Alþýðublaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 11.APR(L1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 S k o ð a n i r Galið kosningakerfi „Á kosninganóttu lýsti Ólafur Þ. Haröarson stjórnmálafræðingur því yfir að eini kosturinn við kosningakerfið væri skemmtigildi þess...Heldur kárnaði gamanið þegar leit út fyrir að Eggert Haukdal næði kjöri á rúmlega þúsund atkvæði á meðan Kvennalistinn með mörg þúsund atkvæði að baki næði engri konu á þing." Á kosninganóttu lýsti Ólafur Þ. Harðarson stjómmálafræðingur því yfir að eini kosturinn við kosninga- kerfið væri skemmtigildi þess. Pallborðið | Á kosninganóttu gat þjóðin fylgst með því hvemig frambjóðendur duttu inn og útaf þingi í samræmi við tölur í ijarlægum landshlutum. Heldur kámaði gamanið þegar leit út fyrir að Eggert Haukdal næði kjöri á rúmlega þúsund atkvæði á meðan Kvennalistinn með mörg þúsund at- kvæði að baki næði engri konu á þing. Gallamir á kosningakerfinu urðu öllum ljósir. Þegar upp var staðið er flestum ljóst hvfiíkur óskapnaður kosninga- kerfi landsmanna er. Núverandi kjördæmaskipting hef- ur í för með sér alvarlegt misvægi at- kvæða. Markmið kosningalaganna er að tryggja jafnvægi á milli þingstyrks flokka og atkvæðamagns innan kerf- is sem byggir á misvægi atkvæða. I mörgum tilvikum em því iítil tengsl á milli þess hvort þingmaður nái kjöri eða styrks hans í kjördæminu. Það þarf ekki að undra þótt kosn- ingakerfið sé ónothæft. Það er af- sprengi pólitískra hrossakaupa þar sem Páll Pétursson og fleiri viðlíka snillingar véluðu um sjálfsögð mannréttindi af miklu virðingaleysi. Á síðasta þingi var gerð tilraun til að breyta kerfinu, en þá brá svo við að Framsóknarflokkurinn sendi Pál Pétursson sem sinn fulltrúa í starfið og varð þá þegar ljóst að enginn gmndvöllur væri fyrir miklum breyt- ingum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig staðið sig illa í málinu, enda Egill Jónasson mikill áhrifamaður þar á bæ. Á nýju kjörtímabili þarf að gera róttækar breytingar á kjördæmakerf- inu og kosningalögum. Framsókn þarf að gefa Páli frí og hleypa yngra fólki í starfið (til dæm- is því frambærilega fólki sem vann sigur á Reykjanesi) og fijálslyndari armur Sjálfstæðisflokksins þarf að gera sig meira gildandi innan þing- flokksins. Alþýðuflokkurinn hefur skýra stefnu í málinu og verður að þrýsta á um breytingar. Helsta hættan við þetta kosninga- kerfismál er að það gleymist þangað til rétt fyrir kosningar og að þá verði rokið upp til handa og fóta. Málið er ekki á ábyrgð neins ráðherra, nema ef vera skyldi forsætisráðherra, og því vill enginn tími vinnast til að ræða málið og afgreiða. Af þessum ástæðum er líklega best að kveða á um málið með mjög skýrum hætti í stjómarsáttmála. Það er í það minnsta ljóst að ekki verður hægt að nota kosningakerfið í einum kosningum enn. Reykvíkingar sætta sig ekki leng- ur við misvægi atkvæða og kosn- ingakerfið sjálft er galið eins og landsmenn sáu glöggt á kosninga- nóttu. Höfundur er stjórnmálafræðingur. V i t i m e n n Kratar vilja konur. Mánudagspósturinn i gær. Ég get sætt mig við Þorstein Pálsson sem sjávarút- vegsráðherra að gerbreyttri stefnu, ef hann er tilbúinn að stýra slíkri stefnu. Ólafur Hannibalsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum. DV í gær. Höfuðmál efstu manna á lista Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi var að keyra mig út og það tókst hjá þeim. Það má segja að það sé árangur hjá þeim að losna við sveitalubbann. Eggert Haukdal í DV í gær. Intemetið hefur vitaskuld að geyma safaríka einkamáladálka og einn þeirra er Kjötmarkaðurinn (Virtual Meetmarket) á netfanginu http.V/sashimi.wwa.com: 1111. Þar leita karlar að konum, konur að körlum og allir að öllu á þannig þrískiptum markaði. Mikill ójöfn- uður er ríkjandi á þessu netfangi: þegar síðast fréttist vom þar 50 auglýsingar frá körlutn, en aðeins 3 frá klárara kyninu. Af öðmm yafasömum netföngum á þessu ákveðna sviði mannlegra sam- skipta mætti nefna http://www.cts. com/~talon með „lifandi" nektar- vídeómyndum eða þá eitthvað linkulegt á borð við alt.fan.hrad- pitt (sem mun þó vera ágætis stað- ur til að hitta stelpur). Villtir á Vefnum benda nethausum sem gamna sér á tölvum hins