Alþýðublaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 RAÐAUGLYSINGAR sr Alþingi ISLINDI N- (I A Frá stjórnarskrárnefnd Alþingis Stjórnarskrárnefnd Alþingis gefur þeim, sem þess óska, kost á aö koma meö skriflegar athugasemdir viö frumvarp til stjórnskipunarlaga um breytingu á stjórnarskrá lýðveld- isins íslands, nr. 33/1994, meö síöari breytingum, 297. mál. Meginefni frumvarpsins er tillögur til breytinga á VII. kafla stjórnarskrárinnar sem m.a. hefur að geyma mannréttinda- ákvæöi hennar. Frumvarpið liggur frammi í skjalaaf- greiðslu Alþingis aö Skólabrú 2, Reykjavík. Óskað er eftir að athugasemdirnar berist skrifstofu Alþing- is, nefndadeild, Þórshamri við Templarasund, 150 Reykja- vík, eigi síðar en 20. janúar 1995. Stjórnarskrárnefnd Alþingis. Starfsmenntastyrkir félagsmálaráðuneytisins Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1922. Styrkir eru veittir til aðila, sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu. Miðað er við að styrkir séu veittir vegna við- fangsefna á árinu 1995. Umsóknir berist Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneyt- isins á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og skal þeim skilað þangað eigi síðar en 15. febrúar 1995. Félagsmálaráðuneytið, 2. janúar 1995. Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur fyrir árið 1995. Framboðslistum eða tillögum skal skila á skrifstofu félags- ins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi, mánudaginn 9. janúar 1995. Kjörstjórn Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur. Jólatrésskemmtun Verzlunarmannafélags Reykjavíkur Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmt- un fyrir börn félagsmanna, sunnudaginn 8. janúar nk., kl. 16:00, á Hótel íslandi. Miðaverð er kr. 600,- fyrir börn og kr. 200,- fyrir fullorðna. Miðar eru seldir á skrifstofu VR, í Húsi verslunarinnar, 8. hæð. Nánari upplýsingar í síma félags- ins, 568-7100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Hið pólitíska litróf á nýju ari Fulltrúaráð alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík Aðalfundur fulltrúaráðsins Nú þegar nýtt ár er gengið í garð er eðlilegt að staða Alþýðuflokksins í hinu pólitíska litrófi sé metin. Staða Alþýðuflokksins á þessum tímamótum er erfið; flokkurinn mælist með lítið fylgi og nær allt það sem almenningur (og frétta- og blaðamenn) telja, að miður hafi farið í tslensku stjómmálalífi á síðasta ári hefur verið eignað Alþýðuflokknum. Forystumönnum flokksins hefur gengið illa að kveða í kútinn spill- ingammræðuna sem dunið hefur á flokknum. Og til viðbótar þessu þurfa al- þýðuflokksmenn síðan að sætta sig við, að einn af forystumönnum flokksins til langs tíma, Jóhanna Sig- urðardóttir, hefur sagt sig úr flokkn- um ásamt nokkm öðru flokksfólki og stofnað ný stjórnmálasamtök. Sterk málefnastada Hinsvegar ber ekki að gleyma því, að þó að staðan sé erfið þá er ekkert tilefni til örvæntingar. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið getur Alþýðu- flokkurinn nefnilega státað af mjög sterkri málefnaaðstöðu. Alþýðu- flokkurinn hefur í rikisstjóm haft mótandi áhrif á íslensk stjórnmál síð- ustu átta ár. Flokkurinn hefur barist af hörku fyrir stefnumálum sínum og oftar en ekki haft sigur í glímunni um stefnu stjómarinnar; hvort sem það em ríkisíjármál eða húsaleigu- bætur. En þó að sigrar hafi unnist, saman- ber EES, þá má ekki halda að starf- inu sé lokið. Nei, það verður alltaf að skoða nálægt eða fjarlægt umhverfi með það fyrir augum að bæta hag lands og þjóðar. Þó svo að Alþýðu- flokkurinn