Alþýðublaðið - 09.02.1995, Page 8
Fimmtudagur 9. febrúar 1995
23. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Verðbólga í 21 ríki
Einna minnst
á íslandi
í yfirliti Hagstofu íslands um
verðbólgu í 21 landi frá desember
1993 til sama mánaðar í fyrra kemur
í ljós að á Islandi var verðbólga einna
minnst eða 0,5%. Verðbólgan í ríkj-
um ESB var 3,1% að meðaltali á
þessu tímabili.
Af þessum löndum var verðbólga
lægri en hér í aðeins tveimur löndum
þegar miðað er við hækkun neyslu-
verðsvísitölu. I Kanada var verð-
bólgan 0,2% og 0,4% í Sviss. í Japan
var 0,5% verðbólga eins og hér.
Mest var verðbólga í Grikklandi eða
10,8%. Af Norðurlöndum var mest
verðbólga í Svíþjóð á þessu tímabili
eða 2,5%, í Danmörku 2,3%, í Nor-
egi 1,9% og 1,6% í Finnlandi. Á
Spáni, Italíu og Portúgal var verð-
bólga 4% og aðeins yfir það mark en
í öðrum löndum undir 3%.
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar miðað
við verðlag í byrjun febrúar. Vísital-
an í febrúar reyndist vera 172,3 stig
og hækkaði um 0,1% frá janúar.
Vísitala vöru og þjónustu hafði
hækkað um 0,2% á sama tíma. Mat-
ar og drykkjarvörur hækkuðu um
1,5% en bensín lækkaði um 1,7% og
verð á nýjum bflum um 1,6%.
Dagur B. Eggertsson, formaður Stúdentaráðs
og oddviti Röskvu
„Ég er ekki að fara í
framboð fyrir Þjóðvaka'
- eða nokkurt annað stjórnmálafl. - Harðar deilur milli Röskvu og Vöku
um dagsetningu kosninga til Stúdentaráðs og Háskólaráðs. „Meirihluti
kjörstjórnar valtaði yfir vilja fimm stórra deildarfélaga“ segir Dagur.
„Ég er ekki að fara í framboð til
Alþingis fyrir Þjóðvaka eða nokkurt
annað stjómmálaafl. Það er rétt, að
þeir hafa rætt við mig, en það hafa
einnig allir aðrir gert formlega eða
óformlega - nema Kvennalistinn -
og allir fengið sömu svör,“ sagði
Dagur B. Eggertsson, formaður
Stúdentaráðs og oddviti Röskvu, í
samtali við Alþýðublaðið í gær.
Samkvæmt heimildum blaðsins voru
Jóhanna Sigurðardóttir og fulltrú-
ar hennar búin að bjóða Degi 2. eða
3. sæti á lista Þjóðvaka í' Reykjavík.
„Ástæöa þessa er sú, að í fyrsta
lagi er ég óflokksbundinn vegna þess
að ég hef ekki fundið mínum lífs-
skoðunum farveg innan þeirra
flokka sem til staðar eru. I öðru lagi
er ég læknanemi og farið að klæja í
Endurkröfur tryggingafélaga
Ölvunarakstur algengasta ástæðan
Endurkröfunefnd úrskurðaði í
112 málum á síðasta ári þar sem
samþykkt var að í 94 málum
ættu tryggingafélög endurkröfu-
rétt á ökumenn að upphæð sam-
tals liðlega 20 milljónir króna.
Hæsta endurkrafan nam tveim-
ur milljónum króna og sú næst
hæsta 1,8 milljón.
í umferðarlögum er svo fyrir
mælt að vátryggingarfélag er
greitt hefur bætur vegna tjóns af
völdum ökutækja eignast endur-
kröfurétt á hendur þeim sem
tjóni olli af ásetningi eða stór-
kostlegu gáleysi. Dómsmálaráð-
herra skipar þriggja manna
nefnd sem kveður á um hvort og
að hve miklu leyti skuli beita
endurkröfum.