opinbera að láta vera í þetta skiptið, að segja RÚVaranum Loga Bergmann Eiðssyni frá subbuskapnum... Sjálfstæðismenn á Suð- urlandi töpuðu þing- sæti í kosningunum, og það veikirtil muna stöðu Þorsteins Pálssonar. Bóndinn á Bergþórshvoli, Eggert Haukdal, féll með sæmd og dró með sér Drífu Hjartardóttur, sem skipaði 3. sætið. Drífa hafði 3. sætið einmitt af Haukdal í frægu prófkjöri í fyrra. Það sem þá réði úrslitum var gríðarleg smölun í Vest- mannaeyjum, þarsem Árni Johnsen lét sitt fólk kjósa Drífu. Sigur Þorsteins og Árna í prófkjörinu var hins- vegar Pyrrhusarsigur ein- sog kom í Ijós um helg- ina... Nú er mikill taugatitring- ur meðal sjálfstæðis- manna, eftir að Davíð Oddsson lýsti yfir því, að breyting yrði á ráðherralið- inu, verði flokkurinn áfram í stjórnarráðinu. Ólafur G. Einarsson á enga mögu- leika á ráðherrasæti áfram og sjálfstæðismenn á Reykjanesi ganga út frá því að Árni Mathiesen hreppi hnossið. Vestfirðingar gera líka tilkall til ráðherrastóls fyrir Einar K. Guðfinns- son enda fer vegur hans mjög vaxandi innan Sjálf- stæðisflokksins. Við vitum að Davíð hefur hug á því að gera Björn Bjarnason að ráðherra, en það tekst tæpast nema Friðrik Sop- husson dragi sig í hlé úr pólitík. Friðrik hefur verið orðaður við sendiherra- embætti, enda útséð um að hann komist öllu lengra á framabrautinni. Halldór Blöndal styrkti stöðu sína um helgina, en ekki er sjálf- gefið að hann vilji verða landbúnaðarráðherra áfram. Margir sjálfstæðis- menn vilja losna við Þor- stein Pálsson enda var hann dragbítur í kosninga- baráttu þeirra víða um land vegna lélegrarframmi- stöðu í sjávarútvegsráðu- neytinu... Ekkert varð úr fyrirhug- uðum kosningasigri Ól- afs Ragnars Grímssonar enda stal Framsókn sen- unni meðal stjórnarand- stöðuflokkanna. Ólafur Ragnar gerði sér vonir um, að góður kosningasigur myndi leiða hann í ríkis- stjórn og gera honum kleift að halda formannsstólnum með einhverju móti. Nú blasir við að Steingrímur J. Sigfússon taki við flokknum í haust - og þá er mikið efamál að Ólafur Ragnar uni sér vel í Al- þýðubandalaginu... "FarSide" oftir Gary Larson. „Róaðu þig, sonur sæll! Þú skalt hafa það hugfast að áður en þú ert hæfur um að gagnrýna okkur þarftu að vita allar staðreyndir málsins. Málið er, að í kringum 1970 voru ALL- IR á kafi ídópi og allskonar rugli. Ekki bara við..." Hvaö finnst þér um niðurstöður kosninganna? Þorlákur Einarsson, nemi: „Ég er mjög ánægður með útkomu míns flokks." Jóhannes Gunnarsson, toll- endurskoðandi: „Ég er sæmilega ánægður og vona að stjómin starfi áfram.“ Guðbjörg Vésteinsdóttir, leik- skólastjóri: „Ég er ekki ánægð með það, að stjómin hélt velli.“ Elínbjörk Bruun, bankastarfs- maður: „Ég er ánægð með úrslit- in.“ Ása Briem, nemi: „Það á eftir að koma í ljós hvort ég er ánægð. Það fer eftir því hvemig stjóm verður mynduð." Þetta er óneitanlega áfali. Kristín Ástgeirsdóttir um útreið Kvennalistans í kosningunum. DV í gær. „íslenskrí pólitík er ekki við bjargandi,“ sagði Ehn [Antonsdóttir] á fámennrí kosningahátíð Kvennalista á Akureyri. DV í gær. Framsóknarflokkurinn er kominn á mölina. Finnur Ingólfsson í DV í gær. Á bak við Ólaf Ragnar Grímsson eru 5.329 atkvæði og er hann dýrasti þingmaður Alþýðubandalagsins... Ólafur er jafnframt dýrasti þingmaður iandsins - hvort sem mönnum finnst það við hæfl eða ekki. Mánudagspósturinn í gær. En þegar upp er staðið liggur það fyrir að ríkisstjórn- in situr enn og getur þess- vegna haldið áfram í krafti meiríhlutafylgis á Alþingi. Hún er skrýtin pólitíkin og það er merkilegt, lýðræðið. Leiðari Ellerts B. Schram i DV í gær. Meistari Charles Dickens trúði svo staðfastlega á mesmerisma (lækningameðferð sem notuð var í samfloti við dáleiðslu) að hann taldi sjálfan sig fullgildan doktor í að yfirfæra græðandi áhrif frá sjálfum sér- hið svokallaða „dýrslega segulmagrí' - til sjúkra. Dickens áttaði sig aldrei nokkum tímann á því, að árangur hans með þessari lækningameðferð var algjörlega byggður á sálfræðilegum áhrifum (trúin flytur nefnilega fjöll einsog við vitum öll). Þessa fáfræði átti meistarinn sameiginlega með öllum öðrnm mesmeristum. Byggt á Isaac Asimov's Book of Facts.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.