Alþýðublaðið - 01.02.1995, Síða 5
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
Elmar Oliveira: Fiöluleikari sem er meðal þeirra eftirsóttustu í heiminum
og spilar með Sinfóníuhljómsveitinni annað kvöld.
Samband íslenskra bankamanna
60 ára afmæli
stéttarfélags 3.400
bankastarfsmanna
Samband íslenskra bankamanna
(SIB) fagnaði 60 ára afmæli sínu síð-
astliðinn mánudag, 30. janúar, og
bankar, sparisjóðir og önnur fjár-
málafyrirtæki buðu viðskiptavinum
af þvf tilefni uppá kaffi og meðlæti.
Saga sambandsins verður stuttlega
rakin hér á eftir vegna afmælisins:
SÍB er stéttarfélag 3.400 starfs-
manna banka, sparisjóða og flestra
fjármálafyrirtækja landsins. Banka-
menn vinna meðal annars í Seðla-
bankanum, Byggðastofnun, Iðnlána-
sjóði, Reiknistofu bankanna, Þjóð-
hagsstofnun, kaupleigufyrirtækjum
og víðar.
SÍB var stofnað árið 1935 og var
Haraldur Johannessen fyrsti for-
seti þess. Það var upphaflega laus-
tengt bandalag bankamanna, en þró-
aðist smám saman yfir í að verða
fullgilt stéttarfélag.
Við stofnun Sambands íslenskra
bankamanna fyrir 60 ámm vom ör-
fáar konur starfandi í bönkum.
Dæmið hefur nú snúist við, því 75%
af félögum SIB em konur. Núver-
andi formaður SÍB er Anna G.
Ivarsdóttir, en hún er önnur konan
til þess að verða formaður sam-
bandsins. Framkvæmdastjóri SÍB er
Vilhelm G. Kristinsson.
Bankastarfsmönnum í viðskipta-
bönkunum hefur fækkað um 850 frá
því þeir vom flestir árið 1988.
Tæknibylting og hagræðing í banka-
kerfinu hefur haft þessa fækkun í för
með sér. Undanfarin misseri hafa að
meðaltali um eitt hundrað félags-
menn SÍB gengið atvinnulausir.
Síðustu ár hefur viðamikil tækni-
væðing bankaþjónustunnar leitt til
þess að þjónusta banka við almenn-
ing og fyrirtæki hefur aukist vem-
lega. Oftar en ekki eiga þessi sam-
skipti sér stað í gegnum tölvur, hrað-
banka og síma, þannig að þrátt fyrir
aukin viðskipti þurfa viðskipta-
mennimir sjálfir æ sjaldnar að koma
í bankana. Þessir breyttu starfshættir
í bönkunum hafa valdið því að mun
meiri kröfur em gerðar til hæfni og
þekkingar starfsmanna.
Samband íslenskra bankamanna
hefur frá fyrstu tíð lagt áherslu á
menntunarmál bankamanna og rekur
nú Bankamannaskólann sem er í
eigu SÍB, viðskiptabankanna, spari-
sjóðanna og Seðlabankans. Starf-
semi Bankamannaskólans hefur ekki
síst verið mikilvæg á þeim miklu
breytingartímum sem nú ganga yfir.
Samband íslenskra bankamanna (SÍB) fagnaði 60 ára afmæli sínu síðast-
liðinn mánudag: Bankar, sparisjóðir og önnur fjármálafyrirtæki buðu við-
skiptavinum af því tilefni uppá kaffi og meðlæti. Meðfylgjandi mynd var
tekin í Islandsbanka við Bankastræti. A-mynd: E.ÓI.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands
Einn eftirsóttasti
fiðluleikari heims
- Elmar Oliveira - spil-
ar fiðlukonsert Beet-
hoven með hljómsveit-
inni á föstudag.
Fiðlukonsert eftir Beethoven og
Vorblót eftir ígor Stravinskíj eru
þau verk sem Sinfóníuhljómsveit Is-
lands mun leika á tónleikum sínum í
Háskólabíói fimmtudagskvöldið 2.
febrúar, klukkan 20:00. Hljómsveit-
arstjóri er Osmo Vánská, en einleik-
ari í fiðlukonsertnum er hinn heims-
þekkti Elmar Olíveira. Vanska er
jafnframt aðalhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar í Lathi í
Finnlandi, en sú hljómsveit hefur
vakið alþjóðlega athygli fyrir frá-
bæran leik sinn.
