Alþýðublaðið - 26.04.1995, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995
ALÞÝÐUBLAÐK)
3
S k o d a n
Snúum bökum saman
Um fátt hefur verið meira talað
undanfarið en hina nýju ríkisstjóm
sem Davíð Oddssyni tókst að mynda
með brellum og sannaði þar fyrir
hinum stjómmálarefum landsins að
hann væri mestur núlifandi machia-
vellista hérlendra og verðskuldaði
því forsætisráðherrastólinn. Húrra
fyrir Davíð, sem hefur átt eina
lengstu samfelldu sigurgöngu í
stjómmálum frá því að Stah'n var og
hét.
Pallborðið |
Magnús Árni
Magnússon
skrifar
Þessi nýja ríkisstjóm verður vond
ríkisstjóm. Ömurlegt var að fylgjast
með Framsóknarflokknum arka inn í
ráðuneytin í fréttatímunum í íyrra-
kvöld: Páll Pétursson í félagsmála-
ráðuneytið, Finnur Ingólfsson í iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytið, Ingi-
björg Pálmadóttir í heilbrigðisráðu-
neytið, Guðmundur Bjamason í
landbúnaðarráðuneytið og umhverf-
isráðuneytið og Halldór Asgrímsson
í utanríkisráðuneytið. Maður sá
þymirósagróðurinn spretta upp úr
stólbökunum og út úr veggjunum.
Morrinn mætti á svæðið. Ný ísöld
gekk í garð.
Stundum er það þannig í lífinu að
menn verða að stíga eitt skref aftur-
ábak til að geta tekið tvö skref áfram
næst. Nú er staðan sú að þau stjóm-
málaöfl sem verða í stjómarandstöðu
næsta kjörtímabil má með einum eða
öðrum hætti skilgreina sem höll und-
ir jafnaðarstefnu. Það verður fróðlegt
að sjá hvort þau nýta það sóknarfæri
sem í því felst að liggja skyndilega
og óvænt ofan í sömu skotgröfmni
með íhaldið og sótsvart afturhaldið
handan víglínunnar. Ná þessir flokk-
ar að stilla upp trúverðugri stjómar-
andstöðu og skuggaráðuneyú, til-
búnir til að taka við landsstjóminni
eftir næstu kosningar? Eða verða
þeir hver í sínu homi allt kjörtímabil-
ið, sjálfum sér verstir, dreymandi
drauminn um að plotta sig inn í
næstu ríkisstjóm, með andskotanum
sjálfúm ef ekki vill betur.
Eða verður þetta kannski eins og
1978? Vinstri flokkamir vinna stór-
sigur og lyfta Framsókn í öndvegi á
ný?
I ósigri er sigur oft falinn. Litlu
ílokkamir okkar á vinstri vængnum
vom sjálfum sér verstir í kosninga-
baráttunni sem nú er afstaðin. Al-
þýðubandalagið spilaði plötuna um
hinn vonda Alþýðuflokk út í gegn í
hálfrar aldar gamalli vendettu
kommúnista gegn sósíaldemókröt-
um. Þjóðvakinn var yngra form
blóðhefndar smákóngaveldisins,
sem náði þeim árangri að auka á
glundroðann vinstra megin og koma
grímulausu fhaldinu úl valda.
Kvennalistinn barðist fyrir lífi sínu
og fiskaði vitaskuld á hinum hefð-
bundnu vinstri miðum, því kvenna-
barátta ER vinstri barátta, hvað sem
konumar í Sjálfstæðisflokknum
segja, enda kemur það berlega í Ijós
þegar talað er um valdastöður á þeim
bænum. Þar er ljóst hveijum er ætlað
að ráða og hveijum að baka vöffl-
umar.
Hvenær ætla vinstri menn að læra,
hætta að beija á samheijum sínum
og fara að snúa sér að því að vinna á
hinum raunverulega óvin? Þeim sem
gætir hagsmuna hinna meiri máttar í
þjóðfélaginu eins og Ijöregg sitt
væri.
Sjálfstæðisflokkurinn er hefð-
bundinn hægri flokkur sem stendur
vörð um einokunaraðstöðu hins svo-
kallaða kolkrabba, um hagsmuni
kvótakónga til lands og sjávar. Hann
stendur vörð um þessi öfl og er þeim
skjól fyrir vindum hins alþjóð-
lega samfélags og samkeppni
við dugandi fólk. Hann er
bijóstvöm einveldisskipulags
karlaveldisins, sem kristallast í
hinni föðurlegu konungsímynd
sem flokkurinn teiknar upp af
leiðtoga sínum, með aðstoð
grímuklæddrar flokkspressu
sinnar.
