Alþýðublaðið - 31.05.1995, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ1995
m e n n
■ Clint Eastwood er 65 ára í dag. Því fagnar Jakob Bjarnar Grétarsson heilshugar
og hafði samband við nokkra af handahófi sem þóttu líklegir til að vera samstiga
honum í skilyrðislausri aðdáun á þessum mikla meistara. Það gat ekki klikkað
ahead
Clint er orðinn 65 ára en hann gæti þess vegna verið 165 ára. Það er af því
að hann er eilífur. í honum kristallast hið grjótharða eðli karldýrsins. Eitt-
hvað sem menn vilja miða sig við og heldur í þeim lífinu. Ef tilvistarspurn-
ingarnar verða of þungbærar þá er rétt að hugsa til Clints. Hann stendur
fyrir það að komast af: Að berjast fyrir lífinu af fullkomnu skeytingarleysi
um það hvernig það fer með þig sem manneskju. Enda skiptir manneskjan í
sjálfu sér litlu máli þegar hún er dauð. Ef einhver gæti leikið Bjart í Sumar-
húsum þá er það Clint. Ekkert fær honum haggað.
Dýrlingar stæla ekki aðra
Valdimar Öm Flygenring, leikari
og trúbador: „Clint er mikili minimal-
isti í leik. Hann er eins og fljót sem
streymir lygnt áfram en er alltaf jafn
þungt og mikið. Þetta er engin lækjar-
spræna. Clint ber af öllum sem þessi
hrái einfaldi harðjaxl. Honum hefur
tekist að túlka hann öðrum mönnum
betur. Charles Bronson náði, þegar
hann var upp á sitt besta, góðum tök-
um á því lflca. En Clint er toppurinn:
Dirty Harry og Magnuminn: Go ahead
punk. Make my day! Þegar ég heyrði
setninguna fannst mér þetta vera one-
liner ársins. Vissulega setning sem
gæti verið sú síðasta sem einhver
heyrði á ævinni. Og þá eru Dollara-
myndimar ekki síðri. Þær fylgdu
manni í gegnum æskuna og það má
segja að þær hafi orðið til þess að ég
tók ákvörðun um að verða leikari.
Ég veit ekki hvort að það sé vegna
þess að ég er að réttlæta það fyrir
sjáifum mér að ég sé að eldast en það
sem hefur gerst með Clint og aldurinn
er að hans eigin karakter fer að krist-
allast. Hann hættir að vera þessi töffari
eða gæi sem er að rembast (eða öllu
heldur sem flestir halda að sé að
rembast - hann bara er svona) og
verður algjörlega hann sjálfur. Það er
engin tilviljun að hann er að leika í
Brýmar íMadisonsýslu núna. Einmitt
þennan ljósmyndara sem stöðugt er að
segja við sjálfan sig: Ég er ein af þess-
um manngerðum sem er að hverfa.
Það er reyndar furðulegt að hafa
Meryl Streep í þessu en ég óttast ekki
um Clint. Hann er gegnumheill. Það
má eiginlega segja að hann sé kominn
í dýrfingatölu. Og þá sem hinn eini
sanni dýrlingur á eigin forsendum.
Dýrlingar geta ekki verið að stæla
neina aðra. Þið skilið kveðju til hans
frá mér.
Clint er stór partur af mínu uppeldi.
Hann á sinn þátt í að hafa komið mér
til manns og á sjálfsagt efitir að vaxa
innra með mér. Alveg á vissu plani.
Hann er mjög sérhæfður en það er ein-
mitt í sérhæfmgunni sem snilldin
kristaflast. Að vinna á því sviði sem
menn eru bestir. Þá fyrst ná þeir tök-
um á hinum æðsta sannleik og breyt-
ast í dýrlinga."
Engar sætar í Clint-myndum
Egill Helgason, kvikmyndagagn-
rýnandi: „Það er einkennilegt með
Clint að hann varð fyrst stjama í Evr-
ópu, og svo í Ameríku. ítalinn Sergio
Leone, sem var höfúndur spaghett-
ívestranna þar sem Clint varð ffægur,
var einhvemtíma spurður af því hvað
hann hefði séð í Clint sem enginn í
Ameríku hafði komið auga á. Leone
sagði eitthvað á þessa leið: Þegar
Michelangelo var spurður að því
að konur í myndum Clints em nánast
undantekningafaust í ljótu deifdinni.
Lfldegt telst að konur séu slflc aukaat-
riði að það er tafið ástæðulaust að hafa
þær með, okkur strákunum til tmflun-
Sjón Þetta er Messíasinn
og sem alltaf er mættur
með sitt logandi sverð.
A-mynd: E.ÓI.