Fidlukonsert Beethoven
Það er nánast alltaf helgiathöfn
þegar fiðlukonsert Beethoven er
fluttur og ekki skemmir fyrir, að fá
einn af eftirsóttustu fiðluleikurum
heimsins til þess að leika hann.
Fiðluleikarinn Elmar Oliveira - sem
er af portúgölsku bergi brotinn, en er
nú bandarískur þegn - hóf fíðlunám
hjá bróður sínum níu ára gamall. Að
námi loknu sópaði hann að sér verð-
launum í fiðlukeppnum og var með-
al annars fyrstur bandarískra fiðlu-
leikara til að vinna gullið í Tsjæ-
kovskýj-fiðlukepninni í Moskvu, ár-
ið 1978.
Fiðlukonsert Beethoven var sam-
inn fyrir fiðlusnillinginn Franz
Clement sem frumflutti hann árið
1806. Þó að sá flutningur hafi fengið
góðar viðtökur, virðist sem konsert-
inn hafi fallið í gleymsku þar til
fiðluleikarinn Joseph Joakim tók
hann á verkefnaskrá sína á síðari
hluta sfðustu aldar. Síðan hefur hann
skipað fremstan sess fiðlukonserta.
Vorblót Stravinskíj
Ballettmeistarinn Sergei Djag-
hflev var sennilega einn mesti áhrifa-
valdurinn í lífi Igor Stravinskíj, en
það var fyrir hans tilstilli að Stra-
vinskíj fór frá Rússlandi til Parísar
þar sem hann dvaldi síðan í fjölda-
mörg ár. Síðar llutti Stravinskíj til
Bandaríkjanna og gerðist þar ríkis-
borgari. Fyrstu Parísarár hans voru
afar frjósöm, en þá samdi hann hvert
stórvirkið á fætur öðru, svo sem ball-
ettana Eldfuglinn (1910), Petrúskja
(1911) og Vorblót (1913). Ballettinn
Vorblót var fmmsýndur í París 1913
og munu engin dæmi um að tónlist-
arviðburður hafi valdið öðm eins
uppnámi og þá varð. Er leið á sýn-
inguna fór fúkyrðaflaumurinn að
streyma um salinn og hávaðinn varð
þannig svo mikill að ballettdansar-
amir heyrðu ekki tónlistina. Að lok-
um fór svo að salurinn logaði í slags-
málum.
Gagnrýni eftir þessa fyrstu upp-
færslu á Vorblótinu var öll á einn
veg: Þetta var sú versta tónlist sem
nokkm sinni hafði heyrst. Sinfóníu-
hljómsveit fslands flytur nú verkið í
þriðja sinn.
Doktor Unnsteinn Stefánsson (til hægri) hlaut viðurkenningu Hagþenkis - félags höfunda fræðirita og
kennslugagna - fyrir framúrskarandi fræðistörf og samningu fræðirita og námsefnis árið 1994. Það var Hjalti
Hugason, formaður Hagþenkis, sem afhenti viðurkenninguna við sérstaka athöfn.
Hagþenkir - félag höfunda fræðirita og kennslugagna
Dr. Unnsteinn Stefánsson hlaut
viðurkenningu Hagþenkis 1994
- fyrir mikilsverð fræðistörf og í tilefni af útkomu ritverks hans, Haffræði I og II.
Doktor Unnsteinn Stefánsson
hlaut viðurkenningu Hagþenkis -
félags höfunda fræðirita og
kennslugagna - fyrir framúrskar-
andi fræðistörf og samningu fræði-
rita og námsefnis árið 1994. Kunn-
gert var um úrslitin síðastliðinn
föstudag, en þetta er í áttunda sinn
sem viðurkenningin er veitt. Doktor
Unnsteinn fékk viðurkenninguna
fyrir mikilsverð fræðistörf og í til-
efni af útkomu ritverksins Haffrœði
I og II, en síðara bindið kom út á ár-
inu á vegum Háskólaútgáfunnar.
Það var Hjalti Hugason, formaður
Hagþenkis, sem afhend viðurkenn-
inguna við sérstaka athöfn.
