Alþýðublaðið - 08.02.1995, Síða 1
Hjörleifur Guttormsson vill rannsókn á umhverfisráðherra
Ovænt úrslit atkvæða-
greiðslu á Alþingi
„Þetta var óvænt niðurstaða en nú
verður málið tekið fyrir í allsheijar-
nefnd þannig að ekki er búið að
ákveða að skipa neina rannsóknar-
nefnd,“ sagði Sigbjörn Gunnars-
son, þingflokksformaður Alþýðu-
flokksins, í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Tillaga Hjörleifs Guttormsson
og nokkurra annarra þingmanna
stjórnarandstöðu um að Alþingi
skipi rannsóknamefnd til að kanna
embættisfærslu Össurar Skarphéð-
inssonar umhverfisráðherra við
flutning embættis veiðistjóra til Ak-
ureyrar kom til atkvæðagreiðslu í
gær. Tillagan var samþykkt með 27
atkvæðum gegn 26 og fer nú til alls-
herjamefndar sem ræðir hana á fundi
í dag. Það vakti athygli við atkvæða-
greiðsluna að tveir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, Eggert Haukdal
og Matthías Bjarnason greiddu at-
kvæði með tillögu Hjörleifs. Þá vék
Pálmi Jónsson úr fundarsal áður en
atkvæði vom greidd. Össur Skarp-
héðinsson umhverfisráðherra hefur
alfarið vísað því á bug að nokkrir
meinbugir haft verið á flutningi
embættis veiðistjóra til Akureyrar.
Aldrei starfad med Þjóðvaka
- segir Helgi Pétursson, sem segist vera í pólitísku orlofi.
íslenskir stúdentar í Austur-Þýska-
landi: Þorsteinn Valdimarsson rit-
höfundur, Kristmundur Halldórs-
son, Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður og Steinunn Stefáns-
dóttir. Mynd: Uðsmenn Moskvu
á því að hamingjunni verði náð
með fjöldamorðum, þar liggur
þversögnin. Um þetta eru til gögn
sem þarf að dusta af rykið. Það em
ekki öll kurl komin til grafar. Langt
því frá,“ sagði Arnór Hannibuls-
son prófessor.
„Það er eðli gamalla valdastofn-
ana eins og Alþýðubandalagsins að
það eru ýmsir hlutir í fortíðinni sem
þarfnast skýringa við og þykja ekki
ávallt góðir og gildir," sagði Helgi
Hjörvar formaður Verðandi -
samtaka ungra alþýðubandalags-
manna.
Siá umfiöllun
oq viðtöl á
blaðsíðum 6 oa 7.
Hæstvirtu þingmenn • ■ • Sú óvenjulega aðstaða kom
upp á Alþingi íslendinga seinnipartinn í gær, að þingmaður og varaformað-
ur Alþýðubandalagsins, Steingrímur J. Sigfússon, hafði ekki einn einasta
áheyranda í salnum fyrir utan Valgerði Sverrisdóttur þingforseta. Stein-
grímur lét þetta neyðarlega ástand ekki á sig fá - enda ýmsu vanur sem
einn þaul"sætnasti" þingmaðurinn í ræðustól - og hélt ótrauður áfram að
þylja uppúr skjölum sínum. Þingforsetinn hlýddi átekta á. a -mynd: E.ÓI.
Kjarastefna Alþýðuflokksins
Fegin að fá þennan stuðning
- segir Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands verslunarmanna.
„Af því sem ég hef heyrt og séð í
fréttum úr ræðu Jóns Baldvins
Hannibalssonar sé ég ekki betur en
hann hafi tekið upp kröfugerð okkar
verslunarmanna og það er hið besta
mál,“ sagði Ingibjörg R. Guð-
mundsdóttir, formaður Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna, í
samtali við Alþýðublaðið í gær.
