Alþýðublaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
ALÞÝÐU BLAÐIÐ
7
Enn fleiri forkólfar Alþýðubandalagsins í Reykjavík lýsa óánægju sinni:
Ekkert pólitískt starf í
Alþýðubandalaginu
- segir Álfheiður Ingadóttir um ástandið í Alþýðubandalaginu. Svavar Gestsson bregst reiður við viðtölum
Alþýðublaðsins við óánægða flokksmenn hans og segir blaðið komið í heilagt stríð við Alþýðubandalagið.
Aðspurður um viðbrögð við yfirlýsingum Auðar Sveinsdóttur og Stefan-
íu Traustadóttur í Alþýðublaðinu í vikunni sagði Svavar Gestsson: „Al-
þýðublaðið er ekki fréttablað. Það er flokksblað, innanflokksblað."
„Starf innan Alþýðubandalags-
ins er í algjöru lágmarki og raunar
lítið sem ckki neitt. Það er ekkert
póiitískt starf í gangi í þessum
flokki. Mér fínnst það heldur dap-
urlegt þegar pólitískur flokkur
sinnir ekki pólitísku starfi en það
er bara staðreynd. Eg ætla hins
vcgar ekki að elta ólar frekar við
þessi framboðsmál Alþýðubanda-
Iagsins,“ sagði Álfheiður Ingadótt-
ir, einn af oddvitum flokksias í
Reykjavík til þessa í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
„Þessi framboðslisti sem er búið
að búa til mun þá væntanlega annast
bæði kosningaundirbúning og gerð
kosningastefnuskrár og auðvitað
hafa kosningabaráttu með höndum
fyrir flokkinn. Ég er ekki í þeim hópi
og ætla ekki að vera að angra fólk
frekar með athugasemdum eða til-
lögum,“ sagði Álfheiður ennfremur.
En ætlar hún þá ekki að leggja
flokknum lið í kosningabaráttunni?
„Ég er búin að gera það sem ég hef
getað á réttum félagslegum vettvangi
til að fá menn til að breyta afstöðu
sinni varðandi fyrirkomulag við val
á listann. Þegar það gengur ekki
verður það bara að hafa sinn gang.
En auðvitað er það mjög alvarlegt
þegar þriðjungur kjördæmisráðs-
manna er á móti lillögu um að við-
hafa ekki prófkjör og stór hópur ann-
arra styður hana með semingi. Það
sem maður hefur verið ósáttur við er
að það skuli tekinn af manni réttur-
inn til þess að taka þátt í að ákveða
þennan framboðslista. Og það skuli
jafnframt tekinn rétturinn af félags-
mönnum til að bjóða sig fram eða
styðja einstaklinga til framboðs. Það
er um þetta sem málið snýst. En þetta
er þróun sem er búin að vera lengi í
gangi og útkoman á fundi kjördæm-
isráðs kom mér í sjálfu sér ekki á
óvart,“ sagði Álfheiður Ingadóttir.
Alþýdubladid spinnur
upp gervifréttir
„Ég les nú aðallega um þetta í Al-
þýðublaðinu og hef því ekki ástæðu
til að vera mjög stressaður yfir því,“
sagði Svavar Gestsson alþingismað-
ur þegar hann var spurður álits á
þeirri óánægju sem grasserar innan
flokksins í Reykjavík. Svavar tók
spumingar blaðsins óstinnt upp.
Kannaðist ekki við neinn ágreining
innan flokksins í Reykjavík og taldi
allar fréttir þar að lútandi uppspuna
Alþýðublaðsins:
-Við búum þetta ekki til, Svav-
ar...
,Ja, það er greinilegt að Alþýðu-
blaðið er bara í einhveiju heilögu
stríði gegn Alþýðubandalaginu. Það
er dálítið merkilegt.“
-Ég get ekki tekið undir það..
„Það er það. Það er ekkert annað
blað með þetta. Enginn annar Ijöl-
miðill. Ef þetta væru einhverjar frétt-
ir tækju aðrir það upp en svo er
ekki.“
-Finnst þér það ekki fréttir,
Svavar, þegar þekkt fólk úr
flokknum eins og Stefanía
(Traustadóttir) og Auður (Sveins-
dóttir) segjast ekki vilja vinna með
honum lengur?
„Ég hef rætt við þær þannig að ég
hef ekkert um þetta að segja. Al-
þýðublaðið er að reyna að spinna
upp gervifréttir kringum Alþýðu-
bandalagið og telur það brýnasta
verkefni Alþýðuflokksins núna að
vera í stríði við Alþýðubandalagið.
Alþýðublaðið er náttúrlega ekkert
annað en tlokksblað.'1
-En við spinnum ekki...
„Alþýðublaðið er ekki fréttablað.
