Alþýðublaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Afgreiðsla breytingartillagna við sjávarútvegsstefnu Þjóðvaka
„Eg er ósáttur við
þessa afgreiðslu"
- segir Sigurður Pétursson, en telur það samt óþarfa tilfinningasemi
„Við könnumst við þessi vinnu-
brögð úr Alþýðuflokknum," sagði
Sigurður Pétursson sagnfræðing-
ur í samtali við Alþýðublaðið um
það að breytingartillögum á sjávar-
útvegsstefnu Þjóðvaka var vísað til
stjórnar á landsfundi hans nú um
helgina. „Ég er ósáttur við þessa af-.
greiðslu, en aðalatriðið er samt það
að fundurinn tókst vel og við sem
viljum breytingar á fískveiðistef-
nunni höfum nú meira fylgi innan
Þjóðvaka en í nokkrum öðrum
stjómmálaflokki á Islandi," sagði
Sigurður í samtali við Alþýðublað-
ið.
Hópur manna gekk af fundi eftir
að fundurinn hafði samþykkt að
vísa breytingartillögunum til
stjórnar, en Sigurður sagði það
óþarfa tilfínningasemi í mönnum.
„Þarna tókust á mismunandi hags-
munaöfl, Málið var afgreitt og við
urðum undir. Maður hefur nú oft
áður lent í sjávarútvegsmaraþoni á
fundum sem þessum,“ sagði Sig-
urður jafnframt.
Breytingartillögurnar sem vísað
var til stjórnar fólu í sér skiptingu
hafsvæðisins í djúpslóð og grunn-
slóð. Tillöguflytjendur vildu senda
togarana út úr grunnslóðinni. Setja
ætti svæðakvóta á veiðar á djúpslóð
og sóknarmark á smábáta á grunn-
slóð. „Markmiðin eru þau að
stöðva þá þróun sem felst í kvóta-
kerfinu og er að setja heilu byggð-
arlögin á vonarvöl, svo og að
tryggja afkomu smábátaútgerðar-
innar," sagði Sigurður.
Alþýðublaðið spurði Sigurð útí
þá yfirlýsingu Njáls Harðarsonar
að Ágústi Einarssyni bæri að segja
af sér, en Njáll var einn þeirra sem
gekk af fundi. Sagði Sigurður að
Njáll hefði ekkeil umboð til að tala
fyrir Jafnaðarmannafélag íslands
og að hans sjónarmið hefðu ekki
meirihlutafylgi þar inni.
Sigurður Pétursson: „Þarna tókust
á mismunandi hagsmunaöfl og
við urðum undir." A-mynd: E.ÓI.
Stjórnarfundur Sam-
bands ungra jafnaðar-
manna á Norðurlöndum:
Helmings
niðurskurður
til landbúnaðar
Stjómarfundur Sambands ungra
jafnaðarmanna á Norðurlöndum
(FNSU) fór fram í Hróarskeldu í
Danmörku fyrir stuttu. Umræðuefni
fundarins var breytt hlutverk sam-
bandsins eftir inngöngu Svía og
Finna í Evrópusambandið og var það
mál flestra fundarmanna að ekki
mætti draga úr starfsemi sambandsins
þrátt fyrir þessi tíðindi og að umsvif
þess myndu haldast nokkuð óbreytt.
Hins vegar var það gert opinbert að
hreyfingamar sem starfa í löndum
innan Evrópusambandsins munu ætla
sér stóra hluti í starfinu innan þess og
koma til með að hafa með sér náið
samstarf. Það mun meðal annars fel-
ast í samráðsfundum sem haldnir
verða í tengslum við stjómarfundi
FNSU og var fallist á þá kröfu Norð-
manna og íslendinga að þeir fengju
að fylgjast með þessum fundum og
koma með sitt innlegg í umræðuna,
enda mikilvægt fyrir borgara þessara
landa að eiga þess kost að koma með
sín sjónarmið inn í Evrópusamstarfið,
þar eð ákvarðanir Evrópusambands-
ins snerta þessar þjóðir með beinum
hætti. Fyrsta baráttumál ungra nor-
rænna jafnaðarmanna á vegum Evr-
ópusamstarfsins verður fimmtfu pró-
sent niðurskurður á styrkjum til evr-
ópsks landbúnaðar. Fyrir hönd ungra
jafnaðarmanna á íslandi sátu stjómar-
fund FNSU þeir Jón Þór Sturluson
og Magnús Ámi Magnússon.
