Alþýðublaðið - 01.02.1995, Síða 8
Miðvikudagur 1. febrúar 1995
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
18. tölublnð - 76. árgangur
Tillögur frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum um nýja fiskveiðistjórnun valda
uppnámi í flokknum. Formaður LIÚ segir tillögurnar dellu sem hvergi fái hljómgrunn
Menn skulu ræða þetta
þótt Kristján öskri
- segir Einar Oddur Kristjánsson og telur Kristján Ragnarsson lesa tillögurnar eins og skrattinn biblíuna.
„Þetta snýst um stærsta efnahags-
mál þjóðarinnar og menn skulu fá að
ræða það efnislega. Menn komast
ekkert undan því enda er Sjálfstæð-
isflokkurinn enginn Þjóðvaki. Við
leggjum tillögumar fyrir málefna-
nefnd flokksins og þar munu þær fá
sína efnislegu meðferð og ég sé ekki
betur en formaður flokksins taki
undir það. En Kristján Ragnarsson
öskrar," sagði Einar Oddur Krist-
jánsson í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum hafa lagt
fram tillögur um nýja fiskveiði-
stjómun. Þar er meðal annars gert
ráð fyrir að sóknin byggist á afrakst-
ursgetu fiskistofnana. Þessu mark-
miðið verði náð með flotastýringu,
sóknarstýringu og sjávaútvegs-
gjaldi. Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra hefur snúist harkalega
gegn þessum tillögum og þá ekki
síður Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ.
„Þegar þeir kynntu þessar tillögur
kom hvergi fram að það ætti að
miða við heildarafla heldur átti allt
Einar Oddur Kristjánsson: Þetta
snýst um stærsta efnahagsmál
þjóðarinnar og menn skulu fá að
ræða það efnislega.
Kristján Ragnarsson: Útgerðar-
menn á Vestfjörðum eru að hringja
í mig og segja að þetta sé það
versta sem gæti komið fyrir sjávar-
útveg.
að vera í frjálsræði eins og þeir köll-
uðu það. Nú segja þeir hins vegar að
það verði aflahámark á hverri teg-
und. Síðan á að vera sóknarmark og
allir eiga að keppast við að ná þeim
afla. Svo eiga menn bara að stinga
höndum í vasa og bíða næsta tíma-
bils. Þetta er slík dellutillaga að hún
hefur hvergi hljómgrunn. Útgerðar-
menn á Vestfjörðum eru að hringja í
mig og segja að þetta sé það versta
sem gæti komið fyrir sjávarútveg og
ekki síst fyrir útgerð á Vestfjörð-
um,“ sagði Kristján Ragnarsson í
samtali við blaðið.
„Kristján Ragnarsson er læs og
Þorsteinn Pálsson líka. Aðaltilgang-
urinn með okkar tillögum er að
sóknin sé í samræmi við afraksturs-
getu fiskistofnana. Þetta eru tillögur
um að stjórna sókninni. Kristján á
ckki að geta misskilið þetta en hann
les tillögumar eins og skrattinn
biblíuna. Við verðum að minnka
flotann þar til hann er með þá af-
kastagetu sem þarf til að fiska það
sem við teljum hægt að fiska á
hverjum tíma. Til að hámarka arð-
inn þurfum við að fullnýta fram-
leiðslutækin þannig að við séum
ekki að veiða meira en fiskislóðin
þolir,“ sagði Einar Oddur Kristjáns-
son.
„Eins og ég þekki vestfirska út-
gerðarmenn trúi ég því ekki að þeir
vilji leggja upp í slíka fásinnis fisk-
veiðistjómun og þama er lagt til. Og
það er ekki hægt að hafa uppi meiri
öfugmæli en að segja að þetta séu
tillögur til sátta. Mér fannst hafa tek-
ist ákveðin sátt um þessi mál í vor
og Einar K. Guðfinnsson átti þátt í
því. En Einar Oddur hefur rifið hann
upp á rassinum í þessu máli og tekið
hann með í þessa hugmyndafræði
sína,“ sagði Kristján Ragnarsson.