Ingibjörg var spurð álits á þeim
skoðunum sem Jón Baldvin Hanni-
balsson formaður Alþýðuflokksins
setti fram um kjaramál í ræðu sinni
á aukaflokksþinginu um síðustu
helgi. Þar sagði Jón Baldvin meðal
annars að miðað við þjóðartekjur í
fyrra og spá um hagvöxt á þessu ári
væru um 10 milljarðar króna til
kjarabóta. Ef þessum kaupauka væri
dreift í sama hlutfalli til allra laun-
þega yrði kauphækkunin ekki meiri
en 3 til 3,5%. Vegna tengsla launa
og lánskjara þýddi þetta aðeins 1%
kaupmáttarauka og því ekki rétta
leiðin. Launahækkun ætti að vera
föst krónutala með viðbótarhækkun
til þeirra sem hafa undir 90 þúsund-
um á mánuði. Einnig ræddi Jón
Baldvin Hannibalsson um leiðir til
að lækka framfærslukostnað.
„Eg er mjög fegin að fá þennan
stuðning og því fleiri sem eru saman
sinnis þvf betra. Öll okkar vinna
hefur beinst að því að bæta kaup-
mátt þeirra sem þurfa mest á því að
halda. Eg er ekki að hafna þeirri að-
ferð að lækka framfærslukostnað en
hins vegar er hún ekki tekjujafn-
andi. Það eru skattleysismörkin ekki
heldur. En allt hitt sem við erum að
tala um er meira og minna tekjujafn-
andi og auðvitað er allt sem lækkar
framfærslukostnað mjög gott mál.
Eg tala nú ekki um svo lengi sem
hægt er að gera það án þess að skatt-
leggja okkur einhvers staðar á
móti,“ sagði Ingbjörg R. Guð-
mundsdóttir.
„Ég hef aldrei hafið neina þátt-
töku í Þjóðvaka svo það var engu að
hætta. Ég er í pólitísku orlofi en fór
á kynningarfund Þjóðvaka á sínum
tfma fyrir forvitnisakir," sagði
Helgi Pétursson í samtali við Al-
þýðublaðið.
I frétt DV fyrir stuttu sagði að
Helgi Pétursson hefði hætt þátttöku
í Þjóðvaka. I samtali við Alþýðu-
blaðið sagði Helgi hins vegar að
hann hefði ekkert starfað með Þjóð-
vaka og slíkt stæði ekki til. Hann
hefði nóg önnur verkefni á sinni
könnu og þá ekki síst í ferðamála-
nefhd Reykjavíkur þar sem hann er
formaður. Helgi sagði sig úr Fram-
sóknarflokknum síðast liðið haust
vegna þess að forystan tók ekki tillit
til skoðana hans í ýmsurn málum.
Hann hélt hins vegar áfram stöifum
fyrir Reykjavíkurlistann í borgar-
stjóm.
Jóhanna Sigurðardóttir fagnar Helga Péturssyni á kynningarfundi Þjóð-
vaka. Siðan hefur Helgi ekki komið nálægt hreyfingunni. A-mynd: e.ói.
Tengsl austur-þýsku leyniþjónustunnar Stasi við íslenska aðila
Vantar vhneskju um
njósnirhérá landi
Rússar tóku við njósnurum Stasi á erlendri grundu við fall Berlínarmúrsins.
Þór Whitehead sagnfræðiprófessor og fleiri telja enn langt í að öll kurl komi til grafar.
Engin gögn eru fyrirliggjandi um
starfsemi austur-þýsku leynilög-
reglunnar Stasi annarsstaðar en í
Þýskaiandi og því ómögulegt að
vita hvort að einhveijir hafi starfað
á vegurn hennar hér á landi, þrátt
fyrir að aðgangur að skjölum um
athæfi hennar í Þýska Alþýðulýð-
veldinu séu nú aðgengileg þeim
sem vilja kanna þau. Þór White-
head sagnfræðiprófessor sagði í
samtali við Alþýðublaðið í gær að
skömmu fyrir fall Berlínarmúrsins
1989 hafi farið bílalest frá Berlín til
Moskvu með öll skjöl er vörðuðu
alþjóðadeild leynilögreglunnar.
Þór segir jafnframt fram að sov-
éska leyniþjónustan KGB og si'ðar
hinn rússneski arftaki hennar hafi
tekið við öllum erlendum tengilið-
um Stasi, sem hafi í raun ekki verið
annað en þýskur angi KGB og sem
slík sá skilvirkasti í Evrópu. Hann
og fleiri eru sannfærðir um að ekki
séu öll kurl komin til grafar varð-
andi starfsemi leynilögreglunnar og
hérlendra aðila.