Bera og Stefán rogast með Jón Óskar Listasafn íslands opnar
sýningu á aðföngum sínum undanfarin sjö ár næstkomandi laugardag klukkan 15:00. Að sögn Beru Nordal, for-
stöðumanns safnsins, verður á sýningunni úrval þeirra rúmlega 300 verka sem safnið hefur keypt frá því flutt
var í nýja húsið, en það var í janúar árið 1988. Þetta er önnur slík úrvalssýningin, hin var haldin fyrir ári síðan. í
eigu Listasafns íslands í dag eru um það bil 10 þúsund verk. Á myndinni má sjá Beru og Stefán Halldórsson list-
tækni safnsins rogast með annan hluta verksins „Banner" eftir myndlistarmanninn góðkunna, Jón Óskar (í bak-
sýn er hinn hlutinn). Listaverk Jóns Óskars gefur reyndar á að líta í Listasafni Kópavogs um þessar mundir, en
þar stendur yfir samsýning Jóns Óskars, Daða Guðbjörnssonar, Gunnars Arnar Gunnarssonar, Jóns Axels,
Sigurðar Örlygssonar og Eyjólfs Einarssonar. A-mynd: E.ÓI.
Kosningahugur: Hluti fundarmanna á kosningaþingi ungra jafnaðar-
manna sem haldið var í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði um siðustu helgi. A-
mynd: E.ÓI.
Ungir jafnaðarmenn funda um kosningamál
„Við ætlum í framlínuna
á framboðslistunum"
- segir Jón Þór Sturluson, formaður ungra jafn-
aðarmanna: „Við sjáum ekki ástæðu til þess að
reka sjálfstæða kosningabaráttu ef ekkert er til
að berjast fyrir.“
Ungir jafnaðarmenn hyggjast
beita sér á nýstárlegan hátt og reka
sjálfstæða herferð í komandi kosn-
ingabaráttu. Þeir stefna jafnlfamt að
því, að koma sínu fólki í baráttusæti
ífamboðslista jafnaðarmanna í al-
þingiskosningunum. „Við ætlum í
ífamh'nuna á framboðslistunum.
Okkar barátta stendur þannig og fell-
ur með því hvað mikið af okkar fólki
verður í fremstu vfglínu. Við sjáum
ekki ástæðu til þess að reka sjálf-
stæða kosningabaráttu ef ekkert er til
að beijast fyrir,“ sagði Jón Þór
Sturluson, formaður ungra jafnað-
armanna í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
Um helgina héldu ungir jafnaðar-
menn kosningaþing sitt í Alþýðu-
húsinu í Hafnarfirði. Þar var gengið
ffá málefnum þeim sem þessi nýja
kynslóð jafnaðarmanna hyggst setja
á oddinn í komandi alþingiskosning-
um. Að sögn Jóns Þórs var sérstök
áhersla lögð á fjóra málaflokka. Þeir
em Evrópumál, þar sem fyrri stefna
ungra jafnaðarmanna var áréttuð,
menntamál, velferðarmál og nýtt
hugtak í íslenskum stjómmálum
svokallað sjálfsvald „Þetta snýst um
aukið forræði einstaklingsins yfir
sínu lífi,“ sagði Jón Þór. „Við emm
orðin þreytt á þvf að allar ákvarðanir
einstaklinga sem snúa að samfélags-
legum málefnum þurfi að fara í
gegnum atvinnustjómmálamenn og
kerfiskarla. Við boðurn beint lýð-
ræði; sjálfsvald."
Rannveig Guðmundsdóttir fé-
lagsntálaráðherra ávarpaði þingið og
Petrína Baldursdóttir alþingis-
maður þakkaði ungum jafnaðar-
mönnum stuðninginn í prófltjörinu á
dögunum. Arnór Benónýsson flutti
eldheita hvatningarræðu og eftir það
hófust umræður sem stóðu fram eftir
degi. Um þijátíu manns tóku þátt í
málefnavinnu þingsins og fjölsótt
var á skemmtun um kvöldið, þar sem
meðal annars mættu helstu fram-
ámenn jafnaðarmanna í Hafnarfirði
svo og á landsvísu.
