Alþýðublaðið - 23.05.1995, Síða 8
»> *
\WREVF/a/
4 - 8 tarþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Þriðjudagur 23. maí 1995
76. tölublað - 76. árgangur
» *
xmwnu7
4 - 8 farþega og hjólastólabflar
5 88 55 22
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
■ Formannskjörið
í Alþýðubandalaginu
Margrét og
Steingrímur
á opnum
fundi í kvöld
Stjóm Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi boðar til opins fundar með
Margréti Frúnannsdóttur og Stein-
grími J. Sigfússyni, lfambjóðendum í
formannskjöri Alþýðubandalagsins í
kvöld. Fundurinn verður haldinn í
Þinghól og hefst klukkan 20:30.
Innan stjómar Alþýðubandalagsins
í Kópavogi hefur að undanfömu verið
rætt um stöðu flokksins eftir úrslit
þingkosninganna og í frétt frá stjóm-
inni segir meðal annars: „í ljósi erfiðra
ytri aðstæðna er útkoma AlþýjSu-
bandalagsins viðunandi. Á hinn bóg-
inn er það ógnvænleg staðreynd að
Sjálfstæðisflokknum tókst að snúa
kosningunum sér í hag með því að
benda á að vinstri menn eru marg-
klofnir og hver höndin upp á móti
annarri. Alþýðubandalagið reyndi
vissulega fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar að koma á samíylkingu og all-
margir einstaklingar gengu til liðs við
flokkinn á þeim grundvelh. Hins veg-
ar gengu líka margir einstaklingar til
liðs við önnur framboð og það er
nokkuð lýsandi fyrir stöðu mála að
einstaklingar sem em eða hafa verið í
Alþýðubandalaginu em nú í fjómm
þingflokkum.“
Umræðuvaki á fundinum í kvöld
verður Valþór Hlöðversson og
Garðar Vilhjálmsson fundarstjóri.
■ Ámi Johnsen
þingmaður
Fær hálfa
ístvrk
Húsnæðismalastjórn hefur út-
hlutað styrkjum sem hún veitir ár-
lega til margvíslegrar tækniþróun-
ar og framfara í byggingar- og
húsnæðismálum. Samtals bárust
43 umsóknir og 25 þeirra fengu
styrki samtals að fjárhæð liðlega
20 milljónir króna.
Meðal þeirra sem fengu úthlutað
styrk er Árni Johnsen alþingis-
maður. Hann fékk hálfa milljón
króna styrk til að byggja íbúðar-
hús úr bjálkum í Vestmannaeyj-
um. Styrkurinn á að svara kostn-
aði við að reisa bjálkana í húsi
Árna.
Í rökstuðningi með styrkveiting-
unni segir: „Með notkun þessara
bjáika er talið að ekki þurfi frekari
einangrunar við í bjálkahúsum.
Hugsanlegt er, að þessi aðferð geti
komið að gagni annars staðar á
landinu, þar sem jarðhiti er tak-
markaður.“
■ Tekið er að hitna í kolunum í formannsslagnum í Alþýðubandalaginu og á meðan fráfarandi
formaður, Ólafur Ragnar Grímsson, lýsir yfir efasemdum sínum með núverandi útafskipta-
reglu brýna frambjóðendurnirtveir, Steingrímur J. Sigfússon og Margrét Frímannsdóttir,
stuðningsmenn sína til átaka og leita hófanna víða með stuðning. Alþýðublaðid heyrði af því til-
efni hljóðið í nokkrum forystumönnum flokksins í gær
Formaður VMSÍ hallast
• /"'• *
að lyiargréti, en forseti
ASI styður Steingrím
Benedikt Davíðsson. Það er engin
spurning að af þeim tveimur myndi
ég hiklaust kjósa Steingrím J.
★ Jóhann Geirdal bæjar-
fuljtrúi í „Suðurnesjabæ"
„í stökustu vand-
ræðum með að
gera upp hug
minn"
„Ég hef nú lítið verið með hugann
við þennan formannsslag, en mér
finnst í sjálfú sér ekkert að því að fá
smá spennu í þetta ef vel er að staðið.
Ég treysti þeim báðum ágætlega til að
sinna þessu starfi. Meðan þetta for-
mannskjör verður ekki að leðjuslag,
einsog Steingrímur tók til orða, og
helst á eðlilegum nótum þá er þetta
allt í góðu lagi og hleypir lífi í umræð-
una,“ sagði Jóhann Geirdal, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins í nafn-
lausa sveitarfélaginu á Suðumesjum,
„Suðumesjabæ“.
Jóhann sagðist enn ekki hafa gert
upp hug sinn, en væri þó sannfærður
um að bæði yrðu góðir formenn., J>að
er eiginlega sama hvort hreppir hnoss-
ið uppá það að gera. Ég á eftir að fara
ofan í þessi mál og ræða þau við
stuðningsmenn mína og samstarfs-
fólk.“
Og Jóhann á erfitt með að velja á
milli Margrétar og Steingríms enn
sem komið er. ,J>au em bæði pólitík-
usar af því kalíberi að þau eiga eftir að
eiga stuðning vísan um land allt og
Margrét Frímannsdóttir. Enn bæt-
ist í stuðningsmannahóp þing-
mannsins af Suðurlandi.