Það er flokksblað, innanflokksblað,“
sagði Svavar.
Nokkur frekari orðaskipti urðu í
þessa veru. Svavar neitaði að taka
gildar fréttir blaðsins af viðtölum
þess við óánægða frammámenn Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík þótt
þeir korni þar fram undir nafni. Að
lokum gaf Svavar eftirfarandi yfir-
lýsingu:
„Alþýðubandalagið mun ganga
frá sínum framboðslista í þessum
mánuði. Ég er sannfærður um að það
mun takast vel að fylkja fólki um
þann lista, bæði llokksmönnum og
óháðum einstaklingum í stórum stíl.
Við verðum mótvægi við Sjálfstæð-
isflokkinn í Reykjavík sem Alþýðu-
flokkurinn verður ömgglega ekki.“
...
■ITl, ^ -es-ríiiss
r ,m
% jsvmh' ■■■
F URSOGiCi
*/ ÍlÍiiihtesS ' -•"••«
„Gervifréttir" Alþýðublaðsins, sem birst hafa í vikunni. í viðtölum við
blaðið hafa tveir af varaþingmönnum Alþýðubandalagsins lýst yfir því, að
þeir muni ekki starfa fyrir flokkinn. Þær Auður Sveinsdóttir og Stefanía
Traustadóttir hafa verið meðal nánustu stuðningsmanna Svavars Gests-
Mannval á tónleikum Listaklúbbsins:
Águsta, Ingveldur
Yr og Harpa;
Blandon, Kristinn
og Bernstein
Ágústa S. Ágústsdóttir, Harpa Harðardóttir
og Ingveldur Ýr Jónsdóttir flytja lög úr söngleikj-
um við píanóundirleik Kristins Arnar Kristins-
sonar. Árni Blandon fjallar um sögulegan bak-
grunn laganna.
Listaklúbbur Þjóðleikhúskjallar- kvöld, 9. janúar, en þá munu þrjár
ans hefur starf nýja ársins á léttum ungar og upprennandi söngkonur,
nótum næstkomandi mánudags- Ágústa S. Ágústsdóttir, Harpa Harð-
ardóttir og Ingveldur Ýr Jónsdóttir,
flytja gestum lög úr söngleikjum við
píanóundirleik Kristins Amar Krist-
inssonar.
Alþýðublaðið ræddi stuttlega við
Ágústu og Höipu í gær og spurði
fyrst afhvetju tónleikarnir kæmu til:
„Við, söngkonumar á tónleikun-
um á mánudagskvöldið, komuni eig-
inlega úr sitthvorri áttinni. Við tvær
höfum mikið verið að æfa saman dú-
etta; lærðum saman í Söngskólanum
í Reykjavík og vorum samferða með
kennaraprófið síðastliðið vor. Ing-
veldur Ýr lærði síðan hér heima, í
Vínarborg og Bandaríkjunum.
Mánudagstónleikarnir era fyrst og
fremst kynning á Leonard Bernstein
og lagasmíðum hans; með áherslu á
fjölbreytileikann í verkunum. Hann
var ekki aðeins söngleikjasmiður. Já,
það er náttúrlega dálítið öðravísi að
syngja þessi söngleikjalög en að
koma fram og syngja óperaaríur, en
alveg jafn vandasamt og krefst heil-
Grafík í Stöðlakoti
Á niorgun, laugardag, opnar
Þórdís Elín Jóclsdóttir grafík-
sýningu í Stöðlakoti við Bók-
hlöðustíg. Myndirnar á sýning-
unni eru handlitaðar ætingar
unnar í kopar.
Þórdís stundaði myndlistar-
nám á listasviði Fjölbrautaskól-
ans og útskrifaðist síðan úr graf-
íkdeild Myndlista- og handíða-
skólans vorið 1988. Hún er með-
limur myndlistarhópsins Áfram
veginn sem rekur grafíkverk-
stæði í Þingholtsstræti 5. Hópur-
inn hefur haldið nokkrar sam-
sýningar en þetta er önnur
einkasýning Þórdísar.
Sýningin er opin daglega
klukkan 14:00 til 18:00 og henni
lýkur 22. janúar.
Þessar ungu óperusöngkonur, Ágústa S. Ágústsdóttir, Harpa Harðardóttir og Ingveldur Ýr Jónsdóttir, koma
fram í Þjóðieikhúskjallaranum á mánudagskvöldið: Það er náttúrlega dálítið öðruvísi að syngja þessi söngleikja-
lög en að koma fram og syngja óperuaríur, en alveg jafn vandasamt og krefst heilmikillar tækni. A-mynd: E.ÓI.
mikillar tækni. Jú, jú, Bemstein er í
miklu uppáhaldi og við hlökkum
mikið til.“
Ágústa og Harpa hafa báðar tekið
þált í tjölda sýninga hjá íslensku
óperunni og í nóvember síðastliðn-
um héldu þær santan tónleika í Lista-
safni Kópavogs - Gerðarsafni. Yng-
veldur Ýr stundaði nám við Söng-
skólann í Reykjavík, Tónlistarskól-
ann í Vínarborg og Tónlistaskóla
Manhattan í New York. Hún hefur
tekið þátt í óperauppfærslum og
haldið tjölda tónleika, bæði erlendis
og hér á Islandi.