Framsóknarflokkurinn er
ekki vinstri flokkur eða félags-
hyggjuafl. Hann er hefðbund-
inn íhaldsflokkur landeigenda,
sem hefur í sína sjö tugi ára
verið pólitískt útibú auðhrings
nokkurs á Alþingi Islendinga
og vemdar nú leifamar af hon-
um. Þessi flokkur vill komast
til valda úl að vera í þeirri að-
stöðu að rétta gæludýrum sín-
um, í gegnum einhverja
byggðastofnunina eða sjóðinn,
milljarðatugi af fé skattborgar-
anna. Hann stendur vörð um
þessi gæludýr sín og er þeim
skjól íyrir vindum hins alþjóð-
lega samfélags og samkeppni
við dugandi fólk.
Þeir flokkar sem nú em í
stjómarandstöðu em kannski
litlir, vitlausir og sjálfum sér
verstir, en þeir eiga þó eitt
sameiginlegt. Þeir standa ekki
vörð um neina slíka hagsmuni
og ef þeir eiga sér umbjóðend-
ur, þá em það þeir sem minna
mega sín í þessu þjóðfélagi
samtryggingar íhalds og afitur-
halds. Hvemig væri nú að fara
að kalla þetta dag og snúa bök-
um saman í baráttunni?
Að lokum vil ég vekja at-
hygli á að þetta litla blað sem
ég skrifa í er nú eina stjómarand-
stöðudagblaðið. Eg hvet vinstri
menn á íslandi til að gera veg þess
sem mestan.
Höfundur er varaþingmaður
Alþýðuflokksins í Reykjavík.
„[Framsóknarflokkurinn] vill komast til
valda til að vera í þeirri aðstöðu að rétta
gæludýrum sínum, í gegnum einhverja
byggðastofnunina eða sjóðinn, milljarða-
tugi af fé skattborgaranna."
Kaþólskt
mannlíf
Nýtttölublað málgagns kaþ-
ólsku kirkjunnar á íslandi, Merki
krossins, geymir upplýsingar um
ýmisskonar umsvif kaþólskra ís-
lendinga. Kaþólskir voru hér í
árslok 1994 2.535, sem jafngildir
tæplega 1% af heildarmann-
fjölda (Islendingar voru í árslok
266.786). Á landinu eru 10 kaþ-
ólskir prestar og þeir fram-
kvæmdu 46 skírnir og 19
hjónavígslur, níu jarðarfarir og
22 fermingar. Fimm íslending-
ar voru teknir upp í kirkjuna.
Á íslandi eru 46 nunnur: 15 St.
Jósefssystur, 14 St. Franciskus-
systurog 17 Karmelsystur.
H i n u m e q i n
"FarSide" eftir Gary Larson.
Einsog lesendur Reykja-
víkurbréfs Morgun-
blaðsins sáu á sunnudag-
inn er sú tíð liðin að stóra
blaðið standi í blindni
með ríkisstjórn sem Sjálf-
stæðisflokkurinn á aðild
að. Nú tekur Mogginn af-
stöðu í hverju máli fyrir
sig, og skoðanir blaðsins
koma ekki fram annars-
staðar en í ritstjórnar-
greinum. Þessi þróun hef-
ur orðið smámsaman síð-
ustu ár, jafnframt því sem
Morgunblaðið hefur hrist
af sér klakabrynju kalda
stríðsins, og er vitanlega
fagnaðarefni enda Moggi
gamli miklu sprækari fyrir
vikið. Athygli vekur í for-
ystugrein í gær, þarsem
fjallað er um nýja ríkis-
stjórn, að talsverðu púðri
er eytt í að fjalla um þá
ákvörðun að setja Ingi-
björgu Pálmadóttur í
stól heilbrigðisráðherra.
Bent er á að aðrir ráðherr-
ar Framsóknar hafi mun
meiri reynslu til að fást við
þetta vandasama ráðu-
neyti; og nefnir leiðarahöf-
undur jafnvel Pál Péturs-
son til sögunnar sem betri
kost en Ingibjörgu. Víst er
um að fleiri en Mogginn
hafa furðað sig á því að
Ingibjörgu, sem hefur
minnsta reynslu ráðherr-
anna, skuli falið þetta risa-
vaxna verkefni...
Alþýðubandalagsmenn
eru mjög með bögg-
um hildar eftir stjórnar-
myndun, enda blasa nú
við fjögur ár til viðbótar í
stjórnarandstöðu. Kosn-
ingarnar voru síðasta
tækifæri Ólafs Ragnars
Grímssonar til að tryggja
sér framhaldslíf í pólitík,
en hann þótti standa sig
hörmulega: fyrst i kosn-
ingabaráttunni og svo í
baktjaldamakkinu sem
fylgdi í kjölfarið. Ólafur
Ragnar lætur af for-
mennsku í haust og þá
telja flestir alþýðubanda-
Iagsmenn að valdaferli
hans í íslenskum stjórn-
málum sé lokið. Stein-
grímur J. Sigfússon
þykir hegða sér líktog væri
hann þegar orðinn for-
maður, enda yfirgnæfandi
líkur á að hann hljóti
brautargengi. Margrét
Frímannsdóttir er ein
um að geta ógnað Stein-
grími, en hún er mjög tví-
stígandi í málinu...
