Alþýðublaðið - 23.05.1995, Blaðsíða 1
■ Harkaleg gagnrýni á Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra vegna yfirvof-
andi niðurskurðar hjá sjúkrahúsum á landsbyggðinni
Svona gerum við
ekki, ráðherr
-sagði Kristján Pálsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Mikil skerðing á
þjónustu, sem bitnar strax mjög harkalega á öldruðum og barnshafandi konum.'
Kristján Pálsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Reykjanesi, gagn-
rýndi Ingibjörgu Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra harkalega við utandag-
skrárumræður í gær. Hann sagði að að-
gerðir sem Ingibjörg hefur gripið til,
vegna deilna um sérkjarasamninga
hjúkrunarfræðinga, leiði til þess að
draga verði stórlega úr þjónustu á
sjúkrahúsum á landsbyggðinni.
Mikill styrr hefur staðið um sérkjara-
samninga hjúkrunarfræðinga, og vom
stjómendur sjúkrahúsa á landsbyggð-
inni knúðir til að segja þeim upp.
Hjúkrunarfræðingar bmgðust við með
því að segja upp störfum og því var út-
lit fyrir að staifsemi sjúkrahúsa víða
um land lamaðist um næstu mánaða-
mót. Heilbrigðisráðherra hefur gefið
vilyrði fyrir því, að hluti útgjalda vegna
sérkjarasamninga verði greiddur, en
sjúkrahúsin verði að útvega það sem
uppá vantar. Kristján Pálsson kvaðst
hafa heimildir fyrir því frá stjómendum
sjúkrahúsa, að þeir yrðu að grípa til
stórfellds niðurskurðar vegna þess, og
„draga þurfi með virkum aðgerðum
stórlega úr þjónustunni."
Þá sagði Kristján: „Við sjúkrahús
Suðumesja er rætt um að loka deildum
einsog skurðstofu, sem leiðir til tak-
markaðra nota af þjónustu fæðingar-
deildarinnar, og þar er einnig rætt um
að draga úr heimahjúkmn og jafnVel
loka selum í þéttbýliskjömum. Þama er
um mikla skerðingu á þjónustu að
ræða, sem bimar strax mjög harkalega
á öldmðum, bamshafandi konum og
fólki í jaðarbyggðum svæðisins. Svona
gerum við ekki, hæstvirtur heilbrigðis-
ráðherra."
Margrét Frímannsdóttir, þing-
maður Alþýðubandalagsins, sem hóf
umræðuna sagði að allur framgangur
málsins væri „með endemum enda
hefði um tíma lítið út fyrir að starfsemi
sjúkrahúsa á landsbyggðinni lamaðist
algerlega.“
Margrét áleit ekki að lausn Ingi-
bjargar skilaði miklum árangri: „Sú
lausn sem ráðherra hefur komið með
tekur síður en svo á vanda sjúkrahús-
anna á landsbyggðinni og verður ekki
til að styrkja stöðu þeirra."
Ingibjörg Pálmadóttir. Sat undir
harðri gagnrýni frá samherja í
stjórnarliðinu. A-mynd: E.ÓI.
■ Nefnd sem fjallar um lyfjaverslun og lyfjaverð
Starfsmaður
apótekara er
fuHtrúi Þjóðvaka
- Kjartan Valgarðsson, framkvæmdastjóri Klasa sem er í eigu
apótekanna, skipaður í nefnd erfjallar um mál sem varða
hagsmuni lyfsala.
Þjóðvaki hefur tilnefnt fram-
kvæmdastjóra fyrirtækis í eigu apó-
tekara sem fulltrúa sinn í nefhd á veg-
um heilbrigðisráðherra sem fjallar um
ýmis mál, sem tengjast hagsmunum
apótekara. Fulltrúi Þjóðvaka er
Kjartan Valgarðsson sem sinnir
framkvæmdastjóm Klasa hf„ er ann-
ast innflutning og dreifmgu á vömm
fyrir apótekara. Nefndin fjallar um
mál sem varða hagsmuni apótekara,
meðal annars um mál tengd lyfjaverði,
auknu ffelsi í verslun með lyf og ann-
að sem varðar lyfjalögin sem sett vom
í kjölfar EES- samningsins.
í nýliðinni kosningabaráttu hélt
Þjóðvaki uppi harðri umræðu um sið-
ferði í stjórnmálum, og fordæmdi
óeðlileg hagsmunatengsl stjómmála
og atvinnuhfs. Alþýðublaðið reyndi í
gær árangurslaust að ná tali af Kjart-
ani Valgarðssyni og formanni Þjóð-
vaka, Jóhönnu Sigurðardóttur, til að
fá álit þeirra á því hvort hér væri hags-
munaárekstur á ferðinni. í hvorugt
náðist. Klasi er í eigu apótekanna en
þau hafa mikilla hagsmuna að gæta í
þessu sambandi. Fyrir skömmu þurfti
Samkeppnisráð að hafa afskipti af við-
skiptaháttum þessa fyrirtækis.
Kjartan Valgarðsson (til hægri) ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur og Runólfi
Ágústssyni á landsfundi Þjóðvaka. A- mynd: E.ÓI.
Benedikt: Myndi hiklaust kjósa
Steingrím J.
■ Formannsslagurinn
í Alþýðubandalaginu
magnast
Forseti
ASI
styður
Stein-
grím
„Ég hef auðvitað skoðun á þessu og
hef gert upp hug minn hvað varðar
þessi tvö sem nú þegar em komin í
framboð. Það er engin spuming, að af
þeim tveimur myndi ég hiklaust kjósa
Steingrím J. Sigfússon. Á því leikur
enginn vafi í mínum huga,“ sagði
Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðu-
sambands íslands, í samtali við Al-
þýðublaðið í gær er hann var spurður
hvort hann myndi styðja, Steingrím
eða Margréti Frímannsdóttir, í for-
mannskjöri Alþýðubandalagsins í
haust.
,Ég hallast nú meira í kvenlegginn í
þessu tilfelh: Margréti Frímannsdótt-
ur. Kvenleggurinn er sterkur í mér
núna í augnablikinu," sagði hinsvegar
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambands íslands, í sam-
tali við blaðið.
- Sjá umfjöllun á baksíðu,
mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag
föstudag, laugardag, og sunnudag
Kaupir þú pizzu meö 2 áleggstegundum færö þú
Margaritu* pizzu að sömu stærö í kaupbæti.
Fyrir þá sem vilja, bjóðum vib einnig ferska íslenska
tómata á frípizzuna þér að kostnaðarlausu.
Kaupir þú pizzu meó 2 áleggstegundum færó þú
Margaritu* pizzu aö sömu stærö í kaupbæti
GILDIR í HEIMSENDINGU OG Í TAKT'ANA HEIM
‘Margarita er pizza meS sósu og osti, aS sjálfsögSu getur þú keypt þín uppáhalds álegg á frípizzuna.