Félagar í Hagþenki, sem stofnað
var árið 1984, em nú um 280 talsins
og að sögn Harðar Bergmann,
framkvæmdastjóra félagsins, fjölg-
ar þeim ört. Starfsemi Hagþenkis er
Ijármögnuð með samningum sem
félagið gerir við menntamálayfir-
völd um afnot skóla af útgefnum
verkum höfunda innan vébanda
þess.
í greinargerð viðurkenningaráðs
Hagþenkis er veitingin að vissu
leyti tengd 50 ára afmæli lýðveldis-
ins. Þar er minnt á að Alþingi hafi
samþykkt þingsályktunartillögu um
stofnun hátíðarsjóðs þann 17. júní
sem ætlað er efla vistfræðirann-
sóknir á h'fríki sjávar og efla ís-
lenska tungu. Verk doktor Unn-
steins tengjast vel báðum þessum
markmiðum.
Orðrétt segir í greinargerðinni:
„Viðurkenningin nær í raun til
starfsferils doktor Unnsteins í heild
sinni, þar sem hann helur á undan-
fömum áratugum unnið brautryðj-
endastarf á sviði hafrannsókna og
að ýmsu leyti lagt gmnn að nútíma
þekkingu okkar á hafinu. Ber starf
hans allt vitni um mikla elju og vís-
indalega natni. Ekki er síður um vert
að hann hefur miðlað þessari þekk-
ingu á móðurmálinu, þannig að hún
er öllum aðgengileg." Að loknu
yfirliti um efnisþætti Haffræði 1 og
II er minnst í greinargerðinni á mjög
ítarlega nafna- og atriðisorðaskrá og
verkið talið skrifað á fögra og auð-
skiljanlegu máli.
Viðurkenningin felst f viðurkenn-
ingarskjali og fjárhæð sem að þessu
sinni var 250 þúsund krónur.
Sérstakt viðurkenningarráð
ákveður veitinguna. I ráðinu eiga
sæti lirnm fulltrúar skipaðir af stjóm
félagsins til tveggja ára í senn. Ráð-
ið skipa nú: Indriði Gíslason pró-
fessor, Jón Gauti Jónsson land-
fræðingur, Mjöll Snæsdóttir fom-
leifafræðingur, Sigrún Klara
Hannesdóttir prófessor og Þor-
steinn Vilhjálmsson prófessor.
Doktor Unnsteinn Stefánsson er
fæddur árið 1922. Hann lauk MS-
prófi í efnafræði frá University of
Wisconsin árið 1946 og doktors-
prófi í haffræði frá Kaupmanna-
hafnarskóla árið 1962. Hann hefur
starfað og numið við hafrannsókna-
stofnanir í Danmörku, Noregi, Eng-
landi og Bandaríkjunum auk þess
sem hann starfaði sem sérfræðingur
og deildarstjóri hér á Islandi hjá
Hafrannsóknastofnun.
Doktor Unnsteinn gegndi pró-
fessorsembætti í hlutastöðu við
Duke University í Norður-Karól-
ínufylki í Bandaríkjunum árin 1965
til 1970, var verkefnisstjóri hjá
Menningar- og fræðslustofnun
Sameinuðu þjóðanna 1970 til 1973
og prófessor við Háskóla íslands
1975 til 1992. Eftir doktor Unnstein
liggja fjiilmörg ritverk. Auk Haf-
frœði I og II má nefna Hajið sem út
árið 1961 og doktorsritgerðina
North Icehmdic Waters árið 1962.
Þá hefur hann birt fjölda ritgerða í
íslenskum og erlendum vísinda-
tímaritum.
Doktor Unnsteinn tileinkar Haf-
fræði I og II eiginkonu sinni, Guð-
rúnu Einarsdóttur, sem var hon-
um stoð og stytta við ritun verksins;
bæði hvað snertir vélritun á handriti
fyrr á áram, prófarkalestur og auk
þess sem hún hefur lesið yfir texta
og lagfært málfar.
Leikritið Alheimsferðir Erna verður
„Reykjavíkur-frumsýnt“ á föstudaginn í
Kaffileikhúsinu: Leikararnir í verkinu, þau
Steinunn Ólafsdóttir, Anna Elísabet Borg,
Ásta Arnardóttir (Erna) og Valdimar Örn
Flygenring, voru á fullri ferð í gærdag við
að reka smiðshöggið á verkið
A-mynd: E.ÓI
*******
Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum
Alheimsferðir Erna“
- eftir Hlín Agnarsdóttur verður „Reykjavíkur- frumsýnt“ á föstudaginn. Leikþátturinn „Þá mun enginn skuggi vera til“
verður tekinn aftur upp næstu tvo fimmtudaga.