Aðeins meira um alla-
balla. Framtíð Viku-
biaðsins, sem Alþýðu-
bandalagið gefur út, ræðst
á næstunni. Rekstur blaðs-
ins hefur aldrei hvílt á
traustum grunni, og óvíst
að alþýðubandalagsmenn
treysti sér til að halda út-
gáfunni áfram í núverandi
mynd. Vikublaðið þykir
standast illa samanburð
við Þjóðviijann sáluga,
sem sveipaður er rauðum
blæ í minningu alþýðu-
bandalagsmanna - og
reyndar fleiri...
„Já, herra lögregluþjónn: BAMM! Þetta kom bara svif-
andi utanaf vinstri kantinum á gríðarlegri siglingu og
lenti ofan á honum..."
Fimm á förnum ve
Hver er heilbrigðisráðherra og úr hvaða kjördæmi er hann/hún? (Réttsvar: ingibjörg Pálmadóttir-Vesturlandi)
Isól Fanney Ömarsdóttir, upp-
alandi: Það er Ingibjörg Pálmadótt-
ir, 1. þingmaður Vesfttrlands.
Ingibjörg Diðriksdóttir, nemi:
Eg hef ekkert fýlgst með þessu ráð-
herrabrölti.
Guðrún Pétursdóttir, kennari:
Er það ekki Ingibjörg Pálmadóttir
frá Vesturlandi?
Björn Sveinsson, útibússtjóri:
Ingibjörg Pálmadóttir úr Vestur-
landskjördæmi.
Helena Jónsdóttir, bankamað-
ur: Eg hef ekki grænan grun um
það.
V i t i m e n n
Píanóleikarinn, kvikmynda-
leikarinn og Snigillinn Baldur
Sigurðarson frá Ey í Vestur-
Landeyjum kallar ekki allt
ömmu sína: Mætti handleggs-
brotinn í píanóprófið
en komst inn.
Sunnlenska fréttablaðið.
Þetta er alveg svakalegt.
Sighvatur Björgvinsson um ríkisstjórn
Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
Vestfirska fréttablaðið.
Það var ekkert tilbúið þegar
kosningabarátta Jospins hófst.
Hann hafði enga kosninga-
skrifstofu, enga peninga
og enga stefnuskrá...
Imyndarsmiðirnir voru
svolítið reikandi.
Fréttaskeyti frá Reuter. DV í gær.
Þetta er búinn að vera erfiður
vetur á manni, maður! Eg
man ekki annan verri. Það er
engin uppgjöf í manni. Það er
svo furðulegt helvíti að það er
einsog þrjóskan aukist í manni
við þessi harðindi.
Guömundur Jónsson á Munaðarnesi,
hreppstjóri Árneshrepps á Ströndum,
um snjóþyngsta vetur í manna
minnum. Vestfirska fréttablaðið.
Er sanngjarnt að fela þetta
erfíða ráðherraembætti þing-
manni, sem hefur mjög tak-
markaða þingrev nslu að baki?
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins að
fjalla um nýjan heilbrigðisráðherra,
Ingibjörgu Pálmadóttur.
Flokksforingjarnir Halldór,
Jón og Olafur létu sanngirni
og drengskap lönd og leið
þegar Jóhanna átti hlut að
máli en voru óvenjulega hóg-
værir hver í annars garð. Dav-
íð var aftur á móti sanngjarn
og sjálfum sér samkvæmur.
Menn skulu gæta þess að hann
er yfírlýstur sjálfstæðismaður
en ekki þremenningarnir.
Albert Jensen trésmiður.
Kjallaragrein í DV í gær.
Formlegur og feiminn
hagfræðiprófessor.
Frétt DV í gær um Lionel Jospin,
sigurvegara fyrri umferðar frönsku
forsetakosninganna.
Sú nýuppvakta þráhyggja að
kjördæmi eigi rétt á ráðuneyt-
um er hvergi í skráðum lögum
og styðst tæpast við neins
konar réttlætiskennd og enn
síður við nokkuð sem kalla
má vilja kjósenda.
Oddur Ólafsson í Tímanum í gær.
Einvígi manna f millum vora gríðarlega
vinsæl tómstundaiðja meðal írskra yfir-
stéttannanna til að drepa U'mann með
(...) á þarsíðustu öld. Reyndar var hylli
einvígja svo mikil, að það þótti sjálfsögð
kurteisi þegar sveitakrá ein tók uppá
þeirri einkennilegu þjónustu (-finnst
okkur í dag-) að hafa sett af einvígis-
pístólum til taks fyrir þá heiðursmenn
sem gleymdu sínum heima. Og ef ein-
hver er að velta því fyrir sér, þá þótti
þetta uppátæki veitingamannsins ekki
mikið tiltökumál með löggæslumanna.
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.