Alþýðublaðið - 23.05.1995, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐK)
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ1995
s lc o d a n i r
20922. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Isafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Heillum horfín
ráðherra
Allt síðasta kjörtímabil gagnrýndi Framsóknarflokkurinn
vinnubrögð þáverandi ríkisstjómar í heilbrigðismálum. Á flokks-
þingi Framsóknar síðastliðið haust var sérstaklega mótmælt fljót-
fæmi og illa undirbúnum aðgerðum í þessum málaflokki. Nú hef-
ur Ingibjörg Pálmadóttir verið í embætti í röskan mánuð. Það er
fróðlegt að skoða „nýju“ vinnubrögðin sem hún predikaði sjálf
fyrir kosningar.
Allt bendir til að sjúkrahús á landsbyggðinni lamist vegna þess
að ráðherrann þorir ekki að taka ábyrgð á því að leysa ágreining
um sérkjarasamninga. Forveri hennar hafði náð samstöðu um leið
til lausnar: vissulega umdeildrar lausnar, en hann þorði þó að taka
á málinu. Núverandi heilbrigðisráðherra kiknar hinsvegar í
hnjánum þegar kemur að því að taka á sig þá ábyigð sem á henni
hvílir sem yfirmanni heilbrigðismála, og hefúr skipað stjómum
sjúkrahúsanna að leysa máhð fyrir sig.
Þetta gerir Ingibjörg Pálmadóttir án þess að útvega fjármagn til
þess og vitandi vits að fjármálaráðherra hefur bannað stjómum
sjúkrahúsanna að gera samningana. Einkunnin sem vinnuaðferð
Ingibjargar fær opinberlega hjá fleiri en einum forstjóra sjúkra-
húsa á landsbyggðinni er: „Algjört klúður“.
Afskipti Ingibjargar - eða afskiptaleysi - af málefnum Lands-
spítalans hafa jafnframt leitt til þess, að yfir vofir lokun sex
deilda á geðdeild spítalans, auk þess sem þjónusta á bamageð-
deild skerðist líka. Yfirmenn á spítalanum telja lokunina gjör-
samlega óábyrga. Láms Helgason yfirlæknir segir í Morgunblað-
inu: „Það er jafnframt líklegt, þótt ég vilji ekkert fullyrða um það,
að þetta muni leiða til aukinna sjálfsvíga.“
Þetta em vinnubrögð manneskju, sem sagði að handahóf og
fljótfæmi væri eitur í sínum beinum. Veit hún ekki, að hún er orð-
in ráðherra?
Brennivínsbölið
Nýhafið vorþing átti samkvæmt orðum forsætisráðherra að
standa í tíu daga og snúast um stjóm fiskveiða og GATT. Nú er
liðin vika af dögunum tíu og ekkert bólar enn á ffumvörpum um
þessi mál. Aftur á móti lögðu stjómarherramir fram tvö önnur
mál, sem vom þeim svo hjartfólgin að þeir óskuðu eftir aukadegi
í þinginu til að flýta afgreiðsiu þeirra.
Stjómmál snúast öðmm þræði um stfl. Það kom í ljós að óska-
málin tvö snemst um að liðka fýrir sölu á brennivíni. Vissulega
speglar það ákveðinn „stíl“ hjá stjómarherrunum að láta fýrstu
fundi nýkjörins þings snúast um svo gagnmerkt þjóðþrifamál.
Bermúdaskálin lengi lifi... ■
Bindindismadurinn
f stjórnarráðinu
Það væri kaldhæðnislegt ef Davíðs Oddssonar
yrði einungis minnst - í neðanmálsgreinum -
sem mesta pólitíska bindindismanns íslands-
sögunnar, forsætisráðherrans sem hafði ekki
skoðun á neinu nema húsbyggingum.
Davíð Oddsson hefur, einsog al-
þjóð veit, einbeitt sér að því síðustu
misserin að skafa af sér allar skoðan-
ir, þvegið hendur sínar af hverskyns
stefnufestu, losað sig við allar pólit-
ískar hugmyndir, að ekki sé nú
minnst á hugsjónir af einhveiju tagi.