Leikritið Alheimsferðir Erna hlaut
fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni
Landsnefndar um alnæmisvamir
vorið 1993. Leikritið var framsýnt á
Listasumri á Akureyri síðastliðið
sumar, en framsýning verksins í
Reykjavík verður næstkomandi
föstudag, 3. febrúar, í Kaffileikhús-
inu í Hlaðvarpanum. Höfundur
verksins, Hlín Agnarsdóttir, er
jafnframt leikstjóri þess, en leikend-
ur era Anna Elísabet Borg, Ásta
Arnardóttir, Steinunn Ólafsdóttir
og Valdimar Örn Flygenring. Sýn-
ingin hefst klukkan 21:00, en húsið
er opnað klukkan 19:00. Að vanda
leikhússins er boðið uppá kvöldverð
fyrir og eftir sýningu.
Alheimsferðir Erna gerist á ferða-
skrifstofunni Alheimsferðir þar sem
Ema er markaðs- og sölufullUúi.
Ema fær þá stórsnjöllu hugmynd, að
„selja óróleikann í Reykjavík“ ein-
sog hún orðar það og markaðssetja
fijálslyndi Islendinga í kynferðis-
málum.
í miðjum klíðum þarf Ema hins-
vegar að endurskoða eigið frjáls-
lyndi í þessum efnum þegar hún
skyndilega stendur frammi fyrir því
að vera hugsanlega smituð af al-
næmisveiranni.
I umsögn dómnefndar leikrita-
samkeppni Landsnefndar um al-
næmisvarnir segir meðal annars:
„Þeir fletir sem við eram látin skoða
í þessu verki era kannski fyrst og
fremst siðfræði okkar íslendingar og
hvaða afleiðingar hún hefur fyrir
samskipti kynjanna. Venjuleg
stúlka, Ema, fer heim með sætum
strák og sefur hjá honum. Nokkram
áram síðar er þessi stúlka löngu búin
að gleyma þessu atviki og stendur
frammi fyrir því að hugsanlega hafi
hún smitast af alnæmi og ef til vill
Kolbrún Erna Pétursdóttir: Einleik-
ur í leikþættinum „Þá mun enginn
skuggi vera til".
líka ófætt bam hennar og ástkær eig-
inmaður. Leikurinn gerist á ferða-
skrifstofunni Alheimsferðir þar sem
einnig vakna áleitnar spurningar um
ímynd landsins vegna þess orðs sem
fer af frjálslyndi Islendingar í kyn-
ferðismálum."
„Þá mun enginn skuggi
vera til" tekinn upp aftur
Leikþátturinn Þá mun enginn
skuggi vera til eftir Björgu Gísla-
dóttur og Kolbrúnu Ernu Péturs-
dóttur hefur verið sýndur yfir 50
sinnum víða um land frá því síðast-
liðið haust. Verkið hefur aðallega
verið sýnt á vinnustöðum og hjá fé-
lagasamtökum. Alls hafa á milli 3 og
4 þúsund manns séð leikþáttinn, en
áhugi hefur engu að síður dofnað.
í desember vora tvær opnar sýn-
ingar í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarp-
anum og var fullt á þeim báðum. Því
hefur verið ákveðið að bjóða uppá
tvær opnar sýningar á ný í Kaffileik-
húsinu fnnmtudagana 2. og 9. febrú-
ar. Sýningamar hefjast klukkan
21:00, en húsið er opnað klukkan
19:00. Boðið er uppá kvöldverð fyr-
ir og eftir sýningu.
Þá mun enginn skuggi vera til er
áhrifamikill leikþáttur um sifjaspell
og afleiðingar þess. Verkið er ein-
leikur konu og leikur annar höfund-
anna, Kolbrún Erna, hlutverk henn-
ar. Leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir.
„Nauðsynlegt er að auka umræð-
una um sifjaspell og afleiðingar þess,
því fræðsla og upplýst umræða er
grandvöllur þess að forða megi
bömum og unglingum frá lífsreynslu
sem getur valdið þeim óbætanlegu
tjóni. Leikhúsið er sterkur miðill og
þetta verk lætur engan ósnortinn,“
segir í tilkynningu frá Kaffileikhúss-
ins.