I kjölfar sjónvarpsþáttar þeirra
Vals Ingimundarsonar og Arna
Snævarr, 1 nafhi sósíalismans,
hefur blossað upp umræða um
tengsl ýmissa áhrifamanna í Al-
þýðubandalaginu við austur-evr-
ópska kommúnistaflokka og þá sér-
staklega við austur-þýsku leyni-
þjónustuna Stasi.
Skömmu eftir fall Berlínarmúrs-
ins komu upp háværar raddir sem
kröfðust þess að Alþýðubandalagið
gerði hreint fyrir sínum dyrurn í
þessum efnum. Hvernig hefur þess-
ari kröfu reitt af? Er hún réttmæt?
Hefur Alþýðubandalagið ekkert að
fela? Alþýðublaðið lagði þessar
spumingar fyrir nokkra landskunna
einstaklinga og er svör þeirra að
finna í blaðinu.
„Tengsl þessara manna við
kommúnistaflokka Austur-Evrópu
verða seint riíjuð öll upp. Þagnar-
bandalagið um þessa menn er sterkt
því að það nær inn í borgaraflokk-
ana á Islandi. Þeir halda yfir þeim
hlífiskildi," sagði Indriði G. Þor-
steinsson rithöfundur.
„Ég vona að Alþýðubandalagið
geri aldrei hreint fyrir sínum dyr-
um. Það er nógu rnikill skítur í
heiminum samt. Við hinir erum
ekki syndlausir og getum því ekki
kastað fyrsta steininum. Sökudólg-
arnir eru hins vegar fleiri en menn
geta ímyndað sér. Klárir menn eru
auðvitað búnir að láta brenna og
eyðileggja allt um sig, það eru sak-
leysingjarnir sem sitja í netinu,“
sagði Gunnar Dal rithöfundur.
„Alþýðubandalagið á eftir að
gera upp á öllum sviðum. Hug-
myndafræðilega, pólitískt og
menningarlega. Það hefur snúið út-
úr sögu landsins og villt um fyrir
þremur kynslóðum rithöfunda.
Þetta þarf að gera upp, fyrr verður
ekki heilbrigt andrúmsloft í land-
inu.. .011 stefna kommúnista byggir
Alþvðublaðið í dag
„Jóhanna loksins
alvöru flokks-
eigandi“
- skrifar Hrafn
Jökulsson
á blaðsíðu 2.
*
„Ahrif þyngdar-
afls sem ríkir á
Höllustöðum“
- skrifar Össur
Skarphéðinsson
á blaðsíðu 3.
„Eg er
hrædd
við myrkrið“
- segir Vigdís
Grímsdóttir
á blaðsíðu 5.
„Igildi stóriðju
fyrir atvinnulífið“
- segir Gísli Bragi
Hjartarson í viðtali
á blaðsíðu 8.
Stækkun álversins
Þýski ker-
skálinn leyfir
aukningu um
90 þúsund
tonn
- segir Sighvatur
Björgvinsson
ðnaðarráðherra.
„Nefnd beggja aðila mun nú meta
þá tæknikosti sem fyrir hendi eru
varðandi stækkun álversins í
Straumsvík. Þar kemur til greina að
flytja nýlegan kerskála í eigu þýska
álfyrirtækisins VAW til Straumsvík-
ur en sá kostur gerir kleift að auka
framleiðsluna um 90 þúsund tonn á
ári eða upp í 190 þúsund tonna árs-
ffamleiðslu,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson iðnaðarráðherra í
samtah við blaðið.
Eins og Alþýðublaðið greindi frá í
gær kemur ekki aðeins til greina að
stækka álverið í Straumsvík um 60
þúsund tonna framleiðslu á ári eins
og rætt er um, heldur er frekari
stækkun einnig inn í myndinni. Það
þýddi hins vegar virkjunarfram-
kvæmdir við Búrfell þar sem nú er
aðeins fyrir hendi orka sem dugar í
60 þúsund tonna aukningu.
Sighvatur Björgvinsson sagði að
undirbúningsviðræðumar við Alusu-
isse-Lonza hefðu verið gagnlegar og
jákvæðar. Nú væri næsta skrefið að
meta tæknilega kosti sem væru fyrir
hendi og ætti þeirri vinnu að ljúka
innan tveggja rnánaða.