Alþýðublaðið - 03.02.1995, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 03.02.1995, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 „Viq eigum bara Q¥inl“ IRoustam og Gata Kamskí: „Vinir ræna tíma og einbeitingu.“ Þegar feðgarnir urðu blank- ir nauðrökuðu þeir sig og freistuðu þess að taka íslamstrú. Stórmeistarinn Gata Kamskí þykir eitthvert furðuleg- asta fyrirbæri sem hefur komið fram í skákheiminum um langt skeið. Hann er aðeins tvítugur og kominn drjúgan spöl að heimsmeistara- titli. Það gerir hann með aðstoð föður síns, Roustam Kam- skí, fyrrverandi box- ara, sem hleypir hon- um ekki spönn frá skákborðinu og svífst einskis til að klekkja á andstæðingum. Það var á skákmótinu fræga í Lin- ares á Spáni að enski stórmeistarinn Nigel Short hafði komið sér mak- indalega fyrir á veitingahúsi og ætl- aði að snæða kvöldverð. Hann var ekki fyrr tekinn til matar síns en stór og mikill maður æddi inn á veitinga- húsið og staðnæmdist ekki fyrr en við borð Shorts. Maðurinn var afar æstur og hellti sér yfir stórmeistar- ann. Hann hlustaði þegjandi á og lét sér ekki bregða, alveg þangað til maðurinn sagði: „Eg skal drepa þig.“ Þá var Short nóg boðið og hann lét kalla á lögregluna. Hún kom með sírenuvæli og færði árásarmanninn á brott. Þetta vakti mikla athygli meðal skákáhugamanna og þótti til marks um hvaða skilning Roustam Kam- skí, faðir skákmeistarans Gata Kamskís, leggur í orðið uppeldi. Fyrr um daginn hafði Short teflt við Kamskí sem var kvefaður og síhóst- andi. Short fannst óþægilegt á að hlýða og hann ráðlagði Kamskí að fá sér vatnsglas. Faðir Kamskís taldi þetta hinn versta yfirgang og æma ástæðu til að ráðast að Short með hótunum. „ Vesalings pilturinn" Faðir Kamskís er orðinn alræmdur í skáksölum heimsins. Menn hnipra sig í skelfingu þegar þessi svíramikli Tatari birtist. Það eru til miklar sögur af foreldrum sem með harðri hendi reka böm sín áfram á tónlistarbraut- inni eða til dæmis á tennisvöllum, en frekar þykir það fólk halda linkulega á málum miðað við Kamskf eldri. Roustam Kamskí hefur verið stað- inn að því að ætla að sitja í launsátri fyrir blaðamanni sem honum var uppsigað við og stinga hann með hnífi. Hann var eitt sinn boxari og fyrir honum er sonurinn ekki einu sinni óhultur. Eftir að Kamskí yngri hafði eitt sinn tapað fyrir Judith Polgar á skákmóti tók faðirinn það til bragðs að rétta honum vænt kjaftshögg. „Vesalings pilturinn," sagði Mikhail Tal, fyrrverandi heimsmeistari, við það tækifæri. Og það er ekki furða þótt Robert Rice, framkvæmdastjóri PCA, heimssam- bands stórmeistara, segi um karlinn: „Honum er trúandi til alls.“ Roustam Kamskí er sannfærður um að árangur sonarins sýni að að- ferðir hans eru réttar. Á síðasta ári lagði Gata Kamskí nær alla sterkustu stórmeistara heims að velli og var um tíma næststigahæsti skákmaður heims, aðeins Garrí Kasparov heimsmeistari var honum ffemri. Faðirinn skapbráði ýtti drengnum á undan sér í undanúrslit beggja heimsmeistarakeppnanna sem hinn klofni skákheimur heldur. í Sanghi Nagar á Indlandi er að hefjast jressa dagana einvígi Kam- skís og Rússans Valerí Salov; í sum- ar teflir sigurvegarinn um Fide- meistaratitilinn við annað hvort An- atolí Karpov eða Boris Gellland. Strax í mars þarf hann að tefla annað stóreinvígi, í þetta sinn við Indverj- ann Viswanathan Anand. Sigur- vegarinn úr því teflir í september við Kasparov um PCA-meistaratitillinn. Alheimssamsæri Kasparovs Kamskí er vel þekktur í skákheim- inum, en ef honum tekst að sigra í öðm einvíginu - að maður tali ekki um þeim báðum - er víst að hann öðlast heimsfrægð utan raða skák- listarinnar. Gata og faðir hans hafa líka margt til að bera sem vekur áhuga fjölmiðla: Strákurinn er að- eins tuttugu ára, stórskrítinn og gengur notar þykk nærsýnisgleraugu með sínalkóflöskubotnum sem em í laginu eins og múrsteinar. Karl faðir hans er maður til að gulltryggja skringilegustu uppákomur. Það er ekki furða þótt þýska tímaritið Der Spiegel haldi því ffarn að þeir feðg- amir geti vakið athygli á skákinni sem hún hefur