Umhverfisráðherra á ráð-
stefnu Sjálfstæðisflokks
„Orka - Umhverfi - Alvinna” er yfirskrift ráðstefnu sem orkunefnd Sjálfstæðis-
flokksins gengst fyrir næstkomandi mánudag, á Hótel Borg og hefst klukkan 17:00
með ávarpi Geirs H. Haarde, þingfiokksfomianns Sjálfstæðisflokksins. Fjórir gest-
ir flytja erindi, þeir Össur Skarphcðinsson umhverfisráðherra, Helgi Bjarnason
yfirverkfræðingur Landsvirkj-
/
4 \ < *
lr ' m j
67. sýning á Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson
verður annað kvöld í Þjóðleikhúsinu. Með þeirri sýn-
ingu verður áhorfendafjöldinn frá þvi að verkið var
frumsýnt 11. febrúar 1994 kominn uppí 30 þúsund.
Sýningum mun Ijúka innan skamms þarsem söng-
leikurinn West Side Story verður frumsýndur í byrj-
un mars. Á myndinni er Ingvar Sigurðsson í hlut-
verki sínu í Gauragangi.
unar, Edgar Guðmundsson
verkfræðingur og Benedikt Jó-
hannesson framkvæmdastjóri
Talnakönnunar. Auk frammæl-
enda og stjómanda verða eftir-
farandi við pallborð að loknuni
erindum: Jaap Sukkel frarn-
kvæmdastjóri sæstrengsverk-
efnisins ICENET, Jón Sigurðs-
son forstjóri íslenska Jám-
blendifélagsins, Þórður Frið-
jónsson forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, Jónas Elíasson pró-
fessor og Geir H. Haarde.
Ráðstefnan er öllum opin og
stjómandi hennar er Aðalsteinn
Guðjohnsen, formaður orku-
nefndar Sjálfstæðisflokksins.
Stórmeistarar
Þorsteinn frá Hamri og Helgi
Hálfdanarson, tveir af höfuð-
snillingum íslenskrar tungu,
voru meðal þeirra skálda sem
lásu upp á Ijóðakvöldi Besta
vinar Ijóðsins á Hótel Borg í
síðustu viku. Húsfyllir var og
rann allur aðgangseyrir
óskiptur til söfnunarinnar
Samhugur í verki til styrktar
Súðvíkingum. Þetta var fyrsta
skáldakvöld Besta vinar Ijóðs-
ins í hálft annað ár. Fyrir utan
Þorstein og Helga komu fram
skáldin Ingibjörg Haraldsdótt-
ir, ísak Harðarson, Sigurður
Pálsson, Thor Vilhjálmsson,
Vigdís Grímsdóttir og Vilborg
Dagbjartsdóttir. Kynnir
kvöldsins var Guðmundur
Andri Thorsson rithöfundur
og einnig flutti Guðni Franz-
son flautuleikari tvö verk.
A-mynd: E.ÓI.
Menningartengsl íslands og Rúss-
lands (MÍR) gera FJodor Dostojevskí
góð skil næstu tvo sunnudaga
26 dagar í lífi
Fjodor Dostojevskí
Fjodor Dostojevskí og verk hans
verða á sýningarskrá bíósalar Menn-
ingartengsla Islands og Rússlands
(MÍR) næstu tvo sunnudaga. Næst-
komandi sunnudag, 5. febrúar,
klukkan 16:00, verður myndin 26
dagar í lífi Dostojevskí sýnd, en Fá-
vitinn verður sýnd sunnudaginn þar á
eftir.
I kvikmyndinni 26 dagar í lífi
Dostojevskí er lýst tæplega fjögurra
vikna tímabili í lífi hins þekkta rúss-
neska rithöfundar, en fjórar vikur var
sá frestur sent útgefandinn Stell-
ovskí gaf Dostojevskí til að ljúka við
nýja skáldsögu, ella fengi útgefand-
inn allan höfundarrétt og höfundar-
laun á verkum hans.
Fjodor Dostojevskí brá þá skjótt
við og skrifaði skáldsöguna Fjár-
hœttuspilarinn og naut í tímaþröng-
inni ómetanlegrar aðstoðar einkarit-
ara síns, Önnu Snitkinu, sem síðar
vaið reyndar eiginkona hans.