Svo drap hann þá alla
Bjöm Jörundur, poppari: „Cfint
kenndi mér að skjóta. Hann var meg-
inuppistaða allra minna byssuleikja og
augnaráðsins sem ég kom með inn úr
byssó í drekkutímann. Uppáhalds-
myndin mín með Clint er lfldega Un-
forgiven. Þá er hann að leika mann
mjög illa farinn af byssuleik. Byssóið
nær hámarki í þeirri mynd. Það er al-
varlegt byssó sem er farið að öðlast
allt aðra og dýpri merkingu heldur en
nokkum tíma í upphafi þegar þetta
snerist bara um að drepa. Enda hlífði
hann þeim alveg þangað til á síðustu
mínútunum. Þá var ekki hjá því kom-
ist að gera eitthvað í málinu og þá
Egill Helgason Leikarar
eins og Robert DeNiro
leggja allt uppúr því að
sýna tilfinningar, Clint er
hins vegar geispandi yfir
þessu öllu. A-mynd: E.ÓI.
Valdimar Örn Flygen-
ring Vissulega setning
sem gæti verið sú síðasta
sem einhver heyrði á
ævinni. A-mynd: E.ÓI.
hvað hann hefði séð í marmarablokk-
inni sem hann valdi úr hundrað öðmm
marmarablokkum, svaraði hann: Ég sá
Moses! Ég mundi gefa sama svar við
spumingunni, bara öfúgt, sagði Le-
one: Það sem ég sá í Eastwood var
marmari, ekkert annað.
Leone var svo spurður að því
hvemig hann myndi bera saman Clint
og leikara á borð við Robert DeNiro.
Leone svaraði að þeir tilheyrðu ekki
einu sinni sömu atvinnugrein. Það
væri eins og ekkert væri einfaldara
fyrir DeNiro en að klæða sig í nýja og
nýja persónuleika, hann gæti skipt um
hlutverk eins og aðrir um skyrtu. Clint
klæddi sig hins vegar bara í gömlu
brynjuna og setti hlífina fyrir andlitið
á sér þannig að skrölti í. Það sé einmitt
þessi andlitshh'f sem er lykillinn að
persónunni hans. Hann gengur um
eins og hálfsofandi í kúlnahríð og
sprengjuregni og breytist aldrei neitt -
hann er alltaf sama marmarablokkin.
Þannig er Robert DeNiro leikari en
Clint er fyrst og ffemst stjama. Leikar-
ar eins og Robert DeNiro leggja aflt
uppúr því að sýna tilfmningar, Clint er
hins vegar geispandi yfir þessu öllu.
Eitt í viðbót. Ég hef tekið eftir því
Hrafn Gunnlaugsson
Ég sá að honum leið illa í
þessum búningi en ég
var alveg steinhissa á því
hvað hann varð í raun og
veru kvenlegur. A-mynd: E.ÓI.
Björn Jörundur Hann
var meginuppistaða allra
minna byssuleikja og
augnaráðsins sem ég
kom með inn úr byssó í
drekkutímann. A-mynd: E.ÓI.
klikkaði hann ekki. Enda var hann bú-
inn að gefa út yfirlýsingar um að hann
hafi drepið, dýr, hunda, konur og böm
og bara allt sem hreyfðist. Svo drap
hann þá alla. Það er rosalegt byssó.
Núna vil ég fara að sjá hann sem
Bandaríkjaforseta. Hann hefur mikla
reynslu af stjómunarstörfum, sem til
dæmis Ronnie hafði ekki, leikstýrt
sínum kvikmyndum og verið borgar-
stjóri."
Sendiboðinn hefur talað
Sigurjón Birgir Sigurðsson
(Sjón), rithöfúndur: ,,Ég er einlægur
Clint-aðdáandi. Sam Shepard sagði, í
blaðaviðtali fyrir ekki Iöngu þegar
hann var spurður hvað maður þyrfti að
hafa til að vera rithöfundur, að það
væri eiginlega bara eitt og það er að
geta verið einn. í Clint er þessi of-
boðsfegi styrkur og þessi gífurlegi
hæfileiki að vera einn og vinna verkin.
Ætli það sé ekki þetta sem snertir við
mér og ég finn mig í.
Ferill Chnts er ákaflega merkilegur.
Hann kemur fyrst fram á sjónarsviðið
sem hið fjallmyndarlega ungmenni í
Rawhide-sjónvarpsþdttunum og Doll-
aramyndimar em í raun h'til guðspjöll:
Að koma upp í gegnum spaghett-
ívestrann, sem var deconstruction á
vestranum ameríska, er meira en að
segja það. Clint er þátttakandi í því
með Sergio Leone sem hefði sjálfsagt
aldrei getað gert þetta án hans: Að
taka vestrann og skilgreina hann al-
gjörlega upp á nýtt; sýna flórinn og
það allt. Fyrir utan að þessar myndir
em mýtólógískar. Þessi þögn sem um-
lykur Clint þar til hann tekur út úr sér
vindlinginn og hás röddin segir eitt-
hvað sem síðar varð: Go ahead, punk.
Make my day! Þá veit maður að
sendiboðinn hefur talað.