ekki notið síðan á gullaldartíma Bobby Fischer. Kamskí feðgamir eiga eitt og ann- að sameiginlegt með heimsmeistar- anum bandaríska. Öll veröld þeirra virðist snúast um skáktaflið og ann- að kemst ekki að. „Vinir ræna mann tíma og einbeitingu. Við eigum bara óvini,“ er haft eftir þeim. Líkt og Fischer hafa þeir líka orðið sér úti um vænan skammt af ofsóknaræði. Lykilmaðurinn í alheimssamsærinu gegn þeim er heimsmeistarinn Kasparov. Þeir segja að hann sé „sta- línisti" sem reyni allt til að koma Gata á kné. Hann hafi þegar séð í honum keppinaut þegar Gata var tólf ára og þeir bjuggu í Leníngrad. Af ótta hafi Kasparov espað sovéska skáksambandið upp á móti þeim, svo ríkisstjómina og eiginlega hvem ein- asta sovétborgara. „Öll Sovétríkin vom á móti okkur,“ er viðkvæði feðganna. Það var ekki aðeins þetta stríð við heimsmeistarann, raunvemlegt eða ímyndað, sem olli því að Kamskí- feðgamir einangmðust. Flestir þjálf- arar sem reyndu að höndla hæfileika undrabamsins fylltust örvæntingu og gáfust upp eftir nokkrar vikur. „Þessi náungi stendur yfir manni, veit allt betur og talar um hluti sem hann hef- ur ekki hundsvit á,“ sagði einn þeirra um Kamskí eldri. „Þetta eru allt mafíósar" 1989 söðluðu feðgamir um og fluttu til Bandaríkjanna. Það tók þá ekki langan tíma að komast þar upp á kant við allt og alla. Roustam Kam- skí gmnaði bandaríska skáksam- bandið um að vilja leggja stein í götu sonar síns. Einhvem tíma skrifaði Benjamín Franklín, einn helsti landsfaðir Bandaríkjanna, um skák- listina að hún væri „uppspretta góðra siða“. Roustam Kamskí virtist á öðm máli þegar hann sagði um banda- ríska skákfrömuði: „Þetta em allt mafíósar." í marga mánuði hefur hann verið að reyna að færa sönnur á þá trú sína að PCA-stórmeistarasambandið hefði dregið undan verðlaunafé sem með réttu tilheyrði Gata. Hann fékk þijá lögfræðinga til liðs við sig; þeir ráðlögðu honum allir að láta málið niður falla. Roustam fór samt með málið fyrir dómstól og þar var því vísað frá. Niðurstaðan var sú að hann fengi ekki að komast í bókhald sam- bandsins. „Gata þarf að æfa sig" Roustam Kamskf vakir yfír syni sínum og gætir þess vandlega að enginn komist nálægt honum. Á mótum eldar hann fyrir Gata á hótel- herbergjum, enda er hann fullur tor- tryggni í garð mótshaldara. Hann leyfir syni sínum helst ekki að taka þátt í neinum opinberum atburðum eða móttökum: „Gata hefur ekki tíma, hann þarf að æfa sig,“ segir hann. Gata fær heldur ekki að tala í síma. „Ég tala fyrir hann,“ segir Roustam. Hann talar líka fyrir hann f viðtölum og vegna þess hversu Gata er slæmur til augnanna les hann fyrir hann úr skákbókum. Gata á enga vini, hann stundar engar íþróttir, fer aldrei í bíó og horfir afar sjaldan á sjónvarp. Hann hefur verið spurður að því hvað hann langi til að gera annað en að tefla. Hann svaraði ein- faldlega: „Tefla.“ „Gata,“ segir faðir hans með stolti, „er tær eins og gler“. Hann hefur heldur aldrei fengið nein tækifæri til að óhreinka sig. Þegar hann var átta ára setti faðir hans hann við skák- borð og þar hefur hann setið síðan, enda þótt hann „langaði það ekki“ í fyrstu. Hann æfir sig í allt að fjórtán klukkutíma á dag, oftast einn með föður sínum, en stundum með aðstoð stórmeistaranna Roman Dzindz- sjashvili og John Fedorowicz - en þó aðeins þegar eru til peningar á bænum. Feðgarnir raka sig Gata þénar ágætlega. 1994 aflaði hann sjö milljóna á PCA- mótum einum saman. Faðir hans kvartar yf- ir því að sú fjárhæð hafi öll farið í vasa þjálfaranna. Hann á í sífelldum peningavandræðum og til að finna leið út úr þeim fékk hann þá hug- mynd að verða sér út um stuðning moldríks olíufursta. í því skyni upp- götvuðu feðgamir íslam, trú forfeðra sinna, og létu nauðraka á sér höfuð- ið. Ekki breytti það neinu um fjár- hagsstöðuna. En Roustam Kamski á von á mikl- um sigrum og í þeirri trú að þeirra væri ekki langt að bíða né feitra verðlaunatékka keypti hann hús í Brooklyn-hverfi í New York upp á krít. Það skorti fé til að gera húsið upp og í slíkum tilvikum brýtur nauðsyn lög. Gata, sem