Á tónleikunum mun Ámi E.
Blandon fjalla um sögulegan bak-
grunn laganna með aðaláherslu á Le-
onard Bemstein, höfund tónlistar
söngleiksins West Side Story sem
framsýndur verður í Þjóðleikhúsinu í
febrúar.
Ennfremur koma Valgerður
Guðnadóttir og Garðar Thór Cortes,
annað parið af tveimur sent leika
Maríu og Tony í sýningunni, fram á
mánudagskvöldið og syngja við pí-
anóundirleik Jóhanns G. Jóhanns-
sonar hljómsveittu-stjóra.
Listaklúbbur Þjóðleikhúskjallar-
ans heldur nú uppá eins árs afmæli
sitt um þessar mundir, en hann var
stofnaður 3. janúar 1994. Dagskráin
á mánudagskvöldið hefst klukkan
20:30, aðgangseyrir er krónur 500 en
krónur 300 fyrir félagsmenn. Á tón-
leikunum mun liggja frammi dag-
skrá klúbbsins fyrir janúar og febrú-
ar.
Helgi í Gauks-
hreiðrinu
Sýningar á leikritinu Gaukshreiðr-
ið heljast á ný í Þjóðleikhúsinu 13.
janúar eftir nokkurra vikna hlé. Þær
breytingar hafa orðið á hlutverka-
skipan að Helgi Skúlason tekur við
hlutverki Scanlons, eins af sjúkling-
unum á geðsjúkrahúsinu, af Erlingi
Gíslasyni.
Gaukshreiðrið var framsýnt á sfð-
astliðnu leikári. Það var síðan tekið
upp aftur í upphafi þessa leikárs og
hefur verið sýnt síðan við rniklar vin-
sældir.
Sýningum fer nú fækkandi, bæði
vegna þrengsla í leikmynda- og leik-
munageymslum Þjóðleikhússins og
vegna þess að leikarar í Gauks-
hreiðrinu þurfa að snúa sér að öðrarn
verkefnum innan hússins. Það fara
því að verða síðustu forvöð að sjá
þetta fræga verk á stóra sviðinu.
Þrettánda-
brennur
Skátafélög og Kór Selja-
kirkju halda árlega þrettánda-
brennu niður af Oldusclsskóla í
kvöld. Kveikt verður í bálkcst-
inum klukkan 20:00.
Hafnfirðingar ætla að kveðja
jólin á eftirminnilegan hátt með
viðamikilli þrettándapleði á
íþróttasvæði Hauka á Asvöllum
í kvöld. Hátiðin hefst klukkan
19:45 með blysför álfa, trölla,
jólasveina og hestamanna inn á
svæðið. Fjörkarlar sjá um söng
og spilamennsku, grýla, leppa-
lúði og jólasveinar skemmta.
Kveikt verður í bálkesti og í lok-
in verður flugeldasýning. Heitt
kakó og kaffi verður selt vægu
verði sem og blys. Boðið er uppá
ókeypis strætóferðir úr inið-
bænum og frá Suðurbæjar-
sundlaug frá klukkan 19:30.
Almannatryggingar:
Bætur
greiddar
fyrr
Bætur almannatrygginga verða
framvegis greiddar út fyrsta dag
hvers mánaðar. Áður var útborgun-
ardagur bóta þriðji virki dagur hvers
mánaðar. Breytingar á lögum um
sérstaka heimilisuppbót tóku einnig
gildi 1. janúar. Breyttur útborgunar-
dagur gerir það að verkum, að unt-
sóknir unt bætur almannatrygginga
þurfa að berast fyrr en áður til Try gg-
ingastofnunar. Nú þurfa untsóknir að
berast til stofnunarinnar fyrir 10. dag
hvers mánaðar, ef greiðslur eiga að
hetjast næsta mánuð á eftir.
Sérstök heimilisuppbót, sem áður
féll niður ef lífeyrisþegi hafði aðrar
tekjur en bætur almannatrygginga,
mun nú skerðast krónu á móti krónu
við tekjur h'feyrisþega umfram al-
mannatryggingabætur. Aðeins þeir
h'feyrisþegar sem búa einir, geta átt
rétt á sérstakri heimilisuppbót.