hafi verið í ríkisstjóm síð- astliðin átta ár hefur honum ekki tek- ist að færa allt til betri vegar, því ennþá em undarlegir hlutir í gangi á Islandi. Úrelt stefna lifir Enn lifir og dafnar úrelt stefna í landbúnaðarmálum, þar sem fram- sóknarmenn allra flokka hafa varið ríkisforsjá í landbúnaði. Rétt fyrir síðustu áramót sam- þykkti Alþingi, Gatt-samninginn. „Samband ungra jafn- aðarmanna hefur marg- ítrekað ályktað að hags- munum íslendinga sé best borgið innan vébanda Evrópusam- bandsins ... Þrátt fyrir að Norðmenn hafi hafnað aðild að ESB í annað sinn, þá breytir það engu um að hættan á einangrun er mikil. Það eitt að hafa engin áhrif á ákvarðanir ESB, gerir það að verkum að íslendingar verða að sætta sig við einhliða ákvarðanir sambands- ins, sama hvort þær eru þjóðinni til heilla eða tjóns. Þar með er ljóst að fullveldi landsins er ekki mikils virði.“ Alþýðuflokkurinn barðist fyrir sam- þykki hans, en forsjárhyggjusinnar á Alþingi komu í veg fyrir að samn- ingurinn yrði eins mikil búbót og efni stóðu til fyrir almenning með því að veita landbúnaðarráðherra al- ræðisvald til að ákveða tolla á inn- flutning á landbúnaðarvömm. Þróunin til hagræðingar í sjávarút- vegi gengur hægt, þó svo að þróun- arsjóður hafi komist á laggimar á síðasti ári. Enn er mikil andstaða við veiðileyfagjald og til að kóróna stuðning og ókeypis gjafir til útgerð- armanna vill sjávarútvegsráðherra leyfa veðsetningu á aflaheimildum. Það má aldrei gerast. Af ofansögðu er Ijóst að við verð- um að halda baráttunni áfram fyrir réttlátara kerfi í landbúnaði og sjáv- arútvegi með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi á kostnað sérhags- muna. Hættan á einangrun Á aukaflokksþingi Alþýðuflokks- ins nú í febrúar verður stefnan í Evr- ópumálum mörkuð. Samband ungra jafnaðarmanna hefur margítrekað ályktað að hags- munum íslendinga sé best borgið innan vébanda Evrópusambandsins. Fyrir mitt leyti er málið á dagskrá og hefur verið lengi. Þrátt fyrir að Norðmenn hafi hafn- að aðild að ESB í annað sinn, þá breytir það engu um að hættan á ein- angrun er mikil. Það eitt að hafa eng- in áhrif á ákvarðanir ESB, gerir það að verkum að íslendingar verða að sætta sig við einhliða ákvarðanir sambandsins, sama hvort þær eru þjóðinni til hcilla eða tjóns. Þar með er ljóst að fullveldi landsins er ekki mikils virði. Brettum upp ermar Þrátt fyrir að allharkalega blási á móti Alþýðuflokknum þessa stund- ina, er þess meiri ástæða fyrir allt al- þýðuflokksfólk að bretta upp erm- arnar, bjóða mótlætinu byrginn og berjast fyrir stefnu flokksins. Því gott brautargengi Alþýðuflokksins í næstu alþingiskosningum þýðir að Alþýðuflokkurinn verður áfram ger- andinn í íslensku stjómmálalífi, ís- lensku þjóðinni til heilla. Með nýárskveðju! Höfundur er stjórnmálafræðinemi og varaformaður Félags ungra jafnaðar- manna í Reykjavík. Pallborðið Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Fulltrúaráð alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 10. janúar. Fundurinn verður haldinn klukkan 20:30 á Kornhlöðuloftinu við Bankastræti. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ávörp: Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra og formaður Alþýðuflokksins - Jafnaðar- mannaflokks íslands; Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra. (í fulltrúaráðinu í Reykjavík eiga sæti þeir jafn- aðarmenn í alþýðuflokksfélögunum í borginni er sátu sem fulltrúar á síðasta flokksþingi Al- þýðuflokksins.) Fjölmennum! - Stjórnin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.