Það er allt aðdáunarvert við þennan
mann og ég hef snúið nokkmm kon-
um til Clint-trúar. (Ha???) Já, já. Þær
sem héldu að þetta væm bara byssu-
myndir fyrir stráka. En þama koma
fyrir gallharðar og fínar kvenhetjur.
Sandra Locke er til dæmis með hon-
um í mörgum myndum og stendur sig
vel. En þetta sýnir fyrst og fremst að
sendiboðinn funkerar á öllum stigum
samfélagsins. Hann hfir á öllum tím-
um við allar aðstæður. Þetta er Messí-
asinn og sem alltaf er mættur með sitt
logandi sverð.
Clint er djarfur og spennandi
kvikmyndahöfundur. Til dæmis
hvemig þessi ást hans á jass-tónlist
varð til þess að tónhst í myndum á
borð við Dirty Harry er útfríkað jassf-
unk sem gengur gegn öllu sem hét
kvikmyndatónhst á þeim tíma.
Hann nær fram allt öðrum áhrifúm en
aðrir. Svo kemur hann fram sem hinn
mikli sögumaður í The Unforgiven.
Hann kaupir handritið einhveijum tíu
ámm áður en hann gerir myndina.
Svo bíður hann rólegur eftir því að
hann verði eldri og hrukkóttari og
veðurbarðari allur til að passa í hlut-
verkið. Og þegar menn em með
svona langtímaverkefni serrí ganga
fullkomlega upp er ekki annað hægt
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐK)
5
m e n n
en að stilla þeim við hhð þeirra
stærstu á þessari öld.“
Ríður burt á múlasna
Hrafn Gunnlaugsson, kvikmynda-
leikstjóri: „Chnt er andhetjan sem
Sergio Leone bjó til. Maðurinn sem
ríður burt á múlasna þegar hann er bú-
inn að skjóta alla í þorpinu. Ég man
fyrst eftir honum í Hnefafylli afdoll-
urum, ég sá aldrei þessa kúrekaþætti,
nema einhver brot, en þar er hann
mjög hlægilegur með bamarassaand-
lit. Leone hefur haft mikil áhrif á mig
rétt eins og Dostojevsky í bókmennt-
unum. Það er kannski fyrst og fremst
ffásagnatækni og týpumar sem hann
býr tíl. Andhetjan hefur gengið aftur í
Morgan Kane og öllum skohanum -
búið að reyna að stæla þetta alveg
endalaust. Svo fór Clint að leikstýra
sjálfur og gerði margar vondar mynd-
ir. En í síðustu myndinni var eins og
það kæmi eitthvað. Þar held ég að
hann hafi hreinlega farið í skóla hjá
sínum gamla meistara Leone því Un-
forgiven er að mörgu leyti mjög góð
mynd. í henni er mjög svipuð ffá-
sagnatækni og hjá Leone ef menn hafa
stúderað myndmál. Karakteruppbygg-
ingin er mjög lflc. Hann er að vitna í
Blondie - manninn án nafns. Þessi
maður er orðinn gamall og dettur af
baki. Hann á að hafa verið mikill
byssumaður og vígamaður en liggur
þama með svínum. Myndin hefði
aldrei náð að verða það sem hún er
nema vegna þess að menn þekkja hin-
ar myndimar. Hún nýtur þess að
byggja á goðsögninni.
Eg sá Eastwood í einhverri lög-
reglumynd þar sem hann fór í kven-
mannsföt. Hann þurfti að dulbúa sig
sem kvenmann út af eiturlyfjasölum
eða bófum. Þar þótti mér honum tak-
ast nokkuð vel upp. Ég sá að honum
leið illa í þessum búningi en ég var al-
veg steinhissa á því hvað hann varð í
raun og vem kvenlegur. Þetta móment
þekkjum við. Hetjan þarf að bregða
sér í fáránleikabúning. Eins og Gísli
Súrsson þegar hann leikur Ingjalds-
fíflið til að sleppa. Það er þekkt bragð
að láta hetjuna leika fífl á ögurstundu
eða bregða sér í búning sem er and-
stæður eðh hetjunnar. Þama þurfti
hörkutólið sem sagt að leika gleði-
konu.
Leone gerir hann mjög mýtólógísk-
an. Ég held að leikstjórar búi til leik-
stjóra. Þetta verður eins og kóral-
vinnsla. í sama stfl: Liv Ullman er
farin að leikstýra sem hún hefði aldrei
gert nema af því að Ingmar Bergman
leikstýrði henni í upphafi. Þessar
myndir hennar em ekki nema dauft
bergmál af myndunum hans. Eins
með Eastwood en þar sem honum
tekst best upp verður þetta nokkuð
skýrt bergmál. Leone er einn af þess-
um klassfsku stóm kvikmyndaleik-
stjórum og það væri absúrd ef East-
wood vitnaði ekki í hann enda getur
hann ekki annað. Hann tilheyrir þess-
ari goðsögn." ■