því óhægt um vik að spá í svæðaskipt-
ingu milli þeirra. En mér líkar per-
sónulega vel við þau bæði og á í stök-
ustu vandræðum með að gera upp hug
minn.“
★ Benedikt Davíðsson
forseti ASÍ
„Enginn vafi, ég
myndi hiklaust
kjósa Steingrím"
„Ég hef nú lítið verið að fylgjast
með þessu málum innan flokksins.
Mér finnst nú nokkuð vera þjófst-
artað með því að fara ræða þetta
svona fljótt. Ég held að það sé ekki
fyrr en einhvem tímann í haust sem
framboðsfresturinn rennur út,“
sagði Benedikt Davíðsson, forseti
Alþýðusambands íslands.
„Én ég hef auðvitað skoðun á
þessu og hef gert upp hug minn
hvað varðar þessi tvö sem nú í
framboði eru. Það er engin spurn-
ing, að af þeim tveimur sem nú
þegar eru komin í framboð myndi
ég hiklaust kjósa Steingrím J. Sig-
fússon. Á því leikur enginn vafi í
mínum huga.“ Benedikt var spurður
hvort það væri gott Alþýðubanda-
lagið að fá upp slag sem þennan.
„Eg veit það svosem ekki, en finnst
vera óþarflega langur aðdragandi
Steingrímur. Hversvegna lýsa
norðanmenn „á hans landssvæði"
ekki yfir afdráttarlausum stuðn-
ingi?
að honum. Þetta verður slagur
framá haust.“
★ Kristján Ásgeirsson
bæjarfulltrúi á Húsavík
„Eg hef enga
ákvörðun tekið
um hvort þeirra
ég styð"
„Við héma fyrir norðan emm lít-
ið farnir að hugsa um þessi mál.
Þetta er svo ágætt fólk sem er í
framboði. Mér líst ágætlega á þenn-
an slag og þau tvö eru sómamann-
eskjur," sagði Kristján Ásgeirs-
son, bæjarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins á Húsavík.
Kristján sagðist aðspurður ekki
vera búinn að gera upp hug sinn.
„Nei, nei, nei. Það er alls ekki tíma-
bært. Við spáum í þetta frameftir
sumri, en við höfum engar áhyggj-
ur. Það em svo góðir kostir í boði.“
En afhverju skyldu Húsvíkingar
ekki hafa gert upp hug sinn, Stein-
grímur er jú af þeirra landssvæði?
„Þetta er auðvitað ágætur maður, af
okkar svæði og hann er svosem
alltaf minn maður, en ég hef enga
ákvörðun tekið um hvort þeirra ég
styð. Við erum ekkert að sprengja
oldcur á svona smámunum. Þetta er
hið besta mál alltsaman.“
Björn Grétar Sveinsson. Ég hallast
nú meira í kvenlegginn i þessu til-
felli: Margréti Frímannsdóttur.
★ Bjöm Grétar Sveinsson
formaður VMSÍ
„Ég hallast nú-
meira í kvenlegg-
inn í þessu til-
felli"
„Mér líst bara vel á þennan for-
mannsslag. Það verður mikið fjör í
þessu og færir heilmikið líf í félögin
útum allt land. Kosningabaráttan á
vitaskuld eftir að taka marga mán-
uði, en síðan verður kosið og annað
hvort hreppir hnossið," sagði Björn
Grétar Sveinsson formaður Verka-
mannasambands íslands.
Björn Grétar var spurður hvort
það væri hollt fyrir lýðræðið í Al-
þýðubandalaginu að fá formanns-
kosningar sem þessar. „Það var tek-
in um ákvörðun í flokknum um að
svona ætti að fara að og við að espa
upp lýðræðið og það hlýtur náttúr-
lega alltsaman að vera mjög gott.“
En er Bjöm Grétar búinn að gera
upp.hug sinn? „Já. Ég held ég sé al-
veg að verða búinn að því; það fer
allavega að nálgast það. Ég hallast
nú meira í kvenlegginn í þessu til-
felli: Margréti Frímannsdóttur.
Kvenleggurinn er einfaldlega sterk-
ur í mér núna í augnablikinu. En
þetta verður annars bara að koma í
ljós.“
Vinningstölur
20. maí 1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
U 5af5 0 2.003.130
3+4af5 6 53.710
3 4af 5 75 7.410
IH 3 af 5 2.833 450
Aðaltölur:
Heildarupphæó þessa viku:
kr. 4.155.990
UPPLVSINGAR. SÍMSVARIS1- 68 15 11
LUKKULlNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
Víf og villt veisluhald
blívur í boltanum
Franska landsliðið sigraði á heims-
meistaramótinu í handknattleik
sem lauk á sunnudaginn og unnu
að minnsta kosti hug og hjörtu
betri helmings hinnar annars HM-
niðurlægðu íslensku þjóðar í leið-
inni. Þannig háttaði allavega til á
Kaffi Reykjavík síðastliðið föstu-
dagskvöld þarsem hnípnir islenskir
karlmenn gengu framá stóran
meirihluta franska liðsins glað-
beitta útá galeiðunni og gjörsam-
lega umvafna aðdáunarfultu kven-
fólki. Þar var eitthvað annað en
edrúmennskan og bingóáhuginn á
ferðinni og hvorki prestur né sál-
fræðingur í augsýn... A-mynd: E.ÓI.