Ástæður endurkröfu eru lang-
oftast ölvun tjónvalds, það er í 83
tilvikum en aðrar ástæður réðu í
11 tilvikum. Á árinu 1993 voru
ástæður vegna ölvunar í 90 mál-
um en aðrar ástæður réðu í 7 til-
vikum. í þeim 94 tilvikum í fyrra
þar sem endurkrafa var sam-
þykkt voru karlar 77 en konur
18 talsins.
augun eftir að komast í læknisfræði-
bækumar aftur. Þetta er framundan
hjá mér næsta haust og efst á dagskrá
- alls ekki stjórnmálaþátttaka," sagði
Dagur.
Deilur Röskvu og Vöku
um kjördag
Ofangreind yfírlýsing Dags telst
til nokkurra tfðinda í ljósi þess, að
undanfarnar vikur hafa stúdentar í
Vöku og Röskvu harkalega deilt um
hvenær halda á kosningar til Stúd-
entaráðs og Háskólaráðs í Háskóla
Islands. Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins vildi Vaka láta kjósa
28. febrúar, þar sem þá væri komið
fram að Dagur B. Eggertsson, odd-
viti Röskvu, tæki 2. eða 3. sæti á
framboðslista Þjóðvaka í Reykjavík.
Frestur til að tilkynna framboðslista
til Alþingis rennur út 25. febrúar.
Vaka bar fyrir sig að hefðin væri
sú, að kosið væri síðustu vikuna í
febrúar, en samkvæmt heimildum
blaðsins var meginástæðan sú, að
þeir töldu Röskvu síst græða á því í
stúdentakosningum að þeirra odd-
viti, Dagur, væri í framboði til Al-
þingis fyrir Þjóðvaka. „Vaka notar
nú hvert Iúabragðið á fætur öðru til
að klekkja á okkur. En við erum van-
ir þessu vinnubrögðum þeirra og lát-
um þennan óhróður sem vind um
eyru fara,“ sagði Röskvumaður í gær
í samtali við blaðið.
Alþýðublaðið spurði Dag B. Egg-
ertsson um framvindu málsins: „I
krafti meirihluta síns hafa menn í
kjörstjóm nú ákveðið kjördag í trássi
við vilja mjög stórra deildarfélaga
lækna-, hjúkrunarfræði-, sálfræði-,
Dagur B. Eggertsson: Ég er ekki
að fara í framboð til Alþingis fyrir
Þjóðvaka eða nokkurt annað
stjórnmálaafl. Það er rétt, að þeir
hafa rætt við mig, en það hafa
einnig allir aðrir gertformlega eða
óformlega - nema Kvennalistinn -
og allir fengið sömu svör. A-
mynd: E.ÓI.
mannfræði- og heimspekinema og
kosið verður 28. febrúar. Þessi félög
eiga afar erfitt með að kjósa þennan
dag þar sem Norðurlandaþing verður
haldið í kringum þennan dag í Há-
skólabíói og kennsla verður afar tak-
mörkuð." Fyrst mun hafa verið tekin
ákvörðun í kjörstjóm um halda kosn-
ingamar 28. febrúar, en eftir að er-
indi bámst frá þessum ftmm deildar-
félögum var því breytt og kosning-
amar settar á 23. febrúar. Nú hefur
meirihluti kjörstjómar ákveðið að
snúa síðamefndu ákvörðuninni við
og kjósa 28. febrúar.
A-mynd: Asdís Ásgeirsdóttir.
Fallna konan í lífi Verdis Á morgun frumsýnir íslenska
óperan La Traviata, eitt af meistaraverkum ítalska snillingsins Guis-
eppe Verdis. Efni óperunnar er harmsögulegt í meira lagi, enda spann-
ar verkið allan tilfinningaskalann. Á myndinni eru tveir dáðir listamenn
í hlutverkum sínum, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson. Al-
þýðublaðið birtir á morgun ítarlega grein um Verdi og La Traviata eftir
Jónas Sen píanóleikara.