^raog gengur |
Þessvegna var til alltof mikils
mælst að pólitískur oddviti þjóðar-
innar gerði grein fyrir helstu hugðar-
efnum sínum í eldhúsdagsumræðum
í síðustu viku. Davíð Oddsson hefur
nefnilega gert stefnuleysið að list-
formi og pólitískum lífsstíl. Með
góðum árangri.
Stefnuleysi Davíðs er öldungis
ekki nýtt af nálinni. Allt síðasta kjör-
tímabil var hann smámsaman að losa
sig við skoðanir á öllum sköpuðum
hlutum. Viðtöl í fjölmiðlum voru
meira og minna orðin almennar
fréttaskýringar, þarsem Davíð útlist-
aði hvaða mál væru efst á baugi
hvetju sinni: gerði grein fyrir ólíkum
skoðunum og velti fyrir sér mismun-
andi leiðum. Sjálfur tók forsætisráð-
herra ekki afstöðu - nema þegar
aumingja Frikki ætlaði að skattleggja
blaðburðarböm.
Stefnuleysi Davíðs var enganveg-
inn tilkomið af einu saman pólitísku
rænuleysi. Stefnuleysið var úthugs-
að. Ástæðan er einföld: það er ekki
hægt að vera ósammála manni sem
hefúr engar skoðanir.
Það var þannig ógjörningur að
vera ósammála kosningastefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Stefnan sú ama var
einfaldlega á þá leið, að móta bæri
stefnu í þeim stefnumálum þarsem
móta þyrfti stefnu...
Það gat því aldrei orðið langrar
stundar verk að steypa Sjálfstæðis-
flokki og Framsókn saman í ríkis-
stjórn. Framsóknarmenn gerðu að
vísu fyrir kosningar heiðarlega til-
raun til að telja fólki trú um að þeir
hefðu einarða og úthugsaða stefnu.
En mestu púðri eyddu þeir nú samt í
að sannfæra þjóðina um að Halldór
Ásgrfmsson yrði betri forsætisráð-
herra en Davíð Oddsson. Sá sami
Halldór hafði að vísu engin umsvif
þegar Davíð bauð honum uppí til sín,
en henti stefnuplöggunum rakleitt í
ruslafötuna og gaf sig á vald þægi-
legu og alltumlykjandi stefnuleysinu.
Það hefur hvort sem er aldrei farið
Framsókn vel að þykjast hafa vit á
pólitík.
En þótt Davíð Oddsson sé orðinn
mikill sérfræðingur í því að þurfa
ekki að taka afstöðu mun reyna vem-
lega á þessa stjómlist hans á næstu
mánuðum.
Davíð hefur að vísu aldrei haft
áhuga á landbúnaðarmálum, en á
næstu mánuðum þarf að taka afdrifa-
ríkar og rammpólitískar ákvarðanir
sem snerta íslenskan landbúnað og
lífsafkomu fjölda fólks í sve'itum
landsins. Halldór Blöndal föndraði í
fjögur ár í landbúnaðarráðuneytinu
án þess að gera nokkurn skapaðan
hlut. Á meðan lentu sauðfjárbændur
svo rækilega undir fátæktarmörkum
að fæstir eiga sér viðreisnar von.
Jafnvel gamalkunnar skuldbreytingar
og millifærslur framsóknarmanna
allra flokka duga ekki til að sópa
vandanum undir teppið.
Og hvað ætlar Davíð að gera í
sjávarútvegsmálum? Eða höfðu ekki
Vestfirðingar stór orð um það, að nú
á vorþinginu yrði mörkuð sú
splúnkunýja sjávarútvegsstefna sem
myndi gera þeim kleift að styðja rík-
isstjómina - þrátt fyrir yfirlýsingar
fyrir kosningar um að ekki kæmi til
greina að vinna með Framsókn.
Svo dæmi séu tekin.
Við getum auðvitað ekki vænst
þess að Davíð hafi nokkrar lausnir á
takteinum í þessum málum, fremur
en öðrum. En á næstunni mun hann
væntanlega flytja okkur nokkrar ítar-
legar fréttaskýringar um mismunandi
skoðanir á þessum málum, ólíkar út-
færslur og leiðir. Efalaust mun hann
lfka segja okkur að brýnt sé að stefna
sé mótuð.
Auðvitað er ekki hægt að álasa
Davíð fyrir að hafa hætt að hafa
skoðanir á pólitík: maðurinn er nú
einu sinni búinn að vera forsætisráð-
herra síðan hann var kjörinn á þing.