Leikstjóri myndarinnar er Alex-
ander Zarkhi, en með aðalhlutverk-
in fara Anatolí Solonitsyn og Jevg-
enía Simonova. íslenskur texti er
með myndinni, aðgangur er öllum
heimill og er ókeypis að vanda.
Nánar um Fjodor
Dostojevskí
Fjodor Mikhalóvitsj Dostojevskí
fæddist árið 1821 og lést sextugur að
aldri eftir líf sem einkennist af
ógæfúlegum atburðum.
Þegar Dostojevskí var aðeins 18
ára var faðir hans myrtur á sveitasetri
st'nu af uppreisnarsömum bændum.
Tíu áram síðar, eftir að hafa öðlast
nokkra frægð eftir útgáfu sinnar
fyrstu sögu (Fátœkt fólk - útgefin
1846) var hann skyndilega handtek-
inn fyrir tengsl sín við hóp byltingar-
sinnaðra sósíalista. Dostojevskí var
dæmdur til dauða árið 1849 fyrir
þessi tengsl, en var síðan náðaður
nokkram mínútum fyrir aftökuna og
sendur til Síberíu. í freðmýrinni þar
eystra varð hann fárveikur og átti hið
ömurlegasta líf.
Ritstörf hóf Dostojevskí að nýju
árið 1859 og sendi þá fljótlega frá sér
bókina Hús hinna dauðu þar sem
hann lýsti reynslu sinni í Síben'u.
Eftir að vera sleppt úr prísundinni
Fjodor Mikhalóvitsj Dostojevskí:
Rithöfundur sem hafði mikla van-
trú á pólitískri róttækni, gagnrýndi
óspart vestræn áhrif í rússnesku
samfélagi og trúði á sérstakt hlut-
verk mannskilnings í heiminum.
MÍR gerir Dostojevskí góð skil
næstu tvo sunnudaga.
komst riihöfundurinn að því sér til
mikillar skelfingar, að hann var nær
gjaldþrota. Hóf Dostojevskí þá fjár-
hættuspilamennsku af miklum móð
og þurfti tvisvar að flýja land undan
fólki sem hann skuldaði háar fjár-
hæðir.
Það var ekki fyrr en síðari eigin-
kona hans, Anna Snitkina, tók í
taumana, að Dostojevskí náði tökum
á lífi sínu. Bestu skáldsögur sínar rit-
aði hann á síðustu áram ævinnar:
Gkepur og refsing (1866), Fávitinn
(1868-1869) og Bræðumir Kar-
amazov (1879—1880).
Fjodor Mikhalóvitsj Dostojevskí
hafði með verkum sínum gífurlega
mikil áhrif á skáldsagnagerð á Vest-
urlöndum. Skáldsögur hans einkenn-
ast af djúpum skilningi á þverstæð-
um í mannlegu eðli, ástríðumikilli
glímu persónanna um hinstu rök trú-
ar og siðgæðis og samúð með hinurn
útskúfuðu í þjóðfélaginu.
I verkum hans kemur einnig fram
vantrú á pólitíska róttækni, gagnrýni
á vestræn áhrif í rússnesku samfélagi
og trú á sérstakt hlutverk rússneskrar
kristni og mannskilnings í heimin-
um.
Israelskir ljósmyndarar
Farandsýningin „Ljósmyndun í ísra-
el" verður opnuð af doktor Gylfa Þ.
Gíslasyni, fyrrverandi ráðherra, næst-
komandi sunnudag, klukkan 14.00, í
anddyri Háskólabíós. Það eru menn-
ingar- og vísindadeild ísraelska utan-
ríkisráðuneytisins, sendiráð ísraels í
Osló og Páll Arnór Pálsson aðalræðis-
maður Israels á Islandi sem standa
fyrir sýningunni. Sýningin hefur verið
í Osló í janúarmánuði og fer héðan til
Kaupmannahafnar. Á sýningunni gef-
ur á að líta verk níu Ijósmyndara;
þeirra Yossi Breger, Yosaif Cohain,
Morel Derfler, Avi Ganor, Pesi Girsch, Judith Guetta, Judy Orgel
Lester, Simcha Shirman og Bareket Ben Yaakov. Sýningin mun
standa til 25. febrúar og er opið inná hana alla virka daga frá klukk-
an 08:00 til 16:00. Jafnframt er sýningin opin öllum bíógestum.