„Meirihluti kjörstjórnar valtaði yf-
ir vilja fimm stórra deildarfélaga.
Það hafa verið óskráðar reglur og
samkomulag í gegnum árin að kosið
sé í Háskólanum þegar sem flestir
nemendur eiga auðveldast með að
kjósa. Það hefur aldrei verið kosið
um kjördag fyrr. Það er nýmæli að
fulltrúar í þessari kjörstjóm líti ekki á
sig sem fulltrúa deildarfélaga heldur
einhverra annarra afla. Ég vil ekki tjá
mig um ástæðuna fyrir þessu, en
þetta er mjög alvarlegt mál,“ sagði
Dagur.
Verölag
lækkaði um
7% hérlendis
- frá árinu 1990 til 1993
miðað við verðlag í löndum
Evrópusambandsins.
Verðlag hér á landi hefur lækkað
um7%fráárinu 1990 ti1 1993 miðað
við verðlag í löndum Evrópusam-
bandsins. Á Norðurlöndum lækkaði
hlutfallslegt verðlag á tímabilinu
gagnvart verðlagi í löndum ESB um
31%íFinniandi,um 14%íNoregiog
unt 13% í Svíþjóð.
Þetta kemur fram í upplýsingum
Hagstofunnar um niðurstöður úr
tveimur alþjóðlegum verðkönnunum
sem ísland tók þátt í árin 1990 og
1993. Þær gefa mikilvægar vísbend-
ingar um þróun verðlags á íslandi
samanborið við umheiminn. Þátttaka
íslands í árlegum samanburði á EES-
svæðinu frá 1994 gefur tækifæri til
að fylgjast reglulega með breytingum
sem gætu orðið á efnahagsumhverfi
íslendinga.
Niðurstöður þeirra kannana sem
nú liggja fyrir sýna að vömr og þjón-
usta fyrir 100 ECU í löndum Evrópu-
sambandsins kostuðu 120 ECU á ís-
landi árið 1990 en 113 ECU árið
1993. Þannig hefur dregið saman
með hlutfallslegu verðlagi á Islandi
og löndum ESB á ámnum 1990-
1993. Verðlag í rikjum Norður Evr-
ópu hækkaði hlutfallslega á tímabil-
inu en hlutfallslegt verðlag í löndum
Suður-Evrópu, írlandi og Bretlandi
lækkaði.
Ferðalag Sighvats Björgvinssonar til Bretlands
Gagnlegar viðræður við bresk stjórnvöld
- um iðnaðar-, viðskipta- og heilbrigðismál.
Ráðherrann fundi með forsvarsmönnum Pirelli fyrirtækisins sem hefur
áhuga á framleiðslu sækapla frá íslandi til meginlands Evrópu.
Sighvatur Björgvinsson, iðnað-
ar-, viðskipta- og heilbrigðisráð-
herra, dvaldi f Bretlandi í boði iðn-
aðar- og viðskiptaráðneytisins þar,
dagana 15. janúar til 19. janúar síð-
astliðinn. Tilgangur fararinnar voru
viðræður við bresk stjómvöld, fyr-
irtæki og stofnanir á sviði málefna
ráðherrans. Þess er vænst að í kjöl-
far ferðarinnar skapist aukin tengsl
milli ráðuneyta landanna. Jafn-
framt væntir ráðherrann og föru-
neyti hans að geta lært af Bretum á
viðkomandi sviðum.