Geri aðrir betur.
En Davíð Oddsson vill vitaskuld
að nafn sitt geymist á spjöldum ís-
landssögunnar fyrir annað en að hafa
hangið í forsætisráðuneytinu í 8 ár.
Allir Miklir stjómmálamenn eiga sér
baráttumál: þeir standa fyrir eitthvað
alveg sérstakt, þeir brúa tímabil í
Sögunni. Er ekki Hannes Hafstein sá
pólitíkus sem Davíð hefur í mestum
hávegum? Hver man Bjöm Jónsson,
Einar Arnórsson, Jón Magnússon,
Steingrím Steinþórsson - svo nefndir
séu af handahófi nokkrir fyrrum for-
sætisráðherrar. Allir vom þeir lunkn-
ir pólitíkusar en því miður alveg
steingleymdir.
Og var þó Björn Jónsson enginn
stefnulaus aukvisi. Hann var áhuga-
maður um bindindi og vann þrek-
virki í pólitískri refskák þegar hon-
um tókst að láta þingið samþykkja
áfengisbann á íslandi.
Það væri kaldhæðnislegt ef Davíðs
Oddssonar yrði einungis minnst - í
neðanmálsgreinum - sem mesta pól-
itíska bindindismanns íslandssög-
unnar, forsætisráðherrans sem hafði
ekki skoðun á neinu nema húsbygg-
ingum.B
2 3 .
m a
9
Atburðir dagsins
1701 Kapteinn Kidd, einn
frægasti sjóræningi sögunnar,
hengdur í Lundúnum. 1934
Glæpahjúin Bonnie og Clyde
vegin í umsátri. Á fjórum árum
rændu þau ótal banka og bens-
ínstöðvar í suðvesturhluta
Bandaríkjanna og drápu 12
manns. 1960 Davíð Ben-Guri-
on forsætisráðherra fsraels til-
kynnir að stnðsglæpamaðurinn
Adolf Eichmann hafi verið
handsamaður í Argentínu.
1987 Hannes Hlífar Stefánsson
verður heimsmeistari sveina í
skák.
Afmælisbörn dagsins
Douglas Fairbanks bandarískur
kvikmyndaleikari, 1883. Joan
Collins bresk leikkona, 1933.
Anatoly Karpov FIDE-heims-
meistari f skák, 1951.
Annáisbrot dagsins
Lisbon í Portugal hrapaði, og
dóu þar undir mörg þúsund
manna, en áður en það skeði,
urðu þar margir fyrirburðir og
meðal annars, að jámnaglar,
grónir af ryði í tré, drógust þar
út sjálfkrafa.
Ölfusvatnsannáll, 1756.
Lokaorð dagsins
Ég er Heinrich Himmler.
Lokaorð nasistaforingjans
Himmlers sem fyrirfór sér
þennan dag fyrir 50 árum.
Málsháttur dagsins
Leynist straumur í lygnu vatni.
Ritlaun dagsins
Einu sinni hitti ég Stein [Stein-
arr] á götu og sagði við hann:
„Ég heyri að þið Ragnar í
Smára séuð eitthvað upp á
kant. Er það rétt?“
„Ja, - hann hefur ef til vill
ástæðu til þess,“ svaraði
Steinn, „því hann er nefnilega
búinn að borga mér þrisvar
sinnum fyrir næstu bók, sem ég
er enn ekki farinn að skrifa.“
Magnús Á. Árnason, Gamanþættir
af vinum mínum.
Orð dagsins
Sumarsins sólhœrði morgunn
kom sigrandi í ríkið inn.
Hann breyttist úr fjarlœgu bliki
í bjartasta daginn þinn.
Guðmundur Böðvarsson.
Skák dagsins
Nú lítum við á endalok viður-
eignar tveggja lítt þekktra rúss-
neskra meistara. Tunik hefur
hvftt og á leik gegn Cernjak.
Hvíta drottningin er fallin í val-
inn, en Tunik knýr fram sigur
ei að síður. Hvað gerir hvítur?
1. Hc51! Dd2 2. Bxf6 Dxf4+ 3.
Kgl De3+ 4. Khl Cernjak
gafst upp: hann getur ekki forð-
að því að hvítur veki upp
drottningu.