Alþýðuflokkurinn á Norðurlandi eystra
Framboðslistinn tilbúinn
Kjördæmisráðsfundur Alþýðuflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra samþykkti
síðastliðinn sunnudag ffamboðslista
flokksins til alþingiskosninga. Fyrsta sæti
skipar Sigbjörn Gunnarsson alþingis-
maður (Akureyri), annað sæti Anna Kar-
ólína Vilhjálmsdóttir ffamkvæmdastjóri
ÍF (Húsavík), þriðja sæti Aðalheiður Sig-
ursveinsdóttir verslunarmaður (Akur-
eyri), fjórða sæti Pálmi Ólason skólastjóri
(Þórshöfn) og fimmta sæti skipar Halldór
Guðmundsson bifvélavirki (Ólafsfirði).
Fundur kjördæmisráðsins var fjölmennur
og listinn samþykktur einum rómi.
Listinn er að öðm leyti þannig skipaður:
6. Hanna Björg Jóhannesdóttir Bama-
skólastarfsmaður (Akureyri); 7. Viðar
Valdimarsson matreiðslumaður (Dalvík);
8. Hilmar Ágústsson útgerðarmaður
(Raufarhöfn); 9. Rósa Jóhannsdóttir
starfsstúlka FSA (Akureyri); 10. Trausti
Gestsson skipstjóri (Akureyri); 11. Ás-
laug Einarsdóttir fyrrverandi bæjarfull-
trúi (Akureyri); 12. Guðmundur Hákon-
arson ffamkvæmdastjóri (Húsavík).
Sigbjörn:
1. sæti.
Anna
Karólína:
2. sæti.
Aðalheiður:
3. sæti.
Pálmi:
4. sæti.
Björgunarstörf
Þurfum að fá miklu fleiri björgunarhunda
- segir Össur Skarphéðinsson umhverfisráð-
herra. Hundarnir björguðu mannslífum í Súða-
vík. Hann telur nauðsynlegt að styrkja Björgun-
arhundasveit Islands til að koma upp sérþjálf-
uðum hundum á öllum hættusvæðum.
Össur Skarphéðinsson um-
hverfisráðherra telur nauðsynlegt að
styrkja Björgunarhundasveit Islands
til að koma upp sérþjálfuðum björg-
unarhundum á öllum svæðum, þar
sem hætta er á snjóflóðum. Frækileg
frammistaða hundanna við björgun-
arstörfin í Súðavík vakti mikla at-
hygli.
„I dag er það svo að einungis átta
fullþjálfaðir björgunarhundar em til
í landinu og nokkrir í viðbót em í
þjálfún. Þessir átta em staðsettir á
fjómm stöðum, í Reykjavík, Bol-
ungarvík, ísafirði og í Neskaupstað.
í Súðavík réði það nánast úrslitum
að það tókst að koma hundum ffá
ísafirði til Súðavíkur. Ég held að
það sé alveg nauðsynlegt að reyna
að koma þeim upp á öllum stöðum,
þar sem hætta er á snjóflóðum,"
sagði Össur í samtali við Alþýðu-
blaðið og benti á að engir fullþjálf-
aðir hundar væm til dæmis á öllum
suðurfjörðum Vestfjarða.
Umhverfisráðherra sagði að yfir-
leitt yrðu snjóflóð við afar erfiðar
veðurfarsaðstæður og því ekki sjálf-
gefið að tækist að koma hundum á
milli byggðarlaga. „Oft getur það
verið spuming um mínútur, ef á að
takast að bjarga mannslífum og þess
vegna nauðsynlegt að hafa hundana
á staðnum."
„Getur verið spurning um mínútur
ef á að bjarga mannslífum," segir
Ossur Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra og vill styrkja Björgunar-
hundasveitina. A-mynd: E.ÓI.
Hann kvað þjálfun hundanna taka
mikinn tíma og félagar í Björgunar-
hundasveitinni hefðu unnið gífur-
lega rrúkilvægt sjálfboðastarf við
þjálfúnina og haft af því mikinn
kostnað. þeir hefðu nánast enga
styrki nema um 700 þúsund árlega
ffá Landsbjörgu, sem færi í að kosta
tvö árleg námskeið á vegum sveitar-
innar.
„Það er hins vegar bæði tafsamt
að halda við þjálfun hundanna sem
fyrir eru og líka að leita uppi nú efni
í björgunarhunda. En um það bil
einn af hveijum finn hundum, sem
eru reyndir, reynist efniviður í góð-
an björgunarhund. Það er mikil
nauðsyn að vera stöðugt að leita að
nýjum hundum, bæði til að fjölga
þeim og til að endumýja þá sem eld-
ast og heltast af þeim sökum úr lest-
inni. Þetta kostar peninga, sem þarf
að útvega sveitinni," sagði Össur að
lokum.