„Samkvæmt hugmyndum og lík-
ani hagfræðinga átti kvótakerfið að
koma í veg fyrir stækkun fiskveiði-
flotans. En eftir að kvótinn kom
1984 hefur flotinn haldið áfram að
stækka. Við emm að sækja þennan
sjó með 80 þúsund hestafla meiri
orku en við gerðum þá. Því þurfum
við að hafa hemil á flotanum. A
sama tíma og við erum að leggja
byrðar á sjávarútveginn upp á marga
milljarða í formi úreldingar heldur
flotinn áfram að vaxa. Sóknarmark
án flotastýringar myndi leiða til vit-
leysu. En Kristján Ragnarsson held-
ur bara áfram að segja hryllingssög-
ur. Uppáhaldssaga hans er frá Am-
eríku um menn sem mega ekki
sækja í einhverja lúðutegund nema
átta klukkustundir á ári. En það er
ailtof stór floti hjá okkur sem rán-
yrkir og það viljum við stöðva,"
sagði Einar Oddur Kristjánsson.
íþróttasálfræðingur ræðir um
„árangurssinnað hugarfar"
Einn af mönnunum á bak við norska skíðalands-
liðið heldur á morgun fyrirlestur á vegum ÍSI og
EPA POLLUTION PREVENTER
DAEW00 2800
■ 66Mhz Intei 486DX2
■ 128KB skyndiminni (mest 256KB)
■ 4MB vinnsluminni (mest 64MB)
■ 264MB diskur (256kb buffer)
■ 14" lággeisla skjár (örtölvustýrður)
■ Overdrive sökkull, ZIF
■ 32-bita VESA Local Bus skjákort
■ 1MB myndminni (mest2MB)
■ VESA Local Bus og ISA tengibrautir
■ MS-DOS, Windows og mús
1 Kr. 128.000 stgr. m/vsk
DAEW00 5200 Pentium
■ 60Mhz Intel Pentium
■ 256KB skyndiminni (mest 1MB)
■ 8MB vinnsluminni (mest 128MB)
■ 264MB diskur (256kb buffer)
■ 14" lággeisla skjár (örtölvustýröurl
■ Overdrive sökkull, ZIF 237 pinna
■ 32-bita PCI Local Bus skjákort
■ 1MB myndminni (mest2MB)
■ PCI og ISAtengibrautir
■ MS-D0S, Windows og mús
■ FRÁBÆRT VERÐ Kr. 17 4.0 0 0
stgr. m/vsk
Lykill; aþ alhliða
Y'" '
| E |
RAÐG REIÐSLUR
(fai
EINAR J. SKULASON HF
Grensásvegi 10, Sími 563 3000
Gæðastjórnun-
arfélags Islands.
Willing to Win er
yfirskrift fyrirlesturs
sem íþróttasálfræðing-
urinn doktor Willi
Railo flytur á morgun á
vegum íþróttasam-
bands íslands og Gæða-
stjómunarfélags Islands
á Hótel Loflleiðum.
Fyrirlesturinn fjallar um
uppbyggingu árangurs-
sinnaðs hugarfars og á
erindi til íþróttakennara,
þjálfara og leiðbeinenda
innan íþróttahreyfingar-
innar.
„Doktor Railo sá um
| þjálfun og uppbyggingu
árangurssinnaðs hugar-
fars hjá þjálfurum
norska skjðalandsliðs-
ins fyrir Olympíuleik-
ana í Lillehammer og
hann hefur einnig átt
þátt í góðum árangri
annarra verðlaunahafa á
Ólympíuleikum og
heimsmeistaramótum.
Doktor Railo hefur
einnig nýtt sér þekkingu
sína á uppbyggingu
hugarfars sigurvegara í
viðskiptalífinu, hann
starfar í dag fyrir al-
þjóðaráðgjafarfyrirtæk-
ið ODl (Organizational
Dynamics Inc.) og er
prófessor við Við-
skiptaháskólann í Berg-
en. Doktor Railo starf-
aði einnig um árabil
sem prófessor við
Iþróttaháskólann í
Bcrgen,“ segir í tilkynn-
ingu vegna fundarins.
Fyrirlesturinn fer
fram á ensku og þátt-
töku ber að tilkynna til
ÍSI í síma 813377. Þátt-
tökugjald er krónur
1.900.