hefur aldrei þurft að erfiða á ævi sinni, var send- ur út í garð með haka og skóflu og látinn róta í mold. Nú knýja lána- drottnar dyra, eins ótrúlegt og það kann að virðast, og eina varanlega lausnin er einfaldlega: að Gata verði heimsmeistari. Falinn föðurmorðingi Ýmsir hafa fundið sér það til dundurs að velta fyrir sér sálfræði skáktaflsins. Einn þeirra var stór- meistarinn Rcubcn Fine sem var sálkönnuður og mikill áhangandi Freuds. Fine notaði hugmyndir Freuds um Ödipusarduldina til að leggja út af skákinni. I kóngnum sá hann tákn fyrir getnaðarlim pilts, hann er „veikur og vamar þurfi, en þó ómissandi", skrifaði Fine. Tap, semsagt fall kóngsins, vekur upp ótta við geldingu. Kóngur andstæðings- ins er tákn um föðurinn sem dreng- urinn, samkvæmt Ödipusarhvöt sinni, vill sigrast á og eyða. I sama streng tók sálgreinandinn Ernest Jones sem skrifaði 1931: „í undir- meðvitundinni er skákmaðurinn rek- inn áfram af skelfilegri löngun til að fremja föðurmorð.“ Nú er reyndar til önnur útgáfa af þessu, sem notist í þeim tilvikum þegar faðirinn er ekki til staðar, þeg- ar hann hefur látið sig hverfa eða er dauður: Þá hafa djúprættir draumór- ar um föðurmorð orðið að vemleika og því er skákmaðurinn ungi fullur af ómeðvitaðri sektarkennd. Hana reyni hann að reka út með því að sökkva sér djúpt ofan í skáktaflið. Heimsmeistaramir Spasskí, Fischer og Kasparov uxu allir úr grasi á heimili þar sem var enginn faðir. í tilfelli Kamskís hafa menn þó fundið einfaldari skýringu en að hann sé eilíflega að drepa föður sinn. Það er sagt sem svo að við skákborð- ið sé eina von hans um stundarfrið: Meðan hann sitji þar sé hann þó al- tént laus við karl föður sinn. „ Við kremjum hann eins og flugu" Rice, framkvæmdastjóri PCA, segir að Roustam Kamskí sé eins og eitt af skrímslunum úr Stjömustríðs- myndunum sem hlaði sig reglulega með neikvæðri orku. Á bak við láta- lætin og rustaskapinn þykist hann sjá glitta í kalda rökvísi. Sonurinn sýnir lítil sem engin viðbrögð við skák- borðið; það sem helst getur sett and- stæðingana út af laginu í fari hans er hversu pollrólegur hann er. Sjálfur segir hann: „Stuðningur pabba hjálp- ar mér til að halda ró minni.“ Það em auðvitað mikil takmörk fyrir því hversu miklum bellibrögðum skák- maður á borð við Kamskí getur beitt við skákborð, enda þarf það kannski ekki; faðir hans er úti í sal og sér um þá deild. Hann er fullfær um að fylla veiklundaða andstæðinga óöryggi. Nú beita skákmeistarar auðvitað ýmsum brögðum til að slá andstæð- inga út af laginu: Þeir bora í nefið, smjatta, ropa, hósta, tala við sjálfa sig í hálfum hljóðum og em á iði við skákborðið - allt em þetta þekktar aðferðir úr heimi stórmeistara. Roustam Kamskí er verðugur full- trúi þessarar hefðar. í sálfræðistríði sínu er hann til alls vís. í undanúrslit- um PCA- mótanna í Linares heimt- aði hann að mótstjórar létu reisa vegg milli skákborðanna tveggja sem stóðu á sviðinu. Þegar því var haínað linnti hann ekki látum og krafðist þess að reistur yrði annar veggur, nú til að skilja að leiðir skák- meistaranna fram á klósett. Þegar það gekk ekki eftir fann hann upp á því að sitja fyrir skákmönnunum og gefa þeim illt auga hvar sem hann sá þá. Hann heldur því ennþá fram að þeir hafi svindlað með því að senda hver öðmm leynilegar vfsbendingar. I lokaskýrslu sinni sagði mótstjórinn, tékkneskur skákmeistari, að maður- inn væri í senn ofsóknaróður og fík- inn í píslarvætti. Svona groddalegar aðferðir geta hins vegar skilað ágætum árangri og það vita Anand og hjálparmenn hans. Anand þykir heldur viðkvæm sál og því reyna aðstoðarmenn hans eftir megni að búa hann undir sál- fræðihemaðinn sem hann verður ör- ugglega beittur. Úr herbúðum An- ands berast samt þær fréttir að hann sé á nálum. Þegar Indverjanum hefur verið mtt úr vegi verða Kamskí feðgamir loks komnir í seilingarfjarlægð frá takmarki sínu. Þá er það trú föðurins að Gata taki erkióvininn Kasparov og „kremji hann eins og flugu“. Endursagt úr Der Spiegel / eh

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.