Að ósk gestgjafanna var megin-
viðræðuefnið í þessari för hugsan-
legur útflutningur á raforku frá ís-
landi um sæstreng til Bretlands-
eyja. Ráðherrann og fylgdarlið
hans áttu í því sambandi fundi með
forsvarsmönnum þeirra fyrirtækja
og stofnana sem sýnt hafa áhuga á
málinu. Hér er um að ræða Scottish
Hydro, sem hefur lengi unnið að
könnun málsins í samvinnu við
Landsvirkjun; National Grid
Company, en það fyrirtæki sér um
raforkuflutning innan Bretlands;
rafkaplaframleiðandann Pirelli
Cables Ltd., en það fyrirtæki hefur
gert tæknilegar athuganir á lagn-
ingu sækapals til Islands og GEC
Alsthom sem framleiðir meðal ann-
ars afriðlunarstöðvar einsog nauð-
Sighvatur Björgvinsson fundaði
með Tim Eggar, iðnaðar- og
orkumálaráðherra Bretlands, og
fór vel á með kollegunum.
synlegar eru við sitthvorn enda
hugsanlegs sækapals. Auk þess
óskaði fyrirtækið Western Electric
eftir viðræðum við ráðherrann um
hugsanleg kaup á orku frá Islandi,
en þetta fyrirtæki hefur nýverið
haslað sér völl sem sjálfstæður
orkusali í kjölfar aukins frjálsræðis
á breska raforkumarkaðinum.
í ferðinni ræddi Sighvatur Björg-
vinsson við Tim Eggar, ráðherra
iðnaðar- og orkumála í Bretlandi.
Ráðherrann lýsti yfir samúð sinni
vegna hinna hörmulegu atburða á
Vestfjörðum, sem dundu yfir á
þessum tíma. Viðræður ráðherr-
anna snerust að öðru leyti um for-
sendur þess að lagning sæstrengs
geti verið hagkvæmur kostur fyrir
báða aðila. I því sambandi var rætt
um orkuspár og hugsanlega sam-
eiginlega skattlagningu Evrópu-
sambandsins á brennsluorku f því
skyni að ýta undir notkun endurnýj-
anlegra orkugjafa.
I breska ráðuneytinu var auk þess
rætt við yfirmann verkefnaútflutn-
ingsdeildar ráðuneytisins svo og
yfirmann þeirrar deildar sem fer
með málefni smáfyrirtækja og fyr-
irtækjaneta.
í förinni var heimsóttur Cran-
Field University, en sá háskóli hefur
getið sér gott orð fyrir árangursríkt
rannsóknasamstarf við atvinnufyr-
irtæki. Einnig hitti Sighvatur hóp
breskra ráðgjafa á sviði orku-, iðn-
aðar og heilbrigðismála.
Gestunum frá Islandi var kynnt
hvernig Bretar búa að öldruðum og
fötluðum. Meðal annars var heim-
sótt miðstöð fyrir hvers kyns hjálp-
artæki aldraðra og fatlaðra í Man-
chester. Aðstoðarborgarstjórinn þar
tók á móti ráðherra ásamt ræðis-
manni íslands þar í borg, en hann er
jafnframt yfirmaður heilbrigðis-
mála í Manchester. Þá var farið til
Amersham International, sem eru
samtök er framleiða og selja ýmis
konar lyfja- og hátæknibúnað fyrir
sjúkrahús.
Opinberri heimsókn ráðherrans
átti að ljúka í Skotlandi laugardag-
inn 21. janúar. Vegna atburðanna í
kjördæmi Sighvats Björgvinssonar
stytti hann för sína, sleppti Skot-
landsheimsókninni, og hélt heim-
leiðis ásamt konu sinni strax eftir
að viðræðum við hinn breska koll-
ega hans var lokið, en annað föru-
neyti ráðherra tók þátt í Skotlands-
hluta ferðarinnar og skoðuðu þau
meðal annars miðstöð flugbjörgun-
armála í Skotlandi.
I för með ráðherra í Bretlandi
voru ráðuneytisstjórarnir Páll Sig-
urðsson og Þorkell Helgason, að-
stoðarmaður ráðherra Margrét S.
Björnsdóttir og frú Björk Melax.
Skipulagning ferðarinnar þótti hin
ágætasta, en hún var í höndum
breskra stjórnvalda og breska
sendiráðsins í Reykjavík - í sam-
ráði við iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neyti Bretlands í London.