði milli ár- anna 1992 til 1993 úr 49 milljónum í tæpar 70 miiljónir króna. Fjár- málastjóri Háskólans, Gunnlaug- ur H. Jónsson, telur þessa hækkun stafa af auknum styrkjum til skól- ans frá Evrópuríkjum sem gangi út á utanferðir nemenda og kenn- ara. Þessum styrkjum fjölgaði áfram á síðasta ári og má því búast við enn meiri útlátum Háskólans í erlendan ferðakostnað í fyrra. Ríkisreikningur fyrir árið 1993 er nýkominn út. Þar kemur fram að erlendur ferðakostnaður Há- skóla íslands það ár nemur tæpum 70 milljónum króna. Til saman- burðar má geta þess að erlendur ferðakostnaður aðalskrifstofu utanríkisráðuneytisins er 59 millj- ónir 1993 og hafði lækkað um átta milljónir frá árinu áður. Sam- kvæmt ríkisreikningi 1992 var er- lendur ferðakostnaður Háskólans það ár hins vegar 49 milljónir. Hækkunin er iiðlega 20 milljónir króna milli ára. Gunnlaugur H. Jónsson fjár- málastjóri Háskólans sagði í sam- tali við blaðið að þessi hækkun hefði sínar skýringar. „Það sem hefur breyst er það að Evrópu- samstarfið hefur mjög eflst og við fáum nú tugi milljóna króna í styrki frá Evrópu. Þetta gengur fyrst og fremst út á ferðir nemenda og kennara til menntunar. Árið 1993 námu styrkir frá Norðurlöndum og öðrum Evrópu- löndum um 50 mill.jónum króna og árið 1994 voru þetta orðnar eitt hundrað milljónir. Margir þessara styrkja eru eingöngu til svona samskipta, skipti á kennurum og nem- enduin sein þá hafa óhják væmilega ferðakostnað í för með sér. Þá eru ferðir kennara í rannsóknarleyfum einnig nokkuð stór liður í erlendum ferðakostnaði skól- ans,“ sagði Gunn- laugur. Til viðbótar þess- um erlenda ferða- kostnaði kemur fram í ríkisreikn- ingi 1993 að Háskól- inn eyddi 15 millj- ónum króna til ferðalaga hér inn- anlands. Þetta er raunar nokkru lægri upphæð en árið áður. Gunn- laugur H. Jónsson sagði að stærst- ur hluti þessa innlenda ferðakostn- aðar væru ferðir framhaldsskóla- kennara sem væru að koma til Reykjavíkur til endurmenntunar við Háskólann.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.